Morgunblaðið - 17.05.2022, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.05.2022, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2022 „Þetta á upphaf sitt í því að við hitt- umst nokkrir kollegar á Landspít- alanum og veltum fyrir okkur á hvaða leið umræðan um svefn meðal Íslend- inga væri. Maður opnar vart blað, hlustar á útvarp eða sjónvarp án þess að svefn sé þar til umfjöllunar og yf- irleitt er inntakið að Íslendingar sofi allt of stutt, börn og unglingar minnst og að þetta stefni heilsu landans í voða. Í þessari umræðu er látið að því liggja að stuttur svefn orsaki sjúk- dóma, sykursýki, hjartaáföll, heila- áföll og fleira,“ segir Bryndís Benediktsdóttir, prófessor við lækna- deild Háskóla Íslands, en hún skrifaði í framhaldinu yfirlitsgrein í Lækna- blaðið þar sem skoðaður er vísinda- legur grundvöllur þessara staðhæf- inga. „Þegar ég fór í gegnum vísinda- legar staðreyndir fengnar úr birtum ritrýndum greinum, þá kemur fram að svefn fullorðinna á Vesturlöndum hefur ekki styst og sofa þeir nú svip- að lengi og þeir hafa gert undanfarna áratugi. Svefn barna á Vesturlöndum hefur styst undanfarna öld en ekki þar með sagt að þau sofi ekki nóg. Á árunum 1905-2008 styttist svefn barna á Vesturlöndum um 0,75 mín. á ári. Við eigum eina íslenska langtíma- rannsókn sem náði yfir tíu ára tíma- bil, frá 1985 til 1995, en þar var sama fólki fylgt eftir í heilan áratug. Nið- urstaðan var að svefn fullorðinna Ís- lendinga styttist ekki á þeim áratug, en aftur á móti styttist svefn barna og unglinga um 15 mínútur á virkum dögum og um 20 mínútur um helgar. Við veltum fyrir okkur hvers vegna þessi stytting á svefni væri og kom- umst að því að það var vegna þess að börn og unglingar fóru fyrr á fætur. Á þessum árum voru þjóðfélags- breytingar, almennari þátttaka kvenna á vinnumarkaði, fleiri börn í leikskóla og skólinn varð einsetinn. Í samanburðarrannsóknum á seinni ár- um þar sem svefn Íslendinga, bæði fullorðinna og unglinga, hefur verið borinn saman við svefnvenjur íbúa annarra landa, er niðurstaðan alltaf sú sama. Íslendingar fara seint að sofa, vakna seinna en sofa jafn lengi og þær þjóðir sem þeir eru bornir saman við. Þessar seinu svefnvenjur eiga líklega rót sína að rekja til hnatt- stöðu landsins og staðsetningar í röngu tímabelti.“ Ekki heilagur sannleikur Bryndís segir að á undanförnum árum hafi Erlingur Jóhannsson, pró- fessor í íþróttafræði innan HÍ, og hans teymi gert góðar rannsóknir á svefnvenjum unglinga. „Þau hafa verið að rannsaka svefn hjá krökkum í tíunda bekk í sex grunnskólum í Reykjavík. Þau beita hlutlægum aðferðum, nota virkni- mæla til að mæla svefnlengd og þetta eru því lífeðlisfræðilegar mælingar en fram að því byggðust íslenskar rannsóknir eins og langflestar al- þjóðarannsóknir á huglægum aðferð- um, spurningalistum og svefn- dagbókum. Hafa verður þó í huga að svefnlengd mælist mun styttri með hlutlægum aðferðum en huglægum og ekki hægt að bera saman nið- urstöður sem fást með þessum tveim- ur aðferðum. Niðurstöður Erlings og hans teym- is hafa verið túlkaðar á þann veg að einungis lítill hluti íslenskra unglinga nái ráðlögðum svefni samkvæmt bandarískum ráðleggingum um kjör- svefnlengd sem iðulega er vitnað til, en þar stendur að unglingar 14 til 18 ára, eigi að sofa í átta til tíu klukku- stundir. Ef við skoðum hvernig þess- ar ráðleggingar eru unnar, þá hittist hópur sérfræðinga sem fer yfir rann- sóknir sem sýna hvað fólk segist yf- irleitt sofa lengi. Einnig er tekið inn hvað rannsóknir hafa sýnt um sam- band heilsu og svefnlengdar, og síðan mynda þau sér ákveðna skoðun. Þetta er í raun álit þessara sérfræð- inga hvað fólk eigi að sofa lengi. Þess- ar ráðleggingar eiga ekki við ef svefn- lengd hefur verið mæld með virknimæli. Þessar ráðleggingar taka auk þess aðeins til svefnlengdar eftir aldri en ekki til svefngæða, kyns eða erfða, en við vitum til dæmis að svefn- lengd erfist, að sumir þurfa minni svefn en aðrir. Þess vegna er útilokað að gefa upp einhvern ákveðinn tíma- fjölda sem passar fyrir alla ein- staklinga á sama aldri þegar kemur að svefnþörf. Þau sem sömdu og gefa út þessar ráðleggingar hafa sagt að líta eigi á þær sem mjög gróft viðmið en ekki heilagan sannleik fyrir alla einstaklinga. Þannig hefur þessi ráð- lagði svefntími verið notaður gagn- rýnislaust, sem var aldrei ætlunin hjá þeim sem ráðlögðu.“ Orsakar ekki sjúkdóma Bryndís segir að rannsókn hafi verið gerð á svefnlengd almennings á aldrinum 1-100 ára í Hollandi, Bret- landi og Bandaríkjunum, sem rúm- lega ein milljón manna tók þátt í, til að komast að því hvað almenningur sefur lengi. „Ekki er marktækur munur á svefnlengd almennings í þessum þremur löndum. Prófað var að bera saman niðurstöðurnar við fyrr- nefndar ráðleggingar og þá kemur í ljós að rúmlega helmingur unglinga sefur styttra en ráðlagt er ef huglægt mat var notað og 80% ef hlutlægt mat var notað, þ.e.a.s. virknimælir. Þetta segir okkur að fara varlega í að nota ráðleggingar um svefnlengd gagn- rýnislaust, bera saman og draga ályktanir af rannsóknum, ef aðferðir sem mæla hana eru ólíkar. Hingað til hefur verið einblínt á samband svefn- lengdar og heilsu en nú beinast augu fræðimanna meir að því á hvaða tím- um sofið er. Lengi hefur verið vitað um slæm áhrif vaktavinnu á heilsu en þá sefur einstaklingurinn ekki í takt við sína dægursveiflu sem er mjög óhollt. Mikilvægt er að horfa til heild- armyndar þegar kemur að svefn- lengd og svefntímum. Óreglulegur svefn er hluti af áhættuhegðun sem fer oft saman með lítilli hreyfingu, óhollu fæði og tengist óreglu og fíkn og þá er mikilvægt að horfa ekki bara til eins þáttar eins og til dæmis svefns. Ég vil leggja áherslu á að ekki hefur verið sýnt fram á að svefn sé að styttast í heiminum, Íslendingar sofa jafn lengi og þjóðirnar í kring, en okkar sérstaða er hvað við förum seint að sofa og vöknum seint,“ segir Bryndís og bætir við að mikilvægt sé að ekki hefur verið sýnt fram á að stuttur eða langur svefn orsaki sjúk- dóma og að mjög varasamt sé að senda þau skilaboð út í þjóðfélagið að fólk sofi ekki nóg og að heilsa þess sé í hættu. „Fólk verður skíthrætt og fer kannski upp í rúm allt of snemma þar sem það liggur vakandi og fer í fram- haldi til læknis og segist verða að fá svefnlyf. Fólk er með tölvuúr á hand- leggnum sem segir að það fái of stutt- an djúpsvefn og vill fá lausn sinna mála. Fólk leitar meira og meira í heilbrigðiskerfið af því það er svo hrætt um að það sofi ekki nóg, að það komi niður á heilsu þess. Þetta er sjúkdómsvæðing. Við verðum líka að átta okkur á að það eru miklir fjár- hagslegir hagsmunir í húfi að halda fram þeirri skoðun að almenningur sé að sofa of stutt, því þá er hægt að selja alls konar tæki, meðferðir, ráð- gjöf, lyf og fleira, sem margir efast um að sé rétt.“ Fólk óttast að það sofi ekki nóg - Varasamt að senda þau skilaboð að fólk sofi ekki nóg og að heilsa þess sé í hættu - Fólk leitar meira í heilbrigðiskerfið - Þetta er sjúkdómsvæðing - Íslendingar fara seint að sofa og vakna seint Ljósmynd/Colourbox Svefn Flestir keppast við að ná nægum svefni hverja nótt, enda lífsgæði. Bryndís Benediktsdóttir Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Tveir þriðju íbúa í Rangárþingi eystra eru hlynntir sameiningu sveitarfélagsins við önnur sveitar- félög. Þetta er niðurstaða könnunar sem Félagsvísindastofnun gerði fyr- ir sveitarfélagið nýverið. Niðurstöð- ur könnunarinnar voru kynntar á fundi sveitarstjórnar í síðustu viku og var ákveðið að vísa þeim til nýrrar sveitarstjórnar. Könnunin var gerð í gegnum síma og gekk misjafnlega vel að hafa uppi á öllum íbúum sveitarfélagsins. Erf- iðlega gekk að finna símanúmer hjá ungu fólki og erlendir ríkisborgarar voru ekki mjög fúsir til svara, að því er fram kemur í kynningu Félagsvís- indastofnunar. Svarhlutfall var á endanum 43%. Af öllum þátttakendum voru 64% hlynnt sameiningu innan Rangár- vallasýslu (Rangárþing eystra, Rangárþing ytra og Ásahreppur) sem er töluvert hærra hlutfall en í sameiningarkosningum í fyrra. Litlu lægra hlutfall, eða 63%, er hlynnt sameiningu Rangárþings eystra og Rangárþings ytra. Þá er minnihluti, tveir af hverjum fimm, hlynntur sameiningu Rangárþings eystra og Mýrdalshrepps. „Séu eingöngu þeir sem eru fylgj- andi einhvers konar sameiningu skoðuð eru flestir hlynntir sameiningu Rangárþings eystra við Rangárþing ytra og Ásahrepp eða 87%. Næstum því jafn hátt hlut- fall (86%) er hlynnt sameiningu við eingöngu Rangárþing ytra. Lang- fæstir eru hlynntir sameiningu Rangárþings eystra við Mýrdals- hrepp eða 51% af þeim sem eru fylgj- andi einhvers konar sameiningu,“ segir í niðurstöðukafla könnunarinn- ar. Horfa hýru auga til nágranna sinna - Meirihluti íbúa vill sjá sameiningu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hvolsvöllur Íbúar virðast vera nokkuð spenntir fyrir sameiningu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.