Feykir


Feykir - 15.12.2021, Qupperneq 15

Feykir - 15.12.2021, Qupperneq 15
48/2021 15 staðið yfir í ríflega aldarfjórðung og það er næsta víst að aldrei hefur verið tekin saman jafn viða- mikil og ítarleg byggðasaga. Einstakt verk!“ Ómar Bragi Stefánsson SAUÐÁRKRÓKI Ómar Bragi hefur glatt og sameinað Skagfirðinga nær og fjær með Facebook-síðu sinni Skín við sólu. Hópinn mynda 5.700 Skagfirðingar sem deila myndum og sögum af Skagafirði á jákvæðan hátt. „Þetta hefur lyft umræðu á jákvæðara plan, brottfluttir fengið tækifæri til að minn- ast æskuslóða og vettvangur fyrir alla til að deila því góða sem er að gerast. Þetta framtak er til fyrirmyndar og ættu fleiri svæði á NV-landi að gera hið sama. Síðan er ómetanleg heimild og hefur tengt marga á tímum sem hefur jafnan verið mörgum erfiður.“ Sigurjón H. Sigurbjörnsson GARÐI HEGRANESI Sigurjón lenti í bílslysi í byrjun september með þeim afleiðingum að hann varð fyrir hluta- skaða og er á Grensás núna í endurhæfingu. „Hann á þessa tilnefningu skilið vegna þess hve jákvæður og duglegur hann er eftir slysið og staðráðin í því að ganga á ný. Að vera bara 17 ára og lenda í svona alvarlegu slysi og öllu kippt undan þér, lokaður inn á Grensás þar sem Covid er ekki að hjálpa til og engin má koma í heimsókn núna. Hann er samt alltaf brosandi og jákvæður.“ - - - - - Tökum þátt í skemmtilegri kosningu og kjósum mann ársins á Norðurlandi vestra! Kosningin fer fram líkt og vanalega á vefnum góða – Feykir.is Kjörið hefst á föstudag Tilnefningar til Manns ársins 2021 á Norðurlandi vestra | palli@feykir.is Eins og undanfarin ár stendur Feykir fyrir kjöri á manni ársins á Norðurlandi vestra. Gefst íbúum á svæðinu og öðrum lesend- um Feykis kostur á að velja úr hópi þeirra sem tilnefndir voru af lesendum. Í þetta skiptið bárust sjö tilnefningar sem teknar voru til greina. Hægt verður að greiða atkvæði á vefnum Feykir.is eða senda atkvæði í pósti á: Feykir, Borgarflöt 1, 550 Sauðárkróki. Kosningin hefst kl. 13 föstudaginn, 17. desember og lýkur kl. 12 á hádegi á nýársdag, 1. janúar. Tilnefndir eru, í stafrófsröð: Auðunn Blöndal BROTTFLUTTUR KRÓKSARI Fjölvarparinn og skemmtikrafturinn Auðunn Blöndal hefur látið hendur standa fram úr stuttermum í ár. Í byrjun árs sýndi Stöð2 frábæra þætti hans um íslenskt tónlistar- fólk og nú í haust var frumsýnd bíómyndin Leynilögga sem byggð er hugmynd hans og hann leikur aðalhlutverkið í. Myndin sló óvænt í gegn á heimsvísu og gekk vel á Íslandi. „Auddi er einn vinsælasti útvarps-, hlaðvarps- og sjónvarps- maður landsins og er ófeiminn við að minna alla á að hann er af Króknum.“ Árni Björn Björnsson SAUÐÁRKRÓKI Árni Björn er eigandi veitingastaðarins Hard Wok Cafe á Aðalgötunni á Sauðárkróki, ásamt Ragnheiði Ástu Jóhannsdóttur konu sinni, en þau hafa verið ósínk að rétta fram hjálparhönd við ýmis málefni og styðja við það sem er að gerast í samfélaginu. „Til dæmis karfan, stuðningur við fjölskyldu Erlu og svo ótalmargt annað. Þau gera mjög mikið fyrir okkar samfélag og alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd.“ Bóthildur Halldórsdóttir BLÖNDUÓSI Bóta, eins og hún er kölluð, heldri borgari á Blönduósi, er einstök að flestu leyti. „Hún er einfaldlega alltaf að hjálpa öðrum, hvort heldur það er að heimsækja þá sem eru einmanna á sjúkrastofnun eða út í samfélaginu, skutla ef þarf og eða fyrir aðra, dreifir gleði hvar sem hún fer og ætlast aldrei til neins í staðin. Æðrulaus kona sem man tímana tvenna og kallar ekki allt „ömmu“ sína. Slíkar hvunndagshetjur fá sjaldan eða aldrei viðkenningu en ættu þó það svo margfaldlega skilið.“ Gústav F. Bentsson STEINI REYKJASTRÖND Síðastliðinn apríl hætti Gústav störfum hjá svf. Skagafirði eftir 33 ára starf og byrjaði að götusópa fyrir sveitar- félagið, stofnanir og fyrir- tæki. „Hann ver mest öllum sínum tíma í að halda götum í Skagafirði í góðu standi en einnig sýgur hann upp úr niðurföllum í sveitarfélag- inu og hugsar sífellt um aðra. Hörkuduglegur maður sem alltaf er reiðubúinn að hjálpa vinum og vandamönnum.“ Hjalti Pálsson SAUÐÁRKRÓKI Hjalti er ritstjóri Byggða- sögu Skagafjarðar. „Hann á skilið að vera valinn Norðvestlendingur ársins 2021 en á því ári kom út tíunda og síðasta bindið í ritröðinni. Vinnan hefur Maður ársins á Norðurlandi vestra árið 2020 var Bryndís Rut Haralds- dóttir, fyrirliði kvennaliðs Tindastóls sem sigraði Lengjudeild kvenna með miklum glæsibrag það sumarið. Þar fór Bryndís fyrir sínu liði í hjarta varnarinnar sem fékk aðeins á sig sjö mörk í 17 leikjum. Í tilnefningu segir að Bryndís Rut hafi verið jákvæð og hugrökk, stjórnað sínu liði með góðu fordæmi og talanda og vart stigið feilspor á vellinum. Hún er fyrsti fyrirliði knattspyrnuliðs í sögu Tindastóls sem leiðir lið sitt upp í efstu deild. /PF Bryndís Rut Haraldsdóttir Varmahlíð Maður ársins á Norðurlandi vestra 2020 28. Jólamót Molduxa í körfubolta verður ekki haldið annan í jólum, ekki frekar en síðast, útaf … æji þú veist! En! Eins og í fyrra ætlum við að halda draugamót þar sem enginn snertir bolta en styður samt við körfuboltann á Króknum. Þar sem allur ágóði af Jólamótum Molduxa hefur runnið til körfuknattleiksdeildar Tindastóls og er stór liður í fjáröflun deildarinnar, munu Molduxar, líkt og um seinustu jól, bjóða liðum að skrá sig í leik og njóta um leið forgangs á þátttöku í Jólamóti Molduxa 2022. Mun nafn liðsins fara í pott (á Fésbókarsíðu klúbbsins) og kl. 18 á annan í jólum verður eitt lið dregið úr pottinum og hlýtur flat- bökuveislu fyrir tíu manns á Hard Wok Cafe, og gullmedalíur að launum, sem væntanlega verða safngripir framtíðarinnar. Gjald á hvert lið er kr. 20.000. Einstaklingar eru einnig hvattir til að skrá sig og fara þeir í annan pott sem dregið verður úr og fá útdregnir óvæntan glaðning frá Sauðá, Lemon og N1. Skráning á hvern einstakling er kr. 2000. Greitt skal fyrir 20. desember inn á reikning 0310-26-006000, kt. 590118-0600. ATH. ef greiðsla er ekki komin fyrir þann tíma verður viðkomandi skráning ekki tekin gild. Molduxar heita því að skrá a.m.k. tíu lið, en þú? Skráning á netfangið pilli@simnet.is. Upplýsingar á Fésbókarsíðu Molduxa Fróðleikur úr fjöllunum Hvammshlíðardagatal Enn á ný má finna hið skemmtilega dagatal Karólínu í Hvammshlíð sem, auk þess að halda manni við réttu dagana, er jafnan fræðandi og prýtt fjölda mynda. „Núverandi útgáfa daga- talsins býður aftur upp á viðauka á sér blöðum með alls konar aukaupplýsingar. Blaðsíðurnar fyrir ofan hverja mánaðarsíðu inni- halda að þessu sinni aðallega sögulegt myndefni, sérstak- lega efni tengt kindum. Gamlar myndir eru ómetan- legur fjársjóður sem talar sitt eigið tungumál og sem segir sögur, það þarf bara að gefa sér góðan tíma til að skoða og „hlusta“. Textarnir eru þess vegna stuttir að þessu sinni. Þar að auki kynni ég nokkra sauðfjárliti og -litaafbrigði sem vantaði í fyrri útgáfunni og er að gefa smá yfirlit yfir fjöl- breytni ullarinnar íslensku sauðkindarinnar.“ Hægt er að nálgast daga- talið í Skagfirðingabúð, Líf- landi Blönduósi, Alþýðulist Varmahlíð, Kaupfélagi Borgfirðinga, Fóðurblönd- unni Selfossi, Valgerði Auð- unsdóttur Húsatóftum og svo er til „afhendingar- staður“ í Reykjavík, segir Karólína sem hvetur áhuga- sama til að hafa samband sem ekki geta krækt í dagatalið á fyrrnefndum stöðum. /PF

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.