Morgunblaðið - 29.04.2022, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2022
Óðinn Viðskiptablaðsins gerir
bankasölumál að umfjöllunar-
efni í pistli í vikunni og finnur að
því að Kristrún Frostadóttir hafi
ekki sett gagnrýni sína fram fyrir
útboðið á hlutum ríkisins í Íslands-
banka í stað þess að gagnrýna bara
að útboði loknu.
- - -
Óðinn bendir á að
aðrir þing-
menn hafi stigið
fram og viðurkennt
að hafa ekki vitað út
á hvað sú leið sem
farin var gekk eða
spurt spurninga þar
að lútandi.
- - -
Og hann segir að Kristrún geti
ekki borið við fákunnáttu og
skilningsleysi, hún hafi verið „aðal-
hagfræðingur Kviku banka. Vegna
kunnáttu sinnar, að sögn, fékk hún
áskriftarréttindi í bankanum fyrir
um 3 milljónir sem urðu á fáeinum
árum að 100 milljónum króna.
Þessu virtist Kristrún reyna að
leyna fyrir kosningar í haust og lík-
lega situr Samfylkingin ekki í ríkis-
stjórn vegna þess. Þessi stjarn-
fræðilega upphæð sýnir að þarna
hlýtur að vera á ferðinni einkar
hæfur hagfræðingur.“
- - -
Í pistlinum er sýnt að salan á Ís-
landsbanka nú var mun dýrari
en í fyrri einkavæðingum, bæði á
bönkum og síma, og Óðinn undrast
að Kristrún hafi ekki spurt út í
þennan kostnað og spyr svo: „Var
það virkilega þannig að ekki nokk-
ur einasti maður hafi velt fyrir sér
hvað einkavæðingar í fortíðinni
kostuðu? Hvernig getur kostað
miklu meira að selja Íslandsbanka
en kostaði að selja Símann, Lands-
bankann, Búnaðarbanka og Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins?“
- - -
Þetta eru áleitnar spurningar.
Kristrún
Frostadóttir
Áleitnar
spurningar Óðins
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ekki er skilgreint í gildandi
reglum hvar loftrýminu sem ís-
lenska ríkið ber ábyrgð á sleppir
og hvar geimurinn tekur við. Það
er meðal ástæðna þess að Sam-
göngustofa treystir sér ekki til að
veita leyfi til eldflaugaskota út í
geiminn.
Nokkrar stofnanir þyrftu að
koma að útgáfu leyfis til að skjóta
eldflaug á loft, að mati Samgöngu-
stofu, en hvað þá stofnun varðar
sérstaklega kemur skortur á reglu-
verki og heimildum í veg fyrir að
hún telji sér fært að gefa út leyfi.
Skoska fyrirtækið Skyrora hefur
sótt um leyfi til að skjóta eldflaug á
loft frá Langanesi í tilraunaskyni, í
yfir 100 kílómetra hæð, en hefur
ekki fengið til þess leyfi hjá ís-
lenskum stjórnvöldum. Hefur það
valdið töfum á tilrauninni og hefur
fyrirtækið skorað á íslensk stjórn-
völd að leysa úr málinu.
Samgöngustofa ber ábyrgð á
skipulagi og stjórnun loftrýmis út
frá gildandi reglum. Í svari við
fyrirspurn vegna máls Skyrora
kemur fram að um geiminn gilda
önnur lög og sáttmálar, en íslensk
löggjöf sé ennþá ófullkomin á
þessu sviði. Þá séu engar reglur í
gildi um hvaða kröfur skuli gera til
eldflaugaskota og hvernig tryggja
beri öryggi í lofti, á láði og legi.
Jafnframt skorti skilgreiningu um
efri mörk loftrýmisins sem íslenska
ríkið beri ábyrgð á, það er að segja
hvar loftrýminu sleppir og geim-
urinn tekur við. Á því séu mismun-
andi skilgreiningar. Þá liggi að-
koma Samgöngustofu við
leyfisveitingar eldflaugaskota ekki
fyrir í gildandi reglum.
Ein kæra hjá ráðuneytinu
Í svari stofnunarinnar er á það
bent að unnt er að kæra ákvarð-
anir hennar til innviðaráðuneytis-
ins. Fyrir liggi að ein umsókn um
eldflaugaskot sé í kæruferli þar.
Ekki fæst uppgefið hvort um sé að
ræða kæru Skyrora.
Ekki vitað hvar geimurinn hefst
Kristín Anna Claes-
sen lést á hjúkrunar-
heimilinu Seltjörn 28.
apríl sl. 95 ára að
aldri.
Kristín Anna fædd-
ist á Reynistað í
Skerjafirði 1. október
árið 1926, sem þá til-
heyrði Seltjarnar-
neshreppi. Foreldrar
hennar voru Jean
Eggert Claessen
hæstaréttarlögmaður
og Soffía Jónsdóttir
Claessen hússtjórnar-
kennari.
Kristín Anna varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík á 100
ára afmæli skólans árið 1946. Eftir
einn vetur í Háskóla Íslands lærði
Kristín tannsmíði hjá Jóni Hafstein
tannlækni og vann hún við það allt til
ársins 1956. Síðar fór
hún að vinna á Land-
spítalanum sem hjúkr-
unarritari á bæklunar-
deild, en lengst af vann
hún á Barnaspítala
Hringsins.
Kristín Anna gekk
ung í Oddfellowregluna
og gegndi þar öllum
æðstu embættum. Hún
var stofnandi Rebekku-
stúkunnar nr. 10 Soffíu
og bar hag reglunnar
ætíð fyrir brjósti.
Eiginmaður hennar
var Guðmundur Bene-
diktsson, ráðuneytisstjóri í forsætis-
ráðuneytinu.
Þau eignuðust fjögur börn: Ragn-
heiði Margréti sem lést 2018, Soffíu
Ingibjörgu, Solveigu Láru og Egg-
ert Benedikt.
Andlát
Kristín Anna Claessen
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?