Morgunblaðið - 21.04.2022, Side 30
30 FRÉTTIR
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355
Gleðilegt
sumar
Frábært úrval af sundfötum
og strandfatnaði
Vefverslun
selena.is
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Úkraínumenn sögðu í gær að þeir
óttuðust að Maríupol gæti fallið í
hendur Rússa á næstu „klukkutím-
um“, en ekkert varð af vopnahléi í
borginni, sem var ætlað að gefa
ráðrúm til að flytja óbreytta borg-
ara þaðan í gær.
Charles Michel, forseti leiðtoga-
ráðs Evrópusambandsins, heim-
sótti Kænugarð í gær og sagði að
Evrópusambandið myndi gera allt
sem í sínu valdi stæði til að hjálpa
Úkraínumönnum að vinna sigur í
stríðinu. „Þið eruð ekki ein, við er-
um með ykkur,“ sagði Michel á
blaðamannafundi eftir að hann
fundaði með Volodimír Selenskí,
forseta Úkraínu.
Michel hét því einnig að Vladim-
ír Pútín Rússlandsforseti myndi
ekki ná að reka fleyg á milli aðild-
arríkja sambandsins þegar kæmi
að Úkraínustríðinu. Sagði hann að
síðustu vikur hefðu sýnt að aðild-
arríkin 27 gætu komist að sameig-
inlegri niðurstöðu í erfiðum mál-
um.
Selenskí ítrekaði á fundi þeirra
að Úkraínumenn litu á aðild að
sambandinu sem forgangsmál. Gaf
Michel til kynna að hann styddi
aðild Úkraínu, og sagði að Evr-
ópuríkin vissu að Úkraínumenn
væru að berjast fyrir grundvallar-
gildum Evrópu.
Prófuðu nýja eldflaug
Pútín fyrirskipaði í gær tilraun
með nýja langdræga eldflaug, sem
borið getur 10-15 kjarnaodda milli
heimsálfa. Pútín sagði að eldflaug-
in, sem kölluð er Satan 2 á Vest-
urlöndum, myndi styrkja hernað-
argetu Rússa, og láta „þá, sem í
hita árásargjarnra yfirlýsinga
reyna að ógna landi okkar, hugsa
sig tvisvar um“.
Bandaríska varnarmálaráðu-
neytið sagði hins vegar eftir til-
raunina, að Rússar hefðu fylgt öll-
um alþjóðasamningum um
tilkynningar á slíkum tilraunum
fyrir fram, og að ekki væri litið á
tilraunina sem ógn eða hótun
gagnvart Bandaríkjunum eða
bandamönnum þeirra.
Ekki nýjar herþotur
Flugher Úkraínu lýsti því yfir í
gær að ekki væri alls kostar rétt
að tala um að vesturveldin hefðu
sent nýjar þotur til Úkraínu, líkt
og lesa mátti úr orðum Johns
Kirby, talsmanns bandaríska varn-
armálaráðuneytisins, í fyrradag.
Sagði í yfirlýsingu flughersins
að hann hefði einungis fengið vara-
hluti, sem dygðu til þess að halda
þeim herþotum sem hann hefði nú
þegar til umráða gangandi áfram.
Varahlutirnir voru hluti af
áframhaldandi hernaðaraðstoð
vesturveldanna við Úkraínumenn,
en Mark Rutte, forsætisráðherra
Hollands, tilkynnti í fyrradag að
Hollendingar hygðust senda
bryndreka til Úkraínumanna, og
bætast þeir þar með í hóp þeirra
vesturvelda sem ætla að senda
þungavopn til Úkraínu.
Olaf Scholz Þýskalandskanslari
var hins vegar gagnrýndur hart í
gær heima fyrir, en hann lýsti því
yfir í fyrradag að Þjóðverjar vildu
ekki „vera einir“ um að senda
þungavopn til Úkraínu. Sögðu tals-
menn kristilegra demókrata að
þeir væru að íhuga að taka málið
upp á þinginu í næstu viku vegna
tregðu Scholz til að senda þunga-
vopn til átakanna.
Maríupol við að falla
- Michel heitir Úkraínumönnum stuðningi ESB - Rússar prófa nýja langdræga
eldflaug - Scholz gagnrýndur fyrir tregðu til að senda þungavopn til Úkraínu
100 km
Kramatorsk
Staða herflokka 19. apríl kl. 19
20. apríl kl 7:
M
O
L
D
A
V
ÍA
Svartahaf
Azov-haf
RÚMENÍA
PÓLLAND
HVÍTA-RÚSSLAND RÚSSLAND
Krím
Svæði þar sem
Rússar eru með
hernaðaraðgerðir
Svæði sem
Rússar
segjast ráða
Rússar innlimuðu
skagann 2014
Svæði sem
aðskilnaðarsinnar
réðu fyrir
innrásina
Heimildir: AFP fréttastofur, Institute for the Study ofWar and AIE’s Critical Threats Project,
Úkraínuher
Sprengingar/árásir Bardagar
Svæði sem Úkraínu-
menn hafa náð aftur
á sitt vald
ÚKRAÍNA
Ódessa
Lvív
Karkiv
Maríupol
KÆNUGARÐUR
Svæði talin
á valdi
Rússa
Kerson
Dnipro
Svæði sem talið er
að úkraínskir þjóð-
ernissinnar stundi
hernað
Umræður hófust á finnska þinginu
í gær um hvort Finnar eigi að
sækja um aðild að Atlantshafs-
bandalaginu, NATO.
Sanna Marin forsætisráðherra
sagði við upphaf umræðunnar að
Finnar yrðu að taka skjóta ákvörð-
un um hvort sækja ætti um aðild
eða ekki. „Samstaða er besta ör-
yggisráðstöfunin,“ bætti hún við.
Stuðningur Finna við aðild hefur
aukist mikið eftir innrás Rússa í
Úkraínu. 200 þingmenn sitja á
finnska þinginu og þarlendir fjöl-
miðlar segja að ef marka megi
opinberar yfirlýsingar styðji um
helmingur þingmannna að sótt
verði um aðild en aðeins 12 séu
andvígir. Aðrir segjast ætla að
gera upp hug sinn eftir þing-
umræðurnar. Margir fréttaskýr-
endur spá því að Finnar leggi fram
aðildarumsókn fyrir leiðtogafund
NATO í júní.
Nær aðild
„Það er ljóst að aðgerðir Rússa
hafa fært okkur mun nær aðild að
hernaðarbandalagi,“ sagði Antti
Lindtman, þingmaður Jafnaðar-
mannaflokksins, stærsta stjórn-
arflokksins, í umræðunum í gær.
Hann lýsti því þó ekki yfir að
flokkurinn hefði breytt um afstöðu
til aðildar að NATO en sagði að
endanleg niðurstaða fengist eftir að
þingið og nefndir þess hefðu fjallað
ítarlega um málið.
Atte Harjanne, þingmaður
Græningja, annars stjórnarflokks,
sagði hins vegar að flokkurinn
styddi aðild að NATO. Svipuð af-
staða kom fram hjá þingmönnum
Miðflokksins og stjórnarandstöðu-
flokkanna Finnaflokksins og Sam-
stöðuflokksins.
En þingmenn Vinstriflokksins,
sem á aðild að ríkisstjórninni, vör-
uðu í upphafi umræðunnar við því
að NATO-aðild gæti aukið hættuna
á árás frá Rússum.
Finnska þingið ræð-
ir um NATO-aðild
- Meirihluti sagður fyrir umsókn
AFP/Heikki Saukkomaa
Þingumræða Sanna Marin og
Pekka Haavisto utanríkisráðherra.
Magnus Carlsen,
heimsmeistari í
skák, gefur í
skyn í blaða-
viðtali að hann
ætli ekki að verja
titilinn.
Carlsen, sem
er 31 árs, hefur
fimm sinnum
unnið heims-
meistaratitilinn í skák, fyrst árið
2013 og síðast í lok síðasta árs. Þá
hefur einnig oft unnið heimsmeist-
aratitla í atskák og hraðskák. Nú
segir hann í samtali við norska
blaðið VG að ólíklegt sé að hann
verji titilinn á næsta ári.
Í viðtalinu segir Carlsen þó að
hann hafi ekki tekið endanlega
ákvörðun. „Stundum er ég ekki
100% viss. Ef einhver væntir þess
og vonar að ég muni samþykkja að
tefla þá verð ég að vara þann sama
við að hann kann að verða fyrir
vonbrigðum,“ segir hann.
NOREGUR
Carlsen íhugar að
verja ekki titilinn
Magnus Carlsen
Dómari í Bret-
landi gaf í gær út
formlega fyrir-
skipun um að
framselja skuli
Julian Assange,
stofnanda Wiki-
Leaks, til Banda-
ríkjanna.
Assange hefur
verið ákærður
þar fyrir að bera
ábyrgð á því að WikiLeaks birti
fjölda bandarískra trúnaðarskjala
sem tengdust hernaði Bandaríkja-
manna í Írak og í Afganistan.
Priti Patel, innanríkisráðherra
Bretlands, tekur hins vegar endan-
lega ákvörðun um hvort Assange
verði framseldur. Staðfesti hún
niðurstöðu dómarans geta lögmenn
Assange áfrýjað þeirri niðurstöðu
til æðri dómstóla. Þá gætu þeir
einnig áfrýjað öðrum þáttum máls-
ins. Hæstiréttur Bretlands hefur
hins vegar hafnað því að taka mál
Assange fyrir.
BRETLAND
Dómari fyrirskipar
framsal Assange
Framsali Assange
mótmælt.