Morgunblaðið - 11.04.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.04.2022, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2022 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur 10. apríl 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 128.54 Sterlingspund 167.47 Kanadadalur 102.1 Dönsk króna 18.771 Norsk króna 14.682 Sænsk króna 13.586 Svissn. franki 137.47 Japanskt jen 1.0351 SDR 176.12 Evra 139.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 176.5972 Það vakti mikla athygli fyrr í mán- uðinum þegar milljarðamæring- urinn og raðfrumkvöðullinn Elon Musk upplýsti að hann hefði eign- ast um 9,2% hlut í bandaríska samfélagsmiðl- inum Twitter. Með kaupunum varð Musk stærsti hluthafi fyrirtækisins og mun hann taka sæti í stjórn fé- lagsins. Hækkaði hlutabréfaverð Twitter um þriðj- ung þegar fréttist af kaupunum og binda margir vonir við að með að- komu Musks muni draga mjög úr ritskoðunartilburðum samfélags- miðilsins sem m.a. úthýsti á sínum tíma Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Greinir Reuters frá að Musk hafi sent frá sér tíst þar sem hann lýsir sumum hugmyndum sínum um framtíð Twitter. Vill hann m.a. lækka verðið á áskriftarþjónust- unni Twitter Blue úr 2,99 dölum á mánuði niður í um það bil 2 dali, en í staðinn rukka eingreiðslu fyr- ir ársáskrift. Þá vill Musk að Twit- ter verði auglýsingalaus miðill: „Það vald sem fyrirtæki hafa til að hafa áhrif á stefnu [samfélagsmið- ilsins] eykst til muna ef Twitter er háð auglýsingatekjum,“ sagði hann. Einnig lagði Musk til að Twitter tæki við greiðslum með rafmynt- inni dogecoin. Loks lagði Musk könnun fyrir Twitter-notendur þar sem hann spurði hvort breyta ætti höfuðstöðvum Twitter í San Francisco í athvarf fyrir heim- ilislausa, þar eð starfsmenn fyrir- tækisins virðast tregir til að mæta á vinnustaðinn. ai@mbl.is Vill gera breytingar hjá Twitter Elon Musk VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Með því að nota snjallforrit íslenska sprotafyrirtækisins Verna ættu neyt- endur að geta lækkað iðgjöld öku- tækjatrygginga sinna um allt að 40%. Verna er fjártæknifélag á trygging- armarkaði en snjallforritið not- ar þau mælitæki sem eru í farsím- um til að greina aksturslag og akstursvenjur notandans. Er varan sett á mark- að í samstarfi við TM. Friðrik Þór Snorrason er for- stjóri Verna: „Forritið okkar tengist við nema í símanum og gefur einkunn fyrir fimm þætti: mýkt aksturs, ein- beitingu við akstur, hvort ekið er hraðar eða hægar en bílarnir í kring, hvort ekið er að nóttu eða degi til, og hvort ekið er í mjög langan tíma í senn,“ útskýrir Friðrik. „Öll viðkvæm persónugreinanleg gögn eru geymd á síma notandans og það eina sem for- ritið sendir okkur er einkunnin sem reiknuð er út frá mæliþáttunum fimm.“ Hreyfiskynjarar og GPS-búnaður símans greina aksturslag, s.s. ef ekið er mjög hratt eða hægt, eða rykkjótt, og eins vaktar forritið hvort verið er að tala í síma eða senda skilaboð á meðan ekið er. Að sögn Friðriks sýna mælingar að stór hluti ökumanna greiðir hærri ið- gjöld en aksturslag þeirra og hegðun í umferðinni gefur tilefni til. „Flestir eru mun betri ökumenn en þeir gera sér grein fyrir. Þegar ökuskor Verna er lagt ofan á hið hefðbundna áhættu- mat tryggingafélaganna kemur í ljós að einhvers staðar á bilinu 70 til 80% fólks borga of há iðgjöld fyrir öku- tækjatryggingar. Með ökuskori Verna er hægt að meta af meiri ná- kvæmni hversu líklegur einstakling- urinn er til að lenda í óhappi í umferð- inni.“ Hafa prófanir Verna leitt í ljós að dæmigerður notandi snjallforritsins getur vænst um 20% afsláttar af ið- gjöldum en með því að vanda sig enn betur við aksturinn og lágmarka áhættuþætti má ná fram allt að 40% sparnaði. „Ekki refsivöndur“ Friðrik segir það taka um þrjár mínútur að sækja snjallforrit Verna í forritabúð Apple eða Google og flytja ökutækjatryggingarnar yfir í hug- búnaðinn. „Forritið sér um að segja upp gömlu tryggingunni en uppsagn- arfresturinn er mánuður hjá því fé- lagi þar sem fólk er fyrir. Aksturs- mælingin byrjar aftur á móti strax og getur fólk séð að nokkrum dögum liðnum hvaða einkunn forritið veitir þeim og hve há iðgjöldin verða á næsta reikningi.“ Ef aðrir nota bílinn er í boði að skrá t.d. maka eða unglinginn á heim- ilinu sem aukaökumann. „En al- menna reglan er að aðalnotandi bíls ekur að jafnaði 92% allra ferða og ef notandi forritsins situr ekki í eigin bíl getur hann eytt út ferðum. Við þurf- um ekki að ná 100% nákvæmri mæl- ingu til að geta gert gott mat á áhættuþáttum í akstri,“ segir Frið- rik. „Forritið lærir líka að greina hve- nær notandinn er t.d. að ferðast með strætó, eða á reiðhjóli, og telur þær ferðir ekki með. Forritið getur jafn- framt greint hvenær notandinn stíg- ur upp í lest eða flugvél og þarf fólk því ekki að óttast að mælast á 450 km/klst. hraða uppi á miðju hálendi eftir flug til Akureyrar eða Egils- staða.“ Aka þarf að lágmarki um 200 km í mánuði til að forritið gefi notand- anum einkunn og segir Friðrik að hinn dæmigerði notandi aki að jafn- aði 1.500-2.000 km á mánuði. Akst- urssagan er núllstillt í hverjum mánuði og getur notandinn skoðað frammistöðu sína í rauntíma. Þá leyfir forritið að stroka út ferðir t.d. ef það gerist að farþegi í bílnum fær síma ökumanns að láni og byrjar að hringja á meðan ekið er, eða hrista símann í gríð og erg svo að hreyfi- skynjararnir haldi að bílnum sé ekið mjög rykkjótt. „Hugmyndin er ekki sú að nota forritið sem einhvers konar refsivönd heldur draga upp raunsanna mynd af því hvernig fólk ekur. Ef t.d. kemur upp neyðartil- vik þar sem aka þarf greitt á bráða- móttöku er hægt að eyða þeirri ferð út og óþarfi að óttast að iðgjalda- afslátturinn hverfi þann mánuð- inn.“ Þjónustugátt í símanum Friðrik bætir við að snjallforrit Verna eigi að gera meira en bara að fylgjast með aksturslaginu. „Forritið er hugsað sem þjónustugátt þar sem notandinn getur t.d. tilkynnt tjón, beðið um vegaaðstoð og fengið til- kynningar og tilboð þegar er kominn tími á skoðun eða dekkjaskipti,“ segir Friðrik en iðgjaldaafslátturinn sem forritið reiknar út nær bæði til skyldutygginga og viðbótartrygginga s.s. kaskó- og framrúðutryggingar. Forrit Verna fer í loftið í dag og vonast Friðrik eftir góðum viðtökum. „Ökutækjatryggingar eru góður staður til að byrja með svona þjón- ustu enda hafa iðgjöld hækkað tölu- vert umfram verðbólgu á undan- förnum árum og mikið svigrúm til lækkunar með nákvæmari mælingu á ökulagi fólks. Okkar sýn er að gefa ökumönnum á öllum aldri tækifæri til að hafa áhrif á sínar tryggingar. Því betri ökumaður sem notandinn er því betra verð býðst honum og um leið hjálpar hann til við að bæta ökumenn- inguna á Íslandi. Gangi okkur vel á Íslandsmarkaði er markmiðið að ráð- ast tiltölulega hratt í sölu á lausninni út fyrir landsteinana.“ Snjallsíminn greinir aksturs- lagið til að lækka iðgjöld Morgunblaðið/Hari Umferð Friðrik segir að með hefðbundinni áhættugreiningu greiði flestir hærri iðgjöld en ástæða er til. - Fjártæknifélagið Verna býður, í samstarfi við TM, upp á nýja vöru á íslenskum tryggingamarkaði - Skynjarar greina ef ekið er rykkjótt - Fá allt að 40% afslátt Friðrik Snorrason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.