Morgunblaðið - 06.05.2022, Page 21

Morgunblaðið - 06.05.2022, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2022 ✝ Helgi Sigurðs- son, bakara- meistari og einka- þjálfari, fæddist á Húsavík 11. nóv- ember 1960. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 23. apríl 2022. Foreldrar hans voru Sigurður J. Jónsson, f. 14. maí 1939, og kona hans Þuríður Hallgrímsdóttir, f. 17. mars 1942. Systkini Helga voru: Hall- grímur Jón, f, 1958, Sigurður Gunnar, f. 1963, Steingrímur Kristinn, f, 1964, d. 2012, Lilja, f. 1974, Ruth, f. 1975. Helgi var kvæntur Elsu Guð- björgu Borgarsdóttur, þau skildu. Börn þeirra: Birkir Þór, f. 15. september 1987, Linda Þuríður, f. 23. nóvember 1989, maki: Ingvar Leví Gunnarsson, f. 25. maí 1989, dóttir þeirra er Salka, f. 28. október 2016, Sig- urður Atli, f. 17. febrúar 1992. Fyrrverandi sambýliskona og barnsmóðir Helga var Nanna Björns- dóttir. Sonur þeirra er Elmar Leó, f. 25. júlí 2011. Helgi ólst upp á Húsavík í stórum systkinahóp á Rauða torginu svokallaða. Hann lærði ungur bakaraiðn í Brauðgerð Kaupfélags Þing- eyinga og starfaði við iðn sína. Hann og Elsa Guðbjörg keyptu brauðgerðina af KÞ og ráku hana í mörg ár. 2005 selja þau og Helgi flytur til Reykjavíkur og hefur nám í einkaþjálfun sem hann starfaði lengi við. Síðustu ár starfaði hann sem bakari hjá Gæðabakstri. Útför Helga fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 6. maí 2022, kl. 14. Helgi Sigurðsson var einka- þjálfari minn í nokkur ár í Laug- um. Hann reyndist mér afar vel. Hann trúði því að kraftar okkar næðu saman og þjálfaði mig eins og ég hefði fullt þrek í öllum lík- amanum þrátt fyrir að vera löm- uð neðan mittis. Hann bar mig á milli tækja og blés mér í brjóst kjarki, hugrekki og trú á sjálfa mig og að ég gæti allt. Vegna þessa mun ég ávallt minnast hans með hlýhug. Helgi bauð mér stundum með sér á fitnessmót þar sem hann var keppandi. Í góðu veðri á sumrin æfðum við oft þrek- keyrslu á hjólastólnum útivið og fórum í göngutúra í Laugardaln- um. Þá ræddum við lífið frá mörgum sjónarhornum. Helgi var glæsilegur á velli, viðmótsþýður og þægilegur í um- gengni. Hann var glaðlyndur og skemmtilegur og ég kynntist mörgum sem æfðu sig í Laugum í gegnum hann. Ég saknaði Helga sárt þegar hann hvarf frá Laug- um. Minningin um góðan vin mun lifa í huga mínum. Hrafnhildur Thoroddsen. Helgi Sigurðsson ✝ Edda Frið- geirsdóttir Kinchin fæddist í Hnífsdal 15. júní 1938. Hún lést 25. apríl 2022. Foreldrar henn- ar voru Friðgeir Júlíusson, f. 3. júlí 1903, frá Snæfjalla- strönd og Finney Kjartansdóttir, f. 30. desember 1909, frá Aðalvík. Þau giftu sig 1933. Systir Eddu er Sigurborg, f. 18. júlí 1935. Edda bjó í Hnífsdal til fimm ára aldurs en fjölskyldan fluttist þá til Ísafjarðar þar sem hún bjó til 12 ára aldurs, þá fluttu þau til Keflavíkur þar sem Friðgeir fékk starf hjá Varnarliðinu. Þegar Edda er 15 ára flytja þau til Reykjavíkur. Edda kynntist Eric Kinchin, eftirlifandi eiginmanni, f. 8. des- ember 1943, árið 1966 á Spáni. Þau giftu sig 1. apríl 1967 í Nes- kirkju í Reykjavík. Skömmu síð- ur fluttu þau til Leeds á Eng- landi, en Eric er frá Leeds. Börn þeirra eru: Karen Linda Eiríks- dóttir, f. 25. nóvember 1969, maki Árni Jensen, og Geir Wal- ter Kinchin, f. 3. júlí 1973, maki Ey- dís S. Ástráðsdótt- ir. Á þessum árum bjuggu þau ýmist á Englandi eða á Ís- landi en fluttust til Íslands endanlega 1975 eftir andlát Friðgeirs árið áður. Edda og Eric áttu heima lengst af í Sólheimum í Reykjavík en svo keyptu þau sér hús í Njörva- sundi. Síðustu ár áttu þau heima í Sjálandinu í Garðabæ. Edda var fagurkeri og lærði snyrtifræði á yngri árum. Lífsstarf hennar var hins veg- ar sem símadama hjá Pósti og síma og síðar varðstjóri hjá Tal- sambandi við útlönd. Hún lærði á píanó sem barn og unglingur og tónlist skipaði ávallt mikinn sess í lífi hennar. Hjónin höfðu gaman af ferða- lögum og ferðuðust vítt og breitt síðari ár. Þau áttu eitt barnabarn, Söndru Sif Árnadóttur, f. 2010. Útförin fer fram frá Langholts- kirkju í dag, 6. maí 2022, klukk- an 13. Það er þyngra en tárum taki að sitja hér og skrifa minningar- grein um elsku frænku sem nú hefur kvatt þennan heim. Mamma og Edda voru ekki bara systur, þær voru nánar og góðar vinkonur alla tíð, varla leið sá dagur sem þær hittust ekki eða hringdu hvor í aðra ásamt því að vinna saman hjá Talsambandi við útlönd. Mikill samgangur var á milli þeirra systra og gaman að koma í heimsókn til Eddu og Erics bæði hér á Íslandi og einnig var ég svo heppin að heimsækja þau líka nokkrum sinnum til Leeds þar sem þau áttu sér annað heimili. Þar átti ég með þeim frábæran tíma, þau sýndu mér sveitirnar í kring og enduðum við að sjálf- sögðu í mat á Lord Darcy, sem var þeirra hverfispöbb. Ófáum stundum eyddum við líka saman í sumarbústaðnum sem þær systur eiga á Þingvöll- um þar sem við höfum átt frá- bærar stundir gegnum árin. Edda fylgdist vel með okkur fjölskyldunni og hringdi alltaf reglulega til að spjalla og fá frétt- ir af okkur. Það verður skrýtið að fá ekki fleiri símtöl frá þér. Í hjarta mínu geymi ég falleg- ar minningar um yndislega frænku. Sara Finney. Edda Friðgeirs- dóttir Kinchin ✝ Herdís Ein- arsdóttir fædd- ist á Hólmavík 18. júní 1943. Hún lést á sjúkrahúsinu á Blönduósi 27. apríl 2022. Hún var dóttir hjónanna Einars Guðmundssonar, f. 1893, og Daviu J Niclasen, f. 1910. Bræður hennar eru Jóhannes Harrý, f. 1936, og Guðmundur Sandberg, f. 1933, d. 1974. Guðmundur giftist Þórdísi Guðmundsdóttur, f. 1936, d. 1960, þau eignuðust þrjú börn: Stefaníu Hrönn, f. 1956, Bryndísi Bylgju, f. 1959, Sveinbjörgu Snekkju, f. 1973. Nökkvi giftist Írisi Gísladótt- ur og eiga þau þrjú börn, þau eru Yrsa Líf, f. 1993, Darri Snær, f. 1996, og Fáfnir Freyr, f. 2004. Ari Knörr giftist Sæunni Hrönn Jóhannesdóttur, f. 1972, þau slitu samvistum. Seinni kona Ara er Berglind Fanndal Káradóttir, f. 1977. Þau eiga tvö börn, Axel Fanndal, f. 2013, og Snekkju Fanndal, f. 2016. Snekkja giftist Hjalta Kristjáns- syni og eiga þau synina Almar Knörr, f. 1997, Steinar Daða, f. 2002, og Þórð Inga, f. 2005. Herdís bjó nær alla sína tíð á Blönduósi og að loknu námi við kvennaskólann á Blönduósi starfaði hún við umönnun á sjúkrahúsinu. Útför Herdísar fer fram frá Blönduóskirkju í dag, 6. maí 2022, klukkan 14. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat og Einar Guð- mundsson, f. 1960. Seinni kona hans var Hrafn- hildur Reyn- isdóttir, f. 1943. Þau eignuðust dótturina Þórdísi, f. 1967. Jóhannes Harrý giftist Kristínu El- ísabet Hólm, f. 1940. Þau eign- uðust börnin Erling, f. 1963, Kristínu, f. 1970, og Davíð, f. 1970. Herdís Einarsdóttir giftist Jóhannesi Þórðarsyni og þau eignuðust börnin Nökkva, f. 1964, Ara Knörr, f. 1973, og Herdís tengdamóðir hefur nú kvatt okkur og eftir sitja minn- ingar um góða konu sem vildi öllum vel. Mér verður hugsað til þess hversu vel hún tók á móti mér þegar við Snekkja vorum að byrja saman og reyndar var nánast sama hvað ég hef tekið mér fyrir hendur í gegn um tíðina, alltaf tók hún vel í það og sagði jafnan „þetta var gott hjá þér“. Það var gef- andi að aðstoða hana, því hún var alltaf svo þakklát fyrir það sem var gert. Herdís var einstaklega góð við barnabörnin sín og bar hag þeirra fyrir brjósti. Hún var mjög stolt af þeim öllum og keyrði landshorna á milli til að hitta þau og taka þátt í við- burðum ef svo bar undir. Takk fyrir samfylgdina elsku Herdís, þín er sárt saknað. Þinn tengdasonur, Hjalti. Þeim fækkar nágrönnum mínum sem voru hér í nágrenn- inu 1972, þegar við Gestur fluttum á Urðarbrautina með tvö elstu börnin. Nú er það Herdís. Við höfum búið hvor á móti annarri í 50 ár. Verið sam- an í saumaklúbbi, lánað hvor annarri eitthvað sem bráðvant- aði þá stundina. Skriðum í görðum okkar á sumrin og sáum hvor til annarrar. En nú í vor vantaði Herdísi. Herdís var hög í höndunum, prjónaði, hekl- aði og bróderaði, mjög vandvirk og gerði margt fallegt og heim- ili hennar og Jóa bar þess merki og garðurinn. Herdís var prúð, hógvær og nægjusöm, en hafði sínar skoðanir. Herdís reyndist mér og mín- um einstaklega vel í erfiðleikum sem bar að dyrum í mínu lífi. Herdís gekk ekki heil til skógar hin síðari ár. Herdís mín, ég þakka þér samfylgdina og ná- grennið öll þessi ár. Njótir þú blessunar í nýjum víddum í andans heimi. Kærleiks- og saknaðarkveðjur. Jói, Nökkvi, Ari Knörr og Snekkja og fjöl- skyldur, þið eigið samúð mína og njótið þið blessunar að tak- ast á við lífið án hennar. Ragnhildur. Mig langar að skrifa nokkur orð um hana Herdísi. Helst kemur í hug mér þakklæti. Hún var frábær og heilsteypt per- sóna sem lét sér fátt fyrir brjósti brenna. Við kynntumst nokkuð vel á síðustu öld og nokkuð fram á þessa. En þrátt fyrir að ég væri ekki lengur inn á gafli hjá þeim hjónum á Urð- arbrautinni var ég velkomin á dyraþrepið hvenær sem var. Og fyrstu orðin voru ávallt: „Gam- an að sjá þig, ég helli upp á kaffi.“ Það lýsir hlýhug sem Herdís átti ætið nóg af. Alltaf til í að hlusta á amstur hvers- dagsleikans sem og litlu sigr- ana í lífi manns. Gott dæmi um umhyggju hennar eru lopapeys- ur og færeyskir sokkar sem hún prjónaði á mig endalaust! Síðast húfu, sem ég mun nú geyma sem fjársjóð ásamt ynd- islegum minningum um vináttu okkar. Ég sendi hlýhugarkveðj- ur til aðstandenda Herdísar; sérstaklega Jóa, Nökkva, Snekkju, Ara og fjölskyldna, missirinn er mikill. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Sæunn Hrönn. Herdís Einarsdóttir Skólastjóri, prestur, söngstjóri, fræðimaður, kenn- ari, mannvinur og skáld hefur kvatt jarðlífið á 99. aldursári. Margir munu minnast hans sem kórstjóra og mikils hæfileikamanns á því sviði. Jón gaf út tvær ljóðabækur: Úr þagn- ardjúpum og Dreifar. Trúarljóð og sálmar. Jóni kynntist ég fyrst sem nemandi við Hlíðardalsskóla í Ölfusi 1958, þá á fermingarári. Af honum geislaði við fyrstu kynni þegar hann gekk um skóla- stofuna, heilsaði hverjum nem- anda með handabandi og glað- værð, spjallaði stutta stund og mundi svo nafn nýju nemendanna eftir það. Enn er mér ljóslifandi fyrsta kennslustund hans í krist- infræði við skólann, kjarni máls- ins reifaður sem var einkenni Jóns í öllum hans málum. Þátt- urinn sem skilur kristnina frá öll- um öðrum trúarbrögðum og vangaveltum um upphaf jarðlífs. Nekt manna, hvað veldur að að- eins maðurinn þarf að skýla nekt sinni? Hver getur gengið nakinn um án nokkurrar blygðunar? Litlu börnin. Aðeins kristindóm- urinn einn hefur þau svör. Á þessum árum voru kynferðismál ekki í hávegum höfð og lítt rædd, því stóð bekkurinn agndofa sem vænta mátti undir slíkum fyrir- lestri, en rökhyggjan var farin af stað. Hugsið og hugsið sjálfstætt var kenniorð og hvatning Jóns til nemenda sinna, til að mynda per- sónu sína og viðhorf. Þar fór trú- maður sem kenndi af mikilli íhug- un, rökhyggju og sannfæringu, tilbúinn að miðla af þekkingu sinni hvenær sem var utan sem innan skólatíma í starfi og leik. Jón Hjörleifur Jónsson ✝ Jón Hjörleifur Jónsson fædd- ist 27. október 1923. Hann lést 19. apríl 2022. Jón Hjörleifur var jarðsunginn 2. maí 2022. Ekki hafði ég dvalið lengi á Hlíðardals- skóla þegar mér var ljóst hve umhyggja kennara og alls starfsfólks skólans var mikil við nem- endurna. Heima- vistarskólar voru starfandi víða um land um miðja síð- ustu öld, aðsókn að Hlíðardalsskóla var meiri en hann gat tekið við en alltaf reynt að sinna sem flestum umsóknum. Ástæður umsókn- anna voru margar og misjafnar, sem hinn almenni nemandi vissi lítið um, en viðmót Jóns til nem- endanna og hlýja urðu oft til þess að einstaklingarnir leituðu til hans með sín innstu hugðarmál, alltaf hafði Jón tíma, oft var um erfiðan heimilisvanda eða sorg að ræða og unglingurinn sem kom- inn var til vits og ára látinn fara af heimilinu í heimavist eins og það var orðað. Þótt við minnumst Jóns sem söngstjóra, skálds o.fl., þá var hann sterkastur á svellinu í þessum einkasamræðum með guði og bæn sinni og lét ekki þar við sitja heldur heimsótti foreldr- ana líka til að ræða málin, oft með mjög góðum árangri. Hversu mörgum heimilisaðstæðum og hjónaböndum var bjargað með þessum heimsóknum var ekki talið, enda ekki í hans anda að vilja það, árangurinn einn var það sem máli skipti. Jón Hjörleif- ur hefur kvatt vort jarðlíf. Hann kom og kenndi, skildi eftir minn- ingu sem aldrei hverfur úr huga þeirra sem nutu þeirrar gæfu að kynnast honum. Stórmenni sem lét kærleikann og umhyggju til annarra stýra sínu lífi án nokk- urs endurgjalds. Minning hans er blessuð. Maður sem kom og er hér enn og aldrei fer. Hinsta kveðja með hjartans þökk fyrir allt og allt. Samúðarkveðjur til barna og tengdabarna. Ólafur Jóhannsson. Vinur, kennari, prestur og fyr- irmynd er fallinn í valinn. Jón Hjörleifur Jónsson hefur verið snar þáttur í lífi okkar. Um dag- inn sá ég hópmynd frá 1952 þar sem hópur nemenda og kennara Hlíðardalsskólans standa á aðal- tröppunum og ég, þriggja ára snáði, held í höndina á Jóni. Þarna standa einnig systkini mín, Harrí og Sonja, sem einnig minn- ast Jóns með þessum orðum. Það var gott að vera nálægt Jóni. Þau ykkar sem þekktu hann vitna með okkur að hann smitaði já- kvæðri orku og gleði. Þegar hann heilsaði fannst manni að maður væri mikilvægur í hans augum. Þegar hann stjórnaði kór öðlaðist maður trú á sjálfum sér og fékk á tilfinninguna að maður gæti sungið! Við hjónin og börnin okkar tvö eigum góðar minningar frá Afr- íku þegar við og Harrí og Sun- nuva og þeirra tvö börn ókum 2.500 km leið frá Síerra Leóne til Kúmasi í Gana til að heimsækja Jón og Sólveigu og dóttur þeirra Kolbrúnu Sif. Jón starfaði þar sem biblíukennari á Bekwai-skól- anum. Einnig heimsótti Jón okk- ur á Masanga-holdsveikisjúkra- húsið þar sem við störfuðum. Þar voru sungin íslensk ættjarðarlög hálfa nóttina! Jón starfaði sem prestur og æskulýðsleiðtogi og vann á vett- vangi heilbrigðismála svo nokkuð sé nefnt, en það starf sem átti hug Jóns hvað mestan um ævina var skólastarfið. Þjónusta Jóns í Hlíðardals- skóla sem kennari og síðar skóla- stjóri fyllir hartnær helming starfsævi hans. Í raun má segja að blað hafi verið brotið í skóla- málum á Íslandi með tilkomu Hlíðardalsskóla þar sem skóla- stefna aðventista var í hávegum höfð. Um tíma fór Jón um landið og hélt námskeið gegn reykingum, Sjö daga áætlunina svokölluðu, og þar vann hann brautryðjenda- starf. Mörg hundruð manns tóku þátt og mörgum tókst að sigrast á reykingum. En sá þáttur í lífi og starfi Jóns sem hvað mest blessaði okkur öll var ást hans á sönglist- inni. Jón söng sig inn í hjörtu ótal margra með sinni einstöku ten- órrödd og sinni kórstjórn. Hver gleymir því þegar Jón, við undir- leik Sólveigar, söng Borgina helgu á níræðisafmæli sínu með miklum bravúr? Sem söngmála- stjóri og kórstjóri þjónaði hann kirkjunni um langt árabil af stakri prýði í samstarfi við Sól- veigu. Ekki má láta undir höfuð leggjast að nefna ljóðagerð Jóns. Hann frumorti eða þýddi fjöldann allan af sálmum og ljóð- um og eftir hann hafa komið út tvö ljóðasöfn sem börn hans og tengdabörn sáu um af miklum myndarskap. Útgáfa sálmabókar aðventkirkjunnar 1992 hefði ekki orðið að veruleika ef hans hefði ekki notið við. Úr afskekktri sveit við strend- ur Norður-Íshafs kom þessi ungi maður gæddur einstökum hæfi- leikum. Snaggaralegur hug- sjónamaður, atorkumaður búinn óbugandi dugnaði og dirfsku. Sem ungur dreymdi hann stóra drauma, drauma sem rættust. Við kveðjum Jón Hjörleif með innilegri þökk fyrir persónulega vináttu og fyrir allt það sem hann hefur verið okkur á svo ótal marga vegu. Innilegustu samúð- arkveðjur til ástvinanna sem eft- ir lifa og syrgja góðan dreng en eru þó fullviss um upprisu og endurfundi á efsta degi. Eric, Sonja, Harrí og fjölskyldur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.