Morgunblaðið - 29.04.2022, Side 13

Morgunblaðið - 29.04.2022, Side 13
13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2022 Sanna Marin, forsætisráðherra Finn- lands, sagði í gær að Finnar myndu taka ákvörðun um mögulega aðild sína að Atlantshafsbandalaginu mjög fljótlega. Hún var þá í heimsókn í Grikklandi og fundaði með Kyriakos Mitsotakis, forsætisráðherra Grikk- lands. „Skilaboð okkar til NATO eru þessi: Ef Finnland gengur til liðs við NATO munum við styðja við öryggi allra bandalagsríkjanna,“ sagði Mar- in, en umræður standa nú yfir á finnska þinginu um kosti og galla að- ildar. Sauli Niinistö, forseti Finnlands, þakkaði í gær Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra bandalagsins, fyr- ir að gefa loforð um að Finnar myndu njóta verndar bandalagsins frá mögu- legum inngripum Rússa á meðan að- ildarumsókn landsins verður tekin fyrir, en óttast er að Rússar kynnu að reyna netárásir eða jafnvel að fara inn fyrir landamæri Finnlands á meðan aðildarumsóknin er tekin fyrir á vett- vangi bandalagsríkjanna. Sagði Stoltenberg í gær að hann væri sannfærður um að bandalags- ríkin myndu finna leiðir til að verja Finnland og Svíþjóð fyrir ágangi Rússa á meðan umsóknarferlið er í gangi. Sænskir og finnskir fjölmiðlar greindu frá því fyrr í vikunni að ríkin tvö hefðu komist að samkomulagi um að þau myndu senda inn sameigin- lega umsókn um miðjan maí, ef þau ákveða að sækja um, og gæti um- sóknin þá verið tekin fyrir á leiðtoga- fundi bandalagsins í júní. Sérhvert aðildarríki verður að samþykkja aðild nýs ríkis, og er talið að það ferli geti tekið allt frá fjórum mánuðum og upp í ár. Íslensk stjórn- völd hafa lýst yfir stuðningi sínum við umsókn ríkjanna, og að þau muni greiða fyrir samþykki þeirra á þingi. AFP NATO Jens Stoltenberg sagði að bandalagið myndi verja Finna og Svía, sæki ríkin um aðild að NATO. NATO muni verja Finna og Svía - Von á ákvörðun Finna mjög fljótlega Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Joe Biden Bandaríkjaforseti for- dæmdi í gær ráðamenn í Rússlandi fyrir það sem hann kallaði „kærulaus ummæli“ um mögulega beitingu kjarnavopna. Sagði Biden hótanir Rússa sýna örvæntingu þeirra. „Enginn ætti að koma með kæru- laus ummæli um notkun kjarna- vopna eða möguleikann að þeir myndu beita þeim. Það er óábyrgt,“ sagði Biden, en Vladimír Pútín Rúss- landsforseti gaf til kynna í fyrradag að Rússar gætu beitt kjarnorku- vopnum ef aðrar þjóðir skiptu sér af innrás þeirra í Úkraínu. Þá hafa aðrir rússneskir ráða- menn, þar á meðal Sergei Lavrov ut- anríkisráðherra, varað við því að Rússar líti á vopnasendingar frá vesturveldunum sem lögmæt hern- aðarskotmörk, og að þeir kunni brátt að hefna fyrir árásir Úkraínumanna á hernaðarskotmörk í Rússlandi með árásum á miðstöðvar ríkisstjórnar- innar og Úkraínuhers í Kænugarði. Míkhaíló Podoljak, ráðgjafi Úkra- ínuforseta, sagði hins vegar á Twit- ter-síðu sinni að heimsbyggðin við- urkenndi rétt Úkraínumanna til þess að verja sig, meðal annars með árás- um á herstöðvar Rússa og birgða- geymslur, í ljósi árása rússneska hersins á óbreytta borgara. Veitir enn meiri aðstoð Vesturveldin hafa hins vegar ekki dregið úr aðstoð sinni við Úkraínu þrátt fyrir þær hótanir, og tilkynnti Biden í gær að hann hygðist biðja Bandaríkjaþing um 33 milljarða bandaríkjadala, eða sem nemur um 4.300 milljörðum íslenskra króna, í aðstoð til viðbótar við það sem þegar hefur verið veitt til Úkraínu. Þar af verða 20 milljarðar dala, eða um 2.600 milljarðar, settir í beina hernaðaraðstoð, um 8,5 millj- arðar dala í efnahagsaðstoð og um 3 milljarðar bandaríkjadala í mannúð- araðstoð og til að takast á við hækk- un á matvælaverði sem fylgt hefur innrás Rússa. Í tillögum Bidens er einnig opnað fyrir þann möguleika að þær eignir rússneskra ólígarka sem gerðar hafa verið upptækar frá upphafi innrás- arinnar verði nýttar í þágu Úkraínu. Ríki Evrópusambandsins hafa til dæmis fryst verðmæti sem nema um 30 milljörðum bandaríkjadala. Þá verður saksóknurum í Banda- ríkjunum gefinn rýmri rammi til þess að sækja menn til saka fyrir peningaþvætti og önnur efnahags- brot í tengslum við refsiaðgerðir vesturveldanna. Biden sagði þegar hann kynnti til- lögurnar að það væri ekki ódýrt að verja Úkraínu, en að ekki væri hægt að sitja hjá í ljósi stríðsglæpa Rússa. Sagði Biden einnig að Bandaríkin væru ekki að ráðast á Rússland með því að aðstoða Úkraínu við að verjast innrásinni. Óvissa um stöðu refsiaðgerða Bandaríkjastjórn hyggst einnig senda meira af birgðum sínum af jarðgasi til Evrópu eftir að Rússar ákváðu að loka fyrir jarðgassending- ar sínar til Póllands og Búlgaríu, þar sem þau ríki hefðu ekki greitt fyrir orkuna í rúblum. Biden sagði að Bandaríkin myndu ekki leyfa Rússum að kúga Evrópu með jarðgasi og reyna þannig að grafa undan refsiaðgerðum vestur- veldanna. Merki voru þó á lofti um að ein- hver orkufyrirtæki í Evrópu væru reiðubúin að láta undan hótunum Rússa að einhverju leyti. Þýska orkufyrirtækið Uniper lýsti því yfir í gær að það væri reiðubúið að kaupa jarðgas af Rússum með því að leggja evrur inn á reikning í banka Gaz- prom-orkurisans, sem myndi svo umbreyta þeim í rúblur. Á sú aðferð að geta mætt kröfum Rússa, á sama tíma og hún brýtur ekki í bága við refsiaðgerðir Evrópu- sambandsins. Deilt er þó um þessa aðferð, þar sem hún þýðir á endan- um að rússneski seðlabankinn verði að meðhöndla féð, en viðskipti við hann eru nú bönnuð samkvæmt refsiaðgerðunum. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sagði í fyrradag að orkufyrirtæki sem færu þessa leið kynnu að gerast brotleg við refsiaðgerðirnar, og þótti því ríkja nokkur óvissa um hver afstaða sambandsins væri, þrátt fyrir að framkvæmdastjórnin hefði áður sjálf nefnt þann möguleika að láta Gazp- rom-bankann um að skipta evrunum yfir í rúblur. Pólverjar hafa hins vegar kallað eftir því að þau ríki sem noti rúblur til að borga fyrir rússneska orku- gjafa sæti refsingu þar til þau hætti að borga með rúblum. Kiríl Petkov, forsætisráðherra Búlgaríu, hvatti í gær önnur aðild- arríki ESB til að sýna „meiri styrk“ gagnvart Rússum og leita leiða til að þurfa ekki að treysta á rússneskt jarðgas. „Ef við getum það, ættu all- ir í Evrópu að geta það,“ sagði Pet- kov, en ákvörðun Rússa um að loka fyrir jarðgassendingar til Búlgaríu hefur hert stjórnvöld þar í afstöðu sinni gegn Rússum. Reyna að ýta undir spennu Nicu Popescu, aðstoðarforsætis- og utanríkisráðherra Moldóvu, var- aði við því í gær að landið stæði nú frammi fyrir mikilli hættustund, þar sem vissir aðilar væru að reyna að ýta undir spennuástand í Transnist- ríu, héraði þar sem rússneskir að- skilnaðarsinnar hafa ráðið lögum og lofum frá árinu 1992. Þar hafa nokkrar sprengjuárásir verið gerðar á síðustu dögum, og komu þær í kjölfar þess að Rústam Minnekajev, undirhershöfðingi í rússneska hernum, lýsti því yfir fyrir helgi að eitt af stríðstakmörkum Rússa í Úkraínu væri að mynda landbrú yfir til héraðsins. Sakaði Minnekajev stjórnvöld í Moldóvu um að kúga rússneska minnihlutann í Transnistríu, en þær yfirlýsingar eiga við engin rök að styðjast. Ríma þær hins vegar við yfirlýsingar sem gefnar voru fyrir innrás Rússa árið 2014 í Donbass- héruðin tvö. Sagði Popescu að greining stjórn- valda hefði ekki enn leitt í ljós hverj- ir bæru ábyrgð á sprengjuárásun- um, og að verið væri að skoða nokkra möguleika. Sagði hann að gögnin sýndu að mismunandi öfl innan hér- aðsins greindi á um hvaða stefnu ætti að taka. Sagði Popescu þó ljóst að meirihluti Moldóva, bæði innan sem utan Transnistríu, vildi halda sér utan átakanna í Úkraínu. Fordæmir kjarnorkuhótanir Rússa - Bandaríkjastjórn biður þingið um að veita 33 milljarða dala í aðstoð - Eignir ólígarka verði gerðar upptækar til að bæta Úkraínu stríðsskaða - Moldóvar standi frammi fyrir hættu vegna sprenginga AFP/Yuriy Dyachyshyn Sorg Vinir og vandamenn úkraínska hermannsins Oleh Skibík minnast hans við útför í Lvív í vesturhluta Úkraínu. Stríð í Evrópu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.