Morgunblaðið - 29.04.2022, Side 1

Morgunblaðið - 29.04.2022, Side 1
F Ö S T U D A G U R 2 9. A P R Í L 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 99. tölublað . 110. árgangur . EKKERT DREGIÐ UND- AN Í BAND GARÐYRKJA ÁFRAM KENND Á REYKJUM GETUR FARIÐ SÍNU FRAM MEÐ TWITT- ER AÐ ÓBREYTTU GARÐYRKJUSKÓLINN 10 ELON MUSK 14SÝND Á HOT DOCS 36 Tólf mánaða verðbólga mælist nú 7,2%, samanborið við 6,7% í mars. Verðbólgan hefur ekki mælst hærri síðan í maí 2010 þegar hún var 7,5%. Greining Ís- landsbanka og Hagsjá Lands- bankans rekja að húsnæðisliðurinn sé helsti valdur að aukinni verðbólgu en markaðsverð íbúðarhúsnæðis hækkaði alls um 2,7% á milli mánaða samkvæmt gögnum Hagstofu og þá hækkaði reiknuð húsaleiga um 2,4% á milli mánaða. Auk þess hafa hærri flugfargjöld áhrif á aukna verðbólgu, en hærri fargjöld til útlanda skýrast af hækkandi eldsneytisverði og auk- inni eftirspurn eftir flugi. Lilja D. Alfreðsdóttir, viðskipta- og menningarráðherra, segir í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að Seðla- bankinn muni þurfa að „gera allt sem í hans valdi stendur til að væntinga- stjórnin sé skýr og einbeita sér að því að verðbólgan hörfi“ eins og hún orðar það. Þá segir hún að ríkisfjár- málin þurfi jafnframt að vera að- haldssöm til að styðja við peninga- stefnuna ásamt því sem vinnumarkaðurinn verði að taka tillit til aðstæðna. „Staðan í efnahagsmálum er sann- arlega vandasöm, því seðlabankar heimsins mega ekki stíga það fast á bremsurnar að þeir framkalli efna- hagskreppu, sérstaklega í ljósi þess að heimsbúskapurinn var rétt að ná sér eftir farsóttina,“ segir Lilja og bætir við að þrátt fyrir efnahags- áskoranir búi íslenska hagkerfið yfir miklum viðnámsþrótti. »15 Seðlabankinn þurfi að beita sér - Verðbólga eykst og mælist nú 7,2% Lilja Alfreðsdóttir Rússar skutu sprengjum að Kænugarði í gær á meðan aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, heimsótti borgina. Sprengjurnar hæfðu tvö skotmörk, annað þeirra íbúðablokk, en að minnsta kosti tíu eru særðir. Saviano Abreu, talsmaður Guterres, sagði að hópnum væri brugðið en þau væru í öruggu skjóli, án þess að segja hvar nákvæmlega. „Þetta er stríðssvæði en það kom okkur í opna skjöldu hvað þetta gerðist nálægt okkur,“ sagði Abreu. Kænugarður hefur ekki orðið fyrir sprengjuárásum síðan um miðjan apríl. AFP/Supinsky Rússar ráðast á Kænugarð í heimsókn Guterres Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við höfum ekki mannskap til að taka á móti auknu álagi og það eru þreytu- merki í hópnum,“ segir Margrét Ólafía Tómasdóttir, formaður Félags íslenskra heimilislækna. Hún segir að álagið sé farið að bitna á læknum og öðru starfsfólki. „Við gerðum nýlega könnun meðal lækna sem starfa hjá heilsugæslunni á landsvísu, bæði sérfræðinga og sér- námslækna. Niðurstöðurnar sýndu að hátt í 40% upplifa mjög oft kuln- unareinkenni og 25% hafa íhugað al- varlega að fara í veikindaleyfi. Þessar niðurstöður eru mikið áhyggjuefni. Það er alls ekki gott að keyra fólk í gegnum sérnám undir svona álagi. Ég er hrædd um að við missum eitt- hvað af þessu fólki frá okkur ef ástandið fer ekki að lagast,“ segir Margrét en mikil þörf er á endurnýj- un í stétt heimilislækna. Stéttin sé í lægð eftir að hafa nýlega misst út stóran hóp lækna sem hættu fyrir aldurs sakir. Tekist hafi að fjölga læknum sem sérhæfa sig í heimilis- lækningum en nokkur ár eru þangað til þeir skila sér að fullu til starfa. Aukið álag á heilsugæsluna birtist í því að löng bið getur verið eftir tímum hjá heimilislæknum. Algengt er að fólk þurfi að bíða vikum saman. „Ég á sjálf næst lausan tíma í júlí,“ segir Margrét. Hún segir að öllum bráðatilfellum sé sinnt og til þess að það sé unnt þurfi læknar að vera til taks. „Ef við erum að sinna bráðaþjónustu fækkar bókuðum tímum á móti. Þörfin á þjónustu minnkar auðvitað ekkert og fyrir vikið hringja margir í hjúkrun- arfræðinga og hafa samband í gegn- um Heilsuveru. Þetta skapar allskon- ar flækjur því þeir læknar sem eru á dagvakt á heilsugæslunni taka líka kvöldvaktir á Læknavaktinni. Því meira álag sem er á daginn, þeim mun færri fást á kvöldvaktirnar og því er oft tæp mönnun á Læknavaktinni.“ Allt að 40% heimilislækna upplifa einkenni kulnunar - Mikið álag á heilsugæslustöðvum og biðtími hefur lengst Morgunblaðið/Hari Heilsugæsla Mikið álag er á starfs- fólki. Biðtími hjá læknum lengist. MNæsti lausi tími er í júlí »4 Ice Fish Farm hefur ákveðið að slátra öllum laxi úr sjóeldi sínu á Sigmundarhúsum í Reyðarfirði. ISA-veiran, sem getur valdið blóð- þorra, hefur greinst í einu sýni úr kví á því svæði. Hins vegar virðist sjúkdómurinn ekki hafa komið upp því fiskurinn er vel haldinn og ekki sér á honum. Í kvíunum á Sigmundarhúsum eru um milljón seiði sem sett voru út í haust. Hluti laxins er orðinn 1-2 kíló að þyngd en megnið er um 400 grömm. Búast má við að 500 tonn komi upp úr kvíunum. Er þetta í annað sinn í vetur sem ISA-veiran greinist í Reyðarfirði. Í nóvember fór á bera á veikindum í laxi á Gripalda, og var ákveðið að slátra öllum laxi í varúðarskyni. Síð- an hefur lax í öðrum kvíum verið vaktaður sérstaklega. »6 Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sjóeldi Stærstu löxunum verður slátrað til sölu á markaði. Milljón löxum slátrað - Veira greindist í einu sýni án veikinda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.