Morgunblaðið - 17.05.2022, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 17.05.2022, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2022 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Fram er komin upptaka sem hefur að geyma fjarskipti milli eldflauga- beitiskipsins Moskvu og rússnesks dráttarbáts sem sendur var herskip- inu til aðstoðar eftir eldflaugaárás Úkraínumanna í apríl síðastliðnum. Er þar óskað eftir tafarlausri að- stoð, skipið sagt alvarlega skemmt og að ekki sé hægt að ná neinu sam- bandi við þá sem starfa í brú skips- ins. Í bakgrunni hringir í háværum neyðarbjöllum skipsins. „Dráttarbátur, heyrir þú í mér? Skipti,“ segir ónafngreindur sjóliði um borð í Moskvu. „Tvö göt fyrir neðan sjólínu. [Skipið er] byrjað að halla. Ég endurtek, það er byrjað að halla. Ekkert samband næst við brúna. Þar er bara þögn. Hallinn mælist 30 gráður. Það er að fara á hliðina,“ heldur sjóliðinn áfram og bætir við að Moskva sé orðin vél- arvana. „Við getum ekki haldið áfram. Reynum að koma áhöfn frá borði.“ Þessi upptaka þykir staðfesta fyrri fullyrðingu Úkraínumanna þess efnis að hersveitir þeirra hafi skotið tveimur skipaflaugum á eld- flaugabeitiskipið. Moskvuvaldið hef- ur til þessa ekki viljað viðurkenna það, segir Svartahafsflotaflaggskip- ið hafa laskast eftir óútskýrða sprengingu í vopnageymslum skips- ins og sokkið í kjölfar þess. Þá þykir upptakan einnig renna stoðum undir þá kenningu að brú skipsins hafi snemma verið tekin út og að áhöfnin hafi yfirgefið Moskvu í miklum flýti. Vilja ekki jarðneskar leifar Einkennileg staða er nú komin upp í Kænugarði í norðurhluta Úkraínu. Þar hafa að undanförnu lík hundraða rússneskra hermanna safnast upp því Moskvuvaldið hefur ekki samþykkt að taka við þeim. Þess í stað hafa Úkraínumenn þurft að safna líkunum saman og geyma þau í kælivögnum á lestarstöð við höfuðborgina. Ofursti í Úkraínuher segir ljóst að ekki sé hægt að geyma líkin við þessar aðstæður til lengdar. Vilji Rússar ekki taka við þeim neyðast Úkraínumenn til að brenna þau. Sama staða mun vera komin upp víða í Úkraínu. Eru þannig lík þúsunda rússneskra hermanna sögð geymd í kælivögnum. Varaforsætisráðherra Úkraínu, Iryna Vereshchuk, sér um viðræður við Rússa um skipti á stríðsföngum. Hún segir Moskvuvaldið ekki hafa nokkurn áhuga á jarðneskum leifum hermanna sinna, nenni ekki að ræða viðfangsefnið. „Líklegast telja þeir lík fallinna hermanna Rússlands ekki eiga skilið að snúa heim aftur til greftrunar,“ segir hún. Taka áhættu vegna þrýstings Varnarmálaráðuneyti Bretlands segir augljóst að Moskvuvaldið beiti herstjórn innrásarliðsins í austur- hluta Úkraínu miklum þrýstingi. Hávær krafa sé um stóra sigra án tafar. Þessi þrýstingur hefur orðið þess valdandi að herforingjar leggja sumir allt undir með skelfilegum af- leiðingum fyrir herinn. Nýlegt dæmi um slíkt er þegar heilt herfylki var þurrkað út með stórskotaliði þegar það gerði tilraun til að brúa á. Hundruð hermanna féllu í valinn. AFP Flaggskip Moskva sést hér við Sevastopol árið 2011, hvar það tók þátt í hersýningu. Skipið sökk eftir vopnuð átök. „Tvö göt fyrir neðan sjólínu“ - Upptaka af fjarskiptum milli Moskvu og dráttarbáts staðfestir eldflaugaárás Úkraínu - Áhöfn náði ekki sambandi við brú eldflaugabeitiskipsins - Lík þúsunda rússneskra hermanna geymd í kælum Hópur indveskra bænda tók þátt í helgiathöfn í borginni Ranchi í gær vegna hinnar árlegu Manda- hátíðar. Lágu bændurnir á bakinu með staf í hendi og biðu þess að æðstiprestur musteris Shiva veitti þeim blessun sína. Er tilgangur þessarar hátíðar að tryggja bænd- um góða uppskeru og nægt regn- vatn á hlýjasta og þurrasta árstím- anum á Indlandi. Á athöfnin einnig að veita bændunum góða heilsu. Bændur biðu eftir blessun AFP Verið velkomin í sjónmælingu Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14 Þín upplifun skiptir okkur máli Kringlan ... alltaf næg bílastæði Borðabókanir á www.finnssonbistro.is eða info@finnssonbistro.is Við tökum vel á móti þér Fjölbreyttur og spennandi matseðill þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi Skoðið matseðilinn á finnssonbistro.is Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagði í gær að möguleg innganga Svíþjóðar og Finnlands fæli ekki í sér beina ógn við öryggi Rússlands. Öðru máli gegndi þó ef Atlantshafs- bandalagið myndi hefja uppbygg- ingu vígbúnaðar í löndunum tveim- ur, til dæmis en það myndi kalla á svar frá Rússum. Pútín gagnrýndi hins vegar „sí- vaxandi útþenslustefnu“ Atlants- hafsbandalagsins og sakaði hann bandalagið um að vera verkfæri Bandaríkjanna. Vöktu ummæli Pútíns athygli, þar sem þau þóttu mun hófsamari en yfirlýsing Sergeis Rjabkov, aðstoð- arutanríkisráð- herra Rússlands, sem fordæmdi ákvörðun Finnlands og Svíþjóðar og sagði hana draga langan dilk á eftir sér. Recep Tayyip Erdogan Tyrk- landsforseti lýsti því hins vegar yfir að hann gæti ekki stutt inngöngu Finnlands og Svíþjóðar í bandalagið, og sagði hann bæði ríki styðja við hryðjuverkastarfsemi Kúrda. Öll að- ildarríki bandalagsins þurfa að sam- þykkja umsókn til að ríki fái inn- göngu. Sagði Erdogan að erindrekar ríkjanna ættu ekki að „ómaka sig“ með ferðalagi til Tyrklands til að fá hann til að skipta um skoðun. Ekki bein ógn við Rússland - Erdogan leggst gegn umsóknum Svía og Finna Vladimír Pútín

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.