Morgunblaðið - 04.05.2022, Page 15

Morgunblaðið - 04.05.2022, Page 15
MINNINGAR 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022 ✝ María Mar- teinsdóttir fæddist 23. maí 1935 í Krossbæj- argerði, Nesjum. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Skjólgarði, Höfn, 3. apríl 2022. Foreldrar Maríu voru Guðlaug Bjarnadóttir. f. 20.9. 1915, d. 7.8. 1937 og Marteinn Olai Larsen, f. 24.2. 1905, d. 6.2. 1992. María missti móður sína tveggja ára og ólst upp hjá móðurfor- eldrum, Hólmfríði Halldóru Snjólfsdóttur, f. 11.11. 1889, d. 19.4. 1975, og Bjarna Halldórs- syni, f. 4.10. 1887, d. 11.12, 1947. Uppeldissystkini Maríu voru Sveinn, f. 12.2. 1914, d. 13.2. 1984, Ingólfur Marteinn, f. 16.11. 1918, d. 20.2. 1973, Stein- unn, f. 25.9. 1920, d. 8.10. 2005, og Hulda Svanlaug, f. 12.12. 1926. Systkini Maríu samfeðra voru Helga Sigurleif, f. 1.9. 1941, d. 25.11. 2004 og Skarphéðinn Júl- 1999, b) Tómas Orri, f. 1.11. 2003 og c) Embla María, f. 10.3. 2007. Dóttir Sigþórs er Þórunn, f. 14.10. 1957, maki Páll Gíslason, f. 1.6. 1951. Börn a) Guðný, f. 6.5. 1975, maki Gunnar Jónsson, f. 3.5. 1973, börn Rebekka Rán, f. 15.11. 1996 og Jón Páll, f. 15.7. 1998, b) Gísli, f. 16.2. 1982, maki Sigríður Bjarney Guðnadóttir, f. 7.7. 1985, synir Páll Breki, f. 28.2. 2016, Rökkvi Þór, f. 14.10. 2017, og Garpur Logi, f. 18.8. 2020 og c) Hjördís, f. 8.6. 1986. María (Maja) bjó á Höfn allt sitt líf, hún vann ýmis störf á lífsleiðinni, lengst sem versl- unarstjóri í Kaupfélagi Austur- Skaftafellssýslu og við bók- haldsstörf hjá Bókhaldsstofunni ehf. sem þau hjónin ráku um árabil. Maja sinnti ýmsum fé- lagsmálum, vann sjálfboðastörf fyrir Hafnarkirkju og félag eldri Hornfirðinga. Hún hafði sérlegan áhuga á garðrækt. Maja hafði gaman að því að lesa bækur, leggja kapal og spila. Sameiginleg áhugamál þeirra Sigþórs voru ferðalög og ætt- fræði. Útför Maríu fer fram í dag, , 4. maí 2022, frá Hafnarkirkju kl. 14. Hlekkir á streymi: http://bjarnanesprestakall.is https://www.mbl.is/andlat íus, f. 29.3. 1950. Dætur Maríu eru 1) Brynja Reyn- isdóttir, f. 20.12. 1958, maki Björn Sverrisson, f. 26.2. 1954, börn a) Sveinn, f. 13.3. 1987, b) María, f. 27.6. 1990, og c) Snjólfur, f. 11. 7. 1994, maki Björg Gunnarsdóttir, f. 28.4. 1994. Dóttir Björns er Auð- ur, f. 17.5. 1974, maki Stefán Magnússon, f. 8.5. 1971, börn Anna Thelma, f. 13.8. 2000, Magnús Aðils, f. 17.12. 2003 og Lovísa Ósk, f. 18.11. 2009. 2) Sigurbjörg Hákonardóttir, f. 17.2. 1964, maki Jón Sigurðs- son, f. 28.3. 1961, synir a) Sig- þór, f. 11.4. 1985, sonur Fenrir Máni, f. 16.5. 2016, og b) Brynjar Máni, f. 9.10. 1998. María giftist Sigþóri Guð- mundssyni, 11.11. 1972. Dóttir Sigþórs og Maríu er 3) Hólm- fríður, f. 29.5. 1974, maki Ing- valdur Mar Ingvaldsson, f. 16.4. 1974, börn a) Ísak Sölvi, f. 1.7. Þá er komið að kveðjustund við elsku mömmu, Maríu Mar- teinsdóttur. Mömmu sem var bú- in að lifa langt og annasamt ævi- skeið. Þakklætið til mömmu og formæðra hennar fyrir allan þeirra dugnað og styrk er ómæl- anlegt. Líf þeirra var í mínum augum erfiðleikar alla daga en nú lifi ég eins og blóm í eggi, áhyggjulaust, beint út af þeirra stritreikningi. Mömmu stóð að- eins til boða tveggja ára barna- skólapróf, mín menntun tífalt lengri í árum talið þó ég vildi ekki sjá skólagöngu í upphafi og verið sérlega seinlæs, en þraut- seigju mömmu má þakka að barnið varð læst. Mamma upplifði tímana tvenna, hún fæðist í sveit en vex og dafnar samhliða þorpinu á Höfn. Hornafjörður var stór partur af hennar sjálfsmynd, þar fannst henni allt fallegast og allra best. Bernska var á Höfð- anum þar sem hún gekk undir nafninu Maja litla í Sandgerði. Starfsframanum má svo skipta í árin í Kaupfélaginu og á Bók- haldsstofunni sem þau pabbi ráku saman um árabil. Mamma elst upp í faðmi stórfjölskyldu sem umvafði hana og hún til baka. Hún gaf mikið af sér og hugsaði vel um gamla fólkið okk- ar, sumir voru tímabundið hjá okkur í Hlíðartúninu. Hlíðartúnið er sögusvið okkar mömmu, þar er mín bernska. Í garðinum útbjó mamma sand- kassa í risastóru vörubílsdekki, sandurinn var sóttur út á fjörur og við krakkarnir í hverfinu byggðum þar lystihverfi. Þegar áhuginn á sandkassastundum dvínaði varð dekkið að blómabeði með íslenskum tegundum. Ég veit ekki hvort ég kunni að meta það á þessum tíma en fallegt var það. Uppáhaldsblóm mömmu var fjalldalafífill, eins og hún sagði: „Hann drúpir höfði og vill ekki láta of mikið á sér bera.“ Þannig var mamma, konan á bak við tjöldin, tilbúin að gera allt fyrir alla, aldrei svöng, þreytt né fann til. Vann myrkranna á milli og passaði alla daga að erfiðleikar kæmu sem minnst við mig. Áhugamál mömmu voru að vera með fólkinu sínu og fylgjast með okkur, best var þegar allt var hreint, fallegt og fínt og allir meira en mjög saddir. Saman voru mamma og pabbi góðir ferðafélagar. Sumarfríin til frændfólksins austur á firði og norður á Blönduós voru dásam- leg. Eins ferðalög innan héraðs með gestum sem stoppuðu hjá okkur með nesti, m.a. gos í flösku og lakkrísrör. Ein af stóru gjöfunum var að kynna mig fyrir Stapafólkinu, hjá þeim fékk ég að dvelja löngum stundum, mamma og pabbi komu oft í heimsókn því fólkið þar var þeim líka einstaklega kært og vináttan mikil. Mamma náði að sýna mér, Inga mínum og börnunum okkar skilyrðislausan áhuga og ást. Við mamma spjölluðum saman nær daglega, eins og margar verð ég mamma mín að einhverju leyti, nú elska ég þegar hún birtist í tilsvörum mínum. Við eigum margar fallegar minningar um dásamlega og skemmtilega ömmu sem var alltaf tilbúin að leika, lesa og spila, m.a. rommý og Hornafjarðarmanna. Segja sögur … sumar töluvert stíl- færðar þannig að við þekktum okkur ekki alltaf í aðstæðunum. Við söknum mömmu sannarlega mikið en minnumst hennar með virðingu, hlýju og spilum áfram úr lífinu eins og hún hefði viljað að við myndum gera. Hólmfríður. Elsku Maja amma mín hefur kvatt þessa jarðvist. Ég var svo lánsöm að fá að dvelja hjá henni og afa á sumrin á Höfn þegar mamma og pabbi fóru í fjallgöngur og ég ekki komin með aldur til slíkra stór- ræða. Þá var margt brallað og ömmu leiddist ekki að fara með mig út um allt, að sýna okkur og sjá aðra. Það var ekki í kot vísað að koma í heimsókn til ömmu á Höfn og enginn gerði jafn góða marmaraköku og hún og auðvit- að var alltaf til ís. Ömmu var ákaflega umhugað um velferð annarra og sinna nán- ustu. Hún hringdi reglulega til að vita um okkar hagi og hvað hefði á daga okkar drifið. Hvern- ig væri vinnunni, hvert ég væri búin að ferðast, hvort ég væri nú ekki komin með kærasta og margt fleira bar á góma. Takk fyrir allt, elsku amma. Ég kveð þig með orðunum sem þú sagðir alltaf þegar við kvöddumst: Vertu sæl, elskan mín, og Guð veri með þér. Knúsaðu afa frá mér. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Þín Hjördís. Maja amma var með stærsta hjartað. Hún var ósérhlífin og brann fyrir það að fólkið hennar hefði það sem best. Amma sýndi væntumþykju á marga vegu en það eitt að kveðja hana í síma gat tekið nokkrar mínútur af því hún bæði vildi ekki sleppa manni og hún vildi passa að guð passaði upp á mann og að við hefðum það gott. Kveðjuna endurtók hún um það bil fimm sinnum áður en símtalinu lauk. Amma var sterk kona, falleg, elskaði mikið og var mikill sæl- keri. Amma elskaði að segja mér sögur og rekja ættir okkar. Hún þekkti fólkið sitt vel. Einu sinni rakti hún ættir skólabróður míns frá Höfn til baka sjö ættliði, nafngreindi alla sem áttu í hlut og benti mér á að við værum ná- skyld. Náskyld endurtók hún aftur og aftur. Undir það síðasta sagði amma mér oftast söguna af því þegar hún var að passa mig og Svein í Stykkishólmi meðan beðið var eftir að Snjólfur fæddist sumarið 1994. Við vorum fjögurra og sjö ára. Þetta var um fyrstu Dönsku dagana og var boðið upp á rútu- ferð að Helgafelli og til Bjarn- arhafnar. Amma horfði á eftir okkur Sveini hlaupa upp Helgafellið sem hún þekkti ekki og var hrædd um okkur. Það var henni minnisstætt hvað þessi litlu börn hlupu hratt og hvað hún var smeyk um að eitthvað kæmi fyr- ir. Í Bjarnarhöfn var ég á heima- velli, nýbúin að vera þar í vor- heimsókn með leikskólanum. Á meðan allir sem með voru í för í rútunni skoðuðu sig um í kirkj- unni í Bjarnarhöfn tók María litla upp á því að fara út og læsa fólkið inni. Amma var hrædd um að ég myndi fara mér að voða, hlaupa út í sjó eða eitthvað ann- að. Ég man ennþá hvað lykillinn var stór og þungur og stífur. En eftir smá bras náði ég að opna kirkjuna með aðstoð frá Sveini sem stóð hinum megin við læstar dyrnar og amma gat andað léttar eftir ansi mikið ævintýri í Helga- fellssveit. Daginn eftir fæddist Snjólfur. Kveð þig með orðunum þín- um: Guð veri með þér hverja stund í leik og starfi. Elska þig amma. María. Þegar við Heiðrún fluttum til Hafnar í Hornafirði árið 1965 og hófum störf hjá Kaupfélagi Aust- ur-Skaftfellinga hafði félagið ný- lega reist glæsilegt verslunarhús og á þriðju hæð þar var mynd- arleg vefnaðarvöruverslun sem stjórnað var af Maríu Marteins- dóttur verslunarstjóra. Þetta var upphaf langra og góðra kynna og samstarfs við Maju eins og hún venjulega var kölluð. Að áliðnum vetri 1971 kom til starfa á skrifstofu kaupfélagsins maður að nafni Sigþór Guð- mundsson. Hann var ekkjumað- ur, hafði nýverið misst eiginkonu sína, en átti dóttur á ferming- araldri. Með þeim Sigþóri og Maju tókust góð kynni. Þau gift- ust og byggðu sér einbýlishús í Hlíðartúni þar sem þau bjuggu alla tíð meðan bæði lifðu. Eign- uðust dótturina Hólmfríði árið 1974, en fyrir átti Maja tvær dætur. Auk starfa sinna á skrif- stofu kaupfélagsins tók Sigþór að sér mikil aukaverkefni og þar kom vorið 1983 að þau hjónin keyptu Bókhaldsstofuna ehf., sem stofnuð hafði verið þremur árum áður. Þannig gerði Sigþór aukastörfin að aðalstarfi og þau hjónin störfuðu saman við þetta verkefni næstu tvo áratugi. Atvikin höguðu því þannig að haustið 1992 hóf ég störf á bók- haldsstofunni hjá þeim Sigþóri og Maju og tíu árum seinna keypti ég reksturinn af þeim, en samstarf okkar hélt áfram á þeim vettvangi. Samstarf okkar Maju var því ávallt náið og gott og á liðnum árum kom hún oft í heimsókn til okkar Heiðrúnar, eða við til hennar, og þá var margt spjallað og oft rifjaði hún upp eftirminni- leg atvik úr bernsku sinni og jafnaldra sinna hér á Höfn á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar. Sömuleiðis rifjuðum við oft upp eftirminnilega flugferð frá Reykjavík hinn 25. nóvember 1968 frá Reykjavík til Hafnar, en það var sennilega erfiðasta flug- ferð sem við tókum þátt í. Eftir að Maja flutti á Hjúkrunarheim- ilið Skjólgarð áttum við þess ekki kost að heimsækja hana vegna takmarkana í heimsókn- um á Covid-tímum nema einu sinni á liðnu hausti og áttum þá góða stund saman. Það er gott að minnast ánægjulegs samstarfs og góðra kynna við þessa sómakonu og við Heiðrún sendum þeim Brynju, Þórunni, Sigurbjörgu og Hólm- fríði og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðju. Blessuð sé minning Maríu Mar- teinsdóttur. Hermann Hansson. María Marteinsdóttir ✝ Svanhvít Harð- ardóttir fædd- ist í Reykjavík 7. nóvember 1984. Hún lést 23. apríl 2022. Foreldrar henn- ar eru Sigurbjörg E. Guðmundsdóttir, f. 3. júní 1956, og Hörður V. Sigmars- son, f. 3. desember 1953. Systkini hennar eru Erica María, f. 26. júní 1977, Kári, f. 12. desember 1983, og Hjalti, f. 7. október 1983. Svanhvít giftist Þorsteini K. Ingólfssyni og eignuðust þau Hörð Inga, f. 24. júní 2003. Þau skildu. Svanhvít eignaðist Maríu Lind, f. 22. sept- ember 2008, með Atla V. Njálssyni. Svanhvít útskrif- aðist tanntæknir frá Fjölbrautaskól- anum í Ármúla árið 2012. Svanhvít ólst upp í Hafnarfirði hjá foreldrum sínum. Hún vann um árabil á tann- læknastofum, Læknastöðinni Glæsibæ og síðast hjá Kjálka- skurðlæknum Álftamýri. Útför Svanhvítar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, 4. maí 2022, klukkan 13. Elsku Svanhvít. Að hafa kynnst þér eru fyrir mér algjör forréttindi. Það er ekki oft á lífs- leiðinni sem hægt er að detta í lukkupottinn og hitta eðalmann- eskjur eins og þig. Held ég geti fullyrt að eins opin og hjartahlý manneskja er vandfundin. Ég var svo heppinn að sjá og upplifa sambandið milli þín og dóttur þinnar. Það ljómaði af trausti, ást og húmor. Það er það sem heillaði mig líka við þig … þessi yndislegi bilaði húmor fyrir sjálfri þér og bara alls kon- ar aðstæðum og hlutum í kring- um þig. Þú sást mjög oft skondnar hliðar á einhverju sem enginn annar sá. Og mikið djö … gat það verið fyndið! Og svo auðvitað hrikalega stríðin! En samt á þinn hátt, sem var svo fyndið. Af því þér fannst það líka. Óbilandi húmor fyrir sjálfri þér, sem er frábær mannkostur. Gæti haldið endalaust áfram að lýsa þinni yndislegu persónu og öllum okkar samveru- og hláturstundum og hversu þakk- látur ég er fyrir að hafa kynnst þér. Takk elsku Svanhvít. Ég votta börnum, foreldrum, systkinum og öllu hennar nán- asta fólki mína dýpstu samúð. Jörgen Árni Albertsson. Svanhvít Harðardóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einn- ig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Minningargreinar Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma, systir, mágkona og frænka, SIGRÚN HALLGRÍMSDÓTTIR, Furugerði 1, Reykjavík, lést á líknardeild LSH í Kópavogi laugar- daginn 23. apríl. Útförin fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 12. maí klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kristniboðssambandið. Bryan Allen Smith Nelly Nguyen Halla Marie Smith Anton Rafn Ásmundsson Elisabeth Rökkurdís Mai og Sigrún Rós Valgerður Hallgrímsdóttir Torfi Dan Sævarsson Ármann Snær Torfason Agnes Björg Sigurðardóttir Snærún Tinna Torfadóttir Anton Smári og óskírður drengur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA DÓRA ÞORGILSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Heinabergi 24, Þorlákshöfn, lést á hjartadeild Landspítalans þriðjudaginn 26. apríl. Útförin fer fram frá Þorlákskirkju miðvikudaginn 11. maí klukkan 13. Unnar Gils Guðmundsson Ásdís Jóhannesdóttir Kristbjörn Ó. Guðmundsson barnabörn og barnabarnabarn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN JÓNA ÁRNADÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Grund sunnudaginn 17. apríl. Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju þriðjudaginn 10. maí klukkan 13. Innilegar þakkir færum við starfsfólkinu á deild V3 á Grund fyrir góða umönnun. Björk Níelsdóttir Sverrir Þór Sverrisson Sigurbjörg Níelsdóttir Ólafur Helgi Jónsson Árni Níelsson Margrét Eysteinsdóttir Jens Níelsson Elísabet María Jónsdóttir María Níelsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.