Morgunblaðið - 11.04.2022, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.04.2022, Blaðsíða 4
„Vakúmpökkuð föt undir Bankastræti“ er ef- laust bókstaflegasta lýsingin á þeim gjörn- ingi sem átti sér stað í Núllinu Galleríi um helgina. Um er að ræða sýningu á vegum listaflokksins AMA, undir yfirskriftinni Varð- veisla. Aníta Theodórsdóttir, einn meðlimur hóps- ins, segir hugmyndina hafa kviknað í samtali þeirra á milli um hlutverk varðveislu og gildi minjagripa, en stelpurnar þrjár er skipa hóp- inn búa nálægt Minjastofnun. „Hugmyndin var að ramma inn ákveðinn tíðaranda,“ segir Anna Ólöf Jansdóttir, ann- ar meðlimur hópsins. Þær hafi því leitað til einstaklinga sem að þeirra mati voru lýsandi fyrir tíðarandann, t.d. Jóns Gnarrs, Magna Ásgeirssonar, Dorritar Moussaieff og sjón- varpsmannsins Nilla, en öll gáfu þau þeim flíkur til varðveislu. „Okkur langaði til þess að velta upp kómík- inni í því að taka eitthvað ómerkilegt eins og gamla flík og upphefja hana,“ segir Emma Aðalsteinsdóttir, þriðji meðlimur AMA. Flík- in sé aðeins merkileg fyrir þær sakir að vera af frægum einstaklingi. Þá hafa stelpurnar þegar haft samband við Minjastofnun og Þjóðminjasafnið um að taka á móti flíkunum að sýningunni lokinni. Flíkur frægra til sýnis undir Bankastræti Morgunblaðið/Ari Gengi AMA samanstendur af Anítu Theodórsdóttur, Önnu Ólöfu Jansdóttur og Emmu Kristinu Hjördísi Aðalsteinsdóttur. Bindið hans Nilla og bolur Magna voru á meðal gripa til sýnis. 4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u At h að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va raVerona á sl ík g re ys tá n BEINT FLUG Í ALLT SUMAR a. Flugsæti 595 1000 www.heimsferdir.is 19.950 Flug aðra leið frá Flugsæti Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Lífið heldur áfram hjá Úkraínu- mönnum sem búa við stríð í heima- landinu. Á meðal þeirra er úkraínska skákkonan Evgeniya Doluhanova sem lenti í Keflavík í síðustu viku og keppir á Reykjavíkurskákmótinu sem fer fram í Hörpu þessa dagana. 245 keppendur frá 50 löndum taka þátt og eiga allir eitt sameiginlegt: að elska að tefla. ,,Þetta stingur í hjartað. En hvað á maður að gera? Ég get ekki verið heima og grátið mig í svefn. Lífið bara heldur áfram og maður verður að hafa eitthvað fyrir stafni,“ segir Evgeniya. Evgenyia er fædd í Baku í Aser- baídsjan. Fjögurra ára að aldri flúði hún frá Baku til Armeníu vegna stríðsátaka en eftir mannskæða jarð- skjálfann í Armeníu 1988 var lítið eftir fyrir fjölskylduna þar og var þá haldið til Úkraínu, hvar Dolochova átti eftir að alast upp, læra að tefla og verða á meðal sterkustu skákkvenna í heima- landinu. Hún var stödd á skákmóti í Þýskalandi þegar hörmungarnar dundu yfir heimalandið 24. febrúar þegar Rússar réðust inn í Úkraínu. Þá varð ekki aftur snúið til heima- borgarinnar, Kharkiv, og neyddist hún þá til að leigja íbúð í Lviv í vest- urhluta Úkraínu. Að skákmótinu loknu snýr hún aftur til Lviv. Þorirðu alveg að vera þar? ,,Það er öruggara í vesturhlutan- um en í austurhlutanum,“ útskýrir Evgenyia. Hins vegar vill hún halda áfram að ferðast og tefla í sem lengstan tíma, í von um að hún geti snúið aftur heim þegar átökunum linnir. „Mig langar að reyna að ferðast og tefla eins og ég get, það er engin ástæða til að vera heima. Fjölskyldan mín er á nokkuð öruggum stað og ég get að- stoðað hana fjárhagslega,“ segir hún. Evgeniya segir dapurlegt að horfa upp á áróður rússneskra stjórnvalda sem hafa endurtekið neitað að taka ábyrgð á árásum á almenna borgara í stríðinu. „Pútín vill færa okkur aft- ur yfir á 12. öldina. En við lifum á 21. öldinni, við viljum bara vera þar,“ segir hún. Ástandið hefur lagst þungt á Evgenyu og fjölskyldu henn- ar sem lagði í erfitt ferðalag frá Kharkiv til Lviv, hvar 86 ára amma hennar þurfti að standa á lestarstöð og bíða í sjö klukkutíma. Skák getur reynst gott tól til þess að dreifa hug- anum og reynir Evgenya sitt besta til þess að njóta skákmótsins, þótt áfallið sé mikið. Hún státar af 2.280 elo-stigum og er með þrjá og hálfan vinning að loknum sex umferðum. Og yfir í allt annað – hvers vegna ákvaðstu að hella þér í skákina? Ég held að ég hafi dottið inn í þetta því ég er svo mikil keppnis- manneskja. Mér finnst leiðinlegt að tapa,“ segir hún létt og á það eflaust sameiginlegt með þeim fjölbreytta hópi sem teflir nú á Reykjavíkur- mótinu í Hörpu. Lýkur mótinu með seinustu um- ferð á þriðjudaginn klukkan níu en áttunda og næstseinasta umferð hefst í Hörpu klukkan fjögur í dag. Flúði stríð og teflir á Reykjavíkurmóti - Þyngra en tárum taki fyrir Evgeniyu Doluhanova að sjá heimalandið verða fyrir innrás - Teflir á skákmótum og reynir að dreifa huganum á stríðstímum - Flúði frá austri til vesturs og býr í Lviv Morgunblaðið/Eggert Ferðalag Evgeniya reynir að einbeita sér að skákinni á næstunni. Morgunblaðið/Eggert Úkraína Neglur í réttu litunum. Davíð Scheving Thor- steinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri, lést síðastliðinn föstudag 92 ára að aldri. Davíð fædd- ist 4. janúar 1930, sonur hjónanna Magnúsar Scheving Thorsteinsson (1893-1974) og Lauru Scheving Thorsteinsson, f. Havstein (1903-1955). Davíð lauk stúdents- prófi frá MR árið 1949 og prófi í heimspeki- legum forspjallsvís- indum frá HÍ ári síðar. Hann var um árabil at- kvæðamikill í atvinnulífinu. Hann var framkvæmdastjóri hjá Smjörlíki hf. og Sól hf. á árunum 1964 til 1995 og gegndi á sama tíma og síðar fjölda ábyrgðarstarfa í atvinnulífi og fyrir hið opinbera, auk þess að starfa að góðgerðarmálum. Davíð var formaður nefndar sem samdi reglur um starfshætti hluta- félaga á Íslandi, og þær reglur eru núna orðnar reglur Kauphallar Íslands. Hann sat í stjórn Fé- lags íslenskra iðnrek- enda 1968-1974, og var formaður 1974-1982, í framkvæmdastjórn samtaka atvinnulífsins og varaformaður 1978- 1990, formaður banka- ráðs Iðnaðarbankans 1982-1989, varamaður í bankaráði Landsbanka Íslands 1972-1980, vara- maður í bankaráði Seðlabanka Íslands 1980-1993 og aðalmaður í stjórn bankans 1993-1998. Davíð lét sig þjóðfélagsmál varða og átti meðal annars sæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. Árið 2009 fékk hann frelsisverðlaun SUS og í rök- stuðningi með þeim sagði að hann hefði „allan starfsferil sinn farið ótroðnar slóðir í íslensku viðskiptalífi. Á tímum viðskiptahafta og skömmt- unar lagði Davíð til atlögu við hið opin- bera í því skyni að geta boðið Íslend- ingum upp á meira úrval og fjöl- breytni. Þannig hefur athafnasemi hans og útsjónarsemi í viðskiptum verið meðborgurum hans til hags- bóta.“ Davíð var formaður Rauða kross Íslands um árabil og sat í stjórn minn- ingarsjóðs frú Stefaníu Guðmunds- dóttur 1984-2006. Davíð var formaður ráðgjafarnefndar Íslands hjá EFTA, ræðismaður Írlands og síðar aðalræð- ismaður 1977-2018 og formaður Ræðismannafélags Íslands 2007-2018. Davíð var sæmdur fálkaorðunni árið 1982. Fyrri kona Davíðs var Soffía Mat- hiesen (1930-1964), húsmóðir og kenn- ari, og eignuðust þau börnin Lauru (1954), Hrund (1957) og Jón (1963). Seinni kona Davíðs er Stefanía Svala Borg (1940), húsmóðir og læknaritari. Börn Davíðs og Stefaníu eru Magnús (1968), Guðrún (1971) og Stefanía (1986). Útförin fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík 25. apríl nk. kl. 13. Andlát Davíð Scheving Thorsteinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.