Morgunblaðið - 06.05.2022, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 06.05.2022, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2022 Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 |eirvik.is | Opið virka daga10-18 – 3 tæki í einu og mögulegt að breyta samsetningu ryksugu eftir þörfum – Allt að 60 til120 mínútna samfelldur gangtími – Breiður ryksuguhaus sem hentar fyrir allar gerðir gólfefna Skaftryksuga frá Miele með Li-ion rafhlöðu Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HVAÐAN KEMUR ÞESSI BAÐVOG?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að gerast fastagestur á veitingastaðnum þar sem hún vinnur. SAMBANDOKKAR JÓNS ER FULLKOMIÐ. HANN GERIR ALLT OG ÉG GERI EKKERT GETURÐU EKKI GERT EITTHVAÐ? HVÍ AÐ SPILLA FULLKOMNUN? HELGA! ÉG ÞARF HJÁLP VIÐ TALNINGUNA! Á PENINGUM?! HVAÐ? BOINK BOINK BOINK „NEI. MÓÐIR MÍN GAT VERIÐ TVÖFÖLD Í ROÐINU, EN ÉG STÓÐ HENNI Á SPORÐI ÞRÁTT FYRIR ÞAÐ.“ fjársjóðir. Laxá í Aðaldal var aðal- áin okkar, og fékk ég verðlaun 1990 fyrir að veiða stærsta laxinn það sumarið. Við veiddum annars mikið á Írlandi og í Skotlandi, utanlands- ferðirnar miðuðust mikið við það að komast í golf eða lax.“ Fjölskylda Fyrri eiginmaður Margrétar var Magnús Andrésson, f. 16.1. 1927, d. 7.7. 1986, vörubílstjóri, þau skildu. Seinni eiginmaður Margrétar var Gunnar Sólnes, f. 12.3. 1940, d. 5.6. 2016, hæstaréttarlögmaður. For- eldrar Gunnars voru hjónin Jón G. Sólnes, f. 30.9. 1910, d. 8.6. 1986, úti- bússtjóri Landsbanka Íslands á Akureyri og alþingismaður, og Inga Sólnes, f. 12.8. 1910, d. 11.8. 2013, húsmóðir. Dætur Margrétar og Magnúsar eru: 1) Helga Kristín, f. 29.5. 1957, svæfingalæknir, gift Þorleifi Stef- ánssyni, f. 4.9. 1955, sjúkraþjálfara. Sonur þeirra er Stefán Grétar véla- verkfræðingur, kona hans er Mar- ina Ravn og eiga þau Bastían, Júlíus og Silju. Fyrir átti Helga Selmu, f. 14.3. 1974, með Ara Hilmarssyni, bónda á Þverá í Eyjafjarðarsveit. Selma eignaðist tvær dætur, Mar- gréti Tinnu, f. 9.5. 1991, d. 14.10. 2002, og Sögu Marie Petersson, f. 24.7. 2001; 2) Hulda Björk, f. 10.8. 1959, búsett á Akureyri. Systkini Margrétar: 1) Auður Kristinsdóttir, f. 5.7. 1932, d. 20.5. 1990, hjúkrunarfræðingur; 2) Vil- hjálmur Bessi Kristinsson, f. 2.11. 1943, fyrrverandi sjómaður, búsett- ur á Húsavík; 3) Einar Karl Krist- insson, f. 15.4. 1947, rafvirkjameist- ari, búsettur í Kópavogi. Foreldrar Margrétar voru hjónin Helga Jónsdóttir, f. 17.11. 1905, d. 3.2. 1964, húsmóðir, og Kristinn Vil- hjálmsson, f. 29.11. 1904, d. 1.12. 1991 verkamaður. Þau voru búsett í Kópavogi og Reykjavík. Margrét Sigríður Kristinsdóttir Páll Sigurðsson bóndi á Hóli, f. þar Kristín Hákonardóttir húsfreyja á Hóli í Önundarfirði, f. á Kirkjubóli í Korpudal Vilhjálmur Bessi Pálsson bóndi í Tungu Margrét Jónsdóttir húsmóðir í Tungu í Skutulsfirði Kristinn Vilhjálmsson verkamaður í Reykjavík og Kópavogi Jón Ólafsson bóndi á Króki og í Tungu, f. á Króki Sigríður Halldórsdóttir húsmóðir á Króki á Rauðasandi og í Tungu, f. á Gili í Bolungarvík Þórarinn Jónsson bóndi í Sigluvík, f. í Sigluvík Sigurveig Jónsdóttir húsmóðir og ljósmóðir í Sigluvík á Svalbarðsströnd, f. í Hörgsdal á Mývatnsheiði Jón Þórarinsson bóndi, síðast í Hvammi Helga Kristjánsdóttir húsmóðir, síðast í Hvammi í Dýrafirði Kristján Friðgeir Guðmundsson bóndi á Végeirsstöðum, f. í Fjósatungu Lísbet Kristbjörg Bessadóttir húsmóðir á Végeirsstöðum í Fnjóskadal, f. í Skógum í Fnjóskadal Ætt Margrétar Kristinsdóttur Helga Jónsdóttir húsmóðir í Reykjavík og Kópavogi Hallmundur Kristinsson fær ekki orða bundist á Boðn- armiði: „Þessar limrur!“ Hér litum við stórvaxinn strump standa með hendur á gump, hjá konu á krá. Þá kom honum frá hávært og hljómfagurt prump. Enn segir Hallmundur: „Ussu- suss“: Tæpast við röðunum riðlum. Til rasískra atkvæða biðlum. Við elskum þau öll, álfa og tröll. Svart er á samfélagsmiðlum. Eyjólfur Ó. Eyjólfsson yrkir: Hrókurinn frár er á fæti og fer um með hávaðalæti en oft hef ég séð örlítið peð sem endar í drottningarsæti. Friðrik Steingrímsson orti á mið- vikudag: Það er engin þíða hér þagnað fugla skvaldur, hríðarmugga úti er, andskoti er hann kaldur. Jón Atli Játvarðarson skrifar: „Hjá sumum aukast vandræðin, ef eitthvað er, þegar reynt er að stíga fast til jarðar. Ættað úr svarfærslu, þar sem vandræði Sigurðar Inga voru tíunduð“: Skrautféð mitt ég skondið lít, skapheit „Svört“ og þrá. Lilja rekst sem rollan hvít og reynir að sleppa frá. Reinhold Richter yrkir við fallega mynd: Spóinn er kominn sprækur að vanda sporléttur jagar á háum legg. Hef ég oft fundið hér út’á Granda hreiðurbolla með dröfnótt egg. Eggert J. Levy segir „Enda gott“: Blessað vorið blíðkar allt bræðir allan klaka okkur verður ekki kalt enda gott að vaka. Guðmundur Arnfinnsson orti á sunnudag: Bjartsýnisvísa Nú vaknar allt að liðnum löngum vetri. Ljósið glæðir viljastyrk og þor og rekur burtu sorg úr sálartetri. Sólin skín og það er komið vor. Hallmundur Kristinsson yrkir: Mygluvandamál Hjá okkur margt er myglað. Mörg eru í gangi plott. Kunningjum hér er hyglað svo hafi það nógu gott. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af strumpum og hrókum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.