Morgunblaðið - 11.04.2022, Side 1

Morgunblaðið - 11.04.2022, Side 1
M Á N U D A G U R 1 1. A P R Í L 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 85. tölublað . 110. árgangur . FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | www.fi.is Sjáumst á fjöllum VALUR DEILDAR- MEISTARI VAKÚMPÖKK- UÐ FÖT UNDIR BANKASTRÆTI BERST GEGN VIRKJUN SVO LENGI SEM LIFIR NÚLLIÐ GALLERÍ, 4 SIGÞRÚÐUR JÓNS 10HANDKNATTLEIKUR 26 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Ég var ekki hlynnt þeirri aðferða- fræði sem varð ofan á við söluna á bréfum í Íslandsbanka. Vildi al- mennt útboð en ekki að bréfin yrðu seld til valins hóps fjárfesta. Þessum sjónarmiðum mínum kom ég skýrt á framfæri í aðdraganda útboðsins,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, viðskipta- ráðherra og varaformaður Fram- sóknarflokks, í samtali við Morgun- blaðið. Vanda þurfti til verka Mikil umræða á sér nú stað um sölu á 22,5% hlut ríkisins í Íslands- banka sem gekk í gegn á dögunum. Selt var hlutafé fyrir 450 millj. kr. að nafnvirði á genginu 119. Nokkrir þeirra fjárfesta sem áttu þess kost að kaupa bréf hafa þegar selt þau á hærra gengi og innleyst hagnað með því móti. Hverjir nákvæmlega áttu þess kost að kaupa hlutafé hefur verið gagn- rýnt, en sú leið sem farin var, var til- laga Bankasýslu ríksins. Skiptar skoðanir eru einnig um málið innan ríkisstjórnarflokkanna. Lilja Alfreðsdóttir minnir á að Ís- landsbanki hafi á sínum tíma komið í hlut ríkissjóðs Íslands sem partur af stöðugleikaframlögunum svonefndu, sem öfluðu ríkissjóði rúmlega 700 milljarða króna. „Það var alltaf ljóst í mínum huga að ríkið yrði ekki með um 67% eign- arhald á íslenskum fjármálamarkaði. Því þurfti að selja hlut ríksins í Ís- landsbanka, en vanda til verka í ljósi fjármálahrunsins. Ég hef alltaf talið skynsamlegt að taka lítil og hægfara skref. Hafa vaðið fyrir neðan sig. Ekki einblína á verð, heldur gæði framtíðareigenda. Önnur leið var hins vegar valin og því miður er fátt sem kemur á óvart í þessu máli og hver útkoman varð,“ segir Lilja, sem auk viðskipta hefur ferðamál á sinni könnu í ríkisstjórn janframt því sem hún situr í ráðherranefnd um efna- hagsmál. Þar hafi komið fram að rík- issjóður sé í góðri stöðu um þessar mundir. Ekkert hafi því kallað á asa við sölu á bréfum í Íslandsbanka. Ferðamannasumarið líti einnig vel út, sem gefi væntingar um að staða ríkissjóðs styrkist fljótt. „Miðað við aðstæður og umræðuna nú tel ég að hægja verði á einkavæðingunni. Í mínum huga er líka alveg ljóst að Landsbankinn skuli vera áfram í eigu þjóðarinnar. Sala á honum kem- ur ekki til greina.“ Í ljósi gagnrýni á bankasöluna nú segir Lilja brýnt að Ríkisendurskoð- un skoði mál: framkvæmd og aðferð- ir. Einnig kunni að vera rétt að fela fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands að fara yfir málið. Ábyrgðin stjórnmálamanna „Í fyrsta útboðinu á sölu á hlut rík- isins í Íslandsbanka gekk vel, það er að bjóða almenningi að kaupa hluti. Þá leið hefði ríkissjóður einnig átt að fara nú. Evróputilskipun fylgir hins vegar sú kvöð að ekki var hægt að fara í annað almennt útboð eins og sakir standa. Slíkt hefði þurft að bíða, sem hefði verið í góðu lagi. Ég er þó ekki á því að hægt sé að skella skuldinni alfarið á stjórnendur Bankasýslunnar og þykir miður að málið sé einfaldað þannig. Ábyrgðin hlýtur að vera stjórnmálamanna sem tóku ákvörðun í málin,“ segir Lilja. Óeining í ríkisstjórn um bankasölu - Var mótfallin aðferð, segir viðskiptaráðherra - Fjármálaeftirlit skoði mál - Sitjum uppi með klúður Lilja Alfreðsdóttir Starfsmaður sveitarfélagsins Búsóva, vestan við Kænugarð, styður sig við ónýtan skriðdreka rússneska hersins og kastar mæðinni. Fulltrúar ríkja í Evrópusambandinu munu koma saman í dag til þess að ræða frekari efnahagsaðgerðir gagnvart Rúss- um. Andrei Illarionov, fyrrverandi ráðgjafi Rússlandsforseta, sagði í gær að aðeins algjört viðskiptabann á hendur Rússum gæti haft áhrif á stríðsrekstur þeirra. »4,13,14 AFP/Sergei Supinsky Virðir fyrir sér ónýtan rússneskan skriðdreka

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.