Morgunblaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022 Okkur vantar kennara í Borgarhólsskóla Borgarhólsskóli er 300 barna skóli á Húsavík. Skólasýn, stefnu skólans og fleiri upplýsingar um skólastarfið er hægt að nálgast á heimasíðu skólans, borgarholsskoli.is. Tvo umsjónarkennara yngri barna í 100% stöðu Íþróttakennara í 100% stöðu Kennslu í skapandi upplýsinga- og tæknimennt Hæfniskröfur ! Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari. ! Áhugi á að starfa með börnum. ! Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður. ! Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum. ! Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. ! Ábyrgð og stundvísi. Skó l i nn s ta r f a r í anda Jákvæðs aga Umsóknarfrestur er til 6. maí 2022. Umsóknum skal skila í tölvupósti á netfangið ada@borgarholsskoli.is Laun eru samkvæmt kjarasamningi sveitarfélaga og KÍ. Ferilskrá skal fylgja umsókn, afrit af prófskírteinum og umsagnaraðilum. Skólasýn Borgarhólsskóla Langanesbyggð auglýsir eftir verkefnastjóra í tímabundið átaksverkefni í þróun og uppbyggingu atvinnutækifæra í sveitarfélaginu. Um hlutastarf er að ræða en starfshlutfall verður ákveðið í samráði við verkefnastjórann. Gert er ráð fyrir að verkefnið standi yfir í allt að tvö ár. Hæfniskröfur: • Menntun sem nýtist í verkefninu. Háskólamenntun er kostur. • Haldbær reynsla af verkefnastjórnun. • Góð almenn rit- og tölvufærni. • Þekking, skilningur og reynsla af atvinnu- og byggðamálum. • Drifkrafur, hugmyndaauðgi og frumkvæði. • Sjálfstæð vinnubrögð og færni í mannlegum samskiptum. Helstu verkefni: • Greina tækifæri í atvinnuuppbyggingu á svæðinu. • Þróa hugmyndir varðandi atvinnutækifæri. • Vinna að þróun og uppbyggingu atvinnu-, nýsköpunar- og fjarvinnsluseturs að Fjarðarvegi 5 á Þórshöfn. • Hafa frumkvæði að nýjum verkefnum á svæðinu. • Samstarf og samráð við hagaðila í sveitarfélaginu. • Reglulegir stöðufundir og miðlun upplýsinga til sveitarstjóra. • Annað sem fellur að verkefninu. Um er að ræða samstarfsverkefni Langanesbyggðar, Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra og Þekkingarnets Þingeyinga. Ekki er gerð krafa um búsetu í sveitarfélaginu en viðkomandi þarf að hafa þar viðveru eins mikið og mögulegt er. Nánari upplýsingar veitir Jónas Egilsson, sveitarstjóri Langanesbyggðar, jonas@langanesbyggd.is Umsókn sem inniheldur kynningarbréf og ferilskrá skal senda á sama netfang merkt „Verkefnastjóri atvinnuþróunar“. Umsóknarfrestur er til og með 9. maí 2022. Verkefnisstjóri atvinnuþróunar í Langanesbyggð Langanesbyggð er öflugt og vaxandi sveitarfélag með spennandi framtíðarmöguleika. Sveitarfélögin Langanesbyggð og Svalbarðshreppur sameinast formlega í byrjun júní og ný sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags tekur við að loknum kosningum 14. maí. Á Þórshöfn búa um 400 manns í fjölskylduvænu umhverfi. Skólinn var endurnýjaður árið 2016 og er öll aðstaða og aðbúnaður til fyrirmyndar. Nýr leikskóli var tekinn í notkun haustið 2019. Gott íbúðarhúsnæði er til staðar og öll almenn þjónusta er á Þórshöfn. Á staðnum er gott íþróttahús og innisundlaug og stendur Ungmennafélag Langaness fyrir öflugu íþróttastarfi. Í byggðarlaginu er mikið og fjölbreytt félagslíf. Samgöngur eru góðar, m.a. flug fimm daga vikunnar til Reykjavíkur um Akureyri. Í næsta nágrenni eru margar helstu náttúruperlur landsins og ótal spennandi útivistarmöguleikar, s.s. fallegar gönguleiðir og stang- og skotveiði. Langanesbyggð leitar að fólki á öllum aldri, af báðum kynjum, með margs konar menntun og reynslu. Í samræmi við jafnréttisáætlun Langanesbyggðar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu. Organisti Tjarnaprestakall Tjarnaprestakall auglýsir eftir organista til starfa við söfnuði prestakallsins, Ástjarnarsókn og Kálfatjarnar- sókn. Starfshlutfall er 100%. Í sóknunum er fjölbreytt safnaðarstarf og helgihald. Hæfniskröfur: Leitað er eftir einstaklingi sem hefur lokið prófi í kirkjutónlist frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar eða sam- bærilegi stofnun, hefur reynslu af kirkjustarfi, sýnir frumkvæði og hefur hugsjón fyrir nýsköpun helgi- halds auk hefðbundinnar kirkjutónlistar. Góð hæfni í mannlegum samskiptum eru mikilvægir eiginleikar. Starfsskyldur eru m.a.: • Stjórnun tónlistarstarfs sóknanna og hljóðfæra- leikur við hefðbundið helgihald í sóknunum. • Stjórnun kirkjukórs og barnakórs Ástjarnarsóknar og kirkjukórs Kálfatjarnarsóknar. • Stuðningur við annað starf, m.a. barnastarf, æskulýðsstarf, fermingarstarf og starf eldri borgara ef þurfa þykir. • Nýsköpun í tónlistarstarfi. Umsækjandi þarf að búa yfir skipulagshæfni og hafa reynslu af kórstjórn. Hann þarf að vera virkur í dag- legu starfi safnaðanna og taka þátt í teymisvinnu. Starfskjör, réttindi og skyldur eru samkvæmt kjara- samningi Launanefndar Þjóðkirkjunnar og FÍO (Félags íslenskra organista). Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf eigi síðar en 1. ágúst 2022. Umsókn ásamt afritum prófskírteina, ferilskrá skal skila eigi síðar en 22. maí 2022. Frekari upplýsingar um starfið veita Kjartan Jónsson, sóknarprestur (kjartan.jonsson@kirkjan.is) og Arnór Bjarki Blomsterberg, prestur (arnor@astjarnarkirkja.is). Umsóknir sendist á póstfangið: kjartan.jonsson@kirkjan.is Ástjarnarkirkja – Kirkjuvöllum 1 Hafnarfirði Kálfatjarnarkirkja - Kálfatjörn Vogar Símaþjónusta sumarafleysing Óskað er eftir þjónustuliprum og jákvæðum einstaklingi til starfa við símsvörun og létt skrifstofustörf. Viðkomandi þarf að búa yfir skipulagshæfni og frumkvæði og geta unnið undir nokkru álagi. Einungis reyklausir einstaklingar koma til greina. Vinnutíminn er áætlaður annars vegar frá kl. 8.00 til 14.00 og hins vegar frá kl. 13.00 á daginn til kl. 17.00 á kvöldin. Áhugasamir einstaklingar skili inn greinar- góðum umsóknum á box@mbl.is fyrir 23. apríl, merktum: „E-26787“. intellecta.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.