Morgunblaðið - 06.05.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 06.05.2022, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2022 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 Litur: Hvítur, svartur að innan. Stór sóllúga, bakkmyndavél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, Apple Carplay, hiti í öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart, lane-keeping system, heithúðaður pallur o. fl. o.fl. 3,5 L V6 Ecoboost 10-gíra, 375 hestöfl, 470 lb- ft of torque, 20” álfelgur 2021 Ford F-150 Platinum Litur: Hvítur/ Svartur að innan (nappa leather) Æðislegur fjölskyldubíll, hlaðinn búnaði. 7 manna bíll,Hybrid Bensín, Sjálfskiptur, 360° mynda- vélar, Collision alert system, Harman/Kardon hljómkerfi, Tölvuskjáir í aftursæti VERÐ aðeins 10.390.000 m.vsk 2022 Chrysler Pacifica Hybrid Limited VERÐ frá 18.500.000 m.vsk Litur: Svartur/ svartur að innan. 10 gíra skipting, auto track millikassi, sóllúga, heithúðaður pallur, rafmagns opnun og lokun á pallhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. High Country Deluxe pakki. 2022 Chevrolet High Country VERÐ 15.890.000 m.vsk Aldrei hafa íslenskir lífeyrissjóðir lánað jafn mikið af óverðtryggðum húsnæðislánum til heimilanna í land- inu í einum og sama mánuðinum og í mars síðastliðnum. Þetta kemur fram í nýjum hagtölum frá Seðla- banka Íslands um útlán lífeyrissjóða til heimila. Tveimur milljörðum meira en í október 2019 Í mánuðinum tóku heimilin 9,1 milljarð króna í óverðtryggðum lán- um að frádregnum uppgreiðslum sem er tveimur milljörðum króna meira en í þeim mánuði sem kemur næst á eftir, sem var í október 2019. Þá voru ný óverðtryggð lán samtals 7,1 milljarður. Í febrúarmánuði síðastliðnum lán- uðu lífeyrissjóðirnir heimilunum 5,9 milljarða. Aukningin milli febrúar og mars er 55%. Eins og fram kemur í gögnum Seðlabankans var fjöldi nýrra útlána í marsmánuði 616. Þar af voru 151 lán verðtryggð og 465 óverðtryggð. Það þýðir að meðallánsfjárhæð er um tuttugu milljónir króna á hverju láni. Heildarfjöldi lána er 34.224 Heildarfjöldi útlána lífeyrissjóð- anna jókst á milli febrúar og mars en 616 ný lán voru veitt í mars eins og fyrr sagði en fimm hundrað í febr- úar. Heildarfjöldi lána er nú 34.224. Voru ný útlán í mars að frádregnum upp- og umframgreiðslum samtals 6,181 milljarður sem er mesti útlán- avöxtur lífeyrissjóðanna frá upphafi faraldursins í mars árið 2020. Lækkaði höfuðstóll heildarútlána verðtryggðra lána um 2,967 millj- arða króna þar sem innborganir voru þar umfram ný útlán sem voru einungis 151 talsins eins og áður kom fram. viktorpetur@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Íbúðir Heimilin völdu óverðtryggð lán í stórum stíl í marsmánuði. Aldrei meira lán- að óverðtryggt - Heimilin tóku 9,1 milljarð í mars Kaupverð ásættanlegt Spurður um kaupverð segir Sæv- ar það vera trúnaðarmál en segir þó að það sé mjög ásættanlegt og yfir væntingum seljanda. Spurður um áhuga á fyrirtækinu sem auglýst var til sölu í byrjun apríl sl. segir Sævar að um þrjátíu fyrirspurnir hafi borist. „Við völd- um tíu aðila og úr því urðu við- ræður við fjóra, þar til á endanum var gengið frá samningum við kaupandann.“ Öll tæki og tól, uppskriftir og vörumerki eru hluti af pakkanum ásamt fasteignum félagsins í Dals- hrauni. Sævar segir að kaupin muni styrkja reksturinn til lengri tíma og verða félaginu og starfsmönnum þess til hagsbóta. „Fyrirtækið mun sækja mikið fram með tilkomu nýja eigandans. Þetta er mjög góð lend- ing upp á framtíð fyrirtækisins að gera. Það er bjart yfir þessu fé- lagi,“ segir Sævar. Aðspurður segir hann að fráfar- andi eigandi fyrirtækisins og fram- kvæmdastjóri, Kleópatra K. Stef- ánsdóttir, muni hætta hjá félaginu eftir að kaupin eru endanlega geng- in í gegn. „Ný stjórn og fram- kvæmdastjórn munu koma að félag- inu,“ segir Sævar. Aðspurður segir hann að stækk- unarmöguleika séu á lóð Gunnars. Eiginfjárhlutfall 11% Hjá Gunnars starfa tuttugu manns. Tap félagsins á árinu 2020 nam tæpum tuttugu milljónum króna en var tæpar 17 milljónir ár- ið á undan. Eignir fyrirtækisins nema nú um 158 mkr. og bókfært eigið fé í lok árs 2020 var tæpar 18 milljónir. Eiginfjárhlutfall er 11%. Tekjur Gunnars 2020 og 2019 voru svipaðar bæði árin eða um 390 mkr. Stór framleiðandi kaupir Gunnars - 30 fyrirspurnir bárust - Fyrirtækið mun sækja fram með nýjum eiganda- Framkvæmdastjórinn hættir - Tapaði 20 milljónum króna í fyrra - Stækkunarmöguleikar á lóð félagsins í Hafnarfirði Framtíð Lögmaðurinn Sævar Þór Jónsson segir að bjart sé yfir Gunnars. Morgunblaðið/Árni Sæberg Majónes » Félagið var upphaflega stofnað árið 1960 af hjón- unum Gunnari Jónssyni og Sigríði Regínu Waage undir nafninu Gunnars majones. » Félagið var lýst gjaldþrota árið 2014. Kleópatra Krist- björg keypti vörumerki Gunn- ars, uppskriftir, heimasíðu, markaðsefni og búnað af fé- laginu skömmu áður en félag- ið fór í þrot árið 2014, af systrunum Helenu og Nancy Gunnarsdætrum. BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Stór íslenskur matvælaframleið- andi hefur fest kaup á matvæla- fyrirtækinu Gunnars ehf. í Dals- hrauni 7 í Hafnarfirði, sem þekktast er fyrir framleiðslu og sölu á Gunnars-majónesi. Sævar Þór Jónsson lögmaður staðfestir við- skiptin í samtali við Morgun- blaðið. Hann segir að kaup- andi óski nafn- leyndar að sinni, eða þar til formlegum frágangi er lok- ið, en kaupin eru meðal ann- ars háð sam- þykki Samkeppniseftirlitsins. „En það er búið að undirrita kaup- samning og einungis skjalavinnan eftir,“ segir Sævar. Sævar Þór Jónsson Bílaleigan ALP, sem rekur Avis og Budget, var rekin með 245 milljóna króna hagnaði á síðasta ári. Það eru talsverð umskipti frá árinu á undan þegar leigan var rekin með rúmlega 800 milljóna króna tapi. Tekjur á síðasta ári námu 3,1 milljarði króna og jukust um 58% milli ára. Tekjurnar voru tæpir tveir milljarðar árið 2020, en far- aldurinn hefur sett stórt strik í rekstur ALP síðustu misseri eins og hjá öðrum ferðaþjónustu- fyrirtækjum. EBITDA-rekstrarhagnaður var 1,4 milljarðar en var 535 milljónir árið á undan. Í söluferli Eins og sagt var frá í Morgun- blaðinu fyrr í vikunni er ALP nú í söluferli. Eigendur bílaleigunnar eru norska fjárfestingarfélagið RAC Group, sem á 45,9% hlut, og Ljúfur ehf. sem á 54,1%. Eins og fram kom í samtali Morg- unblaðsins við forstjóra RAC Group, Dag Andre Johanesen, telur hann að nú sé góður tími til að selja fyrirtækið enda ferðaþjónustan að rétta úr kútnum á ný. tobj@mbl.is ALP hagn- ast um 245 mkr. - Umskipti frá árinu á undan Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ferðir Leigan er ein sú stærsta. 6. maí 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 130.28 Sterlingspund 162.96 Kanadadalur 101.64 Dönsk króna 18.439 Norsk króna 13.853 Sænsk króna 13.196 Svissn. franki 132.89 Japanskt jen 1.0026 SDR 174.94 Evra 137.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 173.5188

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.