Morgunblaðið - 29.04.2022, Page 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2022
40 ÁRA Linda er Reykvíkingur, ólst upp í Seljahverfi en býr í Laugarnes-
inu. Hún er með BS-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og MS-gráðu í fjár-
málum og hagfræði frá Háskólanum í Warwick á Englandi. Hún er hagfræð-
ingur hjá heilbrigðisráðuneytinu og er að vinna á fjárlagaskrifstofunni þar.
„Utan vinnunnar þá er ég að sinna fjölskyldunni, en við ferðumst mikið
með krökkunum og höfum farið til allra heimsálfanna nema Ástralíu og
Suðurskautslandsins. Þetta er það skemmtilegasta sem við gerum. Við vor-
um síðast á Seychelles-eyjum fyrir austan Afríku, tókum langt páskafrí þar,
eða í tvær vikur, og erum núna í Feneyjum.“ Linda segir að þetta sé fullkom-
inn tími til að heimsækja Feneyjar. Það sé ekki of mikill túrismi enn þá þótt
allt sé komið í gang. „Við erum búin að fara á Feneyjatvíæringinn, það var
æðislegt, og svo fer maður um á gondólabátunum og gerir fleira skemmti-
legt.“
FJÖLSKYLDA Eiginmaður Lindu er Hreggviður Ingason, f. 1978, fjár-
málastærðfræðingur hjá Fossum mörkuðum. Börn þeirra eru Ingi, f. 2009,
Hildur Sigríður, f. 2013, og Benedikt, f. 2016. Ekki má síðan gleyma labrador-
hundi fjölskyldunnar sem heitir Lukka. Foreldrar Lindu eru Garðar Hilm-
arsson, f. 1951, fv. formaður Starfsmannafélags Reykavíkurborgar, og Sig-
ríður Benediktsdóttir, f. 1952, fv. starfsmaður hjá Megin lögmannsstofu. Þau
eru búsett í Reykjavík.
Linda Garðarsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Útlitið er gott hvað varðar við-
skiptahugmyndir og áætlanir fyrir framtíð-
ina. Leggðu gamla hluti til hliðar og haltu á
vit framtíðarinnar.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú mátt ekki láta nokkurn mann not-
færa sér greiðvikni þína. Samstarfsviljinn
sem var allsráðandi í gær er horfinn í dag.
Láttu aðra um að ráða sínum málum.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Reyndu að skipuleggja þig því
annars er hætt við að hlutirnir fari úr bönd-
unum og þú sitjir eftir með sárt ennið.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Leggðu áherslu á jákvæð samskipti
við fólk því það auðveldar allt samstarf.
Með hrósi verðurðu ekki álitinn veikgeðja
eins og þú óttast.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þótt gaman sé að sjá hlutina ganga
upp í starfi máttu ekki gleyma þínum nán-
ustu, sem einnig þurfa á þínum tíma að
halda.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Eitthvert vandamál kemur upp á
vinnustað þínum og þú verður að bregðast
fljótt við til þess að bjarga málunum.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það er gott að hafa stjórn á öllum hlut-
um en nauðsynlegt að vita hvenær maður á
að sleppa hendinni af öðrum. Ekki vera
hræddur við að leggja fram tillögur.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Einhver kemur þér í opna
skjöldu með því að vera með leiðinlegar at-
hugasemdir í þinn garð. Láttu það ekki
aftra þér í að njóta dagsins.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú heyrir innsæið hvísla að
þér, og það verður háværara eftir því sem
þú leggur betur við eyrun. Hugsun þín er
skynsöm, raunsæ, íhaldssöm og rökföst.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Nú verður ekki lengur hjá því
komist að taka til hendinni því verkefnin
hafa hlaðist upp. Vertu varkár í orðum og
gerðum og þá þarftu ekki að hafa áhyggjur.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Samskipti þín við aðra munu
batna mikið á næstu tveimur mánuðum.
Haltu þínu fram af hógværð og þá verður
tekið tillit til þín.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Hafðu allan fyrirvara á fólki sem þú
þekkir engin deili á og reynir að hafa áhrif á
þig gegn vilja þínum. Hlustaðu vandlega og
dragðu þínar ályktanir.
stofnun. Hann var í stjórn Sam-
fylkingarfélags A-Hún. í um tíu ár
og þar af formaður í þrjú ár.
„Fljótlega eftir að Árni Páll tók við
sem formaður gekk ég úr flokkn-
um og gerðist félagi í VG og er þar
enn og líður vel.“ Valli sat í mið-
stjórn ASÍ í tvö ár, stjórn RARIK
fjögur ár, stjórn Lífeyrissjóðs
Norðurlands vestra í tvö ár og
stjórn Norðurlands (nú Stapi) í tvö
ár. „Ég er búinn að kúpla mig út
úr flestu núna. En ég stofnaði kó-
tilettuklúbb fyrir átta árum sem
heldur fjögur kótilettukvöld á ári.
Svo var ég kosinn formaður kirkju-
garðsins á Blönduósi fyrir fimm ár-
um og frístundirnar fara þar.
Helsta málið er að finna peninga til
að halda garðinum við, en hann lá
undir skemmdum. Við erum búin
að framkvæma fyrir um 20 millj-
ónir en girðingin utan um garðinn
er steyptur veggur sem var illa
sprunginn og mikið mosagróinn.“
Enn fremur tók Valli þátt í leik-
listarstarfsemi á svæðinu, var einn
af stofnendum Leikfélags Austur-
Húnvetninga og tók síðan þátt í
starfsemi Leikfélags Blönduóss.
„Þetta var eitt það allra skemmti-
Valli sat í hreppsnefnd Engihlíð-
arhrepps í sex ár og bæjarstjórn
Blönduóss átta ár. Hann gekk ung-
ur í félag ungra framsóknarmanna
í sveitinni og sat í stjórn þess. Síð-
ar skildi leiðir með Valla og Fram-
sóknarflokknum, hann gekk fljót-
lega í Alþýðubandalagið en vann
síðan fyrir Samfylkinguna frá
V
aldimar Guðmannsson
fæddist 29. apríl 1952 á
Blönduósi, en ólst upp
í Bakkakoti, sem er
rétt við Blönduós, í
Refasveit. Fyrstu árin bjó Valdi-
mar, eða Valli eins og hann er allt-
af kallaður, í torfbæ, en flutti í nýtt
hús 1959. Hann byrjaði 10 ára í
skóla á Blönduósi. „Ég vildi ekki
fara í farskóla og fór daglega á
hesti í skólann. Ég gekk í skóla
fram að fermingu, þá tók við skóli
lífsins og ég er enn í honum.“
Valli hóf búskap með foreldrum
sínum 16 ára og keypti þá hálfa
jörðina og restina nokkrum árum
seinna. Hann var með sauðfé en
vann með búskapnum á Blönduósi
lengst af hjá samvinnufélögunum
KH og SAH fyrir utan 13 ár sem
hann var formaður hjá Verkalýðs-
félagi A-Húnvetninga í 10 ár og
síðan formaður hjá stéttarfélaginu
Samstöðu sem varð til við samein-
ingu fjögurra stéttarfélaga; á
Hvammstanga, Skagaströnd og
Blönduósi, seinna komu svo fleiri
félög inn í þessa sameiningu. Hann
vinnur núna í kjötvinnslu SAH af-
urða, nú Kjarnafæði. „Ég hef unnið
þarna samanlagt í 40 ár og í 25 ár í
einum rykk. Minn síðasti vinnu-
dagur verður í dag, á afmælisdag-
inn. Þá tel mig hafa lokið störfum.“
Valli flutti ásamt konu sinni, Ólöfu,
á Blönduós árið 1996 og hafði þá
stundað búskap í tæp 30 ár. Þau
leigðu öðrum jörðina Bakkakot, en
svo tóku dóttir þeirra Aðalbjörg og
Ragnar maður hennar við jörðinni
og hófu búskap.
Snemma byrjaði Valli að fá
áhuga fyrir félagsmálum og var
formaður bæði Ungmenna-
sambands A-Húnvetninga (USAH)
og UMF Vorboðans sem var félag í
sveitinni hans, sem var þá í Engi-
hlíðarhreppi. „Stærsta verkefni
Vorboðans var íþróttavöllurinn
sem átti að verða smá æfingavöllur
en endaði sem löggiltur völlur.
Stærsta verkefni USAH þegar ég
var formaður var unglingalands-
mótið 1995, sem er það lang-
stærsta sem USAH hefur tekið að
sér.“
legasta félagsstarf sem ég hef tek-
ið þátt í en þarna var ég kominn í
önnur félagsstörf sem kostuðu
mikla fjarveru og Reykjavíkur-
ferðir svo það gekk ekki upp að
eiga líka að mæta á leikfélags-
æfingar.“ Valli kom enn fremur að
Húnavökunni í nokkur ár. Hann er
því búinn að koma víða við.
„Ég hef alltaf verið tregur til að
vera lengi í því sama. Ég setti mér
þá reglu einu sinni að vera aldrei
lengur en tíu ár í neinu. Ég braut
hana reyndar einu sinni þegar ég
hafði verið formaður Verkalýðs-
félags A-Húnvetninga í tíu ár og
þegar félögin voru sameinuð var
mér talin trú um að ég þyrfti að
fylgja nýja félaginu af stað og varð
því formaður í stéttarfélaginu
Samstöðu. Menn halda oft að menn
séu ómissandi eftir nokkur ár en
það er miklu betra að koma aftur
að félaginu einhvern tímann
seinna. Ég var t.d. formaður Ung-
mennasambandsins tvisvar.“
Helstu áhugamál Valla eru at-
vinnu- og uppbyggingarmál í
heimabyggð sinni og draga fram
sem mest af því jákvæða í sam-
félaginu. „Ég ákvað þegar ég hætti
Valli frá Bakkakoti – 70 ára
Hjónin Ólöf og Valli við heimili sitt á Sunnubraut 4 á Blönduósi. Þau fluttu á Blönduós árið 1996 frá Bakkakoti.
Blönduós sefur aldrei!
Formaðurinn Valli í kröfugöngu.
Teikning/Guðráður Jóhannsson
Til hamingju með daginn