Morgunblaðið - 11.04.2022, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2022
Hækk
aðu
í leð
innig
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Takturinn í lífi þínu verður hraðari á
næstunni og á næstu vikum getur þú átt von
á meira annríki en venjulega. Sýndu þolin-
mæði og andaðu með nefinu.
20. apríl - 20. maí +
Naut Enginn er alvitur og þú verður að
viðurkenna að stundum hefur þú á röngu að
standa. Einhver ber upp óvænta bón við þig.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Samstarfsmenn þínir munu hugs-
anlega koma þér á óvart í dag. Þeir eru
margir sem líta til þín í von um ráð og leið-
sögn.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Það er engu líkara en einhverju
moldviðri hafi verið þyrlað upp í kringum
þig. Ef þig vantar hjálp verður þú að kyngja
stoltinu og biðja um hana.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú munt ná takmarki þínu ef þér tekst
að virkja annað fólk til að bera sinn hluta
byrðarinnar. Gættu þess að misnota ekki
þessi forréttindi.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú munt áreiðanlega aldrei sjá sjálf-
an þig eins og annað fólk gerir. Nú er rétti
tíminn til þess að gera áætlun og kippa því í
lag sem hefur farið úrskeiðis.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú verður að orða hugsanir þínar á
þann veg að aðrir fáist til að leggja hönd á
plóginn. Darraðardans dagsins kallar á fág-
aða framgöngu hjá þér.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Eitthvað vill ekki ganga upp hjá
þér og þú kinokar þér við því að leita ástæðu
þess. Sinntu þínu og varastu að dragast inn í
deilur manna.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Skrifaðu niður skuldbindingar
þínar gagnvart öðrum, og hvettu aðra til
hins sama. Gættu hagsmuna þinna en vertu
sanngjarn.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Brjóttu lífsmáta þinn til mergjar
og gáðu hvort hann stenst nánari athugun.
Láttu óskhyggjuna ekki ráða því hvernig þú
sérð hlutina.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Sá vinnur sem þorir að taka
áhættuna á að verða hafnað. Taktu ekki
meira að þér en þú getur staðið við og gefðu
þér tíma til að kynnast öllum málavöxtum.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Stórkostlegt samband ýtir undir vel-
sæld en slæmur ráðahagur gerir hið gagn-
stæða. Sinntu starfi þínu af kostgæfni.
í hlutastarfi með trésmíðinni og
varð síðan að velja í hvorri starfs-
greininni hann vildi vinna. Magnús
fór síðan að kenna tónmennt við
Barnaskóla Ólafsfjarðar, var kenn-
ari hjá Tónlistarskóla Akureyrar og
Tónlistarskóla Eyjafjarðar í nokkur
ár svo eitthvað sé nefnt.
Magnús varð skólastjóri Tón-
skóla Ólafsfjarðar 2003 og síðan
skólastóri Tónskóla Fjallabyggðar
2010 með tilkomu Héðinsfjarðar-
ganga og sameiningu skólastiga á
Drengurinn ungi bjó hjá ömmu
sinni og afa fyrstu átta ár ævinnar.
Magnús lærði handtök sjómennsk-
unnar hjá afa sínum og Júlíusi
Magnússyni, frænda sínum. Saman
voru þeir á grásleppuveiðum ásamt
öðru. Því miður lést Magnús Jón
langt fyrir aldur fram árið 1980.
Sjósóknin hætti ekki og fór Magnús
m.a. í túra með tengdapabba sínum,
Núma Jóhannssyni, í nokkur ár.
Þar var síldin elt uppi meðfram því
að stunda veiðar á netum og línum.
Magnús var á sjónum þangað til
tveggja ára gamall sonur hans
þekkti hann ekki við komuna í land.
Hætti hann því með öllu á sjó og
kom í land árið 1987. Á þessum
tímapunkti fékk Magnús vinnu hjá
Tréveri sem var alhliða húsasmíða-
fyrirtæki. Þar var skrifað undir
samning til fjögurra ára hjá Vigfúsi
Skíðdal Gunnlaugssyni, einum eig-
anda Trévers.
Valdi tónlistarkennsluna
Tónlistin hefur alltaf verið mikið
afl í lífi Magnúsar og fór hann strax
að kenna við Tónskóla Ólafsfjarðar
M
agnús G. Ólafsson
fæddist í Guðmund-
arhúsi í Ólafsfirði
sunnudaginn 11.
apríl 1962. Magnús
er fæddur inn í mikla sjómannsætt
og er óhætt að segja að sú stað-
reynd hafi haft mikil áhrif á fyrstu
ár lífs hans. Strax frá (salt)blautu
barnsbeini var það sjósókn og ver-
tíð sem réð gangi lífsins. Leiðir for-
eldra skilur og Ólafur, faðir Magn-
úsar, eltir fiskinn út í
Vestmannaeyjar. Þar á Magnús
einnig stóra fjölskyldu sem, þrátt
fyrir landfræðilega fjarlægð, heldur
uppi góðu sambandi og sam-
skiptum.
Magnús gekk í Barnaskóla Ólafs-
fjarðar og síðan í Gagnfræðaskóla
Ólafsfjarðar. Þar á eftir tók Iðn-
skóli Ólafsfjarðar við og lærði hann
þar húsasmíði. Síðar á lífsleiðinni
fór Magnús í tónlistarnám á Ak-
ureyri hjá Tónlistarskóla Akureyr-
ar. Þar lærði hann á klassískan gít-
ar.
Strax á tánings- og unglingsárun-
um sýndi Magnús frumkvöðla-
hæfileika sína með því að stofna
rennismíðaverkstæði í bílskúrnum
heima hjá sér í Aðalgötu 29. Þar
var 14 ára pjakkur, með verkfæri
sem hann fékk í fermingargjöf, að
sýna hvers megnugur hann var í
höndunum. Einnig voru stofnaðar
hljómsveitir í gríð og erg. Hljóm-
sveitin Kornflexbræður var sett
saman ásamt félögum úr gagn-
fræðaskólanum þegar Magnús og
félagar voru einungis 14 ára gamlir.
Fjölmargar aðrar merkilegar
hljómsveitir litu dagsins ljós bæði í
samstarfi við Siglfirðinga og Dal-
víkinga. Sá listi væri of langur til að
tíunda hér. Magnús hefur þannig í
gegnum árin sett mark sitt á tón-
listar- og menningarlífið á Ólafsfirði
og verið bæði frumkvöðull og þátt-
takandi í hinum ýmsum viðburðum.
Magnús fór snemma á sjóinn
með afa sínum og stundaði sjó-
mennskuna af krafti frá unga aldri.
Afi Magnúsar, Magnús Jón Guð-
mundsson, og amma hans, Jósefína
Marsibil Jóhannsdóttir, voru dótt-
ursyni sínum sem foreldrar og
studdu hann í gegnum súrt og sætt.
Ólafsfirði og Siglufirði. Í ágúst 2016
var tekin sú ákvörðun að láta reyna
að sameina Tónskóla Fjallabyggðar
og Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar
í einn skóla, Tónlistarskólann á
Tröllaskaga. Við sameininguna varð
til stór tónlistarskóli á landsbyggð-
inni með 18 tónlistarkennara og um
250 nemendur í báðum byggð-
arkjörnum. Einnig sér skólinn um
alla tónmennt í grunnskólum á
Tröllaskaga. Með þessari samein-
ingu og fjölda starfsmanna var
skólinn tilbúinn að mæta þeim að-
stæðum í skólastarfi sem geta kom-
ið upp í krafti stærðarinnar. Óhætt
er að segja að þetta hafi verið
skemmtilegur tími og er afmæl-
isbarnið gríðarlega stolt af þátttöku
sinni í að móta þennan skóla sem
hefur orðið til. Á þessum 35 árum í
kennslu hefur margt breyst.
Kennsluaðferðir, tækni og nálgun
hefur tekið miklum framförum og
hefur Magnús alltaf verið framar-
lega í að tileinka sér nýja tækni og
hugsun.
Undanfarna áratugi hefur Magn-
ús verið iðinn við að semja og spila
eigin tónlist. Þó nokkur lög sem
Magnús er höfundur að hafa verið
gefin út. Árið 2002 var Mogomusic
ehf. stofnað. Hljóðupptökustúdíó,
hljóðtækjaleiga og fjölföldun á
geisladiskum og DVD-diskum. Slíkt
var nánast óþekkt á landsbyggð-
inni. Mogomusic hefur komið að
mörgum viðburðum á Norðurlandi
ásamt því að taka upp og gefa út
diska og selja í gegnum fyrirtækið
Jensen ehf. Helst má þar nefna
hljómsveitina Roðlaust og bein-
laust.
Undanfarin ár hefur Magnús
sinnt fleiri áhugamálum eins og
hjólreiðum, töku ljósmynda og
drónaflugi. Með drónanum hefur
hann tekið myndbönd og ljós-
myndir í Ólafsfirði sem gjarnan
endurspegla þá náttúrufegurð sem
sveitarfélagið státar af. Magnús er
einnig áhugasamur um mat og mat-
argerð og hefur verið óhræddur við
að gera tilraunir í eldhúsinu með
góðum árangri.
Fjölskylda
Kona Magnúsar er Agnes Núma-
Magnús G. Ólafsson, skólastjóri Tónlistarskólans á Tröllaskaga – 60 ára
Píeta-ganga Magnús og Agnes ásamt börnunum, Ásgerði tengdamóður
Magnúsar og tveimur barnabörnum árið 2018.
Sýndi fljótt frumkvöðlahæfileika
Feðgar Alexander, Magnús yngri
og Magnús eldri með tónleika.
50 ÁRA Dagný ólst upp á Guðnastöð-
um í Austur-Landeyjum en býr á Sel-
fossi. Hún er iðjuþjálfi að mennt frá Há-
skólanum á Akureyri, en starfar sem
málastjóri hjá geðheilsuteymi HSU. Hún
er einnig starfsmaður hjá Lyfju. .
Áhugamálin eru að sinna fjölskyldu, elda
og ferðast. „Ég er mikill kokkur og elska
að elda fyrir fjölskylduna.“
FJÖLSKYLDA Eiginmaður Dagnýjar
er Ragnar Guðmundsson, f. 1971, vél-
virki og vinnur hjá Selfossveitum. Börn
þeirra eru Smári, f. 1998, Lilja, f. 2000,
Íris, f. 2002, og Pálmi, f. 2006. Foreldrar
Dagnýjar eru Ragnar Guðlaugsson, f.
1934, d. 2017, og Margrét Strupler, f.
1947 í Weinfelden í Sviss. Þau voru
bændur á Guðnastöðum, en Margrét er
nú búsett á Selfossi.
Til hamingju með daginn
Dagný Ragnarsdóttir
Guðnastaðir Ragnar Matthíasson
fæddist 26. ágúst 2021 kl. 9.00. Hann
vó 3.530 g og var 49 cm langur. For-
eldrar hans eru Matthías Ragnarsson
og Svanhildur Guðmundsdóttir.
Nýr borgari