Morgunblaðið - 17.05.2022, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 7. M A Í 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 114. tölublað . 110. árgangur .
HEIMILDARMYND
UM SÖRU MIKIL
HVATNING FARALDUR, PLÁGA, INNI-
LOKUN OG ÞUNGLYNDI
FLOTTIR BÍLAR
VERÐA ENN
FLOTTARI
SVARTHOL MOSSA 28 BÍLAR 8 SÍÐURÁ LEIÐ FRÁ LYON 2 OG 26
Einar talar við alla flokka
- Meirihlutaþreifingar í Reykjavík - Valdahlutföll og borgarstjórastóll til um-
ræðu hjá oddvitunum - Dagur fundaði með oddvitum Pírata og Viðreisnar
gamli var fallinn. Þau símtöl áttu eft-
ir að verða fleiri.
Á sunnudag náðu oddvitar að
ræða stuttlega saman í kringum fjöl-
miðlaviðtöl, en einnig fréttist af Ein-
ari í bílferðum með oddvitum ann-
arra flokka, þar sem þreifingar
hófust. Sjálfur segist hann nálgast
verkefnið með opnum huga og að
hann ræði við alla flokka.
Í gær átti Einar stundar langan
fund með Hildi Björnsdóttur, odd-
vita sjálfstæðismanna, og annan eins
með Degi B. Eggertssyni síðar.
Oddvitar hinna flokkanna sátu
ekki auðum höndum þess á milli.
Dagur og oddvitar Pírata og Við-
reisnar funduðu einnig í gær, en
Hildur Björnsdóttir er sögð hafa
rætt við flesta oddvita í borgarstjórn
nema Dag, þótt varla hafi meiri-
hlutasamstarf borið þar á góma.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Einari Þorsteinssyni barst fyrsta
símtalið frá öðrum flokki í borgar-
stjórn þegar á kosninganótt. Það olli
hins vegar vandræðum að starfs-
mönnum Framsóknarflokksins gekk
erfiðlega að finna frambjóðandann
til þess að taka við fyrsta tilboðinu
um samræður til þess að mynda nýj-
an meirihluta í Reykjavík eftir að sá
Meirihlutaviðræður
» Einar Þorsteinsson segist
nálgast meirihlutamyndun
með opnum huga.
» Hildur Björnsdóttir er sögð
hafa rætt við nær alla oddvita
aðra nema Dag.
MKvölin og völin … »14
Það var nokkuð um að vera á Reykjavík-
urflugvelli í gær, þar sem malbikað var á ann-
arri af tveimur flugbrautum vallarins.
Rúm 20 ár eru síðan flugbrautirnar voru mal-
bikaðar síðast, en meginreglan er sú að ein heil
flugbraut sé nothæf meðan hin er malbikuð.
Samkvæmt upplýsingum frá Isavia innan-
landsflugvöllum munu framkvæmdirnar standa
eitthvað áfram inn í maímánuð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýtt malbik lagt á flugbrautir
Framkvæmdir á Reykjavíkurflugvelli
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, há-
skóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráð-
herra, segir það skjóta skökku við að
ríkið verji um 30 milljörðum króna
árlega í stuðning við íslensk nýsköp-
unarfyrirtæki, en nýti síðan ekki þær
lausnir sem fyrirtækin bjóða upp á
eða framleiða. Þannig nefnir hún sér-
staklega Kerecis, sem um árabil hef-
ur þróað lækningavörur og sára-
umbúðir úr fiskroði og væri nú að
velta milljörðum vegna viðskipta við
erlendar heilbrigðisstofnanir, heri og
fleiri aðila en ekki íslenskar heilbrigð-
isstofnanir.
Áslaug Arna kynnti í gær áherslur
nýs ráðuneytis í upphafi Nýsköp-
unarviku fyrir fullum sal í Grósku.
Þar sagði hún að íslenskt atvinnulíf
og tilteknar greinar þess þekktu það
vel að verða fyrir áföllum vegna afla-
brests, náttúruhamfara, heimfarald-
urs eða af öðrum ástæðum. Því þyrfti
að fjölga stoðum atvinnulífsins og það
yrði gert með því að efla mikil-
vægustu auðlindina, hugvitið.
„[...] aðalatriðið er að við hættum
að byggja nánast alfarið á takmörk-
uðum auðlindum sem háðar eru
utanaðkomandi aðstæðum og
sveiflum,“ sagði hún. »12
Hugvitið
verði stór
burðarstoð
- Vill efla nýsköpun
í heilbrigðiskerfinu
Ljósmynd/Cat Gundry-Beck
Kynning Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir kynnti áherslur nýs ráðuneytis.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Nú er minna um fólk sem er laust
í vinnu en áður og það er keppt um
þá sem eru lausir. Við vitum til
þess að fyrirtæki hafa verið að
bjóða laun umfram taxta til að
sannfæra fólk um að koma,“ segir
Aron Pálsson, hótelstjóri á Hótel
Kea og Sigló hóteli, um ráðningar
starfsfólks fyrir sumarið.
Búist er við miklum fjölda ferða-
manna hingað til lands og víða er
orðið þéttbókað á gististöðum.
Ýmsar hindranir eru í veginum
þegar kemur að starfsmanna-
málum, til að mynda húsnæðis-
vandi, en viðmælendur Morgun-
blaðsins eru engu að síður bjart-
sýnir fyrir sumarið.
„Þetta hefur verið þungt og
gengið hægt að manna en mér
heyrist að flestir séu að verða búnir
að klára þessi mál fyrir sumarið,“
segir Arnheiður Jóhannsdóttir,
framkvæmdastjóri Markaðsstofu
Norðurlands.
„Við fáum starfsfólk frá Spáni,
Ungverjalandi, Póllandi, Króatíu og
Bretlandi auk Íslendinga,“ segir
Sveinn Sigurðsson, einn eigenda
Smiðjunnar brugghúss í Vík í
Mýrdal. »4
Keppast um fólkið sem er á lausu
- Áskoranir mæta fyrirtækjum í
ferðaþjónustu við ráðningar í sumar
Morgunblaðið/Eggert
Þingvellir Ferðamenn eru farnir að streyma til landsins. Ágætlega hefur
gengið að manna stöður í ferðaþjónustunni fyrir annasamt sumar.
_ „Íslendingar sofa jafn lengi og
þjóðirnar í kring, en okkar sérstaða
er hvað við förum seint að sofa og
vöknum seint,“ segir Bryndís Bene-
diktsdóttir, prófessor við læknadeild
Háskóla Íslands.
Hún segir að ekki hafi verið sýnt
fram á að stuttur eða langur svefn
orsaki sjúkdóma og varasamt sé að
senda þau skilaboð út í þjóðfélagið
að fólk sofi ekki nóg og að heilsa
þess sé í hættu. „Fólk verður skít-
hrætt og fer kannski upp í rúm allt
of snemma þar sem það liggur vak-
andi og fer í framhaldi til læknis og
segist verða að fá svefnlyf,“ segir
Bryndís. „Fólk leitar meira og meira
í heilbrigðiskerfið af því það er svo
hrætt um að það sofi ekki nóg, að
það komi niður á heilsu þess. Þetta
er sjúkdómsvæðing.“ »10
Svefnleysi ekki
sjúkdómsvaldur