Morgunblaðið - 29.04.2022, Qupperneq 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2022
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Fyrsta heimildarmynd Álfrúnar
Örnólfsdóttur, Band, verður frum-
sýnd á heimildarmyndahátíðinni Hot
Docs í Toronto í Kanada á þriðjudag-
inn kemur. Álfrún skrifaði handritið,
leikstýrði og er auk þess ein þriggja
kvenna sem fjallað er um í myndinni
og vísar titillinn til hljómsveitar sem
hún skipar með þeim Hrefnu Lind
Lárusdóttur og Sögu Sigurðardóttur
sem nefnist The Post Performance
Blues Band. Myndin verður frum-
sýnd hér á landi í nóvember en ekki
liggur fyrir hvort hún verður sýnd á
fleiri hátíðum þangað til.
Álfrún segir The Post Perform-
ance Blues Band hljómsveit með
meiru, hún flytji vissulega lög en sé
líka að fremja gjörning. „Þetta er
gjörningur í leiðinni, mjög sjón-
rænt,“ útskýrirÁlfrún og segir að
flutningurinn sé bæði skemmtilegur
og hressandi.
Stofnuðu hljómsveit í námi
Álfrún er leikkona að mennt og
þekkt sem slík og hefur einnig lokið
meistaragráðu í sviðslistum við
Listaháskóla Íslands. Hrefna er
sviðslistakona sem vinnur á mörkum
listforma og Saga dansari og dans-
höfundur. Álfrún segir að þær hafi
stofnað hljómsveitina þegar þær
voru saman í meistaranámi.
„Okkur langaði að gera eitthvað
saman og við byrjuðum að ræða um
það hvað okkur langaði að gera og
okkur langaði allar að vera í hljóm-
sveit. Hrefna Lind semur alla text-
ana og hún semur svo fáránlega
skemmtilega texta að það urðu bara
til lög og einhverjir gjörningar út frá
þeim. Svo höfum við bara haldið
áfram, fólk hefur verið að bóka okk-
ur á tónleikastöðum og svona og við
föttuðum að við værum hljómsveit og
boltinn fór að rúlla,“ segir Álfrún.
– Þið spilið á hljóðfæri, eða hvað?
„Voða lítið, við erum bara með
tölvu og syngjum og hreyfum okkur
mjög mikið. Við höfum stundum ver-
ið með einn bassa,“ svarar Álfrún og
greinilegt að töluvert pönk er í þessu
tríói.
Raunverulegir atburðir
og endurgerðir
Álfrún er spurð frekar út í umfjöll-
unarefni myndarinnar. „Við gefum
okkur eitt ár til að slá í gegn af því
þetta gengur svo erfiðlega og við
erum orðnar svo þreyttar á því að
upplifa vonbrigði og höfnun aftur og
aftur,“ segir Álfrún. Þær ákveði að
kýla bara á þetta, gefa sér eitt ár í
verkefnið og bóka tónleika í Hörpu.
Tónleikarnir verði annaðhvort loka-
tónleikar bandsins eða því fagnað
hversu vel gekk á árinu.
– Á vef Kvikmyndamiðstöðvar
stendur að þú sért að leika þér með
heimildarmyndarformið á skapandi
hátt …
„Já, þetta er einhver texti frá þeim
en það er kannski af því að þetta er
performans-band, gjörningur. Ég
sviðset til dæmis einvígi niðri á
bryggju þegar við hittum Ragga
Kjartans, það er ekki viðtal. Það eru
svona leikhús-element eða uppstillt
því þannig er hugarheimur og heim-
ur bandsins. Svo er líka það að sumar
senur eru endurgerðar, einhverjar
sem við náðum ekki þegar þær gerð-
ust og því sviðsetti ég þær,“ svarar
Álfrún og er spurð hvort munurinn á
raunverulegum atburðum og endur-
gerðum eða leiknum sjáist. Álfrún
segir fleiri hafa velt því fyrir sér.
„Þetta er allt satt en sumt gerðist og
annað er endurleikið. Þetta er allt
annað hvort byggt á sönnum atburð-
um eða satt í augnablikinu.“
Fullorðnar konur með
skuldbindingar
– Af stiklunni að dæma var bæði
gleði og fjör en líka mikil dramatík
og grátur. Hvað var að gerast í
mesta dramanu, ef ég mætti spyrja?
„Við erum ekki tvítugar lengur,
þetta er ekki mynd um unglingaband
heldur fullorðnar konur sem eru á
einhverjum tímapunkti í lífi sínu að
spá í hvort þær eigi að halda þessu
áfram eða ekki. Þetta snýst svolítið
um hvenær maður eigi að fylgja eftir
draumum sínum og hvenær að hætta
af því eitthvað gengur ekki. Á þess-
um dramatísku punktum erum við að
fást við tilfinningar, höfnun og finn-
ast við vonlausar. Við þurfum að
mæta svolítið sjálfum okkur í þessari
mynd, við erum ekkert að draga
neitt undan. Mér finnst ég stundum
algjör fáviti í þessari mynd og það er
bara mjög skýrt en ég er líka leik-
stjórinn þannig að það verður bara
að hafa það. Ég er ekki bara að sýna
mínar bestu hliðar. Við förum bara
inn í sársaukann við að finnast mað-
ur vera hálfmisheppnaður, maður er
kominn með fjölskyldu og skuldbind-
ingar og er svo bara á hálftómum bar
að láta eins og fífl.
Svo er líka spurningin hvort mað-
ur sé að láta eins og fífl eða gera eitt-
hvað sem skiptir máli og þá þarftu
náttúrlega áhorfendur til að segja
þér að þetta skipti þig máli því alltaf
þegar þú ert að performera – hvort
sem það er sem leikari, tónlistar-
maður eða listamaður – ertu í sam-
bandi við áhorfendur og þú þarft að
finna að þú skiptir einhverju máli. Að
það sem þú ert að gera skipti máli,“
segir Álfrún. Dramatíska spurningin
í myndinni sé því hvenær sé komið
nóg og hvenær eigi að halda áfram að
berjast fyrir því sem maður trúir á.
Líkt og hún væri
stödd í bíómynd
Álfrún er spurð af hverju hún hafi
ákveðið að gera þessa heimildar-
mynd. „Ég bara ákvað að gera þessa
mynd af því ég var í þessari hljóm-
sveit, leið eins og ég væri stödd í bíó-
mynd. Mér finnst þetta svo frábært
band og eitt það skemmtilegasta sem
ég hef gert er að vera í þessari
hljómsveit en við vorum stundum í
svo súrrealískum aðstæðum; uppi á
sviði fyrir framan fimm manneskjur
og búnar að borga barnapíunni tíu-
þúsundkall og pítsu heima. Ég
spurði sjálfa mig hvort ég sem full-
orðin manneskja gæti gert þetta og
ég gat það eiginlega ekki en ég hugs-
aði með mér að ef það væri myndavél
á staðnum yrði þetta svo ógeðslega
fyndin sena. Og af því ég var með
vinkonum mínum gátum við hlegið
að öllum mistökunum og öllum
ömurlegu mómentunum og húm-
orinn bjargaði okkur. Myndin er
fyndin af því við reynum að nota
húmor til að komast í gegnum ömur-
legar aðstæður,“ segir Álfrún.
Hún segist hafa áttað sig á því að
þetta væri efni í heimildarmynd og
þar sem hún hafi verið með ákveðna
sýn á hana hafi hún kosið að leik-
stýra sjálf. „Ég bara slysaðist til að
gera þessa mynd,“ segir Álfrún kím-
in.
Stiklu fyrir Band má finna á You-
Tube og frekari upplýsingar um Hot
Docs á hotdocs.ca.
Þríeyki Hrefna Lind Lárusdóttir, Álfrún Örnólfsdóttir og Saga Sigurðardóttir í heimildarmyndinni Band.
Ljósmynd/Saga Sig.
Sú fyrsta Álfrún Örnólfsdóttir hefur nú gert sína fyrstu heimildarmynd.
„Húmorinn bjargaði okkur“
- Heimildarmynd Álfrúnar Örnólfsdóttur, Band, frumsýnd á Hot Docs - Hljómsveit þriggja vin-
kvenna - Hvenær er komið nóg og hvenær á að halda áfram að berjast fyrir því sem maður trúir á?
JARÐGERÐARÍLÁT
BÚÐU TIL ÞÍNA EIGIN MOLTU !
www.gamafelagid.is 577 5757 igf@igf.is
Jarðgerðarílátið er 310 lítra og er
hugsað fyrir þá sem vilja prófa sig áfram
við moltugerð.
Um það bil 30-35% af heildarmagni
heimilissorps er lífrænn úrgangur sem
má jarðgera. Afurð jarðgerðarinnar,
moltan, nýtist sem næringarríkur
áburður fyrir garðinn.
Jarðgerðarílátið er hægt að panta í
vefverslun okkar eða í síma 577 5757.
Ein vinsælasta gamanmynd Ís-
landssögunnar, Sódóma Reykjavík
eftir leikstjórann Óskar Jónasson,
verður sýnd í kvöld í Bíó Paradís í
nýju stafrænu formi að viðstöddum
leikurum, leikstjóra og öðrum sem
komu að gerð hennar. Sýningin
hefst kl. 19 og verður það sann-
kölluð föstudagspartísýning og há-
tíðarfrumsýning á myndinni í hinni
nýju útgáfu. Myndin fer svo í reglu-
legar partísýningar að hátíðar-
frumsýningu lokinni.
Sódóma Reykjavík segir af Axel,
sem Björn Jörundur Friðbjörnsson
leikur, sem lendir í ægilegum vand-
ræðum eftir að sjónvarpsfjarstýr-
ing týnist. Með önnur helstu hlut-
verk fara Eggert Þorleifsson, Helgi
Sódóma sýnd í nýrri stafrænni útgáfu
Björnsson, Sigurjón Kjartansson,
Sóley Elíasdóttir og Margrét Gúst-
afsdóttir.