Morgunblaðið - 21.04.2022, Page 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
EMPIRE
VARIET Y
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND
ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER. 75%
U S A T O D AY
89%
G
uðmundur Arnar Guð-
mundsson býður áhorf-
endum upp á ferskt
íslenskt efni. Það er
frískandi að sjá þetta gráa og
grimma borgarlandslag á bíótjald-
inu. Íslenska náttúruklámið þar
sem náttúran fær aðalhlutverkið í
myndinni er orðið þreytt. Lang-
stærsti hluti þjóðarinnar býr á
höfuðborgarsvæðinu. Íslensku
náttúrumyndunum má líkja við
lundabúðirnar á Laugaveginum,
það poppa alltaf fleiri upp þótt nóg
sé til af þeim. Berdreymi stuðlar
kannski ekki að sterku orðspori
Íslands eins og kvikmyndastefnan
til ársins 2030 ætlast til enda er það
skrýtin krafa gerð til listgrein-
arinnar. Guðmundur sannar hins
vegar, með annarri kvikmynd sinni
í fullri lengd eftir hina margverð-
launuðu mynd Hjartastein (2016),
að kvikmyndaformið er listform
sem hægt er að nýta til að segja
sögur áður ósagðar.
Fjórir íslenskir unglingsstrákar
upplifa sig utangarðs í Reykjavík í
kringum 1990 og sækja stuðning
hver frá öðrum. Saman eru þeir
sterkir, jafnvel hættulegir. Vand-
ræði strákanna stigmagnast með
hverjum deginum sem þeir eyða
saman. Vinátta þeirra er sönn og
inniheldur mikla ást en hvort hún
gerir þeim gott eða ekki er stóra
spurningin. Þeir eru slagsmála-
hundar með sterka réttlætiskennd
sem mörgum þykir eflaust kald-
hæðnislegt en þeim mun alvarlegri
sem voðaverkin eru þeim mun betri
ástæða er fyrir þeim. Þeir eru Hrói
höttur borgarinnar, ef hann hefði
reykt aðeins of margar sígarettur,
drukkið einum of mikið og ætti erf-
itt með skap sitt.
Leikstjórinn, Guðmundur Arnar
Guðmundsson, segist í viðtali við
Morgunblaðið hafa upplifað þessa
grimmu menningu eins og hún birt-
ist í myndinni þegar hann bjó í
Árbænum sem unglingur í kringum
1990-2000. Það má því segja að
Berdreymi sé lauslegt endurlit í
fortíð leikstjórans og líkist að því
leyti kvikmynd Jonahs Hills,
Mid90s (2018) þar sem hann sækir í
minni fortíðar. Fyrsti hluti Ber-
dreymis er ekki svo ólíkur Mid90s.
Í Mid90s segir frá Stevie sem flýr
erfiðar heimilisaðstæður og eignast
nýja vini sem hann hittir í hjóla-
brettabúð. Balli, ein aðalpersónan í
Berdreymi, er ekki svo ólíkur hon-
um. Hann býr einnig við erfiðar
heimilisaðstæður og í byrjun
myndarinnar er hann eineltisfórn-
arlamb sem á enga vini. Addi, aðal-
persóna myndarinnar, tekur hann
þá undir sinn verndarvæng og
verður Balli þá hluti af genginu
ásamt Konna og Sigga. Í fyrsta
hluta myndarinnar er áhorfendum
þannig gefinn tími til að kynnast
strákunum um leið og þeir kynnast
hver öðrum. Við byrjum að elska
strákana þrátt fyrir alla áberandi
galla þeirra. Þeir eru jafn góðir og
þeir eru vondir. Þeir eru jafn mikil
börn og þeir eru fullorðnir. Þeir
eru alltaf mitt á milli.
Leikhópur myndarinnar er
gríðarlega sterkur og eiga dreng-
irnir sem leika fjögur stærstu hlut-
verkin allt lof skilið. Ljóst er að
Guðmundur er mjög fær í að vinna
með börnum og unglingum. Birgir
Dagur Bjarkason kemst hvað næst
því að vera aðalpersónan og gerir
það listilega. Hann hefur mikla per-
sónutöfra og á auðvelt með að
miðla þeirri togstreitu sem á sér
stað innra með Adda í gegnum and-
litsdrættina. Áskell Einar Pálma-
son sem leikur Balla gerir einnig
vel en ótrúlegt er að fylgjast með
því hvernig líkamsbeiting hans
breytist í gegnum söguna þegar
hann áttar sig á því að hann stend-
ur ekki lengur einn. Snorri Rafn
Frímannsson leikur síðan trúðinn í
vinahópnum, Sigga, og er nauðsyn-
legt grínstoðtæki (e. comic-relief).
Það er hins vegar Viktor Benóný
Benediktsson sem stelur senunni.
Viktor leikur Konna, fant hópsins,
sem sífellt kemur þeim í vandræði.
Hann er ekki einföld sögupersóna
og sýnir Viktor margar sannfær-
andi hliðar Konna, t.d. þá sem er
tilbúin að berja mann til dauða og
aðra sem baðar drullugan vin sinn í
væntumþykju.
Guðmundur er flinkur að spila
með væntingar áhorfenda. Hann
sýnir t.d. hvernig strákarnir leita í
líkamlega nánd sem einhvers konar
staðfestingu á ást þeirra sín á milli.
Við áhorfendur erum óvanir að sjá
slíka birtingarmynd karlmennsku á
bíótjaldinu og drögum þá ályktun
að þeir hljóti að vera eitthvað meira
en vinir. Það getur vel verið en það
skiptir engu máli fyrir sögufram-
vinduna. Það sem Guðmundur ger-
ir aðeins er að sýna karlmenn sem
tilfinningaverur. Það eru einungis
okkar fyrirframmótuðu hugmyndir
sem draga þá ályktun að þeir séu í
hlutverki kynveru. Guðmundur
skapar einnig spennu á mjög frum-
legan máta, hann fær okkur til þess
að trúa á hið yfirnáttúrulega, jafn-
vel okkur trúleysingjana. Ber-
dreymi kallast það þegar ein-
staklingur getur séð fyrir óorðna
atburði í draumi en Addi uppgötvar
hægt og rólega í gegnum myndina
að hann er berdreyminn líkt og
móðir hans. Addi verður þannig
miðja spennunnar og vopn Guð-
mundar. Í gegnum Adda eru áhorf-
endur varaðir við að eitthvað slæmt
sé að fara að gerast og þannig held-
ur Guðmundur okkur á tánum
þangað til atburðurinn á sér stað.
Það er ekki hægt að tala um Ber-
dreymi án þess að tala um kvik-
myndatökuna eftir Sturlu Brandth
Grøvlen sem er ein sú besta sem
sést hefur í íslenskri kvikmynd.
Langflestar senurnar eru teknar
með handheldri tökuvél sem er
mjög viðeigandi fyrir þessa mynd
enda strákarnir sífellt á hlaupum
eða í slagsmálum. Ofbeldissen-
urnar eru virkilega vel gerðar og
minna helst á óreiðukenndu bar-
dagasenurnar í Bourne-mynd-
unum. Mörg skotin mynda sterka
tilfinningu og vekja eins konar for-
tíðarþrá meðal áhorfenda. Kvik-
myndatakan ein og sér á þó ekki
allt hrós heldur allir þeir sem tóku
þátt í að skapa myndheildina, eins
og leikmyndahönnuðurinn Hulda
Helgadóttir og búningahönnuður-
inn Helga Rós V. Hannam. Sagan
gerist í kringum 1990 og er það
tímabilið sem birtist á skjánum í
gegnum hallærislega karate-dojoið
og hlýrabolina svo eitthvað sé
nefnt.
Í Berdreymi er oft hætta á
váhrifum og því ekki hæf börnum
yngri en 14 ára. Hún er hins vegar
ekki þessi klassíska niðurdrepandi
kvikmynd því þrátt fyrir erfiðar
aðstæður strákanna ríkir mikil von.
Berdreymi hlaut Europa Cinem-
as Label-verðlaunin sem besta evr-
ópska myndin í Panorama-flokki á
kvikmyndahátíðinni í Berlín í febr-
úar og ekki að ástæðulausu. Kvik-
myndin er góð í alla staði og er það
ekki bara Guðmundi, Sturlu eða
þessum ungu og efnilegu leikurum
að þakka heldur öllum þeim sem
stóðu á bak við myndina enda er
kvikmyndaverk teymisvinna.
Guttar götunnar
Von „Í Berdreymi er oft hætta á váhrifum og því ekki hæf börnum yngri en 14 ára. Hún er hins vegar ekki þessi
klassíska niðurdrepandi mynd því þrátt fyrir erfiðar aðstæður strákanna ríkir mikil von,“ skrifar gagnrýnandi.
Sambíóin
Berdreymi bbbbm
Leikstjórn: Guðmundur Arnar Guð-
mundsson. Handrit: Guðmundur Arnar
Guðmundsson. Aðalleikarar: Birgir Dag-
ur Bjarkason, Áskell Einar Pálmason,
Viktor Benóný Benediktsson, Snorri
Rafn Frímannsson, Aníta Briem, Ísgerð-
ur Gunnarsdóttir og Ólafur Darri Ólafs-
son. Ísland, 2022. 123 mín.
JÓNA HLÍF
GRÉTARSDÓTTIR
KVIKMYNDIR