Morgunblaðið - 11.04.2022, Page 13

Morgunblaðið - 11.04.2022, Page 13
Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is Fyrri umferð frönsku forsetakosn- inganna fór fram í gær. Kjörstöðum var lokað klukkan sex og útgöngu- spár birtar skömmu síðar. Emmanuel Macron, sitjandi for- seti, leiddi með 28 til 29% atkvæða samkvæmt útgönguspám. Marine Le Pen varð í öðru sæti með 23 til 24% atkvæða. Samkvæmt því munu þau tvö mætast í síðari umferð kosn- inganna sem fer fram sunnudaginn 24. apríl en í gær voru tólf í framboði, einungis er kosið um tvo frambjóð- endur í síðari umferðinni. Í þriðja sæti varð vinstri maðurinn Jean-Luc Melenchon með rúm 20% atkvæða. Hann hefur hvatt stuðn- ingsmenn sína til að styðja hvorki Macron né Le Pen. „Gerið ekki mistök, ekkert er ákveðið,“ sagði Macron er hann ávarpaði stuðningsmenn sína í gær- kvöldi. Le Pen hvatti alla sem kusu ekki Macron að styðja hana til þess að „koma Frakklandi aftur í lag“. Jafnari barátta Talið er að barátta Macron og Le Pen verði mun jafnari nú en hún var fyrir fimm árum, árið 2017, er þau mættust síðast í síðari umferð for- setakosninganna. Þá fór það svo að Macron vann nokkuð örugglega og fékk rúm 66 prósent atkvæða í seinni umferðinni. AFP Forsetakosningar Emmanuel Macron ávarpaði stuðningsmenn sína í gær- kvöldi eftir að hafa fengið tæplega 30% atkvæða í fyrri umferð. Macron hefur forystu - Emmanuel Macron og Marine Le Pen mætast í síðari um- ferð eftir 2 vikur samkvæmt spám - Minni munur en síðast FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2022 Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is SKÚTAN Veitingar af öllum stærðum, hvort sem er í sal eða heimahúsi Nánar á veislulist.is Erfidrykkja Fólk sem hefur verið bólusett þrí- vegis gegn kórónuveirunni nær sér mun fyrr eftir að hafa sýkst af Ómík- ron-afbrigði veirunnar en þeir sem sýktust af Delta-afbrigðinu. Þetta er niðurstaða umfangsmikillar breskr- ar rannsóknar sem birt var í síðustu viku í læknablaðinu Lancet. Rannsóknin sýndi einnig að þeir sem sýktust af Ómíkron-afbrigðinu misstu síður bragð- og lyktarskyn en þeir sem sýktust af öðrum af- brigðum. Þá staðfestir hún þá niður- stöðu fyrri rannsókna að sjúkdóms- einkenni Ómíkron eru vægari. Þeir sem gerðu rannsóknina not- uðu farsímaapp sem nefnist ZOE en rúmlega 63 þúsund bólusettir ein- staklingar á aldrinum 16-99 ára skráðu þar sjúkdómseinkenni eftir kórónuveirusmit á tímabilinu frá júní á síðasta ári til janúar á þessu ári. Þeir sem höfðu verið bólusettir tvívegis og síðan fengið örvunar- bólusetningu fundu fyrir einkennum í 4,4 daga að jafnaði eftir að hafa smitast af Ómíkron borið saman við 7,7 daga hjá þeim sem höfðu smitast af Delta. Þeir sem höfðu verið bólusettir tvívegis en ekki fengið örvunar- bólusetningu voru að jafnaði 8,3 daga að ná sér að fullu eftir að hafa smitast af Ómíkron en 9,6 daga ef þeir höfðu smitast af Delta. Rann- sakendurnir segja í umfjöllun um niðurstöðurnar að munurinn bendi til að tímabilið þar sem sjúklingar eru smitandi sé styttra og það geti haft áhrif á sóttvarnir á vinnustöð- um og almennt á ráðleggingar stjórnvalda í heilbrigðismálum. Þá benda niðurstöður rannsókn- arinnar til þess að aðeins 17% þeirra sem smitast af Ómíkron missi bragð- og lyktarskyn borið saman við 53% þeirra sem smitast af Delta. Hins vegar voru 55% meiri líkur á að þeir sem smituðust af Ómíkron fyndu fyrir fyrir sárindum í hálsi og voru líklegri til að fá hæsi en þeir sem smituðust af öðrum afbrigðum. Einnig komust rannsakendurnir að því, að 25% minni líkur voru á að Ómíkron-sjúklingar þyrftu að leggj- ast inn á sjúkrahús. Ritrýnd rannsókn Fjallað verður sérstaklega um þessa rannsókn á stórri ráðstefnu um smitsjúkdóma, sem haldin verð- ur í Lissabon í Portúgal síðar í apríl. Cristina Menni hjá King’s College í Lundúnum, sem er aðalhöfundur greinarinnar í Lancet, sagði að um væri að ræða fyrstu ritrýndu rann- sóknina, sem gerð er með fjölda þátttakenda á mismunandi einkenn- um afbrigðanna tveggja. Hún sagði við AFP að þótt rann- sóknin næði einkum yfir tímabil áð- ur en Ómíkron BA.2-afbrigðið fór að breiðast hratt út þá bentu nýlegar tölur úr ZOE-appinu ekki til þess að mikill munur væri á áhrifum BA.2 og BA.1. Staðfestir mun á áhrifum Ómí- kron og Delta - Örvunarbólusetning áhrifarík Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bólusetning Örvunarbólusetning gegn kórónuveiru er áhrifarík. Sérfræðingar segja að sjónvarps- fyrirtæki verði að laga sig hratt að hinni hröðu þróun sem nú er í af- þreyingarefni á netinu eigi þau að lifa af. Sjónvarpsfyrirtæki eru þegar að dragast aftur úr í samkeppninni við netleikjafyrirtæki um athygli ung- menna og auglýsingatekjur sem fylgja í kjölfarið. Svonefndir sýndarheimar eða metaverse, stafræn eftirlíking af raunveruleikanum, eru ekki langt undan en þetta hugtak er notað yfir ört vaxandi heim gagnvirkra tölvu- leikja og samfélagsmiðla hverskon- ar, sem laðar einkum að sér yngri kynslóðina. Nýlegar rannsóknir sem þýska markaðsrannsóknafyrirtækið Stat- ista hefur gert benda til þess að þótt eldri neytendur horfi enn mikið á hefðbundið sjónvarp hafi sjónvarps- áhorfendum 35 ára og yngri fækkað um helming síðasta áratuginn og sú þróun verði enn hraðari eftir því sem sýndarheimunum fleygir fram. „Ungt fólk hefur þróast frá því að vera óvirkir áhorfendur sjónvarps- efnis í að verða virkir þátttakendur í samfélagi snjallsímanna,“ sagði Fre- deric Cavazza, stofnandi franska greiningafyrirtækisins Sysk, við AFP. „Sjónvarpsrásirnar munu deyja með áhorfendum sínum.“ Sjónvarpsfyrirtækin verða að keppa við tölvuleikjafyrirtæki og samfélagsmiðla á borð við Roblox, Fortnite og Minekraft sem voru einskonar undanfarar í sýndar- heimaþróuninni og hafa sterka stöðu á þessum markaði. Ný rannsókn bendir til að nærri helmingur allra barna á aldrinum 9-12 ára í Banda- ríkjunum noti Roblox að minnsta kosti einu sinni í viku til að spila tölvuleiki, horfa á tónleika eða spjalla við vini sína. AFP Sýndarveruleiki Sýndarheimar ógna nú hefðbundnu sjónvarpi. Sýndarheimarnir ógna sjónvarpinu - Hörð samkeppni fram undan Fulltrúar ríkja Evrópusambandsins munu í dag hittast og ræða næstu skref í refsiaðgerðum sambandsins gegn Rússalandi vegna innrásar þess síðarnefnda í Úkraínu. Enn eru skiptar skoðanir innan sambandsins er varða bann á innflutningi á rúss- nesku gasi og olíu. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, sagði í opinberri heimsókn sinni í Kænugarði á föstudaginn að sambandið hygðist beita frekari refsiaðgerðum gegn Rússum. „Við munum notfæra okkur okkar efnahagslega kraft til þess að Pútín gjaldi mjög dýru verði,“ sagði von der Leyen í ávarpi sínu. Fyrrverandi ráðgjafi Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta sagði um helgina að algjört viðskiptabann á alla rússneska orku gæti stöðvað stríðið í Úkraínu. Þá teldi hann yfir- völd í Rússlandi ekki taka hótanir frá öðrum ríkjum um skert kaup á rúss- neskri orku alvarlega. Ýmis ríki hafa reynt að minnka eða hætta kaupum á rússnesku jarð- gasi og olíu en mörg halda þó við- skiptum áfram. 40% jarðgass og 27% olíu sem ríki Evrópusambandsins (ESB) keyptu á síðasta ári voru frá Rússlandi. Joseph Borell, utanríkismála- stjóra Evrópusambandsins, sagði í síðustu viku að ESB borgaði Pútín um milljarð evra á hverjum degi fyrir orku. Undirbúa harðari aðgerðir - Skiptar skoðanir um innflutning á gasi og olíu - Gæti ver- ið það sem þarf - ESB ræðir næstu skref - Milljarður á dag AFP Forseti Úrsula von der Leyen í Kænugarði á föstudag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.