Morgunblaðið - 04.05.2022, Side 21

Morgunblaðið - 04.05.2022, Side 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022 „ÉG ER BÚINN AÐ HRINGJA Á SJÚKRA- BÍL. SETTU ÞESSI EYÐUBLÖÐ UNDIR HÖFUÐIÐ Á HONUM. LÁTTU HANN KLÁRA AÐ FYLLA ÞAU ÚT EF HANN VAKNAR.“ „BORÐ FYRIR 650 MANNS.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hafa hana á heilanum. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG ELSKA ÞIG ÞVÍ ÞÚ ERT SÆTASTA STELPA Í HEIMINUM OG ÉG ELSKA ÞIG FYRIR AÐ HAFA EKKI ORÐIÐ MÉR TIL SKAMMAROPINBERLEGA Í ÞRJÁ HEILA DAGA ÞAÐ ER NÝTT MET HJÁ MÉR AÐAL- GAURINN LANGTÍMAMARKMIÐ MÍN ERU AÐ SAFNA 100 PUNDUM GULLS! HVER ERU SKAMM- TÍMAMARKMIÐIN ÞÍN? AÐ FINNA EINHVERN TIL AÐ BORGA FYRIR DRYKKINA HANS! Nýsköpunarsjóði námsmanna árið 2007, var útnefndur ungur vísinda- maður ársins á Landspítala árið 2011 og hlaut kennsluverðlaun félags læknanema við læknadeild Háskóla Íslands 2021. Sömuleiðis fékk hann hvatningarverðlaun Rannís árið 2021. Áhugamál Martins eru samvera með fjölskyldu og vinum, útivera og hlaup. „Eftir að ég hætti að æfa bolta- íþróttir hef ég verið að hlaupa og stunda aðallega millivegalengda- hlaup. Við Anna konan mín höfum verið dugleg að ganga og ferðast og reynum að finna skemmtilega staði að ganga á þegar við erum í ferðalögum innanlands og erlendis.“ Fjölskylda Eiginkona Martins er Anna Björnsdóttir, f. 26.4. 1983, taugalækn- ir, sérfræðingur í parkinson og hreyfitruflunum. Þau eru búsett í Fossvoginum í Reykjavík. Foreldrar Önnu: Hjónin Björn H. Jóhannesson, 13.4. 1951, fv. framkvæmdastjóri, bú- settur í Reykjavík og Helga Þorgeirs- dóttir, f. 9.7. 1950, d. 31.1. 2002, kenn- ari. Börn Martins og Önnu eru Björn, f. 15.6. 2017, og Emilía, f. 22.12. 2019. Systur Martins eru Drífa Kristín Sigurðardóttir, f. 13.1. 1978, lögfræð- ingur í dómsmálaráðuneytinu, búsett á Seltjarnarnesi, og Hildur Erna Sig- urðardóttir, f. 6.8. 1986, hagfræðing- ur á Hagstofu Íslands, búsett á Sel- tjarnarnesi. Foreldrar Martins eru hjónin Sig- urður Ingi Skarphéðinsson, f. 18.3. 1948, verkfræðingur, og Emilía Martinsdóttir, f. 12.11. 1949, verk- fræðingur. Þau eru búsett í Reykja- vík. Martin Ingi Sigurðsson Rannveig Vilhjálmsdóttir húsfreyja í Vestmannaeyjum, f. á Borgarfirði eystra Gísli Þórðarson sjómaður í Vestmannaeyjum, f. í Ámundakoti í Fljótshlíð Bertha Gísladóttir húsfreyja í Vestmannaeyjum og Reykjavík Martin Brynjólfur Tómasson forstjóri og útgerðarmaður í Vestmannaeyjum Emilía Martinsdóttir verkfræðingur í Reykjavík Hjörtrós Hannesdóttir húsfreyja í Höfn í Vestmannaeyjum, f. í Eyjum Tómas Maríus Guðjónsson útgerðarmaður í Höfn í Vestmannaeyjum, f. í Eyjum Sigurveig Sigurðardóttir húsfreyja íÆrlækjarseli í Öxarfirði, f. á Gunnarsstöðum í Þistilfirði Jón Gauti Jónsson bóndi á Gautlöndum í Mývatnssveit, Héðinshöfða á Tjörnesi og í Ærlækjarseli, f. á Gautlöndum Kristín Þuríður Jónsdóttir húsfreyja á Akureyri Skarphéðinn Guðnason trésmiður á Akureyri Valdína Björg Sigvaldadóttir húsfreyja í Hafrafellstungu, f. þar Guðni Metúsalem Sigurðsson bóndi í Hafrafellstungu í Öxarfirði, f. á Litlu-Laugum í Reykjadal Ætt Martins Inga Sigurðssonar Sigurður Ingi Skarphéðinsson verkfræðingur í Reykjavík Úrslit liggja nú fyrir í árlegri Vísnasamkeppni Safnahúss Skagfirðinga. Það nýnæmi var inn- leitt að þessu sinni að hagyrðingar voru hvattir til að yrkja til minn- ingar um Bjarna Haraldsson kaup- mann á Sauðárkróki og heiðurs- borgara sveitarfélagsins Skagafjarðar. Vinningshafi var Ingólfur Ómar Ármannsson sem orti meðfylgjandi hringhendu: Glaðværð ann að glettni hló gæsku sanna bar’ann. Geðs í ranni göfgi bjó gull af manni var’ann. Markús Möller skrifaði mér: „Vísan um Ólaf í gær, hinn 27., var í miklu uppáhaldi hjá vini mínum, sem nú er látinn. Sú seinni ekki síð- ur, sem sami hagyrðingur á að hafa ort eftir að Ólafur seldi og flutti á brott“: Mörg nú hefur meyjan grátið. Mun svo verða enn um sinn, því Ólafur hefur eftirlátið öðrum manni … Hlíðarenda. Ingólfur Ómar skrifar mér: „Sæll Halldór, ég sá á föstudaginn í vísna- horninu hina landsþekktu vísu „Skála og syngja“ eftir Kára Jóns- son frá Valadal og þá komu þessar vísur upp í hugann sem ég gerði fyrir löngu en hef aldrei birt áður“: Hreiminn braga hlýna við hljómar bagan slynga. Ekki plagar andleysið okkur Skagfirðinga. Elska lipurt tungutak og tónaflóðið þýða. Hreyfir þó sér bregði á bak best af öllum ríða. Á Boðnarmiði birtir Gunnar J. Straumland ljóðið „Efi“ úr kvæða- bók sinni Höfuðstaf: Hugsjón um frelsi er háleit og gild, helst þó ef sérhver varast kann frelsið til þess að fara að vild á frjálslegan hátt með sannleikann. „Hvenær má kalla fjallið fjall?“ fell og hólar spyrja oft þegar við setjum þúfu á stall, þegar við hyllum eintómt loft. Fláræði eykst og fölva slær á framtíðarsýn er var svo kær. Fjarlægar slóðir færast nær. Frumbernska mannsins var í gær. Jón Atli Játvarðarson yrkir: Þann fyrsta maí ég fór að spá, hvað flyti upp að landi? Óskup finnst mér Báran blá og brotna þung á sandi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af vísnasamkeppni og Skagfirðingum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.