Morgunblaðið - 04.05.2022, Blaðsíða 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022
50 ÁRA Kristján er Hafnfirðingur en
býr í Kópavogi. Hann er menntaður
hárgreiðslumaður og löggiltur fast-
eignasali. Kristján er einn af eigendum
Lindar fasteignasölu. „Áhugamálin eru
fyrst og fremst golf og skíði og svo hef
ég gaman af að leika mér á buggy-
bílnum. Konan mín bauð mér óvænt til
Dubaí í tilefni afmælisins og við vorum
að leika okkur á buggy í eyðimörkinni.“
FJÖLSKYLDA Sambýliskona Krist-
jáns er Lára Þyri Eggertsdóttir, f. 1975,
löggiltur fasteignasali og starfsmaður á
Lind. Tvíburasynir Kristjáns eru Benja-
mín Ómar og Kristófer Kort, f. 2002.
Foreldrar Kristjáns eru Haukur Eiríks-
son, f. 1950, fv. söðlasmiður og Brynja
Björk Kristjánsdóttir, 1953, fv. leik-
skólastjóri. Þau eru búsett í Hafnarfirði.
Kristján Þórir Hauksson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Með réttu hugarfari tekst þér allt
sem þú ætlar þér svo vertu bara jákvæður.
Leyfðu þér að setja markið hærra en þú
hefur gert undanfarið.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það er hollt að setjast niður af og til
og velta fyrir sér, hvað maður vill fá út úr
lífinu, bæði í leik og starfi. Haltu þig við
efnið og fylgdu málunum til enda.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Óvenjuleg atburðarás gæti leitt
til þess að þú verðir í sviðsljósinu í dag.
Ekki láta þetta slá þig út af laginu.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú ert handviss um að það sem þú
ætlar þér að gera sé gerlegt. Ef þú hefur
efni á því að láta eitthvað eftir þér, skaltu
gera það.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú átt auðvelt með að sjá í gegnum
aðra en vertu sanngjarn því aðrir geta líka
séð í gegnum þig. Mundu að flas er ekki til
fagnaðar.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Að líta inn á við fær mann til að gera
sér grein fyrir ýmsu. Einhver nákominn þér
fær kaupauka eða hlunnindi sem koma þér
jafnframt til góða.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Sláðu á þær raddir innan fjölskyld-
unnar sem segja þig yfirdrifinn og óút-
reiknanlegan. Gefðu þér nægan tíma til að
skoða öll mál sem þú hefur aðkomu að.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þótt þú hafir í mörg horn að
líta á vinnustað þínum, máttu ekki láta það
bitna á þínum nánustu. Nú ættu hlutirnir
hins vegar að fara að komast í eðlilegt horf.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Einhver er að krefjast skuld-
bindingar frá þér, sem þú ert ekki reiðubú-
inn fyrir. Gefðu þér góðan tíma til þess að
velta málunum fyrir þér.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Haltu þínu striki og þá fer allt
vel, því hugmyndir þínar um lausn í
ákveðnu máli eru réttar.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Kafaðu undir yfirborð hlutanna
og láttu kjarna þeirra ráða úrslitum. Hafðu
það hugfast, þegar þér finnast verkefni
dagsins taka á sig snúnar myndir.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú átt ekki í erfiðleikum með að
gera langtímaáætlanir í dag. Samstarfs-
menn þínir bera traust til þín og leita að-
stoðar þinnar þegar á bjátar.
og gjörgæslulæknafélags Íslands og
situr í nokkrum nefndum á vegum
samtaka norrænna svæfinga- og
gjörgæslulækna. Hann er í ritstjórn
ACTA Anasesthesiologica Scand-
inavicae, fræðarits á sviði svæfinga-
og gjörgæslulækninga. Hann hefur
komið að ritun fjölda fræðigreina og
bókarkafla á sviði læknisfræði, eink-
ingum við Landspítala og Háskóla Ís-
lands árið 2019 og hefur sinnt því
starfi síðan. „Ég er bæði að vinna
klínískt starf við að sinna sjúklingum
og kenni læknanemum, sérnáms-
læknum og rannsóknarnemum, auk
þess að sinna rannsóknastörfum. Ég
vinn því mjög fjölbreytilegt starf.“
Martin Ingi er í stjórn Svæfinga-
M
artin Ingi Sigurðsson
fæddist 4. maí 1982 í
Reykjavík og ólst
upp í Safamýrinni og
á Háaleitisbraut.
„Ég æfði fótbolta og handbolta og
entist í handboltanum upp í 3. flokk,
en það var ekki út af hæfileikunum
sem ég æfði þetta lengi heldur góðum
félagsskap.“
Martin lauk grunnskólaprófi úr
Álftamýrarskóla 1998 og útskrifaðist
af eðlisfræðibraut Menntaskólans í
Reykjavík 2002. Hann hóf nám við
læknadeild Háskóla Íslands árið 2003
og útskrifaðist árið 2009. Samhliða
læknanámi hóf hann doktorsnám við
læknadeild Háskóla Íslands og út-
skrifaðist með doktorspróf í læknis-
fræði árið 2011. Að því loknu starfaði
hann sem deildarlæknir á svæfinga-
og gjörgæsludeild Landspítala 2011-
2012. Hann hélt utan til Boston í
Bandaríkjunum árið 2012 og lauk
sérfræðinámi í svæfinga- og gjör-
gæslulækningum við Brigham and
Women’s-sjúkrahúsið, kennslu-
sjúkrahús læknadeildar Harvard,
árið 2016. Að því loknu hélt hann til
Durham í Norður-Karolínu þar sem
hann lauk undirsérhæfingu í svæf-
ingum fyrir hjarta- og lungnaskurð-
aðgerðir og gjörgæslulækningum frá
Duke árið 2018.
„Ég byrjaði í verkfræði, en foreldr-
ar mínir eru báðir verkfræðingar og
ég hallaðist mikið að stærðfræði og
raunvísindum í MR. En ég var ekki
viss um að ég gæti enst í faginu, ég
vildi verja meiri tíma í að tala við fólk
en að sitja fyrir framan tölvuna. Ég
kláraði fyrsta árið en ákvað að prófa
að fara í læknanám. Ég sé ekki eftir
því. Svæfinga- og gjörgæslulækn-
ingar byggjast vissulega mikið á
skilningi og hagnýtingu lífeðlisfræði
þar sem við mælum og bregðumst við
mælingum á ástandi sjúklinganna.
Svo hef ég einnig náð að nýta mér
forritunarþekkinguna úr verkfræð-
inni við rannsóknarvinnu mína.“
Að sérfræðinámi loknu flutti
Martin til Íslands og hóf störf sem
sérfræðilæknir á svæfinga- og gjör-
gæsludeild Landspítala árið 2018.
Hann var ráðinn prófessor og yfir-
læknir í svæfinga- og gjörgæslulækn-
um svæfinga- og gjörgæslulæknis-
fræði.
Martin hefur ferðast með sjálf-
boðaliðasamtökunum Team Heart til
Rúanda í þrígang til að vinna sem
svæfinga- og gjörgæslulæknir, en
samtökin styðja við uppbyggingu
heimamanna á sjálfbærum hjarta-
skurðlækningum í landinu. „Ég
kynntist þessum samtökum þegar ég
var í sérfræðináminu í Boston. Við
höfum á vegum samtakanna gert um
300 hjartalokuaðgerðir í Rúanda á
unglingum og ungu fólki sem hefðu
ekki lifað lengi án þessarar aðgerðar.
Hjartalokurnar skemmast vegna
sjaldgæfs fylgikvilla ómeðhöndlaðrar
streptókokkasýkingar, sem þekkist
varla í hinum vestræna heimi. Ég var
að koma úr minni þriðju ferð til Rú-
anda og í hvert skipti sjáum við fram-
farir. Heimamenn gera nú aðgerðirn-
ar og sinna eftirmeðferðinni að miklu
leyti, svo miklu að við vonum að þeir
verði orðnir sjálfbærir innan örfárra
ára.“
Martin Ingi hefur hlotið viður-
kenningar fyrir kennslu og vísinda-
störf. Hann fékk verðlaun frá forseta
Íslands fyrir besta verkefni styrkt af
Martin Ingi Sigurðsson, prófessor við HÍ og yfirlæknir á Landspítalanum – 40 ára
Fjölskyldan Martin, Emilía, Anna og Björn á göngu í Búðardal síðastliðið sumar.
Sjálfboðaliðastarf í Rúanda
Arizona Martin og Anna í göngu í Sedona árið 2015.
Steinunn Erla Sigurðardóttir, Sigríður
Maren Arnarsdóttir og Sóley June
Martel héldu tombólu og tóku við
frjálsum framlögum í Salahverfi í Kópa-
vogi. Afraksturinn, sem var í kringum
70.000 kr., færðu þær Rauða kross-
inum til styrktar krökkum í Úkraínu.
Hlutavelta
Til hamingju með daginn
SMÁRALIND – DUKA.IS
20% afsláttur af öllum
vörum í DÚKA Smáralind
á miðnæturopnun.
MIÐNÆTUROPNUN
SMÁRALIND
Opið til kl. 24.00 í kvöld 4. maí
Afsláttur einnig í netverslun duka.is