Morgunblaðið - 04.05.2022, Qupperneq 16
16 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022
✝
Andrés Sig-
urðsson var
fæddur á Ólafsfirði
18. mars 1934.
Hann lést á Land-
spítalanum, Foss-
vogi, 17. apríl 2022.
Foreldrar hans
voru Sigurður Pét-
ur Jónsson vélstjóri,
f. 6.4. 1907, d. 3.10.
1980, og Freygerð-
ur Anna Þorsteins-
dóttir, húsmóðir og af-
greiðslukona, f. 15.2. 1912, d. 7.5.
1987. Systkini Andrésar eru Ant-
on, f. 1932, Guðrún Árna, f. 9.11.
1935, d. 15.11. 1993, Sigríður
Guðlaug, f. 11.1. 1937, d. 10.2.
2022, Jón, f. 1938, Þorsteinn
Gunnar, f. 24.9. 1939, d. 11.8.
1940, Margrét Friðþóra, f. 1943,
og Valgerður Kristjana, f. 1947.
Eftirlifandi eiginkona Andrés-
ar er Jensína Þórarinsdóttir,
fædd 3.10 1936. Þeirra börn eru:
1) Þórarinn Hólm, kvæntur Rósu
Bergmann Jónsdóttur, börn
þeirra eru a) Sindri Bergmann,
sambýliskona Pálína Guðrún Sig-
urðardóttir, þeirra dætur eru
Andrés ólst upp á Ólafsfirði.
Eftir barnaskóla stundaði hann
stundaði ýmis störf bæði til sjós
og lands. Eftir tvö ár við nám í
húsasmíði við Iðnskólann á Ólafs-
firði fluttist hann til Reykjavíkur
og lauk þar námi. Síðar lauk
hann meistaranámi við þá iðn.
Andrés kvæntist Jensínu Þór-
arinsdóttur 10. september 1960
og eiga þau fjögur börn, sjö
barnabörn og tíu barnabarna-
börn. Árið 1963 fluttu þau í
Kópavoginn og bjuggu þar þang-
að til hann lést. Andrés vann hjá
Breiðholti hf. 1958-1978, var á
Grænlandi og sem verkstjóri frá
1978 hjá Flugmálastjórn þar til
hann hætti störfum vegna aldurs.
Eftir eldgosið í Vestmanna-
eyjum vann hann sem sjálf-
boðaliði við björgunarstörf.
Andrés var í Kiwanisklúbbnum
Eldey í Kópavogi og þar aðstoð-
aði hann við flutning og stand-
setningu á gamla BYKO-húsinu
sem varð svo félagsheimili Eld-
eyjar og er það enn. Hann var
meðlimur þar til æviloka.
Úför Andrésar fer fram frá
Kópavogskirkju í dag, 4. maí
2022 klukkan 13.
Hlekkir á streymi:
https://streyma.is/streymi/
https://www.mbl.is/andlat
Salóme Rósa og
Salka Margrét. b)
Andri Franklín,
kvæntur Önnu
Bertu Geirsdóttur,
þeirra dætur eru
Daley Myrra og
Sara Júdea. c) Gígja
Rós, hennar dóttir
er Antonía Lind,
sambýlismaður Sig-
urður Stefán Har-
aldsson, þeirra dótt-
ir er Emma Sóllilja. d) Harpa
Marín, sambýlismaður Páll Stein-
ar Sigurbjörnsson, þeirra sonur
er Ísak Máni. 2) Sigríður Andr-
ésdóttir, dóttir hennar er Sandra
Westerdahl, gift Christoffer Wes-
terdahl. 3) Linda Andrésdóttir,
gift Hafsteini Björgvinssyni, dæt-
ur þeirra eru a) Kristín Haf-
steinsdóttir, hennar börn eru
Lovísa Sól og Björgvin Snær,
sambýlismaður er Friðjón Pálls-
son. b) Hólmfríður Hafsteins-
dóttir, hennar dóttir er Freyja
Kolbrá Nour Massad, dóttir Haf-
steins er Erla Björg. 4) Þorsteinn
Andrésson, kvæntur Naluemon
Seesan.
Í dag, 4. maí, er faðir minn
borinn til grafar, 88 ára að aldri.
Traustur maður, heiðarlegur og
mikill húmoristi.
Ég er alin upp að mestu leyti í
Hrauntungunni í Kópavogi en
faðir minn byggði það hús. Hann
vann ávallt mikið á sama tíma og
hann var að reisa hús yfir fjöl-
skylduna og var kominn með
fjögur börn á átta árum.
Hann vann vel fyrir heimilinu
og passaði að ekki skorti neitt en
passaði einnig að standa í skilum
með sínar skuldbindingar.
Pabbi var alla tíð mikil barna-
gæla og var ég svo lánsöm sem
einstæð móðir að fá að búa hjá
foreldrum mínum þar til dóttir
mín var sex ára og ég flutt í mína
eigin íbúð. Eitt af því sem pabbi
elskaði að borða var rjómi og
notaði hvert tækifæri sem gafst
til að mata barnabörnin á honum,
hvort sem foreldrunum líkaði það
eða ekki. Eitt sinn er ég spurði
hann úr hverju Bing Crosby
hefði látist var hann ekki lengi að
koma með svar; hann fékk
hjartaáfall af því að hann borðaði
ekki nóg af rjóma!
Sakna þín, pabbi minn.
Þín dóttir,
Sigríður (Sigga).
Hann afi Andrés var góður afi
og ég á eftir að sakna hans mikið.
Hann var trésmiður og eftir hann
liggja fjölmörg verk um allt land,
allt frá vönduðum húsgögnum
upp í hús og flugskýli. Hann
vandaði alltaf til verka og fannst
skemmtilegast þegar tími gafst
til þess að vanda sig extra mikið.
Hann var traustur. Stóð alltaf við
sitt og ég held að það sé hægt að
telja þá daga sem hann var fjar-
verandi frá vinnu á fingrum ann-
arrar handar.
Hann vann lengst af við smíð-
ar hjá Flugmálastjórn, var með
aðstöðu í bragga. Það fannst mér
kúl. Hann gat smíðað allt og var
alltaf til í að hjálpa mér þegar ég
leitaði til hans. Hátalarastandar,
veggjaeinangrun, stúdíóveggir.
Hvað sem er. Alltaf var hann til.
Ég á margar góðar minningar
úr æsku af veiðiferðum, skíða-
ferðum og ferðalögum með afa. Í
flestum þessara ferða, þó ekki
væri mikil sól á himni, var afi
kominn úr að ofan. Við minnstu
sólarglætu reif hann sig úr köfl-
óttri skyrtunni. Í minningum
mínum er afi alltaf klæddur í
köflótta skyrtu. Svona vinnu-
skyrtu. Og rjóminn. Við elskuð-
um rjóma. Við borðuðum mikið
af rjóma. Enda var vel veitt af
honum hjá ömmu og afa. Þar var
gott að vera. Vöfflur, flatkökur
og gott fólk.
Ég hafði mjög gaman af því að
spyrja afa út í uppvaxtarárin á
Ólafsfirði og fannst því mjög
skemmtilegt þegar við fórum í
dagsferð þangað þegar ég var
krakki. Þar fékk ég að heyra
margar skemmtilegar sögur.
Hann sagði mér t.d. frá mann-
inum sem var með svo stórar
hendur að það skyggði á bæinn
ef hann lyfti þeim upp. Hann
sagði mér frá fyrsta bílnum sem
hann sá og þegar hann, 10 ára,
þurfti að elta símastaurana yfir
heiðina til að komast heim til
Ólafsfjarðar. Dagsferð. Það var
smá misskilningur um hver átti
að sækja hann.
Svo spurði ég hann oft og
mörgum sinnum út í söguna af
því þegar hann hjólaði frá
Reykjavík til Ólafsfjarðar á gíra-
lausu hjóli á illfærum malarveg-
um. Það fannst mér aðdáunar-
vert og mikið þrekvirki. Afi var
líka mjög fyndinn. Hann glotti
alltaf út í annað þegar hann sagði
mér að hann hefði fengið ókeypis
snarl í þessari ævintýralegu
hjólaferð. Hann brunaði niður
brekku með galopinn muninn og
inn í þétta mýþyrpingu. Hann
brosti alltaf út í annað þegar
hann lýsti viðbrögðum sínum við
þessari óvæntu veislu. Ekta afa-
svipur.
Afi var mikil barnagæla. Alltaf
með barn í fanginu og gaf þeim
allan tímann í heiminum. Skoðið
bara myndaalbúmin! Í síðasta
samtalinu okkar talaði hann um
það hve heppinn hann væri með
fjölskylduna sína. Í kringum
hann væri bara gott og strang-
heiðarlegt fólk. En þannig var afi
einmitt. Góður og strangheiðar-
legur.
Afi Andrés var traustur og
skemmtilegur og fagmaður fram
í fingurgóma. Ég var alltaf mjög
stoltur af því að hann væri afi
minn og mun sakna þess að
heyra ekki fleiri sögur frá hon-
um. En ég mun svo sannarlega
segja mínum afkomendum sög-
urnar sem hann sagði mér.
Takk fyrir allt, afi.
Þar til næst.
Sindri Bergmann
Þórarinsson.
Allt frá því ég man eftir mér
hefur það verið eitt það skemmti-
legasta sem ég geri að fara í
heimsókn til ömmu Jensínu og
afa Andrésar. Ég man að sem
krakki fannst mér þau sérstak-
lega flott, því þau áttu sko sitt
eigið vídeótæki, þar sem maður
gat horft á upptökur af áramóta-
skaupinu 1988, sem ég horfði að
sjálfsögðu margoft á, þó ég skildi
ekki brandarana. Ég hef svo ekki
tölu á öllum jóladögunum, af-
mælunum, bolludögunum og alls-
konardögunum sem við komum í
heimsókn þar sem voru alltaf
mikil veisluhöld.
Þegar við fengum að borða hjá
þeim passaði afi vel upp á að allir
borðuðu vel og bauð ábót um leið
og síðasti bitinn hvarf af diskn-
um: „Ætlarðu ekki að fá þér
meira? Þú ert ekki búinn að
borða neitt.“ Eftir margfalda
ábót reyndi ég samt alltaf að
verða við þessari bón hans. Þeg-
ar ég var yngri hélt ég að ég væri
farinn að sjá við þessu og vandi
mig á að skilja einn bita eftir á
disknum og einn sopa eftir í glas-
inu til að vera alveg viss um að afi
vissi að ég væri saddur. Hann sá
þó fljótt við því og bauð mér bara
ábótina aðeins fyrr, því enginn
mátti fara svangur í burtu.
Þegar ég varð eldri og eign-
aðist eiginkonu og dætur þá sá
ég enn betur hvað ég hef verið
heppinn. Eiginkonan varð sam-
stundis mikill aðdáandi þeirra
hjóna. Oft og mörgum sinnum
hefur hún nefnt við mig að amma
og afi ættu skilið að fá íslensku
fálkaorðuna fyrir að vera bara
svo gott fólk og fullkomnar fyr-
irmyndir og ég er bara alveg
sammála henni. Það var svo auð-
séð hvað afa fannst gaman að
vera í kringum börn. Hann var
alltaf til í að sitja með stelpunum
í rólegheitum og spjalla um allt
milli himins og jarðar á meðan
þær teiknuðu, spiluðu eða léku
sér. Það er ekki skrýtið að þeim
fannst alveg eins gott og mér að
fá að hitta hann afa.
Fyrir nokkrum árum fluttum
við fjölskyldan til útlanda, en eitt
það erfiðasta við að búa erlendis
er fjarlægðin frá fjölskyldunni og
þá ekki síst fjarlægðin frá ömmu
og afa. Síðast þegar við komum
til Íslands þá var það að sjálf-
sögðu einn af hápunktum ferð-
arinnar að fá að hitta þau. Ég er
mjög þakklátur fyrir að hafa get-
ið tekið utan um hann afa í þeirri
ferð og spjallað við hann um hitt
og þetta, m.a. barnabörnin hans
og tímann sem hann var að vinna
á Grænlandi. Það var alltaf gott
að hitta hann afa.
Ég veit að ég, konan mín, dæt-
ur mínar og allt fólkið hans afa
eigum eftir að sakna hans mikið
og segja sögur af honum um
ókomna tíð. Takk fyrir allar góðu
stundirnar og minningarnar,
elsku afi.
Andri Franklín Þórarinsson.
Við systur kveðjum elsku afa
okkar með miklum söknuði en
yljum okkur við minningar um
yndislegan og góðan afa.
Afi var stór hluti af tilverunni
og föstum liðum fjölskyldunnar,
öll jólaboðin, skötuboðin, bollu-
kaffið, afmælin og heimsóknirn-
ar. Alltaf tók hann vel á móti
manni og passaði að öllum liði vel
og þá sérstaklega að allir borð-
uðu vel. Við erum þakklátar fyrir
allar þær stundir sem við áttum
með afa og þær stundir sem
börnin okkar áttu með honum en
afi var einnig einstaklega hlýr og
góður langafi og var oftar en ekki
með minnstu krílin í fanginu.
Okkur þykir svo vænt um, þig
elsku afi, og allar dýrmætu minn-
ingarnar með þér. Takk fyrir
allt.
Gígja og Harpa.
Þá hefur nú Andrés bróðir
minn kvatt þennan heim og ég
þakka honum af hjarta fyrir allt
það góða sem hann hefur gefið
mér. Það eru níu ár á milli okkar
svo ég man ekki mikið eftir hon-
um sem krakki þar sem hann fór
sautján ára að heiman og ég bara
átta ára. En ég man vel að hann
fékk tíu í bókfærslu og mamma
og pabbi voru mjög stolt. Þegar
ég fór í Kennaraskólann voru
þau hjón afar góð við mig. Hann
taldi það ekki eftir sér að sækja
mig á svörtu bjöllunni flestar
helgar. Þau voru með kanasjón-
varp og ekki mátti missa af
Perry Mason. Ég gisti oft og þá
var glatt á hjalla, mamma Jens-
ínu og Munda systir hennar voru
á staðnum. Það var spilað og
hlegið og ekki má gleyma heita
góða brauðinu hennar Jensínu
með osti og tómatsósu. Þegar við
Óli fórum að byggja okkur hús
þá var hann sko betri en enginn.
Hann smíðaði alla glugga, og
vann allt tréverk innandyra, þak-
ið á húsið ásamt blómaskála.
Hann var svo samviskusamur
þegar hann taldi tímana sína því
hann dró frá matar- og kaffitíma
svo ég þurfti alltaf að bæta við
nokkrum tímum. Við áttum
margar góðar stundir saman
þegar ég var að lakka panelinn
utan á húsið eða grenið sem fór í
loftið á efri hæðinn. Við spjöll-
uðum og hann sagði mér brand-
ara. Andrés hafði góðan húmor
en sparaði hann alltof oft. Andrés
átti margar vinnustundir hjá
Kiwanisklúbbnum Eldey í Kópa-
vogi. Hann lét flytja hús upp á
Skemmuveg og gerði það í stand
ásamt öðrum. Fyrir jólin seldi
hann kerti og alltaf keypti ég dá-
góðan slatta. Ég á enn eftir kerti
frá Eldey enda brenna þau hægt
og fallega.
Kallið er komið
komin er nú stundin
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna
er sefur hér hinn síðsta blund
(Vald. Briem)
Við Óli sendum fjölskyldunni
allri okkar innilegustu samúðar-
kveðjur og kveðjum með sökn-
uði.
Margrét.
Látinn er góður félagi og vin-
ur okkar Andrés Sigurðsson,
Andrés Freyju, eins og hann var
kallaður í Ólafsfirði. Margir
krakkar voru kenndir við móður
sína en það var vegna þess að
feðurnir fóru á vertíð suður á
land, en heima sáu mæðurnar um
uppeldið. Andrés var einu ári á
undan okkur, 1934- og ’35-ár-
ganginum í skóla, því að þrengsl-
in í gamla skólanum voru mikil
og það þurfti að flytja einn nem-
anda yfir í eldri bekk. Efnileg-
astur þótti Andrés til að ráða við
það og stóð hann sig vel þótt
yngri væri. Iðnskóli var starf-
ræktur í Ólafsfirði og við sem
hugðumst fara í iðnnám nýttum
okkur þann möguleika og gátum
tekið próf í þeim greinum sem
tilheyrðu ekki iðnnáminu. En
þau fög tókum við Andrés síðan í
Iðnskólanum í Reykjavík.
Ég fór suður í húsasmíðanám
haustið 1954, en þá var Andrés
byrjaður í sínu húsasmíðanámi.
Fljótlega hittumst við og tókst
með okkur mikill vinskapur.
Hann bjó þá á Barónsstíg 33,
ásamt öðrum Ólafsfirðingum,
þeim Magnúsi Magnússyni
(Madda) og Alberti Ólafssyni
(Abba). Mötuneyti var í sama
húsi og borðuðu þeir þar. Við fór-
um mikið í bíó og sáum flestar
myndir sem sýndar voru og oft
fengum við okkur kaffi eftir sýn-
ingar á Matstofu Austurbæjar á
Laugaveginum.
Eitt sumarið vorum við Andr-
és, Maddi og Anton hálfbróðir
Andrésar staddir í Ólafsfirði í
sumarfríi. Við félagarnir löbbuð-
um út á síldarplan. Víðir II hafði
komið í land tvisvar sama sólar-
hringinn með fullfermi af síld.
Sigmundur Jónsson kunningi
okkar var verkstjóri á Stígan-
daplaninu og sagði að það væri
ósköp að sjá okkur með hendur í
vösum og bað okkur þess
lengstra orða að koma í vinnu.
Það vantaði mannskap. Við létum
slag standa, fengum lánuð vinnu-
föt og unnum þar heilan dag og
langt fram á kvöld og þetta er
eftirminnilegur frídagur.
Annað sumar vorum við Andr-
és báðir í sumarfríi heima í Ólafs-
firði. Guðrún systir hans bjó á
Vestara-Landi austur í Öxarfirði
og við Guðrún vorum bekkjar- og
fermingarsystkini. Þá datt Andr-
ési í hug að það gæti verið gaman
að hjóla austur til hennar og bað
mig að koma með sér. Ég sló til
og tókum við póstbátinn Drang
til Akureyrar. Við komumst
nokkurn veginn klakklaust aust-
ur, þrátt fyrir að þurfa að leiða
hjólin upp Vaðlaheiðina, og síð-
asta spölinn yfir heiðina fengum
við á okkur bleytuhríð og urðum
rennandi votir. Á Vestara-Landi
dvöldum við í tvo daga í góðu yf-
irlæti. Á heimleiðinni fórum við
yfir Jökulsárfljótið hjá Gríms-
stöðum og áleiðis niður í Mý-
vatnssveit. Þetta var skemmtileg
og ógleymanleg ferð sem var
öðruvísi en að aka um í bíl.
Eftir að ég kom heim úr námi
frá Noregi var Andrés giftur,
kominn með konu og barn.
Nokkru seinna urðu einnig góð
kynni okkar hjóna við Jóhann
Severin Walderhaug, líka Ólafs-
firðing, og konu hans Huldu
Guðnadóttur. Við, þessi þrenn
hjón, höfum átt margar ánægju-
legar samverustundir og nutum
einnig oft samvista með eldri
borgurum í Ólafsfirði, ferðuð-
umst með þeim um landið og fór-
um í siglingu um Karabíska haf-
ið.
Við hjónin þökkum ómetan-
lega vináttu. Jensínu og fjöl-
skyldu sendum við innilegar
samúðarkveðjur.
Sveinbjörn Sigurðsson
frá Ólafsfirði.
Andrés Sigurðsson
✝
Viktor Ingi
Sturlaugsson
bifvélavirkjameist-
ari fæddist 14. nóv-
ember 1940 á
Stokkseyri. Hann
lést 22. apríl 2022.
Foreldrar hans
voru hjónin Stur-
laugur Guðnason, f.
18. ágúst 1904, d.
23. júní 1985, og
Aðalheiður Eyjólfs-
dóttir, f. 27. júlí 1909, d. 13. jan-
úar 2004.
Systkini hans eru Guðrún Ás-
dís (látin), Margrét, Guðni Vil-
berg (látinn) og Einar.
Árið 1965 giftist hann eftirlif-
eru Theodór Ingi, Signý Rós,
Dennis, Delissa og Elissa.
Sem ungur maður vann hann
til sjós og í Straumsvík, Glóbus
og Steypustöðinni hf. en árið
1985 réð hann sig til Reykja-
garðs og sá þar um allt viðhald á
vélum og húsum. Seinna vann
hann hjá Domino’s og sá þar um
viðhald og eftirlit með bílum og
búðum og vann þar þar til hann
lét af störfum 78 ára gamall í
fullu starfi.
Viktor og Sigríður hófu sinn
búskap í Reykjavík með Júlíönu
móður Sigríðar í Mávahlíðinni.
Árið 1971 bjuggu þau stutt á Sel-
fossi þar sem Viktor kom að
uppsetningu Steypustöðvarinn-
ar þar. Eftir það fluttu þau í
Kópavog. Árið 1975 fluttu þau í
Mosfellssveit og hafa búið þar
síðan.
Útförin fer fram í Grafarvogs-
kirkju í dag, 4. maí 2022, klukk-
an 15.
andi eiginkonu
sinni, Sigríði Th.
Mathiesen, f. í
Hafnarfirði 6. mars
1946, dóttir hjón-
anna Theodórs
Árna Mathiesen og
Júlíönu S. Sólons-
dóttur Mathiesen.
Börn þeirra eru: 1)
Victor Rafn, f. 24.
júní 1966, í sambúð
með Salbjörgu
Bjarnadóttur. Dætur Victors eru
Tinna Karen og Thelma Lind.
Börn Salbjargar eru Óskar Örn,
Júlíana Kristbjörg, Ólafía María
og Freyja Rán. 2) Júlíana Sigríð-
ur, f. 20. júlí 1970. Börn hennar
Ingi afi var enginn venjulegur
afi, hann var líka vinur, grínisti
og elskulegasti afi sem ég get
hugsað mér. Ég gæti ekki þakkað
honum nóg fyrir öll árin sem við
höfum eytt saman. Ég man alltaf
þegar enginn vildi heyra hann
spila á harmonikuna, þá fór ég á
eftir honum fram í bílskúr og
dansaði með laginu sem hann var
að spila. Hann var afi allra barna.
Hann á alltaf stað í hjarta mínu
og þeirra sem kynntust honum.
Ég man eftir sögum um afa
eins og þegar ég var bara ný-
fædd, þá vildi hann reyna að
vekja mig en hann fékk það ekki.
Eða það er ein af þeim sögum
sem ég hef heyrt. Eitt af mörgu
sem ég og allir aðrir sem þekktu
hann muna eftir er afi og fuglinn.
Þegar maður var hjá þeim ömmu
og afa í matarboði tók afi glasið
og faldi það og þóttist svo ekki
kannast við neitt. Ég mun sakna
hans eða réttara sagt munum við
öll sakna hans. Hann gaf mér
fyrstu kennsluna í golfi.
Þín afastelpa,
Signý Rós.
Viktor Ingi
Sturlaugsson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
PÉTUR JÓNASSON,
ljósmyndari á Húsavík,
andaðist á krabbameinsdeild Landspítala,
Háskólasjúkrahúss föstudaginn 29. apríl.
Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju
mánudaginn 9. maí kl. 14.
Sigríður Pétursdóttir Garðar Agnarsson Hall
Helgi Pétursson Patra Tawatpol
barnabörn og aðrir ástvinir