Morgunblaðið - 06.05.2022, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 06.05.2022, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2022 www.kofaroghus.is - Sími 553 1545 TIL Á LAGER Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik STAPI - 14,98 fm Tilboðsverð 779.000kr. 25% afsláttur BREKKA34 - 9 fm Tilboðsverð 439.000kr. 25% afsláttur NAUST - 14,44 fm Tilboðsverð 539.000kr. 30% afsláttur VANTAR ÞIGPLÁSS? Afar einfalt er að reisa húsin okkar. Uppsetning tekur aðeins einndag TILBOÐÁGARÐHÚSUM! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, flytur ávarp á Alþingi í dag í gegnum fjarfundarbúnað. Þetta er í fyrsta sinn sem erlendum einstaklingi er boðið að ávarpa Alþingi með þess- um hætti. Hægt verður að fylgjast með ávarpinu kl. 14 í beinni út- sendingu í sjón- varpi, á vef Al- þingis og öðrum vefmiðlum, þar á meðal mbl.is. „Ávarp Sel- enskís er einstak- ur viðburður því þetta verður í fyrsta skipti sem erlendur þjóðhöfðingi flytur ávarp í þingsal Alþingis. Birg- ir Ármannsson, forseti Alþingis, mun stýra þessari sérstöku athöfn í sal Alþingis og talar í upphafi athafn- arinnar. Þá mælir forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, nokkur orð fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Síð- an tekur Selenskí til máls. Að loknu ávarpi Selenskís ávarpar forsætis- ráðherra, Katrín Jakobsdóttir, for- seta Úkraínu,“ segir í tilkynningu Alþingis. Athöfnin í þingsal mun að mestu leyti fara fram á ensku. Ávarp Sel- enskís verður túlkað yfir á íslensku í rauntíma en að öðru leyti mun fund- urinn fara fram á ensku. Forsetinn hefur ávarpað fjölda þjóðþinga frá því að innrás Rúss- lands í Úkraínu hófst 24. febrúar síð- astliðinn. Þar hefur hann óskað eftir auknum stuðningi við Úkraínu vegna innrásarinnar. Meðal annars hefur hann kallað eftir hertum refsi- aðgerðum í garð Rússa. Selenskí hefur ávarpað þing hinna Norðurlandaþjóðanna, þar á meðal norska þingið. Einnig hefur hann ávarpað breska þingið og Banda- ríkjaþing á undanförnum mánuðum, auk þess sem hann hefur ávarpað öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og Evrópuþingið. Selenskí ávarpar þing og þjóð í dag - „Einstakur viðburður,“ segir Alþingi Volodimír Selenskí Snjó mátti sjá á Esjunni í gær í fyrsta sinn í þó nokkurn tíma, en nú þegar sumarið er gengið í garð vonast ef- laust flestir landsmenn til að hér fari að hlýna í veðri. Líkur eru á að Íslendingar fái að njóta sumarsins án nokkurra sóttvarnaaðgerða, en síðustu tvö sumur lit- uðust að einhverju leyti af Covid-19-aðgerðum. Gera má ráð fyrir að fjöldi Íslendinga njóti hluta sumarsins erlendis þar sem nú er töluvert auðveldara að ferðast milli landa en þekktist á tímum Covid-19. Þá er líklegt að landsmenn séu orðnir heldur sólþyrstir og flýi því land í auknum mæli eða lengi útlandaferðir sínar, skyldi sólin ekki láta sjá sig hér á landi í sumar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Snjór í stað sumarveðurs Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ástand þjóðvega á Snæfellsnesi og allt suður á Mýrar er slæmt og talið hættulegt á köflum, að því er fram kemur í áskorun bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar til innviða- ráðherra og Alþingis um að auka við- hald. Vegagerðin áætlar að þörf sé á 5-6 milljarða króna fjármagni í allra brýnustu verkefnin við styrkingar vega og endurbóta, á Vesturlandi og Vestfjörðum, en veittar eru 370 millj- ónir króna í ár til slíkra verkefna. Í ályktun bæjarstjórnar sem send hefur verið til innviðaráðherra og fjárlaganefndar Alþingis er lýst þungum áhyggjum af lélegu og sí- versnandi ástandi þjóðvega á Snæ- fellsnesi og um Mýrar og sagt að það stafi að stórum hluta af litlu viðhaldi. Skelfilegt ástand á köflum Skorað er á ráðherra og fjárlaga- nefnd að tryggja fjármagn til þessara verkefna. „Það er skuggalegt að sjá að við er- um að missa stofnvegi í hrikalegt ástand af því að við höldum þeim ekki við. Allir fagna því að sett er fjármagn í samgöngubætur, svo sem brýr og breikkun vega, en á sama tíma töpum við þeim mikilvægu stofnleiðum sem fyrir eru í óviðunandi ástand vegna skorts á viðhaldi,“ segir Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri í Grundar- firði. Hún hefur rætt málið við vöru- bílstjóra og segir að ástandið sé verst á sunnanverðu Snæfellsnesi, ekki síst frá Vegamótum að Hítará. Það sé skelfilegt á köflum, brotnir vegkant- ar, sig og frostskemmdir sem valda ójöfnum. Hún nefnir sérstaklega kafl- ana um Kaldármela og Skjálgar- hraun. Hefur Björg eftir vöruflutn- ingabílstjóra að það sé ekki spurning um hvort heldur hvenær alvarlegt slys verður á þessum vegarköflum. Miklir fiskflutningar eru til og frá Snæfellsnesi og hluti af þeirri miklu framleiðslu á eldislaxi sem kemur frá sunnanverðum Vestfjörðum er flutt- ur með Baldri yfir Breiðafjörð og fer þá um Snæfellsnesveg og Mýrar. Þegar fulllestaðir bílar geta ekki nýtt kantinn verða þeir að færa sig aðeins inn á hina akreinina, sem ætluð er umferðinni á móti. Þetta veldur aug- ljóslega hættu. Von er á miklum fjölda ferðamanna til landsins í sumar og munu margir leggja leið sína um Snæfellsnes, mið- að við reynsluna frá því fyrir faraldur. Björg segir að vegirnir séu ekki í standi fyrir stóra bíla, eins og rútur með ferðafólki. Þá sé ökuhæfni sumra þeirra erlendu ferðamanna sem fara um landið á eigin vegum, til dæmis bílaleigubílum, misjöfn og slæmir vegir hjálpi þeim augljóslega ekki. Misst kafla út úr höndunum Pálmi Þór Sævarsson, svæðis- stjóri vestursvæðis Vegagerðarinnar sem nær yfir Vesturland og Vest- firði, segir að komin sé mikil við- haldsskuld fyrir svæðið í heild. „Við höfum misst nokkuð marga kafla út úr höndunum. Höfum samt síðustu árin reynt að halda þeim þannig að þeir séu almennilega færir og örugg- ir, með þeim fjármunum sem við höf- um úr að spila hverju sinni,“ segir Pálmi. Hann segir reynt að forgangsraða verkefnum eftir umferðarþunga en staðan sé orðin þannig að raða þurfi meira eftir því hversu slæmir og hættulegir kaflarnir eru orðnir. Vegagerðin hefur áætlað að þörf sé á 5-6 milljörðum króna fyrir allra brýnustu verkefnin á þessu svæði, við styrkingar og endurbætur stofn- vega. Pálmi segist hafa 370 milljónir í ár í þessi verkefni. Tekur þó fram að reynt sé að færa fé úr öðrum flokkum til að sinna brýnum verkefnum til bráðabirgða. Vegir slæmir og jafnvel hættulegir - Bæjarstjórn Grundarfjarðar vekur máls á slæmu ástandi vega á Snæfellsnesi og um Mýrar og hvetur til aukins viðhalds - Viðhaldsskuldin er 5-6 milljarðar króna - 370 milljónir eru til ráðstöfunar í ár Morgunblaðið/Sigurður Bogi Undir Jökli Vegurinn um sunnanvert Snæfellsnes og Mýrar er víða lélegur. Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Læknir, sem ákærður er fyrir of- beldi gegn konu sinni og börnum, lauk í gær störfum fyrir Heilbrigð- isstofnun Norðurlands (HSN) á Húsavík, að sögn forstjóra stofn- unarinnar. Ákæra á hendur manninum var gefin út af lögreglustjóranum á Vestfjörðum og er manninum gefið að sök að hafa yfir sjö ára tímabil beitt eiginkonu sína ofbeldi og hót- unum. Þá er maðurinn einnig ákærður fyrir líkamlegt og andlegt ofbeldi gegn þremur dætrum þeirra yfir sama tímabil. „Hann hefur starfað hér í hálf- an mánuð og hefur lokið störfum fyrir okkur,“ sagði Jón Helgi Björnsson, forstjóri HSN, í samtali við mbl.is í gær, sem greindi fyrst frá því að maðurinn starfaði við stofnunina. „Við vissum ekki af þessum málum hans áður,“ bætir Jón Helgi við og jánkar því að spítalinn hafi fengið vitneskju um málið á svip- uðum tíma og það komst í fjölmiðla. Aðspurður segir Jón Helgi að starfslokin hafi ekki beint tengst umræddri ákæru. Læknirinn lokið störfum fyrir norðan - Starfaði hjá HSN í hálfan mánuð - Vissu ekki af málinu Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Húsavík Læknirinn hefur starfað í sveitarfélaginu að undanförnu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.