Morgunblaðið - 11.04.2022, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2022
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Sólarfilmur
Límmiðar
Húsviðhald
Húsa-
viðgerðir
www.husco.is
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Náttúrulækningafélags Reykjavíkur
Aðalfundur NLFR verður haldinn þriðjudaginn
19. apríl 2022 kl. 17:00 í sal Ástjarnarkirkju,
Kirkjutorgi, 221 Hafnarfirði.
Dagskrá aðalfundar 2022
• Setning fundar, kosning fundarstjóra og ritara
• Skýrsla stjórnar og reikningar félagsins
• Lagabreytingar
• Tilnefningar til trúnaðarstarfa
• Kosning til trúnaðarstarfa
• Önnur mál
Stjórn NLFR
Tilkynningar
Auglýsing um skipulagsmál
í Þingeyjarsveit
Skipulags- og matslýsing vegna breytingar á
Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010-2022.
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti þann 7. apríl
2022 að kynna skipulags- og matslýsingu vegna
breytingar á Aðalskipulagi Þingeyjarsveitar 2010 – 2022
í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fyrirhuguð breyting á aðalskipulagi felur í sér að
landnotkun frístundabyggðar í landi Skóga sé skilgreind
sem íbúðarbyggð. Gert er ráð fyrir því að fjöldi lóða
haldist óbreyttur frá því sem núverandi deiliskipulag
kveður á um.
Skipulags- og matslýsingin verður aðgengileg á
heimasíðu sveitarfélagsin, www.thingeyjarsveit.is og á
skrifstofu sveitarfélagsins. Skipulags- og matslýsingin
er auglýst með umsagnarfresti frá og með 11. apríl til
og með 29. apríl 2022. Umsagnir við lýsinguna skulu
berast skipulagsfulltrúa á netfangið
atli@skutustadahreppur.is
f.h. Þingeyjarsveitar
Atli Steinn Sveinbjörnsson, skipulagsfulltrúi
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Botsía með Guðmundi kl. 10. Handavinna kl. 12.30-16.
Félagsvist kl. 12.45. Glervinnustofa kl. 13-16. Hjólað á æfingahjóli fyrir
framan skjá um borg og bý kl. 14. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heitt á
könnunni. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600.
Boðinn Leikfimi Qi-gong kl. 10.30. Félagsvist kl. 13. Myndlist kl. 13.
Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qi-gong kl. 7-8. Kaffisopi og
spjall kl. 8.30-11. Postulínsmálun kl. 9-12. Morgunleikfimi með
Halldóru á RÚV kl. 9.45-10. Ganga kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30.
Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-13.10. Félagsvist kl. 13. Síðdegiskaffi kl.
14.30-15.30.
Garðabær Kl. 9 pool-hópur í Jónshúsi, kl. 10 gönguhópur frá Jóns-
húsi, kl. 11 stóla-jóga í Kirkjuhvoli, kl. 12.30-15.40 brids í Jónshúsi, kl.
12.40 Bónusrúta frá Jónshúsi, kl. 13 gönguhópur frá Smiðju, kl. 13
glernámskeið í Smiðju, kl. 15 / 15.40 / 16.20 vatnsleikfimi í Sjálandi, kl.
16.30 Zumba Gold í Kirkjuhvoli.
Gerðuberg Opnum í félagsstarfinu kl. 8.30, byrjum daginn í Búkollu-
laut með kaffispjalli. Páskabingóið hefst kl. 13.30, spjaldið kostar 250
kr. Góðir vinningar í boði. Vöffukaffi verður á boðstólum um kl. 15,
verð 300 kr. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa. Kl. 9-10.30 botsía-
æfing. Kl. 9-11.30 postulínsmálun. Kl. 10.50 til ca 12.15 jóga. Kl. 13-16
opin handavinnustofa og verkstæði. Kl. 13.15-15 kanasta. Kl. 16.30-
18.30 kóræfing hjá Söngvinum.
Grafarvogskirkja Þriðjudaginn 12. apríl verður kyrrðarstund í Graf-
arvogskirkju. Kyrrðarstundin hefst kl. 12. Kyrrðarstundin er hugljúf
stund með fyrirbænum, altarisgöngu og söng. Að kyrrðarstund lok-
inni er boðið uppá léttan hádegisverð gegn vægu gjaldi. Verið öll
hjartanlega velkomin!
Gullsmári 13 Opin handavinnustofa kl. 9-16. Qi-gong heilsueflandi
æfingar kl. 9. Brids kl. 13. Jóga kl. 17. Félagsvist kl. 20.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli
kl. 9-11. Samsöngur kl. 13.30, allir velkomnir, sönghefti á staðnum,
veitingar seldar eftir sönginn.
Hraunsel Billjard kl. 8-16. Myndlistarklúbbur kl. 9. Stóla jóga kl. 10.
Félagsvist kl. 13. Gaflarakórinn kl. 11.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Jóga með
Ragnheiði Ýr kl. 12.20.Tálgað, opinn hópur kl. 13-16. Brids kl.13.
Zumba með Carynu kl. 13.10. Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf
fyrir hádegi deginum áður.
Korpúlfar Borgum Hugleiðsla og létt jóga kl. 8.30. Gönguhópar frá
Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll kl. 10, tveir styrkleika-
flokkar, svo að allir finna göngu við sitt hæfi. Dansleikfimi með Auði
Hörpu kl. 11. Félagsvist í Borgum kl. 12.30. Prjónað til góðs kl. 13.
Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl.13. Línudans kl. 15. Kóræfing
Korpusystkina kl. 16. Gleðin býr í Borgum.
Samfélagshúsið Vitatorgi Leirmótun í smiðju kl. 9-13. Opin handa-
vinnustofa kl. 9-12. Bókabíllinn Höfðingingi verður á svæðinu frá kl.
13.10-13.30. Opin handavinnustofa kl. 13-15. Botsía í setustofu kl.
13.15-14. Slökunarstund með Marinu kl. 15 í handverksstofunni og
síðan er síðdegiskaffi frá kl. 14.30-15.30. Allar nánari upplýsingar í
síma 411-9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :)
Seltjarnarnes Skólabraut: Kaffikrókur frá kl. 9. Leir kl. 9. Jóga / leik-
fimi kl. 11. Handavinna, samvera og kaffi kl. 13. Gler á neðri hæð
félagsheimilisins kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Í kvöld
kl. 19.30 verður páskaeggjabingó í safnaðarheimili kirkjunnar kl.
19.30. Spjaldið kostar kr. 300. Allir velkomnir.
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
intellecta.is
✝
Anton Helgi
Jónsson fæddist
26. apríl 1930 í
Hafnarfirði og bjó
alla sína tíð þar.
Hann lést á Landa-
koti 30. mars 2022.
Foreldrar hans
voru hjónin Jón
Jens Sumarliðason
frá Bolungarvík, d.
1950, og Guðrún
Ólafsdóttir frá Þór-
isstöðum í Grímsnesi, d. 1981.
Systkini Antons eru: Laufey
Jensdóttir, d. 2013. Maki Páll G.
Hannesson, d. 2005, Vigdís Jóns-
dóttir. Maki Gunnlaugur T.
Skaftason, Ólafur Þ. Jónsson, d.
1992. Maki Sesselja Zophanías-
dóttir, d. 2007, Vilhjálmur K.
Jónsson, d. 1940. Ragnhildur
Jónsdóttir. Maki Jónatan Þór-
isson, d. 2020, og Vilhjálmur K.
Jónsson. Maki Guðrún Ásgeirs-
dóttir.
Anton kvæntist 5. nóv. 1958
Maríu Gunnarsdóttur, d. 2020.
Foreldrar Maríu voru hjónin
Gunnar Andrew Sigurðsson, d.
1967, og Guðrún Jónsdóttir, d.
2014.
Börn Antons og Maríu eru:
1) Gunnar Már Antonsson, f.
1958. Maki Guðrún Lára Guð-
mundsdóttir. Barnsmóðir Erna
Svavarsdóttir. Börn Gunnars og
Ernu eru a) Tvíburarnir María
Guðrún og Anna Dagbjört. Maki
Maríu er Björgvin Þór Þorsteins-
son. Börn þeirra eru þrjú: Sigríð-
ur Erna, Bjarki Þór og Amanda
Líf. b) Anna Dagbjört Gunn-
arsdóttir. Börn Önnu eru tvö:
Helgi Hjörtur og Arnar Logi.
2) Guðrún Antonsdóttir, f.
1960. Maki Dan Hillergård.
Barnsfaðir Jakob S. Jónsson.
Börn Guðrúnar og Jakobs eru a)
Svava Jakobsdóttir. Maki Kj
Fazzani. Svava á tvö börn, Adam
Frey og Jakob Jón Loka b) Anton
Freyr Jakobsson. Maki Ermína
Brnjak. c) Ásta María Jak-
obsdóttir.
3) Anton Már
Antonsson, f. 1961.
Maki Helga María
Guðjónsdóttir.
Börn Antons og
Helgu eru: a) Sigur-
rós Antonsdóttir.
Maki Brynjar Emil
Friðriksson. Þau
eiga tvö börn: Kötlu
Maríu og Sumar-
liða.
b) Elsa Antonsdóttir. Maki
Troels Jørgensen. Þau eiga tvö
börn: Emmu Jørgensen og Oskar
Jørgensen c) Davíð Már Ant-
onsson.
4) Auður Lísa Antonsdóttir, f.
1964. Maki Egill Örlygsson. Börn
Auðar og Egils eru: a) Agnes Ósk
Egilsdóttir. Maki Grétar Ólafs-
son. Þau eiga tvö börn: Maríu og
Emelíu. b) Egill Örn Egilsson.
Maki Bryndís Eva Heiðarsdóttir.
5) Fyrir eiga Anton og Mar-
grét Guðbrandsdóttir soninn
Braga Antonsson, f. 1949. Maki
Ann-Katrin Ryjkov. Barnsmóðir
Brynja Gunnarsdóttir, d. 2012.
Börn Braga og Brynju eru: a)
Kristjana Ingibjörg Bragadóttir.
Hún á eina dóttur, Thelmu Björk
b) Ólafur Guðjón Bragason, d.
2021. Hann á þrjú börn, Ölvu
Brynju Mathildu, Leu Helgu
Adele og Ólafíu Johönnu Ellen.
6) Uppeldissonur þeirra er
Sigurður Hilmar Gíslason, f.
1946, sem kom til þeirra á ferm-
ingarári sínu.
Anton fæddist á Suðurgötu í
Hafnarfirði og byggði sér og fjöl-
skyldu sinni hús á Mosabarði 10 í
Hafnarfirði þar sem þau hjónin
bjuggu alla sína ævi. Hann stund-
aði nám við Flensborgarskóla og
menntaði sig síðan sem loftskeyta-
maður og vann við það alla sína
starfsævi bæði til lands og sjós.
Útför Antons fer fram í Hafn-
arfjarðarkirkju í dag, 11. apríl
2022, og hefst athöfnin klukkan
11.
Minn ástkæri afi, takk fyrir
allar þær dýrmætu stundir sem
við fengum saman.
Ég mun sakna þess að geta
kíkt til þín og fengið ráð við nán-
ast öllu, þú varst alltaf með svör-
in. Þú kenndir mér hversu mik-
ilvægt það er að hafa trú á því
sem maður er að gera og standa
með sjálfum mér. Mér fannst þú
alltaf vera aðdáandi númer eitt,
þú varst alltaf svo stoltur af mér
og sýndir það með þínum mikla
áhuga og hlýlega brosi.
Ég fór alltaf fyrst til þín að
sýna þér nýja bílinn minn, sama
hversu ómerkilegur bíllinn var,
þá fannst þér bíllinn alltaf flott-
astur. Þegar eitthvað nýtt gerðist
í lífi mínu fannst mér alltaf
skemmtilegast að segja þér, þú
gladdist alltaf með manni.
Þú kenndir mér svo margt, þú
kenndir mér að synda, þú kennd-
ir mér hvernig best væri að gyrða
skyrturnar mínar, þú kenndir
mér að hlusta á óperu og svo
miklu meira. Eitt af því mikil-
vægasta sem þú kenndir mér var
mikilvægi þess að vera alltaf að
læra eitthvað nýtt og ekki vera
hræddur við að prófa nýja hluti.
Mikið sem ég mun sakna þess
að tylla mér við eldhúsborðið með
heitan kaffibolla og spjalla við þig
um allt og ekkert.
Þú varst, ert og verður alltaf
ein af mínum fyrirmyndum.
Takk fyrir allt elsku afi, ég
hlakka til að segja þér frá öllu
sem ég hef gert næst þegar við
hittumst.
Þinn
Egill litli.
Elsku besti afi, það hefur verið
erfitt að kveðja þig en ég veit að
amma tekur á móti þér með opn-
um örmum eins og henni einni er
lagið.
Það vermir mér um hjartaræt-
ur að líta til baka á allan þann
tíma sem við höfum átt saman.
Mér eru sérstaklega minnisstæð-
ar allar sundferðirnar sem við
fórum í, dvölin í sumarbústaðn-
um, garðvinnan sem mér þótti
alltaf svo gaman að fá að taka
þátt í með þér og allar samveru-
stundirnar á Mosabarði. Ég verð
nú líka að minnast á heimsins
besta grjónagrautinn en betri
graut getur enginn útbúið.
Eftir að ég komst á fullorðins-
aldur hefur þú alltaf verið minn
mesti stuðningsmaður og skipti
það engum máli hvert málefnið
var, alltaf fékk ég uppbyggjandi
og jákvæð viðbrögð frá þér. Mér
þótti alltaf svo vænt um að fá
hrós frá afa og ég held fast í þau
og minni mig á þau.
Elsku afi, ég elska þig af öllu
hjarta. Hvíldu í friði, þín Agnes.
Agnes Ósk Egilsdóttir.
Anton Helgi
Jónsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar