Morgunblaðið - 04.05.2022, Page 12

Morgunblaðið - 04.05.2022, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Í gær bárust fréttir frá Bandaríkj- unum um að lekið hefði verið til fjöl- miðla hliðhollra demókrötum upp- kasti að hug- myndum úr smiðju eins dómara við Hæstarétt um þætti sem snerta meðferð á máli sem rétturinn afgreiddi fyrir margt löngu. Hér þykir það hetjudáð ef „uppljóstrari“ innan kerfis lek- ur upplýsingum sem koma yfir- stjórn ráðuneytis eða mikil- vægrar stofnunar illa. Oft þegar upplýst eða lekið er um „uppljóstrarann“ í næsta leik sést að viðkomandi hafi gætt hagsmuna, persónulegra eða pólitískra, við hetjudáð sína. Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur ekki fyrr sætt því, svo vit- að sé, að „moldvarpa“ sé innan réttarins. Einhverjir ræddu hvort alríkislögreglan FBI rannsakaði málið en það fékk ekki stuðning. Sú stofnun hefur stundað mikla lekastarfsemi síðustu ár til að koma höggi á stjórnmálamenn sem henni er í nöp við! Það er alþekkt að vand- ræði hafa lengi stafað frá mikilli lekahefð vestra. Máltækið segir að „þjóðarskútan sé eina fleyið sem ekki leki frá skrokknum“ en oft frá stýrishúsinu. Fjöl- miðlar eru síðustu árin hættir að leyna því að þeir styðja gagnrýnislítið öfl demókrata þótt það sé komið út fyrir verj- anleg mörk. Jafnvel oft í viku hverri voru birtar „óvæntar, ónafngreindar og traustar heimildir frá háttsettum og áreiðanlegum aðilum“ og hróp- aði efni og orðalag að þar væri átt við CIA og FBI og aðra af þeim meiði. Var lekasambandið mjög þétt. Þótt komið hafi á daginn að „heimildirnar“ hafi hvorki verið áreiðanlegar, öruggar né traustar, þá hafa „virtir“ fjölmiðlar aldrei upp- lýst hverjir það voru sem streymdu til þeirra efni sem stóðst ekki skoðun, og sitja því sjálfir uppi með stimpil lyga- laupsins. Hvers vegna verður þá svo mikið uppnám út af leka af skrifstofu Hæstaréttar? Lík- legast er það vegna efnis hans. Það snýst um gamalt dómsmál, sem rétturinn afgreiddi fyrir áratugum (1973), og er kallað eftir málsaðilum, Roe v. Wade. Málið snýst um heimild til fóst- ureyðinga, sem stjórnmála- menn hér á landi, sem skömm- uðust sín, breyttu í skrípið „þungunarrof“. Í mæltu máli notar fólk ekki það orð. Þeir sem verða fyrir því mikla áfalli að móðir missir fóstur gera það ekki. Stjórnmálamönnum vestra er Roe v. Wade tamt á tungu. Og umræðan um það hverfist strax í skötulíki, eins og orðalagið sem skrifað var upp í Biden. Forsetinn varð hinn versti yf- ir því að málið fræga væri komið til réttarins og gerði ekkert með það að aðilar gátu átt kröfu til að fjallað yrði um það á ný. Biden sagði efnislega: Dómarar eiga ekki að ákvarða heimildir til fóstureyðinga. Biden hefur átt léttan leik að fara með þann texta því demó- kratar hafa hann á sjálfstýringu þegar á málið er minnst. En þó er frasinn út í hött. Margir Bandaríkjamenn hafa lengi tal- ið að með gömlu ákvörðuninni um Roe v. Wade hefði verið gengið gegn fyrirmælum í stjórnarskrá landsins. Ætla mætti eftir uppkastinu sem lak að sú sé einnig skoðun Hæsta- réttar. Er þá horft framhjá því að „uppkast“ er algengur fyrsti þáttur í þróun máls í átt til nið- urstöðu. Þá er oft einum dóm- ara falið að draga upp fyrsta plagg með meginsjónarmiðum sem til álita koma. Fræðilegar rannsóknir á hvernig slíkt þróast í átt til niðurstöðu sýna að ekki séu efni til að ætla að fyrsta uppkast verði leiðbein- andi um endanlega niðurstöðu. Fullyrðing í þá átt sé fráleit. Setningin sem skrifuð var upp í Biden heldur ekki vatni af fleiri ástæðum. Dómarar rétt- arins eiga ekki að ákveða hvort fóstureyðingar eigi rétt á sér eða ekki. Því er hvergi haldið fram í „uppkastinu“. Deilan um Roe v. Wade, og er þá ekki átt við hina uppblásnu pólitísku deilu, snýst um allt annað. Hugsanlegur úrskurður tekur einungis á því hvað stjórnar- skrá Bandaríkjanna segi fyrir um, hvort alríkisvaldið fari með forræði málsins eða hvort ein- stök ríki geri það. Það álitaefni er eitt það mikilvægasta í um- fjöllun réttarins um mál sem til hans berast. Hæstiréttur Bandaríkjanna á lokaorðið um hver sé afstaða stjórnarskrár Bandaríkjanna um efnið. Það er ekkert nýtt að hand- langarar Bidens skrifi ofan í hann texta sem illa standist. Og þeir flýttu sér, því að þeir trúa því að Roe v.Wade sé mál sem sé líklegt til að hjálpa Demó- krataflokki í haustkosning- unum, en þar er staðan nú þyngri en tárum taki. En Hæstiréttur mun ekki afgreiða neitt í bráð. Fyrst þarf hann að gera endanlega upp við sig hvort málið verðskuldi meðferð og niðurstöðu og er reiknað með að það kunni hann að gera í júlí næstkomandi. En ekki er þó talið óhugsandi að leitin að lek- anum muni tefja það. Hæsti- réttur vestra virðist ekki hafa mikið álit á þess háttar kauðum. Það er ólíklegt að fréttaflutningur af Roe v. Wade hér á landi verði skárri en margt annað efni úr sömu átt.} Leki hrellir Hæstarétt Þ að hefur verið athyglisvert og átak- anlegt að fylgjast með stjórnar- liðum verja söluna á 22,5% hlut al- mennings í Íslandsbanka. Það sem í upphafi var lýst sem vel heppn- uðu útboði hefur nú birst sem lokað útboð til sérvalinna á vildarkjörum. Það er brot á jafn- ræðisreglu laga um sölumeðferð ríkis í fjár- málafyrirtækjum. Ráðherrar komu nokkuð beygð fram eftir að upp komst um aðferðina. Sögðu að „velta yrði við hverjum steini“, að „útboðið hafi ekki staðið undir væntingum“ og „að hefja þyrfti rannsókn á því sem hefði misfarist“. Sjálfur gerandinn, fjármálaráðherrann Bjarni Benediktsson, fyr- irskipaði ríkisendurskoðun að hefja rannsókn. Frá því þessar athugasemdir féllu hafa stjórnarliðar snúið við blaðinu. Spyrja hvert sé vandamálið, hvort fjármálaráðherra sé bannað að selja pabba sínum hlut í bankanum, benda á að salan auki fjár- muni í þjóðarbúinu og spyrja hvort stjórnarandstaðan vilji þá frekar sleppa því að styðja við öryrkja og efla heilbrigð- iskerfið! Það liggur fyrir að fjármálaráðherra var að selja eign almennings sem hefur gefið af sér umtalsverðan arð til reksturs grunnþjónustunnar. Við fáum auðvitað andvirði sölunnar til ráðstöfunar en það er forkastanlegt að selja hlut, þar sem umframeftirspurn er fyrir hendi, á lægra verði. Í kynningu til Alþingis var undanþága laganna um lok- að útboð réttlætt með því að verið væri að sækja vel stönd- uga langtímafjárfesta, sem gætu jafnvel komið bankanum til aðstoðar ef harðnaði í ári, og að sölumeðferð yrði ódýrari. Þetta útboð var ekki framkvæmt á jafnræð- isgrundvelli og er það skýrt brot á lögum. Ef allir sem uppfylla sett skilyrði geta boðið í og fengið úthlutað í samræmi við það þá er jafn- ræðis gætt. Svo var alls ekki í þessu tilviki heldur voru sérvaldir fimm söluaðilar sem höfðu samband við sinn kúnnahóp og aðra ekki. Þau sem uppfylltu öll skilyrði, en voru ekki á lista þessara tilteknu seljenda, gátu því ekki boðið í. Jafnræðis var ekki gætt. Ef hinir handvöldu kaupendur hefðu svo all- ir uppfyllt skilyrðin um stórkaup til lengri tíma þá hefði mátt segja að a.m.k. það skilyrði hefði verið uppfyllt. Svo var heldur ekki því meðal kaupenda eru rúmlega 50 aðilar sem keyptu fyrir lægri fjárhæðir og þurftu sumir jafnvel að slá lán fyr- ir kaupunum. Forsætisráðherra segir að gagnsæi þurfi að ríkja við sölu á ríkisfyrirtækjum en augljóst er að ríkisstjórnin nýt- ur ekki nauðsynlegs trausts til verksins. Það þarf að fara ofan í saumana á öllu ferlinu, hverjir fengu að selja, hverjir voru fengnir til ráðgjafar fyrir milljónatugi án útboðs og loks hverjir fengu að kaupa á sérkjörum. Það eina sem enginn vafi leikur á er að fjármálaráðherra ber lagalega og pólitíska ábyrgð og því ber honum að víkja án tafar. helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Fjármálaráðherra ber ábyrgðina Höfundur er þingflokksformaður Samfylkingar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is Þ að er þó nokkur hópur sem mætir á gosstöðvarnar á góðviðrisdögum,“ sagði Fannar Jónasson, bæjar- stjóri í Grindavík. Hann segir Íslend- inga hafa verið áberandi við gos- stöðvarnar frá áramótum en þessa dagana sé erlendum ferðamönnum farið að fjölga. Ein og ein rúta kemur með hópa svo eitthvað er um skipu- lagðar ferðir og ferðir hópa á slóðir eldgossins. Flestir koma þó á einka- bílum og bílaleigubílum. Nær allir sem fara að gosstöðvunum aka í gegnum Grindavík. „Margir stoppa hjá okkur og fá sér veitingar eða skoða mannlífið. Það hefur verið líflegra í bænum heldur en var. Grindavík komst ræki- lega á kortið í eldgosinu og er orðin þekkt,“ sagði Fannar. Ferðaþjón- ustan í Grindavík er að lifna við eftir faraldurinn og veturinn er að baki. Útgerð og fiskvinnsla ganga vel og staðan góð í bænum, að sögn Fann- ars. Hann segir að mjög margir hafi heimsótt Bláa lónið í gegnum árin en Grindvíkingum hafi þótt of fáir þeirra heimsækja bæinn. Þeim sem leggja leið sína til Grindavíkur hefur fjölgað eftir að það gaus í Geldingadölum. Grindvíkingar fundu fyrir jarð- skjálftum af og til í vetur. „Við finn- um fyrir þeim ef þeir verða nálægt okkur og eru þrjú stig eða meira. Það er ekki algengt en gerist þó. Við verðum yfirleitt ekkert vör við jarð- skjálfta sem verða 5-7 km frá okkur,“ sagði Fannar. Hann sagði flesta bæj- arbúa halda ró sinni, þótt jarð- skjálftahrinurnar væru ekki þægileg- ar. Skjálftahrina kom í kringum síðustu jól og aðeins eftir þau. Fregn- ir hafa borist af því að kvika hafi safnast fyrir djúpt í jarðskorpunni við Fagradalsfjall. Fannar sagði að almannavarnanefnd fylgdist með þessu og er stefnt að fundi í næstu viku. „Aðalmálið er að þetta er mjög vel vaktað og hefur verið síðan þetta fór af stað. Við verðum strax látin vita ef huga þarf sérstaklega að ein- hverju. Það hefur ekki gerst ennþá,“ sagði Fannar. Meðan gosið stóð yfir höfðu menn nokkrar áhyggjur af því ef hraunstraumur myndi ógna Suður- strandarvegi. Fannar sagði að ýmsar hugmyndir hefðu komið fram um varnaraðgerðir ef hraun stefndi á veginn. Hann sagði að Vegagerðin hefði mikið um það að segja hvernig brugðist yrði við ef það gerðist. Eins réðust viðbrögð af því hvar hraun myndi mögulega ógna veginum. Mikil uppbygging íbúða Uppátæki náttúrunnar undan- farið hafa ekki hafa fælt fólk frá því að búa eða byggja í Grindavík. „Við úthlutuðum lóðum fyrir á annað hundrað íbúðir í fyrsta áfanga að nýju hverfi, Hlíðarhverfi, í desember síðastliðnum. Þær fóru á svipstundu og þar er ekki ein einasta lóð laus! Nú erum við að undirbúa að deiliskipu- leggja annan áfanga í þessu hverfi, miklu fyrr en við ætluðum,“ sagði Fannar. Gatnagerð og lagnavinnu er að heita má lokið í fyrsta áfanganum sem búið er að úthluta. Það styttist því í að framkvæmdir hefjist. Hlíð- arhverfi er austast í Grindavík og verður norður og austur af dvalar- heimilinu Víðihlíð. Í hverfinu er gert ráð fyrir nýjum leikskóla. Fannar sagði að farið væri að huga að úthlutun útsýnislóða í öðrum áfanga hverfisins. Ýmsir heimamenn væru meðal ann- ars þegar farnir að spyrj- ast fyrir um þær lóðir og ljóst að þær yrðu eftir- sóttar enda mjög vel staðsettar. Eldgosið kom Grindavík á kortið Þrír sjálfvirkir teljarar telja ferðamenn sem ganga að Fagra- dalshrauni. Fleiri fara á gos- stöðvarnar en teljararnir nema. Frá maí og fram í september 2021 fóru yfir 240.000 ferða- menn á gosslóðirnar, eða um 1.600 á dag að meðaltali. Dags- meðaltalið var rúmlega 1.900 í júlí, að sögn Ferðamálstofu. Sýnilegu hraunflæði lauk 18. september og þá dró úr aðsókn- inni. Um 700 fóru að meðaltali á dag í október sl. og um 400 í nóvember. Aðsóknin var gjarnan um 150-250 manns á dag frá því í desember og fram í mars með toppum á góðviðris- og frídögum. Svo þegar tók að birta og veðrið batnaði jókst aðsóknin, ekki síst á frídög- um. Um páskana fóru yfir 2.000 manns á gosslóðirnar samkvæmt teljurunum. Yfir 2.000 á gosslóðum um páska GELDINGADALIR Fannar Jónasson Morgunblaðið/Árni Sæberg Fagradalshraun Ferðamenn ganga á hverjum degi á gosslóðirnar og skoða nýja hraunið. Suma daga skipta þeir nokkrum hundruðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.