Morgunblaðið - 29.04.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.04.2022, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2022 Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Sérhæfð þjónusta fyrir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 544 5151 tímapantanir STUTT DAGMÁL Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is „Núna þegar þessi hræðilega innrás á sér stað í Úkraínu þá eru margar vestrænar flugvélar og flugvéla- leigusalar sem brenna inni með flug- vélar í Rússlandi og flugfélög í Rúss- landi voru í miklum endurnýjunar- fasa. Það eru því margar vélar frá Boeing og Airbus sem eru að koma nýjar út á markaðinn sem áttu að fara til Rússlands en eru ekki að gera það. Það er því mikil pressa á okkur og fleiri flugfélög að taka fleiri flugvélar. En þá komum við aftur að því sem er að vera með skýrt plan og láta ekki afvegaleiða sig eða plata sig út í eitthvað.“ Þetta segir Birgir Jónsson, for- stjóri flugfélagsins Play, í samtali í Dagmálum í dag. Hann segir að fé- laginu hafi á undanförnum vikum boðist að taka á leigu ýmsar flug- vélar, m.a. breiðþotur. Birgir viðurkennir að freisting- arnar séu við hvert fótmál og að hann og aðrir forystumenn flugfélagsins þurfi að halda skýrum fókus til þess að standast þær. Það séu ekki aðeins spennandi og nýjar vélar sem séu í boði heldur einnig gott verð, enda helsta markmið flugvélaleigusalanna að koma vélunum úr sínum bókum og ábyrgðinni yfir á flugfélögin. „Það er hættulegt að vera ekki markaðsleiddur í hugsun sinni. Auð- vitað á það að vera þannig að maður sér eftirspurn og finnur flugvél til að fylla upp í hana. Það er svo ofboðs- lega hættulegt að vera framleiðslu- drifinn, taka vélina og finna svo eftir- spurnina.“ Birgir segir að í þessari stöðu sé það að sanna styrk sinn að hafa fé- lagið á markaði og að þúsundir eig- enda séu að því. Mikilvægt sé að halda kúrs og hvika ekki frá stefn- unni sem mörkuð hefur verið. „Þótt við séum að vaxa hratt svona þá ætlum við að halda okkur við þetta plan og teljum okkur vera með gríðarlega flottan flota og búin að tryggja okkur vélar langt undir markaðsverði til 10 til 12 ára.“ Skráð félag sterkara Spurður út í stöðuna á flugmark- aði, nú þegar Play hefur hafið far- þegaflutninga til og frá Bandaríkj- unum, segir Birgir að viðbrögðin við innreið félagsins á markað hafi verið góð. Tugir þúsunda manna hafi nú þegar pantað miða með félaginu. Þá segir hann stefna í sterkt ferða- mannasumar á Íslandi. Þegar tölur um áætlaðan ferðamannafjölda á þessu ári og því næsta, sem flestar hafa verið á bilinu 1,1-1,3 milljónir á þessu ári og í kringum 1,5 milljónir á því næsta, segir Birgir að hann telji tölurnar vanáætlaðar. Gera megi ráð fyrir meiri fjölda, jafnvel þótt ekki stefni í að Play og Icelandair verði á næstu árum komin með jafn stóran flota og síðarnefnda félagið og WOW air voru komin með á árinu 2018 þeg- ar 2,3 milljónir ferðamanna sóttu landið heim. Gengur vel að manna stöður Mörg ferðaþjónustufyrirtæki eiga nú í vandaræðum með að manna stöður fyrir sumarið. Birgir segir þann vanda ekki uppi hjá Play. Margar umsóknir séu um hvert aug- lýst starf og hópurinn sem fyrirtækið hefur á að skipa sé öflugur. Hann segir að þar spili margt inn í. „Hvað sem hver segir þá eru þetta vel launuð störf.“ Hann bendir þó á að mikil vinna liggi að baki laununum og ekki sé sjálfgefið að fólk geri það að ævistarfi sínu að þeysast um loftin blá. Leigusalar hafa boðið Play breiðþotur - Áætlanir um fjölda ferðamanna munu ekki standast Viðtal Birgir Jónsson, forstjóri Play, mætti í viðtal í Dagmálum og annað viðtal hjá viðskiptaklúbbi Morgunblaðsins í vikunni. Þar fór hann yfir stöðuna á flugmarkaði og þá stefnu sem Play er að taka með síauknum umsvifum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Morgunfundur Birgir fór meðal annars yfir stöðuna á flugvélamarkaði. Það voru margir og ánægðir gestir sem mættu á fund sem viðskipta- klúbbur Morgunblaðsins, Kompaní, stóð fyrir í höfuðstöðvum blaðsins í Hádegismóum í gærmorgun. Þetta er í fyrsta sinn frá því í nóvember 2019 sem haldinn er morgun- verðarfundur með þessum hætti, en þeim var slegið á frest á meðan kór- ónuveirufaraldurinn gekk yfir og var starfsemi klúbbsins og þjónusta við meðlimi hans með öðrum en virkum hætti á meðan. Birgir Jónsson, forstjóri Play, var gestur fundarins og ræddi þar við Stefán Einar Stefánsson, fjöl- miðlamann á Morgunblaðinu, um aðdraganda þess að hann gerðist forstjóri félagsins, upphafið á flugi til Bandaríkjanna, rekstur og stöðu flugfélagsins nú, horfurnar fyrir sumarið og margt fleira. Í kjölfarið steig Sóli Hólm skemmtikraftur á svið og flutti gamanmál eins og honum einum er lagið við góðar undirtektir fundargesta. Viðskiptaklúbbi Morgunblaðsins og mbl.is er ætlað að sameina starf- andi fólk á Íslandi. Kompaní er vettvangur miðla Árvakurs til að veita viðskiptavinum enn betri þjónustu þar sem hægt er að hlýða á fræðslufundi og fyrirlestra, fylgjast með nýjungum og fleira. Mikill áhugi og góð mæting í Hádegismóa - Viðskiptaklúbbur Morgunblaðsins bauð meðlimum sínum á opinn fund Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kompaní Það var þétt setið á fundinum sem haldinn var í Hádegismóum. Heildartekjur Icelandair Group á fyrsta fjórðungi ársins námu um 20,3 milljörðum króna. Tekjur félagsins hafa þannig rúmlega þrefaldast á milli ára en á sama tímabili í fyrra var starfsemi félagsins í lágmarki vegna kórónuveirufaraldursins. Tap félagsins á tímabilinu nam um fimm milljörðum króna. Lausafjárstaða í lok mars var 49 milljarðar króna og handbært fé frá rekstri nam 10,7 milljörðum króna. Í uppgjöri fyrir fyrsta ársfjórðung sem Icelandair birti í gær kemur fram að flugframboð á tímabilinu hafi verið um 58% af því sem það var árið 2019 og að sætanýting félagsins á þessum fyrsta fjórðungi ársins hafi verið um 67,2% þrátt fyrir neikvæð áhrif ómíkron-afbrigðis kórónuveir- unnar. Þá kemur einnig fram að tæp- lega 200 starfsmenn hafi verið ráðnir til starfa á tímabilinu. Icelandair flutti um 422 þúsund farþega á fyrsta fjórðungi þessa árs, saman- borið við 66 þúsund farþega á sama tíma í fyrra. „Afkoma fjórðungsins var í takt við væntingar stjórnenda en ýmsir þættir höfðu áhrif á rekstrarniður- stöðuna, svo sem mikil hækkun elds- neytisverðs, áhrif ómíkron-afbrigð- isins á eftirspurn og umtalsverður útlagður kostnaður á fjórðungnum í tengslum við undirbúning metnaðar- fullrar flugáætlunar okkar í sumar,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í uppgjörstilkynningu. Tekjur Icelandair rúmlega þrefaldast - Farþegafjöldi sexfaldast á milli ára 29. apríl 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 130.59 Sterlingspund 164.1 Kanadadalur 101.83 Dönsk króna 18.573 Norsk króna 14.125 Sænsk króna 13.284 Svissn. franki 135.11 Japanskt jen 1.0194 SDR 176.01 Evra 138.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 174.735 « Ísraelska fjártæknifélagið Rapyd hefur greitt Arion banka 10 milljónir Bandaríkjadala, eða um 1,3 milljarða króna, í viðbótargreiðslu fyrir kaup Ra- pyd á Valitor. Upphaflega var samið um 100 milljóna dala greiðslu fyrir Valitor, en kaupin voru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Það samþykki liggur ekki enn fyrir. Arion fær aukamilljarð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.