Morgunblaðið - 29.04.2022, Síða 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2022
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
Sérhæfð þjónusta fyrir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
544 5151
tímapantanir
STUTT
DAGMÁL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
„Núna þegar þessi hræðilega innrás
á sér stað í Úkraínu þá eru margar
vestrænar flugvélar og flugvéla-
leigusalar sem brenna inni með flug-
vélar í Rússlandi og flugfélög í Rúss-
landi voru í miklum endurnýjunar-
fasa. Það eru því margar vélar frá
Boeing og Airbus sem eru að koma
nýjar út á markaðinn sem áttu að
fara til Rússlands en eru ekki að
gera það. Það er því mikil pressa á
okkur og fleiri flugfélög að taka fleiri
flugvélar. En þá komum við aftur að
því sem er að vera með skýrt plan og
láta ekki afvegaleiða sig eða plata sig
út í eitthvað.“
Þetta segir Birgir Jónsson, for-
stjóri flugfélagsins Play, í samtali í
Dagmálum í dag. Hann segir að fé-
laginu hafi á undanförnum vikum
boðist að taka á leigu ýmsar flug-
vélar, m.a. breiðþotur.
Birgir viðurkennir að freisting-
arnar séu við hvert fótmál og að hann
og aðrir forystumenn flugfélagsins
þurfi að halda skýrum fókus til þess
að standast þær. Það séu ekki aðeins
spennandi og nýjar vélar sem séu í
boði heldur einnig gott verð, enda
helsta markmið flugvélaleigusalanna
að koma vélunum úr sínum bókum
og ábyrgðinni yfir á flugfélögin.
„Það er hættulegt að vera ekki
markaðsleiddur í hugsun sinni. Auð-
vitað á það að vera þannig að maður
sér eftirspurn og finnur flugvél til að
fylla upp í hana. Það er svo ofboðs-
lega hættulegt að vera framleiðslu-
drifinn, taka vélina og finna svo eftir-
spurnina.“
Birgir segir að í þessari stöðu sé
það að sanna styrk sinn að hafa fé-
lagið á markaði og að þúsundir eig-
enda séu að því. Mikilvægt sé að
halda kúrs og hvika ekki frá stefn-
unni sem mörkuð hefur verið.
„Þótt við séum að vaxa hratt svona
þá ætlum við að halda okkur við
þetta plan og teljum okkur vera með
gríðarlega flottan flota og búin að
tryggja okkur vélar langt undir
markaðsverði til 10 til 12 ára.“
Skráð félag sterkara
Spurður út í stöðuna á flugmark-
aði, nú þegar Play hefur hafið far-
þegaflutninga til og frá Bandaríkj-
unum, segir Birgir að viðbrögðin við
innreið félagsins á markað hafi verið
góð. Tugir þúsunda manna hafi nú
þegar pantað miða með félaginu. Þá
segir hann stefna í sterkt ferða-
mannasumar á Íslandi. Þegar tölur
um áætlaðan ferðamannafjölda á
þessu ári og því næsta, sem flestar
hafa verið á bilinu 1,1-1,3 milljónir á
þessu ári og í kringum 1,5 milljónir á
því næsta, segir Birgir að hann telji
tölurnar vanáætlaðar. Gera megi ráð
fyrir meiri fjölda, jafnvel þótt ekki
stefni í að Play og Icelandair verði á
næstu árum komin með jafn stóran
flota og síðarnefnda félagið og WOW
air voru komin með á árinu 2018 þeg-
ar 2,3 milljónir ferðamanna sóttu
landið heim.
Gengur vel að manna stöður
Mörg ferðaþjónustufyrirtæki eiga
nú í vandaræðum með að manna
stöður fyrir sumarið. Birgir segir
þann vanda ekki uppi hjá Play.
Margar umsóknir séu um hvert aug-
lýst starf og hópurinn sem fyrirtækið
hefur á að skipa sé öflugur. Hann
segir að þar spili margt inn í.
„Hvað sem hver segir þá eru þetta
vel launuð störf.“ Hann bendir þó á
að mikil vinna liggi að baki laununum
og ekki sé sjálfgefið að fólk geri það
að ævistarfi sínu að þeysast um loftin
blá.
Leigusalar hafa
boðið Play breiðþotur
- Áætlanir um fjölda ferðamanna munu ekki standast
Viðtal Birgir Jónsson, forstjóri Play, mætti í viðtal í Dagmálum og annað viðtal hjá viðskiptaklúbbi Morgunblaðsins
í vikunni. Þar fór hann yfir stöðuna á flugmarkaði og þá stefnu sem Play er að taka með síauknum umsvifum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Morgunfundur Birgir fór meðal annars yfir stöðuna á flugvélamarkaði.
Það voru margir og ánægðir gestir
sem mættu á fund sem viðskipta-
klúbbur Morgunblaðsins, Kompaní,
stóð fyrir í höfuðstöðvum blaðsins í
Hádegismóum í gærmorgun. Þetta
er í fyrsta sinn frá því í nóvember
2019 sem haldinn er morgun-
verðarfundur með þessum hætti, en
þeim var slegið á frest á meðan kór-
ónuveirufaraldurinn gekk yfir og
var starfsemi klúbbsins og þjónusta
við meðlimi hans með öðrum en
virkum hætti á meðan.
Birgir Jónsson, forstjóri Play,
var gestur fundarins og ræddi þar
við Stefán Einar Stefánsson, fjöl-
miðlamann á Morgunblaðinu, um
aðdraganda þess að hann gerðist
forstjóri félagsins, upphafið á flugi
til Bandaríkjanna, rekstur og stöðu
flugfélagsins nú, horfurnar fyrir
sumarið og margt fleira. Í kjölfarið
steig Sóli Hólm skemmtikraftur á
svið og flutti gamanmál eins og
honum einum er lagið við góðar
undirtektir fundargesta.
Viðskiptaklúbbi Morgunblaðsins
og mbl.is er ætlað að sameina starf-
andi fólk á Íslandi. Kompaní er
vettvangur miðla Árvakurs til að
veita viðskiptavinum enn betri
þjónustu þar sem hægt er að hlýða
á fræðslufundi og fyrirlestra,
fylgjast með nýjungum og fleira.
Mikill áhugi og góð
mæting í Hádegismóa
- Viðskiptaklúbbur Morgunblaðsins
bauð meðlimum sínum á opinn fund
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kompaní Það var þétt setið á fundinum sem haldinn var í Hádegismóum.
Heildartekjur Icelandair Group á
fyrsta fjórðungi ársins námu um 20,3
milljörðum króna. Tekjur félagsins
hafa þannig rúmlega þrefaldast á
milli ára en á sama tímabili í fyrra
var starfsemi félagsins í lágmarki
vegna kórónuveirufaraldursins. Tap
félagsins á tímabilinu nam um fimm
milljörðum króna. Lausafjárstaða í
lok mars var 49 milljarðar króna og
handbært fé frá rekstri nam 10,7
milljörðum króna.
Í uppgjöri fyrir fyrsta ársfjórðung
sem Icelandair birti í gær kemur
fram að flugframboð á tímabilinu
hafi verið um 58% af því sem það var
árið 2019 og að sætanýting félagsins
á þessum fyrsta fjórðungi ársins hafi
verið um 67,2% þrátt fyrir neikvæð
áhrif ómíkron-afbrigðis kórónuveir-
unnar. Þá kemur einnig fram að tæp-
lega 200 starfsmenn hafi verið ráðnir
til starfa á tímabilinu. Icelandair
flutti um 422 þúsund farþega á
fyrsta fjórðungi þessa árs, saman-
borið við 66 þúsund farþega á sama
tíma í fyrra.
„Afkoma fjórðungsins var í takt
við væntingar stjórnenda en ýmsir
þættir höfðu áhrif á rekstrarniður-
stöðuna, svo sem mikil hækkun elds-
neytisverðs, áhrif ómíkron-afbrigð-
isins á eftirspurn og umtalsverður
útlagður kostnaður á fjórðungnum í
tengslum við undirbúning metnaðar-
fullrar flugáætlunar okkar í sumar,“
segir Bogi Nils Bogason, forstjóri
Icelandair, í uppgjörstilkynningu.
Tekjur Icelandair
rúmlega þrefaldast
- Farþegafjöldi sexfaldast á milli ára
29. apríl 2022
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 130.59
Sterlingspund 164.1
Kanadadalur 101.83
Dönsk króna 18.573
Norsk króna 14.125
Sænsk króna 13.284
Svissn. franki 135.11
Japanskt jen 1.0194
SDR 176.01
Evra 138.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 174.735
« Ísraelska fjártæknifélagið Rapyd
hefur greitt Arion banka 10 milljónir
Bandaríkjadala, eða um 1,3 milljarða
króna, í viðbótargreiðslu fyrir kaup Ra-
pyd á Valitor. Upphaflega var samið um
100 milljóna dala greiðslu fyrir Valitor,
en kaupin voru gerð með fyrirvara um
samþykki Samkeppniseftirlitsins. Það
samþykki liggur ekki enn fyrir.
Arion fær aukamilljarð