Morgunblaðið - 29.04.2022, Side 36

Morgunblaðið - 29.04.2022, Side 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2022 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Fyrsta heimildarmynd Álfrúnar Örnólfsdóttur, Band, verður frum- sýnd á heimildarmyndahátíðinni Hot Docs í Toronto í Kanada á þriðjudag- inn kemur. Álfrún skrifaði handritið, leikstýrði og er auk þess ein þriggja kvenna sem fjallað er um í myndinni og vísar titillinn til hljómsveitar sem hún skipar með þeim Hrefnu Lind Lárusdóttur og Sögu Sigurðardóttur sem nefnist The Post Performance Blues Band. Myndin verður frum- sýnd hér á landi í nóvember en ekki liggur fyrir hvort hún verður sýnd á fleiri hátíðum þangað til. Álfrún segir The Post Perform- ance Blues Band hljómsveit með meiru, hún flytji vissulega lög en sé líka að fremja gjörning. „Þetta er gjörningur í leiðinni, mjög sjón- rænt,“ útskýrirÁlfrún og segir að flutningurinn sé bæði skemmtilegur og hressandi. Stofnuðu hljómsveit í námi Álfrún er leikkona að mennt og þekkt sem slík og hefur einnig lokið meistaragráðu í sviðslistum við Listaháskóla Íslands. Hrefna er sviðslistakona sem vinnur á mörkum listforma og Saga dansari og dans- höfundur. Álfrún segir að þær hafi stofnað hljómsveitina þegar þær voru saman í meistaranámi. „Okkur langaði að gera eitthvað saman og við byrjuðum að ræða um það hvað okkur langaði að gera og okkur langaði allar að vera í hljóm- sveit. Hrefna Lind semur alla text- ana og hún semur svo fáránlega skemmtilega texta að það urðu bara til lög og einhverjir gjörningar út frá þeim. Svo höfum við bara haldið áfram, fólk hefur verið að bóka okk- ur á tónleikastöðum og svona og við föttuðum að við værum hljómsveit og boltinn fór að rúlla,“ segir Álfrún. – Þið spilið á hljóðfæri, eða hvað? „Voða lítið, við erum bara með tölvu og syngjum og hreyfum okkur mjög mikið. Við höfum stundum ver- ið með einn bassa,“ svarar Álfrún og greinilegt að töluvert pönk er í þessu tríói. Raunverulegir atburðir og endurgerðir Álfrún er spurð frekar út í umfjöll- unarefni myndarinnar. „Við gefum okkur eitt ár til að slá í gegn af því þetta gengur svo erfiðlega og við erum orðnar svo þreyttar á því að upplifa vonbrigði og höfnun aftur og aftur,“ segir Álfrún. Þær ákveði að kýla bara á þetta, gefa sér eitt ár í verkefnið og bóka tónleika í Hörpu. Tónleikarnir verði annaðhvort loka- tónleikar bandsins eða því fagnað hversu vel gekk á árinu. – Á vef Kvikmyndamiðstöðvar stendur að þú sért að leika þér með heimildarmyndarformið á skapandi hátt … „Já, þetta er einhver texti frá þeim en það er kannski af því að þetta er performans-band, gjörningur. Ég sviðset til dæmis einvígi niðri á bryggju þegar við hittum Ragga Kjartans, það er ekki viðtal. Það eru svona leikhús-element eða uppstillt því þannig er hugarheimur og heim- ur bandsins. Svo er líka það að sumar senur eru endurgerðar, einhverjar sem við náðum ekki þegar þær gerð- ust og því sviðsetti ég þær,“ svarar Álfrún og er spurð hvort munurinn á raunverulegum atburðum og endur- gerðum eða leiknum sjáist. Álfrún segir fleiri hafa velt því fyrir sér. „Þetta er allt satt en sumt gerðist og annað er endurleikið. Þetta er allt annað hvort byggt á sönnum atburð- um eða satt í augnablikinu.“ Fullorðnar konur með skuldbindingar – Af stiklunni að dæma var bæði gleði og fjör en líka mikil dramatík og grátur. Hvað var að gerast í mesta dramanu, ef ég mætti spyrja? „Við erum ekki tvítugar lengur, þetta er ekki mynd um unglingaband heldur fullorðnar konur sem eru á einhverjum tímapunkti í lífi sínu að spá í hvort þær eigi að halda þessu áfram eða ekki. Þetta snýst svolítið um hvenær maður eigi að fylgja eftir draumum sínum og hvenær að hætta af því eitthvað gengur ekki. Á þess- um dramatísku punktum erum við að fást við tilfinningar, höfnun og finn- ast við vonlausar. Við þurfum að mæta svolítið sjálfum okkur í þessari mynd, við erum ekkert að draga neitt undan. Mér finnst ég stundum algjör fáviti í þessari mynd og það er bara mjög skýrt en ég er líka leik- stjórinn þannig að það verður bara að hafa það. Ég er ekki bara að sýna mínar bestu hliðar. Við förum bara inn í sársaukann við að finnast mað- ur vera hálfmisheppnaður, maður er kominn með fjölskyldu og skuldbind- ingar og er svo bara á hálftómum bar að láta eins og fífl. Svo er líka spurningin hvort mað- ur sé að láta eins og fífl eða gera eitt- hvað sem skiptir máli og þá þarftu náttúrlega áhorfendur til að segja þér að þetta skipti þig máli því alltaf þegar þú ert að performera – hvort sem það er sem leikari, tónlistar- maður eða listamaður – ertu í sam- bandi við áhorfendur og þú þarft að finna að þú skiptir einhverju máli. Að það sem þú ert að gera skipti máli,“ segir Álfrún. Dramatíska spurningin í myndinni sé því hvenær sé komið nóg og hvenær eigi að halda áfram að berjast fyrir því sem maður trúir á. Líkt og hún væri stödd í bíómynd Álfrún er spurð af hverju hún hafi ákveðið að gera þessa heimildar- mynd. „Ég bara ákvað að gera þessa mynd af því ég var í þessari hljóm- sveit, leið eins og ég væri stödd í bíó- mynd. Mér finnst þetta svo frábært band og eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert er að vera í þessari hljómsveit en við vorum stundum í svo súrrealískum aðstæðum; uppi á sviði fyrir framan fimm manneskjur og búnar að borga barnapíunni tíu- þúsundkall og pítsu heima. Ég spurði sjálfa mig hvort ég sem full- orðin manneskja gæti gert þetta og ég gat það eiginlega ekki en ég hugs- aði með mér að ef það væri myndavél á staðnum yrði þetta svo ógeðslega fyndin sena. Og af því ég var með vinkonum mínum gátum við hlegið að öllum mistökunum og öllum ömurlegu mómentunum og húm- orinn bjargaði okkur. Myndin er fyndin af því við reynum að nota húmor til að komast í gegnum ömur- legar aðstæður,“ segir Álfrún. Hún segist hafa áttað sig á því að þetta væri efni í heimildarmynd og þar sem hún hafi verið með ákveðna sýn á hana hafi hún kosið að leik- stýra sjálf. „Ég bara slysaðist til að gera þessa mynd,“ segir Álfrún kím- in. Stiklu fyrir Band má finna á You- Tube og frekari upplýsingar um Hot Docs á hotdocs.ca. Þríeyki Hrefna Lind Lárusdóttir, Álfrún Örnólfsdóttir og Saga Sigurðardóttir í heimildarmyndinni Band. Ljósmynd/Saga Sig. Sú fyrsta Álfrún Örnólfsdóttir hefur nú gert sína fyrstu heimildarmynd. „Húmorinn bjargaði okkur“ - Heimildarmynd Álfrúnar Örnólfsdóttur, Band, frumsýnd á Hot Docs - Hljómsveit þriggja vin- kvenna - Hvenær er komið nóg og hvenær á að halda áfram að berjast fyrir því sem maður trúir á? JARÐGERÐARÍLÁT BÚÐU TIL ÞÍNA EIGIN MOLTU ! www.gamafelagid.is 577 5757 igf@igf.is Jarðgerðarílátið er 310 lítra og er hugsað fyrir þá sem vilja prófa sig áfram við moltugerð. Um það bil 30-35% af heildarmagni heimilissorps er lífrænn úrgangur sem má jarðgera. Afurð jarðgerðarinnar, moltan, nýtist sem næringarríkur áburður fyrir garðinn. Jarðgerðarílátið er hægt að panta í vefverslun okkar eða í síma 577 5757. Ein vinsælasta gamanmynd Ís- landssögunnar, Sódóma Reykjavík eftir leikstjórann Óskar Jónasson, verður sýnd í kvöld í Bíó Paradís í nýju stafrænu formi að viðstöddum leikurum, leikstjóra og öðrum sem komu að gerð hennar. Sýningin hefst kl. 19 og verður það sann- kölluð föstudagspartísýning og há- tíðarfrumsýning á myndinni í hinni nýju útgáfu. Myndin fer svo í reglu- legar partísýningar að hátíðar- frumsýningu lokinni. Sódóma Reykjavík segir af Axel, sem Björn Jörundur Friðbjörnsson leikur, sem lendir í ægilegum vand- ræðum eftir að sjónvarpsfjarstýr- ing týnist. Með önnur helstu hlut- verk fara Eggert Þorleifsson, Helgi Sódóma sýnd í nýrri stafrænni útgáfu Björnsson, Sigurjón Kjartansson, Sóley Elíasdóttir og Margrét Gúst- afsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.