Morgunblaðið - 21.04.2022, Page 26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Samherji hefur ákveðið í tilefni
sumardagsins fyrsta að opna frysti-
hús sitt á Dalvík fyrir almenningi í
dag. Kostnaðurinn við 9.000 fer-
metra frystihúsið nam rúmum sex
milljörðum króna og var kostnaður-
inn við tækjabúnaðinn um helm-
ingur þessarar upphæðar, en fram-
leiðslan er að miklu leyti
sjálfvirknivædd og telst meðal
tæknivæddustu vinnslulína í heimi.
Síðast fékk almenningur að skoða
frystihúsið á Fiskidaginn mikla
2019 en þá var það óklárað. Hús-
næðið var tekið í notkun 13. ágúst
2020 og hafði verið fjögur ár í smíð-
um, en ekki var hægt að sýna húsið
vegna fjöldatakmarkana sem fylgdu
Covid-19-faraldrinum. Breyting hef-
ur sem betur fer orðið í þeim efnum
og verður opið hús frá kl. níu að
morgni til eitt síðdegis.
Eitt af því merkilega sem hægt
er að sjá í frystihúsinu er róbótinn
Villi hlaup, nefndur í höfuðið á
starfsmanni Samherja um árabil
sem hafði sérstakan áhuga á frjáls-
um íþróttum. Þá má einnig sjá full-
komnar vinnslulínur og gjörbreytta
vinnuaðstöðu starfsmanna.
Nýja frystihúsið er ekki það eina
sem almenningur fékk að skoða en
9. apríl var almenningi boðið að
stíga um borð í nýtt uppsjávarskip
Samherja, Vilhelm Þorsteinsson
EA-11, og mættu um þúsund
manns.
Eldri til sölu
Gamla frystihús Samherja við
Hafnarbraut á Dalvík var sett á
sölu í vetur en ekki er ásett verð.
Um er að ræða 5.266 fermetra hús-
næði á 10.139 fermetra lóð og nem-
ur fasteignamatið rúmlega 475
milljónum króna og brunabótamatið
um 1.600 milljónum. Húsnæðið á
sér langa sögu og er skráð bygging-
arár karageymslunnar 1948 og
frystihússins 1949. Vélasalurinn var
byggður 1971 og skrifstofurnar
1972, en pökkunarstöðin er yngsti
hlutinn og var reist 1999.
Morgunblaðið/Gunnlaugur
Vinnsla Frystihús Samherja á Dalvík er með öll nýjustu tæki og tól.
Samherji opnar
dyrnar á Dalvík
- Öllum boðið að skoða frystihúsið
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
„Það er hverrar útgerðar að fara að
lögum og haga sókn sinni í takti við
þessar áskoranir, það gildir einnig
um grásleppuveiðar þó að sókn í þá
tegund sé ekki stýrt með aflamarki,“
svarar matvælaráðuneytið fyrir-
spurn blaðamanns um tilhögun grá-
sleppuveiða í kjölfar fjölda brottkast-
mála á vertíðinni.
Svo vitað sé hafa allir bátar sem
Fiskistofa hefur flogið yfir með eft-
irlitsdróna verið staðnir að brottkasti
og hefur verið rætt um 30-90% alls
þorskafla sem fæst í grásleppunetin,
jafnvel stóran hrygningarþorsk. Hef-
ur því verið velt upp hvert raunveru-
legt umfang brottkasts á grásleppu-
veiðum kann að vera í ljósi þessa og
hvort umfang þess kunni að vera
óeðlilegt í ljósi verðmæti fisksins sem
hent er og verðmæti grásleppu-
hrogna.
Útflutningur grásleppuafurða hef-
ur verið sveiflukenndur á undanförn-
um áratug og hafa útflutningsverð-
mæti afurðanna sveiflast á bilinu 1,6
til 2,9 milljarða króna á árunum 2012
til 2020. Í fyrra nam útflutningsverð-
mæti afurðanna 1,9 milljörðum
króna.
Spurning um hagkvæmni
Þorskur sem endar í grásleppu-
netum er hins vegar ekki líklegur til
að ná háu verði og eru fjölmörg dæmi
um að þriggja til fimm daga gamall
óslægður þorskur hafi verið seldur á
fiskmörkuðum fyrir innan við 10% af
meðalverði óslægðs þorsks. Það er
því ekki mikill fjárhagslegur hvati til
að koma með fiskinn að landi og get-
ur það útskýrt hvers vegna bátar
með þó nokkrar veiðiheimildir í
þorski hafa verið staðnir að brott-
kasti á grásleppuveiðum. Þeirri
spurningu er hins vegar ósvarað
hvort meiri verðmæti myndu skapast
ef þorskurinn sem fæst í gráslepp-
unetin og er landað eða hent myndi
skapa meiri útflutningstekjur fyrir
þjóðarbúið ef hann yrði veiddur ekki
sem meðafli grásleppuveiða.
Matvælaráðuneytið kveðst í svari
sínu ekki geta sagt til um hvort það
metur grásleppuveiðar þjóðhagslega
hagkvæmar þar sem ekki hefur verið
„unnin hagræn úttekt á einstökum
þáttum“ fiskveiðistjórnunarkerfis-
ins.
Enn hætta á innflutningsbanni
Töluverðar áhyggjur hafa verið
uppi vegna fjölda sjávarspendýra
sem talin eru vera meðafli grásleppu-
veiða, en lög í Bandaríkjunum til
verndar sjávarspendýrum gera ráð
fyrir að sett verði – að öllu óbreyttu –
bann við innflutningi á sjávarafurð-
um frá Íslandi frá og með 1. janúar
2023. Deilt er um umfang þessa með-
afla og hefur Landssamband smá-
bátaeigenda sagt grásleppusjómenn
ranglega sakaða um dauða 1.400 sela,
en Hafrannsóknastofnun segir
óvissu í matinu vegna 300% fráviks í
skráningu fugla og sjávarspendýra
sem meðafla eftir því hvort eftirlits-
maður sé um borð.
„Það hefur lítið gerst hvað varðar
mögulegt innflutningsbann til
Bandaríkjanna. Yfirvöld þar í landi
eru að fara yfir innsendar upplýsing-
ar frá öllum þjóðum sem flytja inn
sjávarafurðir til landsins, þ.m.t. þær
sem komu frá Íslandi. Engar áætl-
anir hafa verið birtar um hvenær því
verður lokið og þangað til er staðan
óbreytt.
Hvað grásleppuveiðina varðar var
14 svæðum lokað fyrir vertíðina 2020
og eru þær lokanir enn í gildi. Þessar
lokanir eru frekar nýtilkomnar og
ekki hefur verið hægt að meta árang-
ur af þeim þar sem eftirlitsmenn
Fiskistofu fóru lítið í róðra 2020 og
2021 sökum Covid-faraldursins. Ekki
er því gerlegt að svo komnu máli að
taka afstöðu til hvort [til] banns þurfi
að koma eða ekki,“ segir í svari mat-
vælaráðuneytisins.
Margir óvissuþættir
vegna grásleppuveiða
- Þjóðhagslegur ávinningur hefur ekki verið kortlagður
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Vertíð Grásleppu landað í Húsavíkurhöfn 12. apríl síðastliðinn.
www.gilbert.is
Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum
við okkur í úrsmíði, hönnun
og framleiðslu úra
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Afurðaverð á markaði
20.mars 2022,meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 414,40
Þorskur, slægður 414,20
Ýsa, óslægð 582,43
Ýsa, slægð 511,24
Ufsi, óslægður 209,30
Ufsi, slægður 233,37
Djúpkarfi 263,00
Gullkarfi 338,62
Blálanga, slægð 196,00
Langa, óslægð 290,69
Langa, slægð 258,87
Keila, óslægð 89,48
Keila, slægð 79,25
Steinbítur, óslægður 130,04
Steinbítur, slægður 169,03
Skötuselur, slægður 892,88
Grálúða, slægð 590,71
Skarkoli, óslægður 63,26
Skarkoli, slægður 468,87
Þykkvalúra, slægð 605,03
Langlúra, óslægð 200,88
Langlúra, slægð 16,00
Sandkoli, óslægður 35,00
Grásleppa, óslægð 172,91
Hlýri, óslægður 144,00
Hlýri, slægður 245,25
Hrogn/langa 146,00
Hrogn/ýsa 170,00
Hrogn/þorskur 238,00
Hvítaskata, slægð 10,00
Lúða, slægð 1.027,54
Lýsa, slægð 11,19
Rauðmagi, óslægður 16,49
Stórkjafta, slægð 189,83
Undirmálsýsa, óslægð 155,48
Undirmálsýsa, slægð 49,00
Undirmálsþorskur, óslægður 92,89
Undirmálsþorskur, slægður 68,00