Morgunblaðið - 04.05.2022, Page 6

Morgunblaðið - 04.05.2022, Page 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar DAGMÁL Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is „Aðalatriðið er þetta: Það er alveg skýrt hvert samkomulagið var og það er alveg skýrt að Isavia fer með reksturinn á flugvellinum og metur flugöryggi. Mér finnst það líka vera kýrskýrt að við eigum ekki að vera að taka neina áhættu þegar kemur að öryggismálum, hvort sem það er á vegum, lofti eða legi,“ segir Sigurður Ingi Jóhanns- son, innviðaráðherra um bréfasend- ingar Isavia og Reykjavíkurborgar vegna fyrirhugaðrar bygging- aráforma í nýju hverfi í Skerjafirði. Þar hefur Isavia lýst yfir áhyggj- um af bæði flugöryggi og rekstrar- öryggi Reykjavíkurflugvallar þar sem ný byggð á svæðinu gæti með- al annars haft áhrif á veðurskilyrði við aðflug á ákveðnum flug- brautum. Hann segir að svarbréf Reykja- víkurborgar sé til skoðunar í ráðu- neytinu og að mál Isavia sé vel rökstutt. Við fyrstu sýn vanti þó töluvert upp á rökstuðning Reykja- víkurborgar á svörum sínum. Sigurður Ingi er gestur Kar- ítasar Ríkharðsdóttur í Dagmálum þar sem farið er yfir sveitar- stjórnarmálin í aðdraganda sveit- arstjórnarkosninga og landsmálin sem frambjóðendur hafa kvartað yfir að þvælist fyrir kosninga- umfjöllun. Vill stokka upp kerfin Sigurður Ingi segir að horfa þurfi til fjölbreytts forms í þjón- ustu við eldri borgara, sem sé framtíðaráskorun þegar kemur að rekstri sveitarfélaga. Hann vill að nýtt skipulag verði tekið upp á þjónustu við eldri borgara og henni lagskipt í meira mæli. Allt frá heimaþjónustu, að þjónustu þar sem fólk er í aðhlynningu á daginn á stofnun en gistir heima hjá sér, að sólarhringsþjónustu á hjúkr- unarheimilum. „Það getur síðan verið þörf á einhverju fjórða og fimmta atriði sem við eigum líka að leyfa okkur, vegna þess að öll þessi úrræði eru ódýrari en að liggja inni á Landspítalanum í dýrasta plássi landsins.“ Uppstokkun kerfisins þurfi að fara fram í samtali við sveitar- félögin í landinu sem mörg hver annast rekstur hjúkrunarheimila. „Ég er ekki í nokkrum vafa um að ef við værum með öflugra sveit- arstjórnarstig þar sem sveitar- félögin gætu öll veitt samskonar þjónustu, myndum við láta meira af þjónustunni vera hjá þeim og minna hjá ríkinu.“ Þá segir Sig- urður Ingi að sameining sveitarfé- laga, sem hann hefur hvatt til, eigi að byggjast á sjálfbærni þeirra og þjónustustigi. Ekki sé raunhæft að öll sveitarfélög muni telja nokkur þúsund íbúa, þó að þar náist fram fjárhagsleg hagkvæmni, vegna fjar- lægða. Ráðherrann segir að sveitar- félögin verði að hætta að tala um að þau hafi samið af sér og vísa til samninga sem urðu fyrir tuttugu og fimm árum. Á hann við að Reykjavíkurborg gerir nú tilkall til greiðslna úr Jöfnunarsjóði sveitar- félaga vegna kostnaðar við ís- lenskukennslu nýbúa. Hann segir að einstaka frambjóðendur í Reykjavík hafi gengið hart fram gagnvart sínu ráðuneyti og sér sjálfum vegna málsins. Bauð upp á samkomulag „Þá er því til að svara að í þessu ferli bauð ég Reykjavíkurborg upp á samtal um að takast á við það sem hefur breyst. Það eru fleiri sem eru fluttir til landsins og eru ekki með íslensku sem móðurmál – að það sé sjálfsagt mál að taka upp nýjan samning um það en Reykjavíkurborg hefur ákveðið að fara í málaferli á grundvelli tuttugu og fimm ára samkomulags og að það eigi ekki að virða það.“ Sigurður Ingi segir að skýrt sé í samgöngusáttmálanum á höfuð- borgarsvæðinu að sveitarfélögin muni sjá um reksturinn á borgar- línu. „Vilji menn finna einhverjar leiðir til að gera það innan [Betri samgangna] geta menn gert það en aðkoma ríkisins að samgöngu- sáttmálanum var alveg skýr; við vorum að koma að uppbyggingu stofnkostnaðar en almennings- samgöngur eru hjá sveitarfélög- unum.“ Sigurður Ingi segir þetta ekki í fyrsta skipti sem því sé haldið fram að umræða um landsmálin yfirtaki umræðuna um sveitarstjórnarmál í aðdraganda kosninga. Hann segist þó hafa einlæga trú á því að fólk muni kjósa eftir staðbundnum áherslum og frambjóðendum á hverjum stað þegar á hólminn er komið. Varðandi ótilgreind óviður- kvæmileg orð sem hann lét falla í garð Vigdísar Häsler, fram- kvæmdastjóra Bændasamtaka Ís- lands, segist Sigurður Ingi hafa skilning á að umræðan geti afbak- ast að einhverju leyti ef aldrei komi fram hver ummælin voru. „Ég held að allir sem þekkja mig viti fyrir hvað ég stend, bæði sem einstaklingur og sem stjórn- málamaður, vita að ég stend ekki fyrir mismunun af nokkru tagi,“ sagði Sigurður Ingi. Hann segir að ekki hafi komið til þess að hann hafi íhugað stöðu sína sem formað- ur Framsóknarflokksins og að hann hafi fundið mikinn stuðning í flokknum. Fólk muni ekki kjósa eft- ir stöðunni í landsmálum - Skýrt að Isavia meti öryggi Reykjavíkurflugvallar Morgunblaðið/Ágúst Ólíver Dagmál Sigurður Ingi Jóhannsson sveitarstjórnarráðherra segist trúa því að fólki muni kjósa eftir staðbundnum áherslum en ekki landsmálunum. Önnur tveggja flugbrauta Keflavík- urflugvallar, flugbraut 10/28, verður ekki í daglegum rekstri í allt að fimm vikur í sumar, það er í lok maí og fram í júní. Ekki verður nein skerð- ing á afkastagetu flugvallarins vegna þessa og hægt verður að nota braut- ina ef þess gerist þörf, að sögn Guð- jóns Helgasonar, upplýsingafulltrúa Isavia. Hann segir mikilvægt að hafa í huga að flugbrautum á Keflavík- urflugvelli sé aldrei lokað, en starf- semi á þeim kunni að skerðast við framkvæmdir eins og í þessu tilviki. Notkun á flugbrautinni skerðist vegna framkvæmda við gerð nýrrar 1.200 metra langrar flugvélaak- brautar (Mike). Hún mun tengja saman flughlað flugstöðvarinnar og flugbrautir. gudni@mbl.is Skert notkun á einni flug- braut í Keflavík um tíma Morgunblaðið/ÞÖK Keflavíkurflugvöllur Gera á nýja 1.200 metra langa flugvélaakbraut sem mun tengja flugbraut við flughlað flugstöðvarinnar. Mynd úr safni. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Presta- og djáknastefna, sem haldin var nýlega á Hótel Laugarbakka í Miðfirði, samþykkti ályktun um frestun á kosningu vígslubiskups á Hólum. Sr. Solveig Lára Guðmunds- dóttir, vígslubiskup á Hólum, til- kynnti í mars sl. að hún myndi láta af störfum 1. september nk. „Nú er að störfum nefnd á vegum kirkjuþings sem meta á þörf á vígðri þjónustu kirkjunnar á landsvísu, og eru embætti vígslubiskupa þar und- ir. Er einboðið að ákvörðun um aug- lýsingu um kjör nýs Hólabiskups verði frestað þar til sú nefnd hefur lokið störfum og ákvörðun verið tek- in um framtíðarfyrirkomulag vígðr- ar þjónustu af nýju kirkjuþingi sem kosið verður í vor,“ segir í ályktun- inni, sem birt er á heimasíðu þjóð- kirkjunnar. Sparnaðarkrafa og hagræðing Bent er á að sparnaðarkrafa og þörf fyrir hagræðingu í rekstri hafi verið áberandi í umræðum á kirkju- þingi undangengin misseri. Sé þörf á miklum sparnaði innan þjóðkirkj- unnar beinir prestastefna því einnig til kirkjuþings að huga að sparnaði í stjórnsýslu t.d. með því að fresta kjöri vígslubiskups um óákveðinn tíma en hlífa um leið grunnþjónustu kirkjunnar í sóknum og prófasts- dæmum við niðurskurði. Kjörstjórn þjóðkirkjunnar hefur ákveðið að kjör nýs vígslubiskups í Hólaumdæmi fari fram dagana 23. til 28. júní nk. Hægt er að tilnefna þátttakendur frá og með 19. maí. Presta- og djáknastefnan sam- þykkti einnig ályktun þar sem mót- mælt er þeim yfirgangi kirkjuþings að boða til aukakirkjuþings á sama tíma og stefnan stendur yfir. Varla þurfi að benda forseta kirkjuþings á að öll synodan hafi ekki komið sam- an í þrjú ár og því tímabært að prestar hittist. „Því verður það að teljast sérlega óviðeigandi að boðað sé til kirkju- þings á sama tíma og synodus stend- ur yfir. Þjóðkirkjan er að ganga í gegnum miklar breytingar með til- heyrandi óvissu,“ segir í ályktuninni. Á slíkum krossgötum sé mikilvægt að gagnkvæm virðing, góð samskipti og eining séu höfð að leiðarljósi á kirkjulegum vettvangi. Ljósmynd/Pétur G. Markan Stefnan sett Húnvetningar voru gestgjafar presta og djákna. Fundað var á Hótel Laugarbakka í Miðfirði en þingsetning var í Hvammstangakirkju. Prestar vilja fresta kosningu vígslubiskups - Mótmæltu „yfirgangi kirkjuþings“ að halda þing á sama tíma og prestar Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Hólar Vígslubiskup situr staðinn. Núverandi biskup hættir í haust.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.