Morgunblaðið - 11.04.2022, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 11.04.2022, Qupperneq 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2022 ✝ Guðrún Helga- dóttir fæddist í Hafnarfirði 7. sept- ember 1935, elst systkinanna tíu á Blómsturvöllum við Jófríðarstaðaveg. Hún lést 23. mars 2022 á hjúkrunar- heimilinu Mörk í Reykjavík. Foreldrar Guð- rúnar voru hjónin Ingigerður Eyjólfsdóttir, f. 9.6. 1913, d. 26.12. 1995, húsfreyja og Helgi Kristján Guðlaugsson, f. 16.8. 1908, d. 26.3. 1991, sjómað- ur. Systkini Guðrúnar eru: Ing- ólfur f. 20.7. 1937, d. 16.11. 2019; Jóhanna, f. 29.5. 1939, d. 29.7. 2015; Gísli, f. 6.3. 1942; Unnur, f. 20.6. 1944; Arnar, f. 8.6. 1946; Bjarni, f. 13.7. 1948, d. 16.9. 1997; Viðar, f. 25.2. 1950; Leifur, f. 1.9. 1954, og Gerður, f. 15.7. 1952. Guðrún var gift Hauki Jó- Tómas, Helga Guðrún, Benedikt og Auður. 3) Halla, f. 30.8. 1970, þýðandi í Reykjavík. Hún er gift Agli Axelssyni jarðfræðingi og börn þeirra eru Silja og Styrmir. Guðrún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík ár- ið 1955. Hún starfaði sem ritari rektors í MR í áratug (1957-1967) og var deildarstjóri félagsmála- og upplýsingadeildar Trygg- ingastofnunar ríkisins 1973- 1980. Hún sat á þingi fyrir Al- þýðubandalagið 1979-1995, var forseti sameinaðs Alþingis 1988- 1991, fyrst kvenna í heiminum til að gegna embætti þingforseta, og var fulltrúi í Norðurlandaráði 1983-1988. Guðrún skrifaði fjölda bóka, leikrit og sjónvarpshandrit, eink- um ætluð börnum og unglingum, og sló í gegn árið 1974 með sinni fyrstu bók um uppátækjasömu tvíburana Jón Odd og Jón Bjarna. Hún hlaut fjölda verð- launa og viðurkenninga fyrir rit- störf sín. Guðrún verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 11. apríl 2022, klukkan 14. Streymt verður frá athöfninni á streyma.is. Virkan hlekk má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat/ hannssyni, f. 25.1. 1935, verkfræðingi. Þau skildu. Þau áttu soninn Hörð, f. 14.2. 1957, tölvunarfræð- ing hjá Hafrann- sóknastofnun. Eig- inkona hans er María Guðfinns- dóttir, sérfræð- ingur í mennta- og menningar- málaráðuneytinu. Synir þeirra eru Hrafn, Haukur og Arnar. Seinni maður Guð- rúnar var Sverrir Hólmarsson, f. 6.3. 1942, d. 6.9. 2001, kennari og þýðandi. Börn þeirra eru: 1) Þor- valdur, f. 26.11. 1966, ráðgjafi í Reykjavík. Sambýliskona hans er Aðalheiður Ámundadóttir fréttastjóri. Börn Þorvaldar með Ásdísi Þórðardóttur eru Auður Böðvarsdóttir, Oddný, Steinunn og Þorsteinn. 2) Helga, f. 29.11. 1968, hjúkrunarfræðingur, gift Bjarna Ármannssyni, forstjóra Iceland Seafood. Börn þeirra eru Með þakklæti kveð ég tengda- móður mína Guðrúnu Helgadótt- ur eftir fallega samfylgd, allt frá sumrinu 1979. Ég er þakklát fyrir allt sem við áttum saman, vinátt- una og samveruna, skemmtileg- heitin og matarboðin öll, fyrst í Skaftahlíðinni og svo á Túngöt- unni. Og fyrir Danmerkurárin okkar fjölskyldunnar, heimsókn- irnar, sendibréfin og símtölin. Bréfin hennar voru hrein lista- verk, oft með teikningum af okkur öllum eða blómum og fuglum á spássíunni og bara rithöndin svo falleg og listræn. Hún hefði svo sannarlega getað myndskreytt bækurnar sínar sjálf. Árin okkar úti sá hún til þess að sonarsynirnir hefðu nægt lesefni á íslensku og litlir pakkar bárust gjarnan með einni eða tveimur barnabókum, eftir aðra höfunda en hana sjálfa – smám saman heilt bókasafn. Alveg frá því Rúna var lítil stelpa í Hafnarfirði hafði hún ein- hverja innri þörf fyrir að fegra umhverfi sitt og það fylgdi henni allt lífið. Garðurinn hennar var sá fegursti og gróskumesti á landinu og ekki bara það heldur líka sá skemmtilegasti, ekki síst fyrir börnin. Rúna dáðist að fallegu fjöl- skyldulífi og fallegu mannlífi og vildi helst líka bæta líf annarra. Hún sagði eitt sinn í viðtalsbók að hún vissi að ekkert væri betra en að búa í góðu hjónabandi eða sam- búð með manneskju sem maður elskaði. Á þeim tíma var hún sjálf nýskilin í seinna skiptið og átti eft- ir að búa ein áratugum saman. Lífskrafturinn var samt ótrúlegur og hún naut þess alltaf að hafa fólk í kringum sig. Nokkur barnabörn og aðrir nákomnir áttu eftir búa hjá henni til lengri eða skemmri tíma í kjallaranum á Túngötunni, þeim öllum til mikillar gleði. Rúna naut sín með börnum og börn nutu sín með henni. Langömmubörnin fengu svo sannarlega að njóta skemmtilegheitanna og einlægs áhuga en þau dáðu Rúnu ömmu og hún þau. Hún var alltaf að gera eitthvað sniðugt með þeim og þau áttu athyglina óskipta. Minningar streyma líka fram af töffaranum og sjarmatröllinu sem með einhverjum töfrum dró að sér athyglina og lyfti upp stemning- unni hvar sem hún kom. Þá hafði engin áhrif að hnippa í hana ef hún var ekki nógu orðvör fyrir okkur hin, enda skemmtilegust allra og sá alltaf eitthvað spaugilegt í að- stæðum. Hún var bóhem og lífs- kúnstner en samt svo siðprúð og samviskusöm. Hafði feiknargott vald á íslensku en sletti meira en aðrir. Kunni siðareglur upp á hár og fannst þær mikilvægar en kunni líka að brjóta þær þegar það átti við. Að lokum þakka ég fyrir vin- áttu Rúnu við fjölskylduna mína sem hún taldi meðal sinna bestu vina og ekki síst fyrir vináttuna við mömmu en þær tvær áttu margar gleðistundir saman og höfðu fyrir venju að hittast á Hót- el Borg til að halda upp á afmæl- isdaga barnanna árin sem við vor- um enn í námi. Skarpgreindar og kraftmiklar konur sem elskuðu fólkið sitt. Ég kveð Rúnu með djúpu þakklæti fyrir árin öll og allt sem hún var mér í dýrmætri vináttu og nánum fjölskyldu- tengslum. María Guðfinnsdóttir. Það er óraunverulegt að kveðja föðursystur sem hefur alltaf verið einhvers konar stórveldi í tilver- unni. Hún var skemmtilega frænka mín sem kom með Sverri og krakkana í kaffi til Hafnar- fjarðar um helgar. Við í stórfjöl- skyldunni sátum heima hjá ömmu og afa á Jóffanum og það var talað hátt og reykt og rifist yfir öllu mögulegu. Hún var frænkan sem bauð mér í gistiheimsókn þegar hún hafði skrifað bók og ég fékk að lesa handritið og segja mína skoðun. Þegar ég gerði athuga- semd við val á nafni á einni sögu- persónu breytti hún nafninu í laumi og lét hana heita eftir mér og þegar bókin var komin út og ég sá það sagði hún hlæjandi: „Þarna spældi ég þig“ og okkur fannst þetta mjög fyndið. Sem barn og unglingur fylgdist ég með henni í fjölmiðlum og dáð- ist að því að hún nennti að rífast við leiðinlega og forpokaða karla af heillandi léttleika. Ég skildi ekki margt sem fram fór á póli- tíska sviðinu en ég fylgdist með því hvernig frænka mín lét sig mikilvæg málefni varða, hún barð- ist af festu fyrir flóttamenn, hún var frumkvöðull að stofnun Þýð- ingarsjóðs og hún vann að eflingu samstarfs meðal Norðurlanda- þjóða. Þegar ég var heima hjá Rúnu að vakta húsið meðan á stúdents- útskrift Helgu stóð þurfti ég ekki bara að taka á móti blómum og skeytum heldur líka svara símtöl- um. Meðal annars þurfti ég að hlusta á ókunnugan karlmann sem fann sig, af einhverjum ástæðum sem ég áttaði mig engan veginn á hverjar voru, knúinn til að hella sér yfir Guðrúnu Helga- dóttur á laugardagseftirmiðdegi. Hann taldi Guðrúnu augljóslega á hinum enda línunnar, kynnti sig og jós svo einhverjum hroðalegum skömmum yfir mig. Ég hélt að þetta væri einhver kunningi henn- ar en þegar ég nefndi nafn manns- ins og sagði Rúnu frá því að hann hefði hringt sagði hún: „Æ, elskan mín ég veit ekkert hver þetta er, það eru alltaf einhverjir menn að hringja í mig til að skamma mig og þvarga yfir einhverju.“ Þegar Rúna var komin á eftir- laun kíkti ég stundum til hennar í hádeginu og var boðið upp á kaffi og fransbrauð með rúllupylsu. Svo spjölluðum við og horfðum kannski á einhverja konunglega athöfn á erlendri sjónvarpsrás eða beina útsendingu frá sænska þinginu, því Rúna fylgdist með öllu af brennandi áhuga. Það var eins og Guðrún Helga- dóttir hefði miklu meiri tíma en aðrir. Hún skrifaði bók eftir bók og var samtímis í meiriháttar ábyrgðarstöðum og hún sinnti stórri fjölskyldu sem hélt svo áfram að stækka þegar tengda- börn, barnabörn og barnabarna- börn bættust við. Hún sótti menn- ingarviðburði, hitti vini sína og fékk alls konar fólk í heimsókn. Hún mátti alltaf vera að því að koma og lesa fyrir leikskóla- og grunnskólabörn og svo hringdi hún reglulega til að spjalla og hrósa mér fyrir hitt og þetta og segja mér frá einhverjum bókum sem hún var nýbúin að lesa. Ég veit að Guðrúnar Helga- dóttur er víða saknað en hún gaf fjölskyldu sinni og vinum óendan- lega margt og hún áorkaði mörg- um og mikilvægum verkum sem aldrei gleymast og fyrir það eigum við að vera þakklát. Blessuð sé minning Rúnu frænku. Þórdís Gísladóttir. Þær eru margar og góðar minningarnar um hana Rúnu frænku mína sem koma upp í hug- ann við fráfall hennar. Af mörgu er að taka. Ég man eftir jólaboð- unum hennar, sem voru sérstök. Það var gengið í kringum jólatré með logandi kertaljósum, á meðan allir aðrir sem ég þekkti áttu nú- tímarafmagnsseríu. Rúnu þótti bara rétt að halda í gömlu hefð- irnar, henni fannst það miklu skemmtilegra. Oft las hún fyrir okkur úr nýútkominni bók eftir sig og allir skemmtu sér vel. Hún bakaði líka laufabrauð með börn- um sínum fyrir jólin og naut ég þess að vera boðin í hópinn. Þegar ég var tíu ára bauð hún mér með sér í rútuferð upp á Akranes, en þar var verið að frumsýna leikritið „Óvita“. Að lokinni sýningu kom í ljós að engin áætlunarferð væri til Reykjavíkur fyrr en næsta dag. Þetta var reyndar svolítið líkt Rúnu að vera ekki búin að skipu- leggja ferðina til enda, en sem bet- ur fór var hún fljót að leysa úr vandanum. Hún hafði samband við tengdaforeldra dóttur sinnar á Steinsstöðum, sem buðu okkur að koma. Þar vorum við í besta yf- irlæti til næsta morguns. Svona gæti ég lengi talið upp skemmtilegar minningar af Rúnu frænku. Hún hafði græna fingur og átti fallegan garð með dúkku- húsi þar sem börn gátu leikið sér. Stundum var setið úti með gos- drykk eða kaffisopa. Eitt sinn þegar ég kom við hjá henni var hún að róta í moldinni, eins og hún kallaði garðyrkjuna. Hún var í síðu pilsi og á spariskónum í miðju blómabeði, öll útbíuð í mold. Þeg- ar ég spurði af hverju hún væri þarna í sparifötunum fórnaði hún höndum og hrópaði upp yfir sig: „Ég gleymdi mér alveg í mold- inni!“ Hún hafði þá verið að koma heim úr samkvæmi og sá smá arfakló í beði sem hún „varð“ að reyta og gleymdi sér svo við að reyta illgresi. Svona var hún stundum skemmtilega utan við sig. Bækurnar hennar sýna best hve réttsýn og merk kona hún Rúna var. Ég á eftir að sakna hennar en minning hennar mun lifa um ókomna tíð. Ég sendi sam- úðarkveðjur til barna hennar og fjölskyldunnar allrar. Blessuð sé minning Guðrúnar Helgadóttur. María Gísladóttir. Á aðventunni 1995 skaut Guð- rún Helgadóttir skjólshúsi yfir okkur hjónin þegar við vorum húsnæðislaus í 20 daga í miðjum jólaprófum í Háskólanum. Við höfðum búið í kjallaraíbúð hinum megin við götuna og hún fékk þess vegna ávæning af þess- um tímabundnu vandræðum okk- ar og bauð okkur umsvifalaust að búa hjá sér í kjallaranum. Við vor- um ekki að sækja Guðrúnu heim í fyrsta sinn því annað okkar hafði raunar verið heimagangur þar frá menntaskólaárum þegar heimilið á Túngötu stóð opið fyrir vinum barnanna hennar. Guðrún var mikill höfðingi heim að sækja, örlát og gestrisin og ekki minnist ég þess að hún hafi viljað að við unga parið borg- uðum krónu fyrir að búa þarna þessa mikilvægu prófadaga í des- ember. Við máttum ganga í kaffið á morgnana og ísskápinn eins og okkur sýndist og svo kallaði hún niður á kvöldin og sagðist vera bú- in að leggja á „allsnægtaborðið“ sem vinur hennar Böðvar Guð- mundsson smíðaði af miklum hag- leik. Ég man sérstaklega eftir hversdagslegri máltíð sem saman- stóð af kálbögglum og kartöflum sem hún gerði sérstaklega fyrir unga manninn í kjallaranum sem henni „sýndist ekki veita af smá smjöri með“. Þessi kvöldverður varð að hinni mestu veislu af því að hún lagði svo fallega á borðið og gerði allt svo huggulegt og skemmti okkur svo konunglega með frásagnargleði sinni og óborganlegum sögum. Á þessum tíma vorum við að leggja drög að skiptinámi í Danmörku og gátum valið á milli þess að vera í Kaup- mannahöfn eða Árósum. Guðrún sagði að Árósar hefðu allt til að bera til jafns við Köben nema „hundaskítinn og rónana“! Við fórum til Árósa. Við lásum af kappi undir prófin þessa daga í desember 1995 í kjall- aranum á Túngötunni og lifðum eins og blóm í eggi. Allar götur síðan sýndi Guðrún okkur mikla vináttu. Sendi okkur afar fallega brúðargjöf þegar við gengum í hjónaband. Færði okkur sængur- gjafir þegar börnin okkar fædd- ust. Sendi áritaðar bækur til barnanna okkar þegar við bjugg- um erlendis og gaf okkur leyfi til að lesa hina undurfögru jólasögu „Englajól“ aftur og aftur á að- ventukvöldum og ýmiss konar samkomum á undanförnum árum svo rétti jólaandinn fyllti brjóst viðstaddra. Við munum ávallt minnast Guð- rúnar með miklu þakklæti fyrir það hve hún var okkur velviljuð og hvað hún sýndi vandalausu ungu fólki sem var að reyna að fóta sig í tilverunni mikinn áhuga. Elínborg Sturludóttir, Jón Ásgeir Sigurvinsson. Guðrún Helgadóttir er kona sem ég á margt að þakka. Ég var ung leikkona þegar ég fékk upp- hringingu frá Ríkisútvarpinu, réttara sagt Silju Aðalsteinsdótt- ur, sem þá hafði umsjón með föst- um lið í morgunútvarpinu sem var lestur framhaldssögu fyrir börn. Hún spurði hvort ég væri til í að flytja sögu sem hún væri með í höndunum. Sagan væri um tvíbu- rastráka, Jón Odd og Jón Bjarna, að vísu aðeins til á vélrituðum blöðum, en bráðskemmtileg. Höf- undurinn héti Guðrún Helgadótt- ir, deildarstjóri hjá Trygginga- stofnun. Ég fékk handritið sent og hafði það með mér í heimsókn til móður minnar á Akranesi. Þar prufulas ég verkið upphátt fyrir mömmu, Einar manninn minn og sex ára dóttur okkar. Við veltumst um af hlátri. Þetta var skemmti- legasta barnasaga sem ég hafði lesið frá því ég kynntist Línu lang- sokk. Þegar upptökur hófust í stúdíói fengum við tæknimaður- inn ítrekað hláturskast og urðum að stoppa í miðjum lestri og end- urtaka. Jón Oddur og Jón Bjarni fengu fljótt mikla hlustun, ég fékk m.a. kveðju frá sjómönnum á hafi úti sem sögðust bíða spenntir eftir hverjum lestri. En það sem meiru skipti var að höfundurinn fékk upphringingu frá útgefanda, Valdimar Jóhannssyni í Iðunni, sem falaðist eftir sögunni til út- gáfu. Kolbrún S. Kjarval var ráðin til þess að myndskreyta bókina sem kom út fyrir jól 1974 og sló í gegn. Ég fékk áritað eintak frá höfundi. Sumarið 1981 var svo gerð kvikmynd eftir sögunni sem þá var orðin að trílógíu, sem steypt var saman í handrit af kvikmynda- gerðarmanninum Þráni Bertels- syni. Mér var boðið hlutverk mömmu þeirra bræðra og nýr áfangi þessa ævintýris var hafinn. Þetta var í árdaga nýrrar bylgju kvikmyndagerðar á Íslandi, litlir peningar, engin leiktjöld smíðuð, búningar tíndir út úr fataskápum aðstandenda, íbúð í Tjarnarbóli tekin á leigu fyrir upptökur, allt annað gert úti, sama hvernig viðr- aði, sjaldan unnt að endurtaka neitt sem mistókst. Útkoman varð furðugóð og hvað sem göllunum líður hefur kvikmyndin um Jón Odd og Jón Bjarna orðið íslensk klassík eins og bækurnar. Og ég nýt þeirrar einstöku ánægju fram á þennan dag að vera spurð: Ert þú mamma Jóns Odds og Jóns Bjarna? Guðrún Helgadóttir varð fljót- lega fremsti barnabókahöfundur á Ísland, okkar Astrid Lindgren. Mér er í fersku minni þegar hún sýndi mér handritið að Óvitum fyrst, þar sem börn léku fullorðna og fullorðnir börn. Ég skemmti mér konunglega í mínu litla hlut- verki í sýningu Þjóðleikhússins 1979-80, sex ára í smekkbuxum sem ég óx þó fram úr, háólétt. Guðrún var með eindæmum skemmtileg heim að sækja. Ég hef átt margar háværar og andríkar stundir á heimilum hennar, fyrst í Skaftahlíð með Sverri Hólmars- syni þáverandi manni hennar, og síðar á Túngötunni, þar sem hún komst í að rækta draumagarðinn sinn. Ég er henni óendanlega þakklát fyrir tækifærin sem verk hennar hafa fært mér og allt and- lega fóðrið sem hún hefur búið til handa jafnt mínum börnum sem barnaskara Íslands og víðar. Að- standendum hennar öllum sendi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Guð- rúnar Helgadóttur. Steinunn Jóhannesdóttir. Guðrún Helgadóttir kom inn í íslenskar bókmenntir með lúðra- þyt og söng. Svo ástsæl urðu fyrstu sköpunarverk hennar, tví- burarnir Jón Oddur og Jón Bjarni, strax þegar Steinunn Jó- hannesdóttir las sögurnar um þá í útvarpið sumarið 1974 að nýprent- uð bókin rann út eins og heitar lummur um haustið. Mér hefur lengi fundist það vera einn besti greiði sem ég hef gert íslenskum bókmenntum að fá Guðrúnu til að leyfa flutning þessarar fyrstu sögu sinnar í útvarpið, en ég var þá umsjónarmaður Morgunstund- ar barnanna. Fram að því hafði sagan bara verið „til heimabrúks“ en nú urðu bræðurnir og höfundur þeirra alþekktar stærðir á íslensk- um heimilum. Hvað olli þessum tafarlausu vinsældum sem fá fólk á öllum aldri til að minnast þess nú hvern- ig það kynntist bókum hennar og hvaða áhrif þær höfðu? Á yfir- borðinu var það fyndnin; léttur og skemmtilegur stíllinn, orðheppn- in, hraðinn í frásögninni, lifandi og marghliða persónur. En undir niðri bjó það sem hafði ennþá var- anlegri áhrif: djúpur mannskiln- ingur, einstakt auga fyrir hinu margræða í mannlífinu sem gerði að verkum að allar kynslóðir nutu þess að lesa þessar bækur. Enda eru börnin ekki einsömul í bókum hennar, þau eru hluti af fjölskyld- um, umhverfi, þjóð. Guðrún bylti íslenskum barna- bókmenntum strax með sinni fyrstu bók og bent hefur verið á að það voru ekki einungis barnabæk- urnar sem höfðu gagn af þeirri byltingu. Með því að skrifa bækur um börn sem búa í borg og njóta þess í tætlur rifjaðist upp fyrir öðrum hvað það var og hafði verið gaman að vera barn í borginni. Höfundar á borð við Pétur Gunn- arsson og Einar Má Guðmunds- son sýndu það í bókum fyrir full- orðna lesendur sem sömuleiðis nutu feiknarlegra vinsælda. Á furðu skömmum tíma hætti Reykjavík bókmenntanna að vera spillingarbæli sem þurfti að bjarga börnum frá með því að senda þau í sveit og varð spenn- andi staður sem bauð upp á líf og fjör og ævintýri. Guðrún var ekki heldur smeyk við að gera um- hverfið þekkjanlegt í sögum sín- um, bæði hið manngerða umhverfi og mennina sjálfa, í sögu og sam- tíð. Lesendur á öllum aldri þekktu sig í bókum hennar, það var enn eitt sem jók á gildi þeirra. En rauði þráðurinn í öllum verkum Guðrúnar er barátta fyrir réttindum barna; rétti þeirra til að njóta umönnunar og ástar og til að á þau sé hlustað. Hún spurði frá upphafi: Af hverju eiga börn að hlýða fullorðnu fólki sem kemur illa fram við þau? Það var róttæk spurning og hún er enn í fullu gildi. Sjálf kynntist ég Guðrúnu þeg- ar ég var nemandi í MR og hún ritari rektors – og hinn raunveru- legi rektor skólans að margra mati. Hún hafði holl afskipti af nemendum og það var henni full- komlega eðlilegt að víkka út áhrifasvæði sitt á næstu árum og áratugum, fyrst inn í Trygginga- stofnun ríkisins, síðan inn í borg- armálin og loks inn á Alþingi Ís- lendinga. Alls staðar voru áhrif hennar til góðs og það er dýrmæt- ara en orð fá lýst að þau skuli lifa áfram í bókunum hennar. Við söknum hennar öll en samúðar- kveðjurnar fá þó einkum börnin hennar, tengdabörn og barna- börn. Silja Aðalsteinsdóttir. Rúna var ein af glaðbeittum stelpum sem komu í þriðja bekk MR haustið 1951. Þær voru ófeimnar við okkur í efri bekkjum og fóru til dæmis snemma að sækja Laugaveg 11 sem þá var kaffistaður ýmissa þeirra sem snobbuðu fyrir listum og öðru af- brigðilegu. Vilborg fyrri kona mín var bekkjarsystir Rúnu og þegar af þeim sökum urðum við nokkuð nánir kunningjar og áttum þátt í sameiginlegu bralli á næstu árum. Síðan lágu leiðir okkar saman þegar ég gerðist í nokkur ár kenn- ari við okkar gamla menntaskóla en hún hafði þá verið ritari rektors í átta ár og í reynd stjórnað skól- anum að drjúgu leyti, enda í eðli sínu stjórnsamari en yfirmaður- inn. Hún var í því hlutverki reynd- ar oft kölluð Stefanía eftir nafn- kunnum fyrirrennara sínum Stefaníu Guðnadóttur. Henni þótti sér heiður að því en mislíkaði Guðrún Helgadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.