Morgunblaðið - 17.05.2022, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2022
„Þetta á upphaf sitt í því að við hitt-
umst nokkrir kollegar á Landspít-
alanum og veltum fyrir okkur á hvaða
leið umræðan um svefn meðal Íslend-
inga væri. Maður opnar vart blað,
hlustar á útvarp eða sjónvarp án þess
að svefn sé þar til umfjöllunar og yf-
irleitt er inntakið að Íslendingar sofi
allt of stutt, börn
og unglingar
minnst og að
þetta stefni heilsu
landans í voða. Í
þessari umræðu
er látið að því
liggja að stuttur
svefn orsaki sjúk-
dóma, sykursýki,
hjartaáföll, heila-
áföll og fleira,“
segir Bryndís
Benediktsdóttir, prófessor við lækna-
deild Háskóla Íslands, en hún skrifaði
í framhaldinu yfirlitsgrein í Lækna-
blaðið þar sem skoðaður er vísinda-
legur grundvöllur þessara staðhæf-
inga.
„Þegar ég fór í gegnum vísinda-
legar staðreyndir fengnar úr birtum
ritrýndum greinum, þá kemur fram
að svefn fullorðinna á Vesturlöndum
hefur ekki styst og sofa þeir nú svip-
að lengi og þeir hafa gert undanfarna
áratugi. Svefn barna á Vesturlöndum
hefur styst undanfarna öld en ekki
þar með sagt að þau sofi ekki nóg. Á
árunum 1905-2008 styttist svefn
barna á Vesturlöndum um 0,75 mín. á
ári. Við eigum eina íslenska langtíma-
rannsókn sem náði yfir tíu ára tíma-
bil, frá 1985 til 1995, en þar var sama
fólki fylgt eftir í heilan áratug. Nið-
urstaðan var að svefn fullorðinna Ís-
lendinga styttist ekki á þeim áratug,
en aftur á móti styttist svefn barna og
unglinga um 15 mínútur á virkum
dögum og um 20 mínútur um helgar.
Við veltum fyrir okkur hvers vegna
þessi stytting á svefni væri og kom-
umst að því að það var vegna þess að
börn og unglingar fóru fyrr á fætur.
Á þessum árum voru þjóðfélags-
breytingar, almennari þátttaka
kvenna á vinnumarkaði, fleiri börn í
leikskóla og skólinn varð einsetinn. Í
samanburðarrannsóknum á seinni ár-
um þar sem svefn Íslendinga, bæði
fullorðinna og unglinga, hefur verið
borinn saman við svefnvenjur íbúa
annarra landa, er niðurstaðan alltaf
sú sama. Íslendingar fara seint að
sofa, vakna seinna en sofa jafn lengi
og þær þjóðir sem þeir eru bornir
saman við. Þessar seinu svefnvenjur
eiga líklega rót sína að rekja til hnatt-
stöðu landsins og staðsetningar í
röngu tímabelti.“
Ekki heilagur sannleikur
Bryndís segir að á undanförnum
árum hafi Erlingur Jóhannsson, pró-
fessor í íþróttafræði innan HÍ, og
hans teymi gert góðar rannsóknir á
svefnvenjum unglinga.
„Þau hafa verið að rannsaka svefn
hjá krökkum í tíunda bekk í sex
grunnskólum í Reykjavík. Þau beita
hlutlægum aðferðum, nota virkni-
mæla til að mæla svefnlengd og þetta
eru því lífeðlisfræðilegar mælingar
en fram að því byggðust íslenskar
rannsóknir eins og langflestar al-
þjóðarannsóknir á huglægum aðferð-
um, spurningalistum og svefn-
dagbókum. Hafa verður þó í huga að
svefnlengd mælist mun styttri með
hlutlægum aðferðum en huglægum
og ekki hægt að bera saman nið-
urstöður sem fást með þessum tveim-
ur aðferðum.
Niðurstöður Erlings og hans teym-
is hafa verið túlkaðar á þann veg að
einungis lítill hluti íslenskra unglinga
nái ráðlögðum svefni samkvæmt
bandarískum ráðleggingum um kjör-
svefnlengd sem iðulega er vitnað til,
en þar stendur að unglingar 14 til 18
ára, eigi að sofa í átta til tíu klukku-
stundir. Ef við skoðum hvernig þess-
ar ráðleggingar eru unnar, þá hittist
hópur sérfræðinga sem fer yfir rann-
sóknir sem sýna hvað fólk segist yf-
irleitt sofa lengi. Einnig er tekið inn
hvað rannsóknir hafa sýnt um sam-
band heilsu og svefnlengdar, og síðan
mynda þau sér ákveðna skoðun.
Þetta er í raun álit þessara sérfræð-
inga hvað fólk eigi að sofa lengi. Þess-
ar ráðleggingar eiga ekki við ef svefn-
lengd hefur verið mæld með
virknimæli. Þessar ráðleggingar taka
auk þess aðeins til svefnlengdar eftir
aldri en ekki til svefngæða, kyns eða
erfða, en við vitum til dæmis að svefn-
lengd erfist, að sumir þurfa minni
svefn en aðrir. Þess vegna er útilokað
að gefa upp einhvern ákveðinn tíma-
fjölda sem passar fyrir alla ein-
staklinga á sama aldri þegar kemur
að svefnþörf. Þau sem sömdu og gefa
út þessar ráðleggingar hafa sagt að
líta eigi á þær sem mjög gróft viðmið
en ekki heilagan sannleik fyrir alla
einstaklinga. Þannig hefur þessi ráð-
lagði svefntími verið notaður gagn-
rýnislaust, sem var aldrei ætlunin hjá
þeim sem ráðlögðu.“
Orsakar ekki sjúkdóma
Bryndís segir að rannsókn hafi
verið gerð á svefnlengd almennings á
aldrinum 1-100 ára í Hollandi, Bret-
landi og Bandaríkjunum, sem rúm-
lega ein milljón manna tók þátt í, til
að komast að því hvað almenningur
sefur lengi.
„Ekki er marktækur munur á
svefnlengd almennings í þessum
þremur löndum. Prófað var að bera
saman niðurstöðurnar við fyrr-
nefndar ráðleggingar og þá kemur í
ljós að rúmlega helmingur unglinga
sefur styttra en ráðlagt er ef huglægt
mat var notað og 80% ef hlutlægt mat
var notað, þ.e.a.s. virknimælir. Þetta
segir okkur að fara varlega í að nota
ráðleggingar um svefnlengd gagn-
rýnislaust, bera saman og draga
ályktanir af rannsóknum, ef aðferðir
sem mæla hana eru ólíkar. Hingað til
hefur verið einblínt á samband svefn-
lengdar og heilsu en nú beinast augu
fræðimanna meir að því á hvaða tím-
um sofið er. Lengi hefur verið vitað
um slæm áhrif vaktavinnu á heilsu en
þá sefur einstaklingurinn ekki í takt
við sína dægursveiflu sem er mjög
óhollt. Mikilvægt er að horfa til heild-
armyndar þegar kemur að svefn-
lengd og svefntímum. Óreglulegur
svefn er hluti af áhættuhegðun sem
fer oft saman með lítilli hreyfingu,
óhollu fæði og tengist óreglu og fíkn
og þá er mikilvægt að horfa ekki bara
til eins þáttar eins og til dæmis
svefns. Ég vil leggja áherslu á að ekki
hefur verið sýnt fram á að svefn sé að
styttast í heiminum, Íslendingar sofa
jafn lengi og þjóðirnar í kring, en
okkar sérstaða er hvað við förum
seint að sofa og vöknum seint,“ segir
Bryndís og bætir við að mikilvægt sé
að ekki hefur verið sýnt fram á að
stuttur eða langur svefn orsaki sjúk-
dóma og að mjög varasamt sé að
senda þau skilaboð út í þjóðfélagið að
fólk sofi ekki nóg og að heilsa þess sé í
hættu.
„Fólk verður skíthrætt og fer
kannski upp í rúm allt of snemma þar
sem það liggur vakandi og fer í fram-
haldi til læknis og segist verða að fá
svefnlyf. Fólk er með tölvuúr á hand-
leggnum sem segir að það fái of stutt-
an djúpsvefn og vill fá lausn sinna
mála. Fólk leitar meira og meira í
heilbrigðiskerfið af því það er svo
hrætt um að það sofi ekki nóg, að það
komi niður á heilsu þess. Þetta er
sjúkdómsvæðing. Við verðum líka að
átta okkur á að það eru miklir fjár-
hagslegir hagsmunir í húfi að halda
fram þeirri skoðun að almenningur sé
að sofa of stutt, því þá er hægt að
selja alls konar tæki, meðferðir, ráð-
gjöf, lyf og fleira, sem margir efast
um að sé rétt.“
Fólk óttast að það sofi ekki nóg
- Varasamt að senda þau skilaboð að fólk sofi ekki nóg og að heilsa þess sé í hættu - Fólk leitar
meira í heilbrigðiskerfið - Þetta er sjúkdómsvæðing - Íslendingar fara seint að sofa og vakna seint
Ljósmynd/Colourbox
Svefn Flestir keppast við að ná nægum svefni hverja nótt, enda lífsgæði.
Bryndís
Benediktsdóttir
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Tveir þriðju íbúa í Rangárþingi
eystra eru hlynntir sameiningu
sveitarfélagsins við önnur sveitar-
félög. Þetta er niðurstaða könnunar
sem Félagsvísindastofnun gerði fyr-
ir sveitarfélagið nýverið. Niðurstöð-
ur könnunarinnar voru kynntar á
fundi sveitarstjórnar í síðustu viku
og var ákveðið að vísa þeim til nýrrar
sveitarstjórnar.
Könnunin var gerð í gegnum síma
og gekk misjafnlega vel að hafa uppi
á öllum íbúum sveitarfélagsins. Erf-
iðlega gekk að finna símanúmer hjá
ungu fólki og erlendir ríkisborgarar
voru ekki mjög fúsir til svara, að því
er fram kemur í kynningu Félagsvís-
indastofnunar. Svarhlutfall var á
endanum 43%.
Af öllum þátttakendum voru 64%
hlynnt sameiningu innan Rangár-
vallasýslu (Rangárþing eystra,
Rangárþing ytra og Ásahreppur)
sem er töluvert hærra hlutfall en í
sameiningarkosningum í fyrra. Litlu
lægra hlutfall, eða 63%, er hlynnt
sameiningu Rangárþings eystra og
Rangárþings ytra. Þá er minnihluti,
tveir af hverjum fimm, hlynntur
sameiningu Rangárþings eystra og
Mýrdalshrepps.
„Séu eingöngu þeir sem eru fylgj-
andi einhvers konar sameiningu
skoðuð eru flestir hlynntir
sameiningu Rangárþings eystra
við Rangárþing ytra og Ásahrepp
eða 87%. Næstum því jafn hátt hlut-
fall (86%) er hlynnt sameiningu við
eingöngu Rangárþing ytra. Lang-
fæstir eru hlynntir sameiningu
Rangárþings eystra við Mýrdals-
hrepp eða 51% af þeim sem eru fylgj-
andi einhvers konar sameiningu,“
segir í niðurstöðukafla könnunarinn-
ar.
Horfa hýru auga
til nágranna sinna
- Meirihluti íbúa vill sjá sameiningu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hvolsvöllur Íbúar virðast vera
nokkuð spenntir fyrir sameiningu.