Morgunblaðið - 04.05.2022, Side 28
Bókanir í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is
eða í símum 783-9300/01
Allar nánari upplýsingar á
www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is
VORFAGNAÐUR
Ferðaskrifstofu eldri borgara
Hótel Grímsborgum 15. maí
Njótið gistingar á 5* hóteli í fallegri
náttúru, snæðið góðan mat, hittið
skemmtilegt fólk og dansið fram eftir
kvöldi.
Mikil stemning meðal eldri borgara þar
semmaður er manns gaman. Ferða-
kynning, söngur, dans og gleði á björtu
vorkvöldi.
Innifalið í verði: Skemmtun, matur,
gisting og morgunverður.
Veislustjóri: Gísli Jafetsson.
Verð
29.900
á mann í tvíbýli*
*aukagjald fyrir einbýli
kr. 11.000
Síðustu
forvöð til
að skrá sig
Elfa Björk Jónsdóttir hefur verið
útnefnd listamaður hátíðarinnar
Listar án landamæra í ár. Elfa
Björk fæddist árið 1961 og
stundar myndlist. Segir í tilkynn-
ingu frá hátíðinni að hún sé
hæfileikarík listakona og segja
megi að myndheimur hennar bygg-
ist á abstrakt grunni og skapist oft
skemmtilegt samspil formrænu
og fígúratífs þegar hún
sæki sér fígúratífar fyr-
irmyndir ýmist úr um-
hverfinu, náttúrulífs-
bókum eða
listasögunni. Elfa
Björk sé ákaflega
vinnusöm og með
sterkan, hreinan og
ákveðinn stíl.
Elfa Björk Jónsdóttir listamaður
Listar án landamæra 2022
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 124. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Kvennalið KA í blaki lauk frábæru keppnistímabili í
gærkvöld með því að vinna Aftureldingu í þriðja úrslita-
leik liðanna og tryggja sér með því Íslandsmeistaratit-
ilinn. KA-konur unnu 25 af 26 leikjum vetrarins og
hrepptu alla þrjá titlana sem í boði voru. »23
Glæsileg uppskera hjá KA-konum
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Sennilega sér þess sjaldan betur
stað en í þessu verkefni hvað mennt-
un styrkir fólk og skapar mikla
möguleika. Með stuðningi fá kon-
urnar sjálfstraust og sterkan vilja til
að skapa sína framtíð á nýjum for-
sendum. Í raun gjörbreytist lífið
með námi sem nýtist vel,“ segir
Anna Pétursdóttir, formaður
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur.
Breyta stöðu til betra lífs
Í gær voru kynnt söfnun og átaks-
verkefni Menntunarsjóðs Mæðra-
styrksnefndar Reykjavíkur. Margir
hafa lagt sjóðnum lið með fram-
lögum og talsverðu skilar sala á
Mæðrablóminu, leyniskilaboðakerti
sem nú er selt fimmta árið í röð. Sala
á því hófst í gær.
Úr menntunarsjóðnum njóta alls
67 konur stuðnings um þessar
mundir. Margar þeirra hafa verið í
þeirri stöðu jafnvel um lengri tíma
að þurfa liðsinni til að breyta sinni
stöðu til betra lífs. Hafa sumar
hverjar verið með litlar tekjur og
takmarkaða skólagöngu að baki.
Með námi greiðist leiðin og dyr opn-
ast.
„Við erum mjög opin fyrir því að
styrkja konurnar sem til mennt-
unarsjóðsins leita og afsvar er algjör
undantekning. Tekjur þurfa að vera
undir tilteknu lágmarki, samanber
skattframtal, og á síðustu árum höf-
um við veitt um 400 styrki til um 300
kvenna, sem margar eru einstæðar
mæður, og það opnar þeim dyr sem
þeim stæðu annars ekki opnar.
Markmiðið er að hjálpa konum til
sjálfshjálpar sem styrkir velferð
þeirra og fjölskyldna þeirra.“
Velunnnarar völdu skilaboð
Menntunarsjóðurinn nýtur stuðn-
ings fjölmargra aðila í samfélaginu
og á hverju ári eru sérstakir velunn-
arar sjóðsins tilnefndir. Á fyrri árum
hafa þær verið Vigdís Finnboga-
dóttir, fyrrverandi forseti Íslands,
Eliza Reid forsetafrú, Kristín Ing-
ólfsdóttir, fv. rektor Háskóla Ís-
lands, Guðrún Hafsteinsdóttir al-
þingismaður, Sigríður Thorlacius
söngkona, Lilja Alfreðsdóttir ráð-
herra og Katrín Tanja Davíðsdóttir,
afrekskona í crossfit. Í ár bætast í
hóp velunnara sjóðsins þrjár konur:
Birna Einarsdóttir bankastjóri,
söngkonan Bríet og Nína Dögg
Filippusdóttir leikkona.
Á 10 ára afmæli menntunarsjóðs-
ins eru hinir sérstöku velunnarar
hans orðnir jafn margir starfs-
árunum. Þær Birna, Bríet og Nína
Dögg hafa nú valið ný leyniskilaboð
en auk þeirra verða til sölu sígild
leynskilaboðakerti. Leyniskilaboða-
kertin verða til sölu í mánuðinum í
verslunum Pennans-Eymundssonar
á höfuðborgarsvæðinu og á Akur-
eyri, í verslunum Epal í Skeifunni og
Kringlunni, Snúrunni í Ármúla sem
og Smáralind – og loks hjá Heim-
kaupum.
„Við höfum þann háttinn á að
greiða skólagjöld kvennanna auk
þess sem þær fá bókastyrk sem er
50 þúsund fyrir hverja önn. Þetta
kemur sér vel fyrir konurnar sem
margar hafa farið til náms í Háskóla
Íslands; margar til dæmis í hjúkr-
unarfræði eða kennaranám. Annars
er fjölbreytnin í þessu sem betur fer
ráðandi; konurnar velja hver sína
leið og samfélagið þarf fólk með alls
konar menntun. Að geta lagt þessu
lið er okkur í Menntunarsjóði
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
afar kært.“
Möguleikar og framtíðin
er á nýjum forsendum
- Styrkur og menntun - Leyniskilaboð og Mæðrablómið
Morgunblaðið/Eggert
Formaður Markmiðið er að hjálpa konum til sjálfshjálpar, segir Anna.
Forseti Vigdís Finnbogadóttir er í hópi tíu velunnara menntunarsjóðsins.