Morgunblaðið - 11.04.2022, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 11.04.2022, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2022 FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS | SIGN.IS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Umhverfisáhrif Hvammsvirkj- unar í neðri hluta Þjórsár yrðu mikil og óafturkræf og svo lengi sem mér endist líf og kraftur berst ég á móti,“ segir Sigþrúður Jóns- dóttir, náttúrufræðingur í Eystra- Geldingaholti í Skeiða- og Gnúp- verjahreppi. „Stundum er látið sem svo að málið sé komið í höfn og fátt stöðvi að hefjast megi handa. Raunin er önnur þótt áróður sé stífur. Að búa til fjögurra ferkíló- metra stórt jökullón inni í miðri sveit, grafa aðrennslisskurði, reisa stífur, vegi og fleira eru mikil inn- grip sem hæfa ekki landslagi hér og umhverfi. Þá þarf að meta áhrif framkvæmdar á mannlíf hér í sveitasamfélaginu. Við verðum að lifa samkvæmt því að ganga ekki á höfuðstól náttúrunnar. Vera í anda sjálfbærrar þróunar, þar sem taka þarf inn í myndina umhverfi, samfélag og efnahag.“ Erum gerð tortryggileg Hjá Landsvirkjun er þess nú vænst að framkvæmdir við Hvammsvirkjun í Þjórsá fari í út- boð síðar á þessu ári, enda séu öll leyfi þá fengin. Verklok yrðu þá væntanlega árið 2027. Umrætt orkuver yrði með 93 MW uppsett afl og væri eitt þriggja slíkra í neðri hluta árinnar. Hinar stöðv- arnar yrðu neðar í ánni, ein kennd við Holtin í Rangárvallasýslu og sú neðsta við Urriðafoss. Síðar- nefndu virkjunarkostirnir eru þó enn í biðflokki rammaáætlunar, sem nú liggur fyrir Alþingi. „Margir hér í sveit eru tengd- ir náttúrunni sterkum böndum og hér er talsverð andstaða við Hvammsvirkjun. Fyrirætlanir um virkjunina hafa lengi verið í um- ræðu og áhrif þeirra á samfélagið hér eru neikvæð og erfið. Ég líki áformunum við eitur eða sprengju sem kastað var inn í samfélagið. Mér finnst dapurlegt að við and- stæðingar virkjunar séum nánast gerð tortryggileg af sumum,“ seg- ir Sigþrúður. Óafturkræf áhrif á stóru svæði Þaðan sem Þjórsá fellur fram, frá Búrfellsvirkjun til sjávar, eru 92 kílómetrar. Sigþrúður segir mikla rangfærslu að halda því fram að land við ána sé spillt eða mjög manngert. Þvert á móti sé víða fallegt og friðsælt við ána, þar sem eru göngu- og reiðleiðir. „Í áliti Skipulagsstofnunar frá 2018 um áhrif Hvammsvirkjunar á landslag segir að virkjunin muni hafa veruleg og óafturkræf áhrif í ljósi þess að stóru svæði verði raskað. Mjög margir verði fyrir neikvæðum áhrifum vegna breyt- inga á ásýnd og yfirbragði. Einnig mat Skipulagsstofnun að Hvammsvirkjun væri líkleg til að hafa neikvæð áhrif á útivist og ferðaþjónustu vegna þeirra óhjá- kvæmilegu breytinga sem munu verða á upplifun ferðamanna af svæðinu. Í dag einkennist áhrifa- svæðið af landbúnaði en með virkjun fengi það yfirbragð um- fangsmikilla mannvirkja,“ segir Sigþrúður. Laxastofni stefnt í hættu Í Þjórsá lifa allar ferskvatnsteg- undir fiska sem fundist hafa í ís- lenskum ám og þjórsárlaxinn er stærsti villti laxastofn landsins. Á áhrifasvæði Hvammsvirkjunar eru mikilvægar hrygningar- og upp- eldisstöðvar hans. Sigþrúður seg- ist alls óvíst hvort boðaðar mót- vægisaðgerðir virki og því er laxastofninum stefnt í hættu. Fyrir neðan áformaða stíflu Hvammsvirkjunar er svo Viðey í Þjórsá. Þar er gróskumikill birki- skógur sem vaxið hefur án áhrifa manna og dýra. Gróin eyjan, um- lukin straumþungri á, nýtur því náttúrulegrar verndar sem skerpt var á formlega með friðlýsingu sem gekk í gegn fyrir um áratug vegna birkis og einstaks nátt- úrulegs gróðurfars. Með stíflu of- an eyju fer náttúruleg vörn og í stað hennar á að reisa mannhelda girðingu sem Sigþrúði líst ekki á. „Viðey er einstakur staður; er ónumið land en þó nánast inni í byggð. Stíflur, girðingar og annað slíkt yrði lýti í landinu.“ Sigþrúður segir að Hvamms- virkjun muni ekki skila Skeiða- og Gnúpverjahreppi tekjum, nema á framkvæmdatíma. Stöðvarhús og fleiri slík mannvirki yrðu öll sunn- an ár og því innan landamæra Rangárþings ytra, sem fengi fast- eignagjöldin. Gnúpverjar muni, verði af þessu, sitja upp með mikil inngrip í náttúru og landslag sem gæfi sveitinni nýjan svip mann- virkja. „Slíkt vil ég ekki og þykist þar mæla fyrir munn margra. “ Ríkið afhenti Landsvirkjun vatnsréttindin í Þjórsá rétt fyrir alþingiskosningar vorið 2007, sem var ólöglegur gjörningur eins og Ríkisendurskoðun kvað upp úr með síðar sama ár. Sigþrúður seg- ir að með meint vatnsréttindi í hendi hafi verið gengið hart að landeigendum að gefa eftir land vegna mannvirkja, svo sem lón í farvegi Þjórsár. Hótanir um eign- arnám hafi verið undirliggjandi. Rafmagnsskortur er ekki raun- in Staðhæft hefur verið að undan- förnu að auka þurfi raforkufram- leiðslu í landinu í fylgni við eftir- spurn. Um það segir Sigþrúður: „Rafmagnsskortur á Íslandi er ekki raunin heldur offramboð á eftirspurn, eins og Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri hefur sagt. Í raun er sama hve mikið verður virkað; eftirspurn verður aldrei fullnægt.Við verðum að draga línu í sandinn og segja hing- að og ekki lengra. Við getum ekki endalaust fórnað náttúru og Guðs góðu sköpun fyrir rafmagn og óljósan gróða.“ Áform um virkjun í Þjórsá eru sprengja og eitur í samfélagi, segir Sigþrúður Jónsdóttir í Eystra-Geldingaholti Morgunblaðið/Sigurður Bogi Náttúruvernd Segja hingað og ekki lengra. Við getum ekki endalaust fórnað Guðs góðu sköpun, segir Sigþrúður, hér með tíkinni Kvísl. Sjálfbærni og sveitin haldi sama svip - Sigþrúður Jónsdóttir er fædd árið 1962 og er Gnúp- verji í húð og hár. Hún nam landbúnaðar- og síðar beit- arfræði við Bangor-háskóla í Wales í Bretlandi og er með meistarapróf þaðan. Hefur starfað hjá Landgræðslunni í nærri 30 ár og er nú sérfræð- ingur í beitarfræðum og land- nýtingu. - Á Náttúruverndarþingi á dögunum var Sigþrúður ein fjögurra sem fengu Náttúru- verndarann, viðurkenningu fyrir ötula náttúruverndarbar- áttu. Þar var tiltekin barátta Sigþrúðar fyrir verndun neðri hluta Þjórsár og Þjórsárvera. Hver er hún? Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þjórsársvæði Á myndinni til vinstri er skógi vaxin Viðey, óspillt nátt- úruvin sem gæti verið hætta búin verði Þjórsá virkuð. Töluvumyndin til hægri sýnir fyrirhugaða stíflu og stöðvarhús Hvammsvirkjunar. Tölvugerð mynd/Landsvirkjun „Markmið stjórnvalda hafa verið sett fram í aðgerðaáætlun Íslands í lofts- lagsmálum árið 2018 og 2020. Það er hins vegar öllum ljóst að nú er komið að næsta áfanga í vegferð- inni sem er að ís- lenskt atvinnulíf stígi inn í að- gerðaáætlunina af fullum þunga,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslags- ráðherra, á ársfundi Grænvangs, samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnlífs um loftslagsmál og grænar lausnir, sem haldinn var nýverið. Guðlaugur Þór sagði að í stjórnar- sáttmála ríkisstjórnarinnar væri skýrt kveðið á um að sett yrðu áfangaskipt losunarmarkmið fyrir hvern geira í samstarfi við sveitar- félög og atvinnulíf. „Næsta skref í mínu ráðuneyti er að vinna með fulltrúum atvinnulíf- isins að útfærslu markmiða og geira- skiptingar. Ég vil fá að heyra frá ykk- ur hvernig atvinnulífið vill nálgast verkefnið fram undan. Hvernig viljið þið ná kolefnishlutleysi, hvernig viljið þið nálgast lausnir loftslagsvandans? Hverjar eru ykkar hugmyndir um það hvernig við tryggjum samkeppn- ishæfni atvinnulífsins í kolefnis- hlutlausu hagkerfi? Við horfum til góðra fyrirmynda í nágrannaríkjum okkar og hlökkum til að móta okkar íslensku leið í sameiningu,“ sagði ráð- herra. Undir lok ræðu sinnar ítrekaði Guðlaugur Þór að næstu skrefin í loftslagsmálum yrðu unnin með at- vinnulífinu. „Það er rökrétt skref og okkar eina leið til að ná markmiðum okkar og til að hagkerfi okkar verði kolefn- ishlutlaust og samkeppnishæft. Það er stórt en skemmtilegt verk- efni fram undan, tryggja þarf að raddir sem flestra í samfélaginu heyrist og mikilvægt að sérstaklega sé hlustað eftir röddum unga fólksins. Markmið loftslagsvegferðarinnar er kolefnishlutlaus, réttlát, samkeppn- ishæf framtíð sem byggir á hug- myndafræði hringrásarhagkerfis. Ábyrgð atvinnulífsins og skuldbind- ing er mikil en við vitum að þið sjáið tækifærin, metnaður ykkar og vilji stendur til góðra verka,“ sagði Guð- laugur Þór. Atvinnulífið stígi inn af fullum þunga - Komið að næsta áfanga, segir ráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.