Morgunblaðið - 04.05.2022, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 4. M A Í 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 103. tölublað . 110. árgangur .
STUÐLA AÐ
MARGS KONAR
TENGSLUM ÁR FRÁ GRÓÐURELDUM
HVERT FLJÚGA
FLUGFÉLÖGIN
FRÁ KEFLAVÍK?
HORFT YFIR HEIÐMÖRK 10 VIÐSKIPTAMOGGINNGESTAVINNUSTOFUR 24
Horfurnar eru
dökkar hvað
varðar verð-
bólguþróun
næstu mánuði,
en verðbólgan
mældist 7,2% í
apríl og hefur
ekki verið hærri
í 12 ár. Allar lík-
ur eru á að verð-
bólgan muni
hækka enn frekar á næstu mán-
uðum eftir því sem fram kemur í
greiningu Jakobsson Capital á hrá-
vöru og verðbólgu. Snorri Jak-
obsson hagfræðingur er eigandi fé-
lagsins.
Þar kemur fram að í kjölfar
stríðsins í Úkraínu hafi hrá-
vöruverð hækkað. Það á ekki að-
eins við um olíu- og kornverð sem
hefur hækkað mikið, heldur einnig
um verð á sólblómaolíu – sem mik-
ið er notuð í matvælaframleiðslu.
Um 60% allrar sólblóma-
framleiðslu í heiminum eru í Úkra-
ínu og Rússlandi. Þetta mun að
lokum leiða af sér frekari hækkun
á matvöru hér á landi en hækkunin
hefur ekki enn komið fram af full-
um þunga að mati Jakobsson Capi-
tal.
Það getur tekið allt að þrjá mán-
uði fyrir hækkun hrávöruverðs að
koma fram af fullum þunga hjá
stórum matvælaframleiðendum. Þá
kemur einnig fram að aðföng í
byggingariðnaði hafa hækkað gríð-
arlega, líkt og verð á timbri, málm-
um og stáli, en nær allt steypu-
styrktarjárn á Íslandi kemur frá
Hvíta-Rússlandi.
Til lengri tíma er útlitið þó bjart
á Íslandi að mati greiningar Jak-
obsson Capital. »ViðskiptaMogginn
Verðhækkanir
munu koma fram
- Matvörur og byggingarvörur hækka
Snorri
Jakobsson
Verzlingar fjölmenntu í miðbæ Reykjavíkur í
gær og dönsuðu skottís þegar árlegi peysu-
fatadagurinn var haldinn hátíðlegur.
Rósa Guðbjörg Guðmundsdóttir, formaður
2. bekkjar ráðs Verzlunarskólans, segir allt
hafa farið að óskum. Kvaðst hún himinlifandi
með daginn þrátt fyrir nokkra rigningar-
dropa sem gerðu nemendum þó ögn erfiðara
„alvöru-peysó“ um nokkurt skeið sem er
haldinn án takmarkana vegna faraldursins.
Gleðin hélt svo áfram í gærkvöldi í Gamla
bíói þar sem blásið var til dansiballs.
fyrir. Ekkert grín er að dansa í fullum
skrúða, hvað þá þegar peysufötin eru orðin
vot og þung af rigningu.
Að sögn Rósu Guðbjargar er þetta fyrsti
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Loksins „alvöru-peysó“ eftir langa bið verzlinga
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviða-
ráðherra og formaður Framsóknar,
segir mikilvægt að Ríkisendurskoð-
un rannsaki framkvæmd útboðsins á
22,5% hlut ríkisins í Íslandsbanka,
ekki síst í ljósi þess að stór orð hafi
fallið, bæði frá stjórnmálamönnum
og sérfræðingum.
Sigurður Ingi er gestur Karítasar
Ríkharðsdóttur í Dagmálum þar
sem hann ræðir málefni sveitarfé-
laga í aðdraganda sveitarstjórnar-
kosninga og landsmálin sem fram-
bjóðendur hafa kvartað yfir að hafi
þvælst fyrir kosningaumfjöllun.
Sigurður Ingi segir að Ríkisend-
urskoðun hljóti að vera hafin yfir all-
an vafa um að geta rannsakað það
sem hún vill rannsaka með óháðum
hætti. Auk þess hafi fjármálaeftirlit
Seðlabankans ríkar heimildir.
Það sem Sigurður Ingi segir að
hafi farið úrskeiðis er að söluaðilar
hafi selt aðilum sem ekki er hægt að
kalla kjölfestufjárfesta eða stóra
fagfjárfesta.
„Það stóð ekki til, varðandi þessa
sölu,“ segir Sigurður Ingi og bætir
við að aðferðin hafi alls ekki verið
kynnt þannig að slíkt væri mögulegt.
Hann segir ábyrgðina um að hafa
uppi varnaðarorð um þessa mögu-
leika klárlega liggja hjá þeim sem
ráðlögðu ríkisstjórninni í ferlinu.
„Við erum ekki öll sérfræðingar í
hvernig á að framkvæma svona út-
boð. Ég er það ekki og ég er svekkt-
ur út í sjálfan mig, að þetta hafi gerst
með þessum hætti, og ég býst við að
þannig sé farið með okkur öll sem
samþykktum þetta ferli eftir þá ráð-
gjöf sem að við fengum. Þess vegna
segi ég að sú ráðgjöf hafi ekki verið
nægilega góð.“
Hann segir að hefði ríkisstjórnin
ætlað sér að víkja frá ráðgjöf Banka-
sýslunnar hefði hún þurft góðar rök-
semdir til þess. „Þá er augljóst mál
að við hefðum tekið völdin í okkar
hendur og tekið nýja ákvörðun.“
Svekktur út í sjálfan sig
vegna gangs útboðsins
- Ríkisendurskoðun og FME hafi ríkar rannsóknarheimildir
Ljósmynd/Ágúst Ólíver
Sala Sigurður Ingi segir ráðgjöf
hafa verið ófullnægjandi.
MFólk muni ekki kjósa … »6