Morgunblaðið - 29.04.2022, Page 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2022
Verið velkomin
í sjónmælingu
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14
Hreint loft –betri heilsa
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Honeywell gæða lofthreinsitæki
Láttu þér og þínum
líða vel - innandyra
Loftmengun er hættuleg heilsu og
lífsgæðum. Honeywell lofthreinsitæki
eru góð viðmyglugróum, bakteríum,
frjókornum, svifryki, lykt og fjarlægir allt
að 99,97% af ofnæmisvaldandi efnum.
HPA710WE HEPA sía, gróf sía,
kola sía, ION kerfi. Hreinsar allt
að 99.97% af óhreinindum.
Hljóðlát stilling. Verð kr. 59.100
HFD323E Air Genius 5.
Hreinsar allt að 99.9% af
óhreinindum. Hægt að
þvo síuna. Verð kr. 39.420
HPA830 Round Air Purifier.
Hreinsar allt að 99.97%
af óhreinindum. Mjög
hljóðlát. Verð kr. 29.960
S. 555 3100 · donna.is
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Ég er fyrst og fremst döpur
vegna þess að menn virðast ekki
skilja mikilvægi góðrar og hagnýtrar
starfsmenntunar í garðyrkju. Síðustu
ár hefur verið ólgusjór í kringum
fyrirkomulag námsins og óvissuferð-
inni er ekki lokið,“ segir Guðríður
Helgadóttir garðyrkjufræðingur um
stöðu garðyrkjunáms.
Hún hefur staðið í stafni í Garð-
yrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi
frá árinu 2005, en fékk uppsagnar-
bréf í vikunni. Námið á að færast
undan hatti Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri til Fjölbrautaskóla Suður-
lands á Selfossi frá 1. ágúst næstkom-
andi. Stefnt er að því að námið fari þó
að mestu eða öllu leyti fram á Reykj-
um.
Guðríði var í vikunni tilkynnt að
starf hennar hefði verið lagt niður og
sömu sögu er að segja um þau Björg-
vin Örn Eggertsson skógfræðing,
Ágústu Erlingsdóttur skrúðgarð-
yrkjumeistara, Ingólf Guðnasongarð-
yrkjufræðing og Svölu Sigur-
geirsdóttur, fulltrúa á kennslu-
skrifstofu. Áður höfðu tveir kennarar
sagt upp störfum og er því enginn
fastráðinn kennari garðyrkjunáms
við skólann, að sögn Guðríðar.
Eftir deilur um stöðu og umgjörð
garðyrkjunáms á milli yfirstjórnar á
Hvanneyri og atvinnulífs garðyrkj-
unnar ákvað menntamálaráðherra á
Þorláksmessu 2020 að flytja námið í
Fjölbrautaskóla Suðurlands. Guð-
ríður segir að tíminn síðan hafi verið
illa notaður.
Hún segir að uppsagnirnar hafi
ekki komið með öllu á óvart, frekar
hvernig staðið var að málum. Starfs-
fólk hefði getað skilið stöðuna þannig
að það fengi tilkynningu um tilflutn-
ing í starfi og skilaboð frá ráðuneyti,
yfirstjórn Landbúnaðarháskólans og
stéttarfélögum hafi verið misvísandi.
Framtíðin óljós
Spurð hvað hún hyggist gera segir
Guðríður það vera óljóst, en þegar
hafi henni verið boðin önnur störf.
Hún er menntaður garðyrkjufræð-
ingur frá Reykjum, líffræðingur frá
Háskóla Íslands og er með meistara-
próf í verkefnastjórnun. Hún var
staðarhaldari og yfirmaður starfs- og
endurmenntunar á Reykjum frá 2005
til 2019 og hefur verið í forsvari fyrir
garðyrkjunámið þangað til í vikunni.
Meðal annars skrifaði hún ásamt
samstarfsfólki á Reykjum og fulltrúa
atvinnulífs garðyrkjunnar námskrá
fyrir garðyrkjunámið sem viður-
kennd var af menntamálaráðuneyti
árið 2018.
„Ég er sérfræðingur í garðyrkju,
en er hins vegar ekki með kennslu-
réttindi, sem krafist er í venjulegum
framhaldsskólum,“ segir Guðríður.
„Enn hefur ekki verið gengið frá
samningi við Fjölbrautaskólann og
meðan svo er geta þau ekki auglýst
störfin. Ég veit ekki hvernig þetta
þróast og hvort ég mun starfa áfram
á þessum vettvangi. Öll þessi ár hef
ég starfað við kennslu í garðyrkju
vegna þess að ég hef ástríðu fyrir
þessu starfi. Það er ástæðan fyrir því
að ég er hérna enn þá þrátt fyrir að
gengið hafi á ýmsu.“
Eldri nemendur á Reykjum
Guðríður segist hafa meiri áhyggj-
ur af framtíð garðyrkjunámsins held-
ur en sjálfri sér. Hún tekur fram að
þeir nemendur skólans sem eigi eftir
að ljúka námi fái tækifæri til að ljúka
því á Reykjum í sama takti og verið
hefur. Stóra spurningin í þeim efnum
sé hins vegar kennaraleysið eftir upp-
sagnir vikunnar.
Á Reykjum hafa í vetur verið um
100 nemendur og meðalaldur þeirra
um 35 ár. Það er nokkuð hærri aldur
en í hefðbundnum framhaldsskólum
þar sem stærsti aldurshópurinn er
16-18 ára. Hún segist því hafa
áhyggjur af því að vegna aldurs sitji
eldri nemendur í garðyrkjunámi ekki
við sama borð og yngri umsækjend-
ur. Nemendur á Reykjum koma alls
staðar að af landinu, en FSU er frek-
ar svæðisbundinn skóli á Suðurlandi.
Einnig stunda margir fjarnám á
Reykjum að stórum hluta.
Vantar fólk sem kann til verka
„Okkur vantar fólk sem kann til
verka, getur farið út og unnið störfin í
garðyrkju og tengdum greinum,“
segir Guðríður. „Margir sjá ekkert
nema rannsóknir og nýsköpun, sem
er algerlega lífsnauðsynlegt fyrir
okkur, en mér finnst umræðan vera á
kostnað starfsmenntanáms. Það má
ekki stilla þessu upp eins og það sé
annaðhvort eða. Auðvitað þurfum við
sterkt starfsmenntanám í garðyrkju
og einnig rannsóknir og nýsköpun til
framtíðar.“
Guðríður segir að skólameistari
FSu hafi unnið náið með starfs-
mönnum á Reykjum í tengslum við
þessar breytingar og ýmis tækifæri
séu í tengingu garðyrkjunámsins við
öflugan framhaldsskóla. Garðyrkju-
skólinn sé þó um margt ólíkur hefð-
bundnum framhaldsskóla, meðal ann-
ars vegna þeirrar sérhæfðu aðstöðu
sem námið þurfi á að halda í gróður-
húsum og landrými.
Í þessu efni séu ýmis mál óútkljáð
og megi þar einnig nefna húsnæðið
sem notað hefur verið til skólahalds á
Reykjum. Starfsmenntanámið hafi
verið um 90% þess starfs sem unnið
hafi verið á Reykjum, en um 10% hafi
verið vegna rannsókna. Skólahús-
næðið heyri að óbreyttu undir ráð-
herra háskólanna, en garðyrkjunám-
ið undir menntamálaráðherra. Það
auki enn flækjustigið, sem hafi þó
verið ærið fyrir.
Óboðleg óvissa
„Forsendan fyrir því að þessi yfir-
færsla námsins gangi vel fyrir sig er
að Reykir með allri áhöfn og aðstöðu
færist undan hatti LbhÍ og til FSu og
að réttindi starfsmanna og nemenda
verði tryggð á sómasamlegan hátt,
eins og rætt var um í upphafi. Sú
óvissa sem hefur verið uppi síðustu
þrjú ár er óboðleg með öllu.
Það sýnir kannski alvarleika stöð-
unnar að nú, einu og hálfu ári eftir að
ráðherra ákvað að færa námið til FSu,
sé enn ekki kominn á samningur um
yfirfærsluna og námið því í uppnámi.
Það er óskiljanlegt í ljósi þess að nú á
að auka við matvælaframleiðslu í
landinu, framleiða og gróðursetja
garð- og skógarplöntur, grisja skóga
og fegra umhverfi og öll þessi störf
eru kennd í Garðyrkjuskólanum, sem
er eini staðurinn í landinu þar sem
þessar greinar eru í boði,“ segir Guð-
ríður að lokum.
Blómlegt Gestir á markaðstorgi á Reykjum á sumardaginn fyrsta.
Óvissuferð í garðyrkjunáminu
- Kennurum sagt upp - Tíminn illa
notaður - Áhyggjur af eldri nemum
Garðyrkjunám sem áður var hjá
Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ)
á Reykjum í Ölfusi flyst til Fjöl-
brautaskóla Suðurlands (FSu) í
haust. Stjórnsýslan færist til FSu á
Selfossi en starfsnámið verður
áfram á Reykjum, að sögn Olgu Lísu
Garðarsdóttur, skólameistara FSu.
Hún sagði að kennslan yrði óbreytt í
tvö ár og tíminn notaður til að þróa
námið og skipuleggja til framtíðar.
„Þetta var ákvörðun ráðherra á
sínum tíma. Markmiðið var alltaf að
byrja kennslu í haust og við erum að
undirbúa það. Við þurfum meira en
kennara Garðyrkjuskólans til að
sinna þessu. Það er verið að semja
um að fá kennara, aðra starfsmenn
og svæðið sem þarf,“ sagði Olga. Um
er að ræða m.a. starfsmenn starfs-
menntanámsins, t.d. starfsmenn á
útisvæði, aðstoðarmenn í gróður-
húsum, bókasafnsfræðing og kokk
sem hafa unnið við Garðyrkjuskól-
ann. Hugsa þarf um plönturnar allan
ársins hring, jafnt skóladaga sem
aðra, og hlúa að umhverfinu.
Olga segir að starfsnámið verði
áfram á Reykjum, að því gefnu að
FSu fái aðgang að þeim húsakosti
sem þar er. Mikið af Reykjatorfunni
er nýtt í þágu starfsmenntanámsins.
Hún segir að LbhÍ sé með starfsemi
þar á háskólastigi. Það eru nokkur
hólf í tilraunagróðurhúsi, skrifstofa
og útisvæði þar sem stundaðar eru
rannsóknir. Olga segir að FSu muni
ekki standa í vegi fyrir því að það
starf LbhÍ haldi áfram á Reykjum.
Hún sagði aldrei hafa komið til álita
að flytja starfsnám í garðrkjufræð-
um til Selfoss.
„Við erum ekki með neina aðstöðu
fyrir það á Selfossi. Skólinn hér er
nánast fullsetinn og verknámshúsið
fullnýtt. Það er ekki pláss á Selfossi
fyrir 100 nýja nemendur í svo sér-
tæku námi. Garðyrkjunám þarf sér-
hæfða aðstöðu og hún er á Reykjum.
Raunar eru gróðurhúsin ekki öll í
góðu standi en kennslustofur í fínu
lagi. Það verður að gera áætlun um
endurnýjun gróðurhúsanna.“
Olga segir að garðyrkjunám hafi
alltaf verið á framhaldsskólastigi en
LbhÍ er á háskólastigi. Það fari ekki
vel saman að vera með framhalds-
skólakennslu í háskóla. Skrúðgarð-
yrkja er löggilt iðngrein. FSu kennir
löggiltar iðngreinar eins og t.d.
húsasmíði, rafvirkjun og vélvirkjun.
Það fer því vel saman.
FSu hefur auglýst eftir umsókn-
um vegna náms á blómaskreyt-
ingabraut, garð- og skógplöntu-
braut, námsbraut skógar og náttúru,
námsbraut um lífræna ræktun mat-
jurta, skrúðgarðyrkjubraut og yl-
ræktarbraut næsta haust. Umsækj-
endur þurfa að hafa lokið eins árs
námi í almennum greinum í fram-
haldsskóla. Garðyrkjunámið tekur
tvö ár til viðbótar. Umsóknarfresti
lauk 22. apríl en ákveðið var að
framlengja hann. Hluti nemenda
verður í fjarnámi og mun mæta í
skólann í staðlotur.
gudni@mbl.is
Stjórnendur Guðríður Helgadóttir
(t.v.) og Olga Lísa Garðarsdóttir
fagna sumri á Reykjum í Ölfusi.
Starfsnám verður áfram á Reykjum
- Stjórnsýsla garðyrkjukennslu flyst til FSu á Selfossi