Morgunblaðið - 17.05.2022, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2022
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Fram er komin upptaka sem hefur
að geyma fjarskipti milli eldflauga-
beitiskipsins Moskvu og rússnesks
dráttarbáts sem sendur var herskip-
inu til aðstoðar eftir eldflaugaárás
Úkraínumanna í apríl síðastliðnum.
Er þar óskað eftir tafarlausri að-
stoð, skipið sagt alvarlega skemmt
og að ekki sé hægt að ná neinu sam-
bandi við þá sem starfa í brú skips-
ins. Í bakgrunni hringir í háværum
neyðarbjöllum skipsins.
„Dráttarbátur, heyrir þú í mér?
Skipti,“ segir ónafngreindur sjóliði
um borð í Moskvu. „Tvö göt fyrir
neðan sjólínu. [Skipið er] byrjað að
halla. Ég endurtek, það er byrjað að
halla. Ekkert samband næst við
brúna. Þar er bara þögn. Hallinn
mælist 30 gráður. Það er að fara á
hliðina,“ heldur sjóliðinn áfram og
bætir við að Moskva sé orðin vél-
arvana. „Við getum ekki haldið
áfram. Reynum að koma áhöfn frá
borði.“
Þessi upptaka þykir staðfesta
fyrri fullyrðingu Úkraínumanna
þess efnis að hersveitir þeirra hafi
skotið tveimur skipaflaugum á eld-
flaugabeitiskipið. Moskvuvaldið hef-
ur til þessa ekki viljað viðurkenna
það, segir Svartahafsflotaflaggskip-
ið hafa laskast eftir óútskýrða
sprengingu í vopnageymslum skips-
ins og sokkið í kjölfar þess. Þá þykir
upptakan einnig renna stoðum undir
þá kenningu að brú skipsins hafi
snemma verið tekin út og að áhöfnin
hafi yfirgefið Moskvu í miklum flýti.
Vilja ekki jarðneskar leifar
Einkennileg staða er nú komin
upp í Kænugarði í norðurhluta
Úkraínu. Þar hafa að undanförnu lík
hundraða rússneskra hermanna
safnast upp því Moskvuvaldið hefur
ekki samþykkt að taka við þeim.
Þess í stað hafa Úkraínumenn þurft
að safna líkunum saman og geyma
þau í kælivögnum á lestarstöð við
höfuðborgina. Ofursti í Úkraínuher
segir ljóst að ekki sé hægt að geyma
líkin við þessar aðstæður til lengdar.
Vilji Rússar ekki taka við þeim
neyðast Úkraínumenn til að brenna
þau. Sama staða mun vera komin
upp víða í Úkraínu. Eru þannig lík
þúsunda rússneskra hermanna sögð
geymd í kælivögnum.
Varaforsætisráðherra Úkraínu,
Iryna Vereshchuk, sér um viðræður
við Rússa um skipti á stríðsföngum.
Hún segir Moskvuvaldið ekki hafa
nokkurn áhuga á jarðneskum leifum
hermanna sinna, nenni ekki að ræða
viðfangsefnið. „Líklegast telja þeir
lík fallinna hermanna Rússlands
ekki eiga skilið að snúa heim aftur
til greftrunar,“ segir hún.
Taka áhættu vegna þrýstings
Varnarmálaráðuneyti Bretlands
segir augljóst að Moskvuvaldið beiti
herstjórn innrásarliðsins í austur-
hluta Úkraínu miklum þrýstingi.
Hávær krafa sé um stóra sigra án
tafar. Þessi þrýstingur hefur orðið
þess valdandi að herforingjar leggja
sumir allt undir með skelfilegum af-
leiðingum fyrir herinn. Nýlegt dæmi
um slíkt er þegar heilt herfylki var
þurrkað út með stórskotaliði þegar
það gerði tilraun til að brúa á.
Hundruð hermanna féllu í valinn.
AFP
Flaggskip Moskva sést hér við Sevastopol árið 2011, hvar það tók þátt í hersýningu. Skipið sökk eftir vopnuð átök.
„Tvö göt fyrir neðan sjólínu“
- Upptaka af fjarskiptum milli Moskvu og dráttarbáts staðfestir eldflaugaárás Úkraínu - Áhöfn náði
ekki sambandi við brú eldflaugabeitiskipsins - Lík þúsunda rússneskra hermanna geymd í kælum
Hópur indveskra bænda tók þátt í
helgiathöfn í borginni Ranchi í gær
vegna hinnar árlegu Manda-
hátíðar. Lágu bændurnir á bakinu
með staf í hendi og biðu þess að
æðstiprestur musteris Shiva veitti
þeim blessun sína. Er tilgangur
þessarar hátíðar að tryggja bænd-
um góða uppskeru og nægt regn-
vatn á hlýjasta og þurrasta árstím-
anum á Indlandi. Á athöfnin einnig
að veita bændunum góða heilsu.
Bændur biðu eftir blessun
AFP
Verið velkomin
í sjónmælingu
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14
Þín upplifun
skiptir okkur máli
Kringlan ... alltaf næg bílastæði
Borðabókanir á
www.finnssonbistro.is eða
info@finnssonbistro.is
Við tökum vel á móti þér
Fjölbreyttur og spennandi
matseðill þar sem allir
finna eitthvað við sitt hæfi
Skoðið matseðilinn á
finnssonbistro.is
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
sagði í gær að möguleg innganga
Svíþjóðar og Finnlands fæli ekki í
sér beina ógn við öryggi Rússlands.
Öðru máli gegndi þó ef Atlantshafs-
bandalagið myndi hefja uppbygg-
ingu vígbúnaðar í löndunum tveim-
ur, til dæmis en það myndi kalla á
svar frá Rússum.
Pútín gagnrýndi hins vegar „sí-
vaxandi útþenslustefnu“ Atlants-
hafsbandalagsins og sakaði hann
bandalagið um að vera verkfæri
Bandaríkjanna.
Vöktu ummæli
Pútíns athygli,
þar sem þau þóttu
mun hófsamari en
yfirlýsing Sergeis
Rjabkov, aðstoð-
arutanríkisráð-
herra Rússlands,
sem fordæmdi
ákvörðun Finnlands og Svíþjóðar og
sagði hana draga langan dilk á eftir
sér.
Recep Tayyip Erdogan Tyrk-
landsforseti lýsti því hins vegar yfir
að hann gæti ekki stutt inngöngu
Finnlands og Svíþjóðar í bandalagið,
og sagði hann bæði ríki styðja við
hryðjuverkastarfsemi Kúrda. Öll að-
ildarríki bandalagsins þurfa að sam-
þykkja umsókn til að ríki fái inn-
göngu.
Sagði Erdogan að erindrekar
ríkjanna ættu ekki að „ómaka sig“
með ferðalagi til Tyrklands til að fá
hann til að skipta um skoðun.
Ekki bein ógn við Rússland
- Erdogan leggst gegn umsóknum Svía og Finna
Vladimír Pútín