Morgunblaðið - 29.04.2022, Síða 35

Morgunblaðið - 29.04.2022, Síða 35
ÍÞRÓTTIR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2022 _ Ralf Rangnick, núverandi knatt- spyrnustjóri Manchester United, verð- ur næsti landsliðsþjálfari Austurríkis. Frá þessu greindi The Athletic í gær og sagði að ráðningin yrði formlega til- kynnt á næstu sólarhringum. Rang- nick, sem var ráðinn til bráðabirgða í vetur, verður áfram í ráðgjafahlutverki hjá Manchester United til ársins 2024 eins og ráð var fyrir gert. _ Víkingar höfðu betur gegn Levadia Tallinn frá Eistlandi í hlutkesti hjá UEFA í gær um hvort félagið yrði á heimavelli í fjögurra liða umspilinu um sæti í undankeppni Meistaradeildar karla í fótbolta. Þann 7. júní verður dregið um hvaða lið mætast hér á landi 21. júní en auk þessara tveggja verða það meistaralið Andorra og San Marínó. Sigurliðin tvö þann dag leika síðan úrslitaleik 24. júní um sæti í undankeppninni en hin þrjú liðin fara í Sambandsdeild Evrópu, sömu keppni og Breiðablik og KR verða í. Fjögur lið geta enn unnið meistaratitilinn í An- dorra í vor og í San Marínó eru tólf lið að hefja útsláttarkeppni um titilinn. _ Guðrún Brá Björgvinsdóttir at- vinnukylfingur lék fyrsta hringinn á Women NSW-golfmótinu í Ástralíu í fyrrinótt á 75 höggum, þremur yfir pari vallarins. Hún deildi 58. sætinu með fleiri kylfingum eftir hringinn en mótið er liður í Evrópumótaröðinni. _ Saga Sif Gísladóttir, handknatt- leiksmarkvörður úr Val, skýrði frá því á Instagram í gær að hún væri barnshaf- andi. Hún verður því ekki með Hlíðar- endaliðinu í úrslitakeppninni í vor en þar bíða Valskonur þess hvort þær mæti KA/Þór eða Haukum í undan- úrslitum. Sambýlismaður Sögu er Breki Dagsson, leikmaður Fram. Eitt ogannað HANDKNATTLEIKUR Umspil kvenna, undanúrslit, 1. leikur: Seltjarnarnes: Grótta – HK...................... 18 Austurberg: ÍR – FH ........................... 19.30 KNATTSPYRNA Mjólkurbikar kvenna, 1. umferð: Seltjarnarnes: Grótta – FH...................... 19 Árbær: Fylkir – Haukar ........................... 19 Akraneshöllin: ÍA – Fjölnir ...................... 18 Kópavogsvöllur: Augnablik – Hamar Lengjubikar ka., úrslitaleikur B-deildar: ÍR-völlur: ÍR – Njarðvík........................... 19 Í KVÖLD! Úrslitakeppni NBA 1. umferð: Milwaukee – Chicago ....................... 116:100 _ Milwaukee Bucks sigraði 4:1 og mætir Boston Celtics. Golden State – Denver....................... 102:98 _ Golden State Warriors sigraði 4:1 og mætir Memphis Grizzlies eða Minnesota Timberwolves. 57+36!)49, Í NJARÐVÍK Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Haukar og Njarðvík mætast í odda- leik um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta í Ólafssal á Ásvöllum á sunnudag. Þetta varð ljóst eftir að Haukar jöfnuðu úrslitaeinvígið í 2:2 með 60:51-útisigri í Njarðvík í gær- kvöldi. Útiliðið hefur unnið alla leiki ein- vígisins til þessa og á því var engin breyting í gær. Haukar voru yfir stærstan hluta leiks og tókst þeim að hrista Njarðvík af sér í seinni hálf- leik. Heimakonur komu með fínt áhlaup í lokin, en það var of lítið og of seint. Ljóst var á spilamennsku beggja liða að mikið var undir en heimakon- ur í Njarðvík virtust ráða verr við spennustigið í rafmögnuðu and- rúmslofti. Þrátt fyrir að vera í loka- úrslitum er Njarðvík nýliði í efstu deild og eru leikmenn ekki vanir að spila leiki af þessari stærðargráðu. Fyrsti leikhlutinn var hægur, liðin hittu illa og virtist skjálfti í leik- mönnum. Bæði lið hristu af sér hroll- inn í öðrum leikhluta og frá og með honum var um hörkuleik að ræða en staðan í hálfleik var 32:32. Haukakonur skoruðu 14 af fyrstu 16 stigunum í seinni hálfleik og Njarðvík fann fá svör við sterkum varnarleik gestanna. Haukum tókst að loka vel á Aliyah Collier og þegar sú bandaríska er ekki að skora, lenda Njarðvíkingar í vandræðum. Sóknarleikur heimakvenna var ein- hæfur og enginn leikmaður gaf fleiri en tvær stoðsendingar. Njarðvík þarf að hreyfa boltann betur og hraðar en í gær og virkja fleiri leik- menn en Collier. Atvinnumennirnir Lavina De Silva og Diane Oumou hjá Njarðvík áttu ekki gott kvöld og virtust hengja haus þegar illa gekk. Hinum megin gengu Haukar á lagið og Helena Sverrisdóttir lék mun betur í seinni hálfleik en þeim fyrri. Þegar hún er í stuði hafa fá lið roð við Haukum. Eva Margrét Kristjánsdóttir átti einnig mjög góð- an leik fyrir Hauka, Bríet Sif Hin- riksdóttir setti niður mikilvæg skot og Haiden Palmer var örugg í sínum aðgerðum. Haukar fengu framlag frá fleiri leikmönnum á meðan Njarðvík treysti of mikið á framlag frá Collier. Það má búast við rosalegum odda- leik, en mikill hiti var í liðunum und- ir lok leiks og nálægt því að sjóða upp úr. Troðfull stúka, hiti og odda- leikur um Íslandsmeistaratitilinn. Svona viljum við hafa úrslitakeppn- ina. _ Eva Margrét Kristjánsdóttir skoraði 15 stig fyrir Hauka, Bríet Sif Hinriksdóttir 11, Haiden Palmer 10 og Helena Sverrisdóttir var með 7 stig og 9 fráköst. _ Aliyah Collier skoraði 27 stig fyrir Njarðvík og tók 20 fráköst. La- vína De Silva skoraði 8 stig og tók 8 fráköst og Helena Rafnsdóttir skor- aði 6 stig. Oddaleikur liðanna á Ásvöllum hefst klukkan 19.15 á sunnudags- kvöldið. Oddaleikur á Ásvöllum - Fjórði útisigurinn í fjórum leikjum þegar Haukar jöfnuðu metin í Njarðvík Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson Ljónagryfjan Njarðvíkingurinn Diane Diéné reynir að komast framhjá Haukakonunni Sólrúnu Ingu Gísladóttur í leiknum í gærkvöld. Þýsku liðin Eintracht Frankfurt og RB Leipzig eru með undirtökin gegn bresku liðunum West Ham og Rangers eftir fyrri undanúrslita- leikina í Evrópudeildinni í fótbolta sem fram fóru í gærkvöld. Eintracht lagði West Ham að velli í London, 2:1, og stendur því vel að vígi fyrir heimaleikinn. Ans- gar Knauff og Daichi Kamada skor- uðu fyrir þýska liðið en Michail Antonio jafnaði á milli fyrir West Ham. Leipzig vann Rangers 1:0 á heimavelli með marki frá Angelino á 85. mínútu. Þýsku liðin unnu þau bresku AFP/Glyn Kirk London Daichi Kamada fagnar sig- urmarki Eintracht gegn West Ham. José Mourinho á góða möguleika á að komast með ítalska liðið Roma í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar í fótbolta eftir 1:1 jafntefli gegn Leicester í fyrri leiknum á Eng- landi í gær. Lorenzo Pellegrini kom Roma yfir á 15. mínútu en ítalska liðið skoraði síðan sjálfsmark um miðjan síðari hálfleik. Feyenoord vann Marseille frá Frakklandi 3:2 í hinum leik undan- úrslitanna í Rotterdam. Cyriel Des- sers skoraði tvö marka hollenska liðisins og sigurmarkið í byrjun síð- ari hálfleiks. Roma með jafn- tefli í Leicester AFP/Oli Scarff Leicester José Mourinho og Brend- an Rodgers skildu jafnir í gær. Í KAPLAKRIKA Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Selfoss tryggði sér sæti í undan- úrslitum Íslandsmótsins í hand- knattleik karla með því að hafa betur gegn FH í oddaleik liðanna í Kaplakrika í gærkvöldi. Selfoss vann einvígið 2:1 og mætir því ríkjandi Íslandsmeisturum Vals í undanúrslitunum. Um hreint magnaðan handbolta- leik var að ræða þar sem þurfti að tvíframlengja til þess að knýja fram úrslit. Selfoss vann að lokum, 38:33, eftir sveiflukenndan leik. Selfyssingar komust mest í sjö marka forystu, 20:13, þegar níu mínútur voru liðnar af síðari hálf- leik. Þar af skoraði Guðmundur Hólmar Helgason sex af níu mörk- um sínum í leiknum á þeim kafla. Hergeir Grímsson skoraði einnig níu mörk fyrir Selfoss. Þá hófu heimamenn að spila frá- bæran varnarleik, sem hafði verið aðalsmerki Selfoss í leiknum fram að því. Því fylgdi að FH jafnaði metin í 26:26. Reynsluboltinn Ásbjörn Frið- riksson, sem átti stórleik og skor- aði 11 mörk fyrir FH, skaut í stöngina og aftur fyrir í lokasókn FH á lokasekúndu venjulegs leik- tíma og því þurfti að framlengja. Í fyrri framlengingunni náði FH forystunni í fyrsta sinn í leiknum, 27:28, og komst svo tveimur mörk- um yfir, 28:30, áður en Ragnar Jó- hannsson náði að jafna metin í 30:30 með tveimur mörkum í röð og tryggja þannig aðra framleng- ingu. Í henni reyndust gestirnir sterkari og sigldu fræknum sigri í höfn. Lítil smáatriði skildu á milli í leiknum þar sem markmenn beggja liða, Vilius Rasimas hjá Sel- fossi og Phil Döhler hjá FH, vörðu oft vel og bæði lið töpuðu boltanum á mikilvægum augnablikum. Rasi- mas varði 16 skot og Döhler 14. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gleði Selfyssingar fögnuðu að vonum vel með stuðningsmönnum sínum eft- ir leik. Þeir eiga nú fyrir höndum einvígi við Valsmenn í undanúrslitum. Ærandi spenna í Kaplakrika - Tvíframlengt og Selfoss áfram

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.