Morgunblaðið - 11.04.2022, Side 27

Morgunblaðið - 11.04.2022, Side 27
með 45.150 stig og Stjarnan í sjö- unda sæti með 41.850 stig. _ Willum Þór Willumsson skoraði þriðja mark BATE Borisov í 3:0 úti- sigri á Dnepr Mogilev í hvítrússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Willum spilaði allan leikinn og bætti við þriðja marki sinna manna í seinni hálfleik. BATE er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir þrjár umferð- ir. _ Þórir Jóhann Helgason kom af bekknum og tryggði Lecce sigur á SPAL í ítölsku B-deildinni í knatt- spyrnu á laugardag en lokatölur urðu 1:0. Þórir byrjaði sem varamaður en kom inn á eftir rétt rúmlega klukku- tíma leik. Einungis fjórum mínútum síðar skoraði hann sigurmarkið. Dav- íð Snær Jóhanns- son er einnig leik- maður Lecce en hann var ekki í hópnum. _ Anton Sveinn McKee fagnaði sigri í 100 metra bringusundi á Opna spænska meistaramótinu í sundi í Torremolinos í gær. Anton synti á 1:00,80 mínútu í úrslitasundinu og var hálfri sekúndu frá eigin Íslands- meti. Er tíminn sá besti hjá Antoni á árinu. _ KA fagnaði deildarmeistaratitlinum í blaki í kvennaflokki með 3:0-sigri á HK í úrvalsdeild- inni í gær. KA vann hrinurnar þrjár 25:18, 25:17 og 25:19. KA tryggði sér bikar- meistaratitilinn um síðustu helgi og því mikið um fagnaðarlæti á Akureyri að undanförnu. Norð- ankonur unnu 17 af 18 leikjum sínum á leiktíðinni og enduðu með 51 stig, sex stigum meira en Afturelding. _ Steingerður Hauksdóttir átti besta afrek Íslandsmótsins í sundi í 50 metra laug en keppt var í Laug- ardalslaug um helgina. Steingerður kom fyrst í mark í 50 metra baksundi á 29,55 sekúndum og fékk fyrir af- rekið Ásgeirsbikarinn. Þá tryggði Símon Elías Statkevicius sér sæti í 50 metra flugsundi á Evrópumótinu í gær. Símon kom fyrstur í mark á 24,75 sekúndum og tryggði sér þátttökurétt á EM í leið- inni. Jóhanna Elín Guðmundsdóttir hafði þegar tryggt sér sæti á EM með því að synda 50 metra skriðsund á 26,09 sekúndum. Fjölmörg aldurs- flokkamet voru slegin á mótinu en nánar er fjallað um það á mbl.is. _ Íslenska landsliðið í karate vann til átta verðlauna á Opna sænska meist- aramótinu sem fór fram á laugardag. Adam Ómar Ómarsson vann einu ís- lensku gullverðunin er hann vann kata 13 ára og yngri. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2022 Víkingur úr Reykjavík sigraði Breiðablik 1:0 í Meistarakeppni KSÍ á Víkingsvelli í Fossvogi í gær- kvöldi. Er leikurinn árlegur leikur ríkjandi Íslands- og bikarmeistara. Þar sem Víkingur vann tvöfalt á síðasta ári mætti liðið Breiðabliki sem varð í öðru sæti í úrvalsdeild- inni á síðustu leiktíð. Sigurinn var sá þriðji hjá Víkingi í keppninni en Fossvogsliðið vann einnig árin 1982 og 1983. Erlingur Agnarsson sá um að skora sigurmark Víkinga í gær- kvöldi á 23. mínútu eftir undirbún- ing hjá Helga Guðjónssyni. Víkingurinn Pablo Punyed fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 57. mínútu en þrátt fyrir liðsmuninn gekk Breiðabliki illa að skapa sér alvörufæri. Kristinn Steindórsson komst næst því að jafna en Ingvar Jónsson varði vel frá honum og Víkingar fögnuðu enn einum bikarnum. Aðeins ein vika er þar til Vík- ingur leikur upphafsleik Bestu deildarinnar á heimavelli gegn FH. Morgunblaðið/Óttar Geirsson Meistarar Leikmenn Víkings úr Reykjavík fagna sigri í Meistarakeppni KSÍ eftir 1:0-sigur á Breiðabliki á Víkingsvellinum í Fossvogi í gærkvöldi. Tíu Víkingar unnu Deildarmeistarar Njarðvíkur eru einum sigri frá sæti í undan- úrslitum Íslandsmóts karla í körfu- bolta eftir 74:67-sigur á KR í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitunum á laugardag. Njarðvík vann 99:90- heimasigur í fyrsta leik og er því með 2:0-forystu í einvíginu. Njarðvík var yfir allan leikinn en KR náði nokkrum sinnum að minnka muninn í tvö stig. Þá kom gott áhlaup hjá Njarðvík á móti og deildarmeistararnir sáu til þess að KR næði aldrei að jafna. Bandaríkjamaðurinn Dedrick Basile skoraði 25 stig fyrir Njarð- vík og Þorvaldur Orri Árnason 15 fyrir KR. Þriðji leikurinn fer fram annað kvöld og getur Njarðvík tryggt sér sæti í undanúrslitum með sigri. Verður það að teljast lík- leg niðurstaða, en Njarðvík endaði með 14 stigum meira en KR í deild- arkeppninni. Grindavík tókst að jafna einvígi sitt gegn Íslandsmeisturum Þórs frá Þorlákshöfn með 86:85- heimasigri í öðrum leik. Lokakafl- inn var æsispennandi en Elbert Matthews, sem átti stórleik, tryggði Grindavík sigurinn með síðustu körfu leiksins, þremur sekúndum fyrir leikslok. Matthews skoraði 30 stig og tók 10 fráköst. Kyle Johnson skoraði 25 stig fyrir Þór. Ljóst er að einvígið er erfiðara fyrir Þór en margir áttu von á en Þórsarar enduðu í öðru sæti Subway-deildarinnar með 34 stig og Grindavík varð í sjöunda sæti með 22 stig. Grindavík var yfir stóran hluta af fyrsta leiknum í Þorlákshöfn og er ljóst að Íslands- meistararnir þurfa að leika vel til að komast aftur yfir í einvíginu annað kvöld. Njarðvík þarf einn sigur til viðbótar Morgunblaðið/Óttar Geirsson Frostaskjól Fotios Lampropoulos sækir að Dani Koljanin á laugardag. Manchester City er áfram með eins stigs forskot á toppi ensku úrvals- deildarinnar í fótbolta eftir 2:2- jafntefli við Liverpool á heimavelli í toppslag í gær. Liverpool hefði með sigri farið upp í toppsætið en gest- irnir þurftu tvö jöfnunarmörk til að bjarga einu stigi. City byrjaði með látum því Kevin De Bruyne skoraði fyrsta markið strax á 5. mínútu. Adam var ekki lengi í paradís því Diogo Jota jafnaði á 13. mínútu. Staðan var 1:1 fram á 36. mínútu þegar Gabriel Jesus kom City aftur yfir og var staðan í hálf- leik 2:1. Það tók Sadio Mané minna en mínútu að jafna í seinni hálfleik og þar við sat. Bæði lið eiga sjö leiki eftir og nægir City að vinna þá alla til að verða meistari en Liverpool verður að treysta á að Manchester-liðið misstígi sig til að geta orðið meistari. Tottenham átti góða helgi í bar- áttunni um fjórða sætið. Liðið vann 4:0-útisigur á Aston Villa á meðan Arsenal, West Ham og Manchester United töpuðu öll. Heung-min Son skoraði þrennu fyrir Lundúnaliðið. Tottenham er með þremur stigum meira en Arsenal en Arsenal-liðið á leik til góða. Everton vann 1:0-sigur á Man- chester United og Norwich vann 2:0- sigur á Burnley. Everton er því með fjórum stigum meira en Burnley í fallbaráttunni. Jóhann Berg Guð- mundsson lék ekki með Burnley vegna meiðsla. Þá vann Chelsea 6:0-útisigur á Southampton þar sem Mason Mount og Timo Werner gerðu tvö mörk hvor. Chelsea er með fín tök á þriðja sætinu en nokkuð á eftir City og Liv- erpool. City áfram hænu- skrefi á undan - Liverpool jafnaði tvisvar í Manchester AFP/Paul Ellis Slagur Topplið ensku úrvalsdeild- arinnar skiptu með sér stigunum. Skautafélag Akureyrar varð á laug- ardag Íslandsmeistari kvenna í ís- hokkí 16. árið í röð með 1:0-sigri á Fjölni í Skautahöll Akureyrar í þriðja leik liðanna í úrslitum. SA vann einvígið 3:0 og fagnaði enn og aftur Íslandsmeistaratitlinum. Karlalið SA varð einnig meistari á dögunum og geta Akureyringar því fagnað tvöfalt í ár, ekki í fyrsta skipti. Leikmenn SA þurftu svo sannar- lega að hafa fyrir sigrinum á laug- ardar. Ekkert var skorað í venjuleg- um leiktíma, sem er óvenjulegt í íshokkí, og réðust úrslitin að lokum í bráðabana í framlengingu. Í bráða- bana leika aðeins þrír leikmenn í hvoru liði og opnast leikurinn mikið fyrir vikið. „Nagandi spenna greip um sig á pöllunum og liðin fengu hvert færið af öðru þar til fyrirliði SA, Ragnhild- ur Kjartansdóttir, komst á auðan sjó og afgreiddi pökkinn í bláhornið á marki Fjölnis. Þar með var titillinn Akureyringa en SA var að vinna 16. Íslandsmeistaratitil sinn í röð,“ skrifaði Einar Sigtryggsson m.a. um leikinn á mbl.is. Morgunblaðið/Þórir Tryggvason Meistarar Leikmenn Skautafélags Akureyrar fagna 16. Íslandsmeist- aratitlinum í röð eftir sigur á Fjölni í bráðabana í Skautahöll Akureyrar. Gullmark réð úrslitum KÖRFUKNATTLEIKUR 8-liða úrslit karla, þriðji leikur: Sauðárkrókur: Tindastóll – Keflavík.. 18.15 Hlíðarendi: Valur – Stjarnan............... 20.15 1. deild kvenna, þriðji úrslitaleikur: Kennaraháskóli: Ármann – ÍR............ 19.15 Í KVÖLD! Subway-deild karla 8-liða úrslit karla, annar leikur: Grindavík – Þór Þ. ................................ 86:85 _ Staðan er 1:1 KR – Njarðvík ...................................... 67:74 _ Staðan er 2:0 fyrir Njarðvík. 1. deild karla Umspil, undanúrslit, fjórði leikur: Álftanes – Sindri................................... 96:75 _ Staðan er 2:2. Subway-deild kvenna Undanúrslit, þriðji leikur: Fjölnir – Njarðvík ................................ 51:72 _ Staðan er 2:1 fyrir Njarðvík. Valur – Haukar..................................... 73:80 _ Haukar unnu einvígið 3:0. Spánn Bilbao – Valencia................................. 84:78 - Martin Hermannsson skoraði 11 stig, tók 3 fráköst og gaf 3 stoðsendingar á 21 mínútu hjá Valencia. Belgía/Holland Belfius – Landstede Hammers (frl.) 105:98 - Þórir Guðmundur Þorbjarnarson skor- aði 14 stig, tók 15 fráköst og gaf 8 stoðsend- ingar á 48 mínútum með Landstede Ham- mers. Phoenix Brussels – Hague Royals..... 85:71 - Snorri Vignisson skoraði 18 stig og tók 5 fráköst á 35 mínútum með Hague Royals. Danmörk Fyrsti úrslitaleikur: Falcon – Sisu ........................................ 82:57 - Þóra Kristín Jónsdóttir skoraði 5 stig, gaf 5 stoðsendingar og tók 3 fráköst á 20 mínútum með Falcon og Ástrós Lena Ægisdóttir tók 2 fráköst og gaf 1 stoðsend- ingu á 11 mínútum. >73G,&:=/D Olísdeild karla Haukar – FH ........................................ 32:31 Selfoss – Valur ...................................... 26:38 Grótta – KA........................................... 33:28 Stjarnan – Víkingur ............................. 42:30 HK – ÍBV .............................................. 33:37 Afturelding – Fram.............................. 23:26 Lokastaðan: Valur 22 16 2 4 652:556 34 Haukar 22 15 4 3 671:615 34 ÍBV 22 14 3 5 682:664 31 FH 22 13 3 6 619:568 29 Selfoss 22 12 2 8 612:598 26 Stjarnan 22 11 2 9 638:626 24 KA 22 9 2 11 603:630 20 Fram 22 8 3 11 609:617 19 Grótta 22 8 3 11 615:617 19 Afturelding 22 6 7 9 598:610 19 HK 22 2 2 18 582:652 6 Víkingur 22 1 1 20 515:643 3 Olísdeild kvenna Fram – Valur ........................................ 24:17 KA/Þór – Afturelding .......................... 36:21 HK – Stjarnan ...................................... 19:24 Haukar – ÍBV ....................................... 27:27 Staðan: Fram 20 15 1 4 559:470 31 KA/Þór 20 14 1 5 569:509 29 Valur 20 14 0 6 534:456 28 ÍBV 20 11 1 8 543:520 23 Haukar 20 9 2 9 554:531 20 Stjarnan 20 9 0 11 515:521 18 HK 20 5 1 14 455:523 11 Afturelding 20 0 0 20 456:655 0 Þýskaland Wetzlar – Magdeburg ......................... 26:29 - Ómar Ingi Magnússon skoraði 6 mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist- jánsson 6. Flensburg – N-Lübbecke.................... 30:19 - Teitur Örn Einarsson skoraði 2 mörk fyrir Flensburg. Sachsen Zwickau – Bietigheim ......... 20:40 - Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði 5 mörk fyrir Sachsen Zwickau. Danmörk Kolding – Holstebro............................ 29:28 - Ágúst Elí Björgvinsson varði 3 skot í marki Kolding sem endaði í 12. sæti. Ringsted – GOG ................................... 34:35 - Viktor Gísli Hallgrímsson varði 4 skot í marki GOG sem varð deildarmeistari. Aalborg – Skjern ................................. 28:36 - Aron Pálmarsson skoraði 11 mörk fyrir Aalborg sem endaði í öðru sæti. Svíþjóð 8-liða úrslit, þriðji leikur: Skövde – Hammarby........................... 37:23 - Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 3 mörk fyrir Skövde sem vann 3:0. %$.62)0-#

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.