Morgunblaðið - 21.04.2022, Síða 22
22 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022
Flugfélagið Play fór í sína fyrstu
áætlunarferð til Bandaríkjanna í
gær. Áfangastaðurinn var Balti-
more/Washington International-
flugvöllurinn en framvegis verður
flogið þangað daglega.
„Þessi áfangi er afar þýðingar-
mikill fyrir PLAY. Nú hefst næsti
kafli í sögu félagsins með farþega-
flutningum yfir Atlantshafið sem
stækkar markaðssvæði félagsins til
muna. Farþegar verða fluttir á
milli austurstrandar Bandaríkj-
anna og Evrópu með viðkomu á
Keflavíkurflugvelli og Ísland verð-
ur miðpunkturinn,“ segir m.a. í til-
kynningu Play.
Næst verður flogið til Logan-
flugvallar í Boston og fyrsta flugið
til New York verður í júní nk.
Fyrsta flug Play
til Bandaríkjanna
Bandaríkin Áhöfn Play ásamt forstjóra,
sem flugu til Bandaríkjanna í gær.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Mikil eftirspurn er eftir húsnæði í
bæjunum í Árnessýslu og mikið
byggt. Hækkað fasteignaverð þar
hefur áhrif á svæði sem liggja lengra
frá höfuðborgarsvæðinu, eins og til
dæmis Hellu, Hvolsvöll og Vest-
mannaeyjar. Þótt töluvert sé byggt
er eftirspurnin enn meiri og verðið
hefur hækkað mikið í þessum bæj-
um.
„Eignir sem koma inn seljast nán-
ast strax, þó ekki alveg allar. Tölu-
vert hefur verið byggt á báðum stöð-
unum,“ segir Guðmundur Einarsson,
fasteignasali hjá Fannbergi sem er
með starfsemi á Hellu og Hvolsvelli.
Geta unnið heima
Hann segir að fermetraverð í nýj-
um raðhúsum og parhúsum sé að
meðaltali um 430 þúsund krónur og
sé að síga upp á við. Það hafi verið
um 300 þúsund fyrir fjórum árum.
„Þeim sem koma úr Reykjavík finnst
húsnæðið ódýrt, þótt það hafi hækk-
að,“ segir fasteignasalinn.
Guðmundur segir að töluvert sé
um það að ungt fólk sé að flytja frá
höfuðborgarsvæðinu. Mikil ásókn
hafi verið í eignir á Selfossi en þær
hafi hækkað mikið og séu að nálgast
Reykjavíkurverð. Þess vegna sé fólk
að líta austar. „Við færumst nær höf-
uðborgarsvæðinu eftir því sem sam-
göngurnar batna. Eftir Covid vinnur
fólk meira heima, það getur verið í
vinnu í Reykjavík án þess að hafa
fulla viðveru þar,“ segir Guðmundur.
Betur má ef duga skal
Guðmundur segir að heilmikið sé
byggt, bæði á Hellu og Hvolsvelli, en
betur megi ef duga skal. „Það er
gríðarleg vöntun á húsnæði hér.
Nánast allt sem kemur í sölu er selt
áður en það er auglýst, fólk er á bið-
lista hjá fasteignasalanum. Hingað er
að flytja ungt fólk sem getur sinnt
störfum sínum hvaðan sem er. Svo er
ferðaþjónustan að fara í fullan gang
að nýju,“ segir Lilja Einarsdóttir,
sveitarstjóri Rangárþings eystra.
Hún segir að hækkun fasteigna-
verðs liðki fyrir uppbyggingunni. Nú
sjái verktakar möguleika á að byggja
íbúðir til að selja.
Sveitarfélagið á tilbúið mikið
byggingarland á Hvolsvelli sem hægt
er að úthluta með tiltölulega skömm-
um fyrirvara. Lilja segir að fyrsti
áfanginn á Hallgerðartúni sé að
mestu uppseldur og búið að bjóða út
gatnagerð í næsta áfanga. Þar verði
auglýstar til úthlutunar á næstunni
lóðir fyrir að minnsta kosti 20 íbúðir.
Áherslan er á raðhús og parhús á því
svæði enda mesta eftirspurnin eftir
þannig húsnæði um þessar mundir.
Til viðbótar hefur verið skipulögð
blönduð byggð íbúða, verslunar og
þjónustu á svokölluðum miðbæjar-
reit. Þar er einnig verið að undirbúa
útboð á gatnagerð og lóðum verður
úthlutað í sumar. Lilja segir að þetta
skipulag bjóði upp á spennandi
möguleika fyrir einstaklinga og verk-
taka.
Á þessum tveimur svæðum verða
lóðir fyrir á fjórða tug íbúða.
Heilmikill kostnaður og vinna
fylgir útþenslu bæjanna. Þannig seg-
ir Lilja að verið sé að byggja nýjan
átta deilda leikskóla á Hvolsvelli sem
mögulegt verður að stækka um tvær
deildir. Einnig sé verið að huga að
stækkun grunnskólans.
Höfuðborgaráhrifin teygja
sig til Hellu og Hvolsvallar
- Eftirspurn eftir húsnæði á Suðurlandi og mikið byggt - Verðið stígur stöðugt
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hvolsvöllur Aðalþéttbýliskjarnarnir í Rangárvallasýslu breiða úr sér. Nýj-
ar götur verða til og húsin rísa við þær. Fólkið kemur víða að.
Lilja
Einarsdóttir
Guðmundur
Einarsson
Alþjóðlegum áratug frumbyggja-
tungumála verður á morgun, föstu-
dag, fagnað í Vigdísarstofnun – al-
þjóðlegri miðstöð tungumála og
menningar við Háskóla Íslands.
Jafnhliða verður fimm ára afmælis
stofnunarinnar minnst, meðal ann-
ars með margmiðlunarsýningunni
Mál í mótun. Þess er þá að geta að
Vigdísarstofnun helgar næsta ára-
tug fámennistungumálum ásamt
rannsóknum, ráðstefnum, vinnustof-
um og ýmsu öðru.
Sameinuðu þjóðirnar hafa útnefnt
áratuginn 2022-2032 alþjóðlegan
áratug frumbyggjatungumála.
Fulltrúar Vigdísarstofnunar hafa á
undanförnum árum setið í stýrihópi
og undirbúningsnefnd vegna verk-
efna áratugarins fyrir hönd Íslands.
Hafa meðal annars lagt drög að
starfsemi stofnunarinnar til næstu
10 ára innan ramma átaksins.
Vigdísarstofnun hóf störf á
sumardaginn fyrsta 2017, sama dag
var Veröld – hús Vigdísar formlega
tekin í notkun. Það er því einkar við-
eigandi, segir í frétt frá Háskóla Ís-
lands, að setja alþjóðlegan áratug
frumbyggjatungumála formlega
bæði í hátíðarsal Háskólans og í Vig-
dísarstofnun hinn 22. apríl og fagna
um leið fimm ára starfsafmæli í hús-
inu góða á Melunum í Reykjavík.
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Opnun Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands og Jón Atli Bene-
diktsson rektor HÍ við opnun Veraldar – húss Vigdísar árið 2017.
Fagna áratug tungu-
mála frumbyggjanna
Áslaug Hulda
Jónsdóttir hefur
verið ráðin tíma-
bundið aðstoð-
armaður Áslaug-
ar Örnu
Sigurbjörns-
dóttur, háskóla-,
iðnaðar- og ný-
sköpunarráð-
herra. Hún
hleypur í skarðið
fyrir aðstoðarmanninn Eydísi Örnu
Líndal sem er í fæðingarorlofi.
Áslaug Hulda er formaður bæj-
arráðs Garðabæjar, hefur verið
bæjarfulltrúi frá árinu 2010 en er
nú á útleið úr sveitarstjórnar-
málum. Hún hefur víðtæka reynslu
úr atvinnulífinu á sviði nýsköpunar
og menntamála og hefur m.a. kom-
ið að uppbyggingu plastendur-
vinnslunar Pure North Recycling.
Var og framkvæmdastjóri Hjalla-
stefnunnar, en Áslaug Hulda er ein-
mitt grunnskólakennari að mennt.
Áslaug Hulda að-
stoðar nöfnu sína
Áslaug Hulda
Jónsdóttir
Þensla er á fasteignamarkaðnum í Vestmannaeyjum.
Guðjón Hjörleifsson, fasteignasali hjá Heimaey, segir að
búið sé að selja tugi íbúða í raðhúsum sem ekki er búið
að byggja og jafnvel ekki byrjað á. Fólk sitji um íbúðirnar
og kaupi áður en þær komi í sölu.
„Ég hélt að ég væri góður í excel en skil ekki hvernig
þetta dæmi gengur upp,“ segir Guðjón þegar hann er
spurður að því hvaðan fólkið komi og bætir því við að
gömlu eignirnar skili sér ekki inn á markaðinn. Hann
nefnir að eitthvað sé um að gamlir Eyjamenn kaupi
íbúðir. Svo séu margir duglegir ungir sjómenn sem hafi
góðar tekjur, ekki síst á uppsjávarskipunum. Þeir hafi náð að safna sér-
eignarsparnaði og hann dugi mörgum sem útborgun í fyrstu kaup. Guð-
jón segir að slagur sé um minni eignir, einkum góðar eignir. Verðið hafi
því hækkað. Yfirleitt hafi söluverð verið 4-5% undir ásettu verði en nú
fari þær á pari og jafnvel á yfirverði.
Tugir óbyggðra íbúða seldir
HVAÐAN KEMUR FÓLKIÐ?
Guðjón
Hjörleifsson
www.danco.is
Heildsöludreifing
marleikföngin fást hjá okkur
Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is
Einungis sala til fyrirtækja og verslana – Engin sala til einstaklinga
GameTime-Badmintonset
m/flugu
Dartborð stórt 43 cm
m/6 pílum
ata m/Magic Sand og
Fylgih. 6 teg.
a Air Pressue
. 43 cm
Hoppubolti
Spidermann
50 cm
Sundkútur með sæti
(6-12 mán.)
SunFun-Fötusett
IceCream 2 teg. 28 cm
Myndabolti 14 c
Hvolpasveitin
Myndabolti 14 cm
Spiderman
Myndabolti 14 cm
Frozen II