Feykir - 15.12.2021, Qupperneq 23
48/2021 23
Á dögunum var kunngjört hvaða ung-
menni voru valin í U21-landsliðshóp
Landssambands Hestamann fyrir árið
2022. Tvö af þeim sextán sem þóttu
verðskulda veru í þeim hópi búa á
Norðurlandi vestra, Guðmar Hólm
Ísólfsson Líndal, úr Hestamannafélaginu
Þyt í Húnaþingi vestra, og Þórgunnur
Þórarinsdóttir, Skagfirðingi.
Guðmar Líndal er fæddur árið 2006,
býr á Lækjamóti 2 með foreldrum
sínum, Ísólfi Líndal Þórissyni og
Vigdís Gunnarsdóttir. Hann á ekki
langt að sækja hestaáhugann þar sem
lífið snýst um hross og allar hliðar
hestamennskunnar á Lækjamóti þar
sem hann hefur að mestu alist upp
en einnig bjó hann um tíma á Hólum
( ÍÞRÓTTAGARPURINN ) palli@feykir.is
Undirbýr hestana fyrir
næsta keppnistímabil
Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal | Hestamannafélagið Þytur
Guðmar og Freyðir frá Leysingjastöðum í úrslitum á Fjórðungsmóti Vesturlands í sumar.
MYND: KOLBRÚN GRÉTARSDÓTTIR
í Hjaltadal. Guðmar er íþróttagarpur
Feykis að þessu sinni.
Hvernig er tilfinningin að hafa verið
valin í U21-landsliðshóp LH 2022?
-Tilfinningin er ólýsanleg, ég hef viljað
komst í landsliðið fyrir Íslands hönd
síðan pabbi minn fór með landsliðinu á
Norðurlandamót í Noregi árið 2016.
Segðu mér frá keppnum sumarsins
og hvernig hafa þær gengið hjá þér?
-Stærstu mót sumarsins voru Fjórð-
ungsmót Vesturlands og Íslandsmót.
Það gekk vel, sumt gekk betur en ég
bjóst við en annað gekk ekki alveg upp.
Helstu íþróttaafrek: Þrefaldur Íslands-
meistari í hestaíþróttum árið 2018 og
einnig 2019. Ég hef tvisvar sinnum unnið
Fjórðungsmót, árin 2017 í barnaflokki og
árið 2021 í unglingaflokki, og ég sigraði
einnig í tölti á Fjórðungsmóti 2021.
Skemmtilegasta augnablikið: -Að vinna
Fjórðungsmót í unglingaflokki 2021.
Neyðarlegasta atvikið: -Ég reyni að hafa
ekki áhyggjur af þannig málum.
Einhver sérviska eða hjátrú? -Ég verð
alltaf að pissa áður en ég keppi.
Uppáhalds íþróttamaður? -Allir sem
koma heiðarlega fram inni á vellinum
sem og utan hans.
Ef þú mættir velja þér andstæðing,
hver myndi það vera og í hvaða grein
mynduð þið spreyta ykkur? -Ísak bróðir
minn væri andstæðingurinn, ég myndi
keppa á móti honum í frisbígolfi.
Hvernig myndir þú lýsa þeirri rimmu?
-Við verðum báðir brjálaðir í keppnis-
skapi og myndum hætta.
Helsta afrek fyrir utan íþróttirnar? -Ég
fór í fyrstu fimm daga göngur á hesti upp
á miðhálendi Íslands í haust.
Lífsmottó: -Stefndu hátt en lifðu samt í
núinu.
Helsta fyrirmynd í lífinu: -Pabbi og
mamma, vegna þess að þau gera allt til
þess að mér líði vel og gangi vel í lífinu.
Hvað er verið að gera þessa dagana?
-Undirbúa mig og hestana fyrir næsta
keppnistímabil sem byrjar í febrúar.
Hvað er framundan? -Meistaradeild
Æskunnar í hestaíþróttum.
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri?
Followoið mig (gudmarisolfsson) og
Sindrastaði á samfélagsmiðlum.