Morgunblaðið - 17.05.2022, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2022
Rað- og smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Aðalfundur Lóðarfélagsins
Móhella 4, A-E verður haldinn
þriðjudaginn 24. maí 2022
kl. 17.00 í sal Kænunnar
Óseyrarbraut 2 í Hafnarfirði
1. Fundur settur.
2. Skýrsla stjórnar og umræður
um hana.
3. Framlagning ársreikninga til
umræðna og samþykktar.
4. Kosning formanns.
5. Kosning tveggja stjórnar-
manna.
6. Kosning tveggja varamanna.
7. Kosning skoðunarmanna
reikninga.
8. Framlagning rekstraráætlunar
fyrir næsta ár til umræðna og
samþykktar.
9. Framlagning framkvæmda
ætlunar fyrir næsta ár til
umræðna og samþykktar.
10. Ákvörðun húsgjalda fyrir
komandi ár.
11. Önnur mál.
12. Fundargerð lesin og leiðrétt.
13. Fundi slitið.
Reikningar félagsins vegna ársins
2021 liggja frammi á sama stað
frá kl. 17.00 – 18.00 mánudaginn
23 . maíl – einnig verða þeir
aðgengilegir á heima-síðu
félagsins www.mohella.is frá 5.
apríl og fram yfir aðalfund
Samkvæmt ofanrituðu verða
mikilvæg mál tekin fyrir á fundi-
num til ákvörðunar og umræðu.
Hér með er eindregið skorað á
eigendur að mæta á fundinn ti
að koma sjónarmiðum sínum á
framfæri og taka þátt í
ákvörðunum. Fundur þessi er
boðaður í samræmi við ákvæði
fjöleignarhúsalaga nr. 26/1994
og verður fundurinn haldinn
samkvæmt fyrirmælum þeirra.
Fundarboð þetta er kunngert
félagsmönnum með birtingu
auglýsingar í Morgunblaðinu og
einnig á heimasíðu félagins.
Stjórn Móhellu 4, A-E
Sandblástursfilmur
Prentun
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Morgunspjall,
heitt á könnunni milli kl. 9-11. Botsía kl. 10.Tálgað í tré kl. 13. Kaffi kl.
14.30-15.20. Nánari upplýsingar í síma 411-2702. Allir velkomnir.
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Leikfimi með
Milan kl. 10. Erlent handverksfólk kl. 10-12. Handavinna kl. 12-16.
Dansleikfimi kl. 14.15. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heitt á könnunni.
Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600.
Boðinn Ganga / stafganga með leiðsögn kl. 10. Brids og kanasta kl.
13. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16.
Fella- og Hólakirkja Vorferð eldri borgara í dag. Lagt verður af stað
frá kirkjunni kl. 10.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11.
Prjónað til góðs kl. 8.30-12.Thai chi kl. 9-10. Hádegismatur kl. 11.30-
12.30; folaldagúllas og sæt kartöflumús, sulta og smábrauð, epla-
grautur og rjómabland. Myndlistarhópurinn Kríur kl. 12.30-15.30.
Aðalfundur Hollvina kl. 13.30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-13.10.
Bónus-rútan kl. 13.10. Bókabíllinn kl. 14.45.
Garðabær Kl. 9 pool-hópur í Jónshúsi, kl. 9 trésmíði í Smiðju, kl. 9
Qi-gong í Sjálandi, kl. 9 brottför í Vorferð, kl. 10 gönguhópur frá Jóns-
húsi, kl. 11 stóla-jóga í Sjálandsskóla, kl. 11 tölvuaðstoð í Jónshúsi, kl.
12.15 leikfimi í Ásgarði, kl. 13 trésmíði í Smiðju, kl. 13 botsíða í
Ásgarði.
Grafarvogskirkja Í dag, þriðjudaginn 17. maí verður opið hús fyrir
eldri borgara í Grafarvogskirkju. Opna húsið er kl. 13-15. Margt er til
gamans gert, s.s. spilað, spjallað og sungið. Að opna húsinu loknu er
boðið uppá kaffi og meðlæti. Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir.
Kyrrðarstund hefst kl. 12. Kyrrlát stund með fyrirbænum og altaris-
göngu. Verið öll velkomin!
Hraunsel Þriðjudaga: Billjard kl. 8-16. Brids kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Brids kl.
13. Bingó fellur niður í dag vegna forfalla. Gönguhópu, lengri ganga
kl. 14. Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum
áður.
Korpúlfar Borgum Listmálun kl. 9. Botsía kl. 10. Helgistund í Borg-
um kl. 10.30. Spjallhópur í Listasmiðju kl. 13. Sundleikfimi í Grafar-
vogslaug kl. 14. Kóræfing Korpusystkina kl. 16. Gleðin býr í Borgum.
Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni. Bútasaumshópur í
handverksstofu kl. 9-12. Hópþjálfun í setustofu kl. 10.30-11. Bókband í
smiðju kl. 13-16.30. Qi-gong með Veroniku í handverksstofu kl. 13.30-
14.30 og síðdegiskaffi kl.14.30-15.30. Allar nánari upplýsingar í síma
411 9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :)
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffikrókur alla
morgna kl. 9. Pútt á Skólabraut kl. 10.30. Karlakaffi í safnaðarheimili
kl. 14. Örnámskeið; roð og leður kl. 15.30. Í dag kl. 15. koma í heim-
sókn á Skólabraut nemendur í Valhúsaskóla sem hafa félags- og
tómstundafræði sem val. Við ætlum að eiga góða stund saman, fá
okkur kaffi og jafnvel fara út að pútta. Hvetjum fólk til að mæta.
með
morgun-
"&$#!%
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
✝
Tómas Högni
Jón Sigurðs-
son fæddist á
Þingeyri við
Dýrafjörð 30. júní
1936. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans 3. maí
2022.
Foreldrar hans
voru Ingibjörg
Kristjana Krist-
jánsdóttir, f. 21.6.
1913, d. 1.1. 2004, og Sig-
urður B. Guðmundsson, f.
20.2. 1916, d. 10.9. 1977.
Bróðir Högna er Guðbjörn
Hermann, f. 15.8. 1937.
Högni bjó fyrstu æviárin á
Þingeyri þar til árið 1945
þegar fjölskyldan fluttist suð-
ur til Hafnarfjarðar þar sem
hann bjó til æviloka. Lengst
af á Tjarnarbraut 5.
Högni fór
fyrst til sjós á
fimmtánda ári
með föður sínum
á togarann Júpí-
ter og stundaði
hann sjómennsku
og tengd störf
alla tíð. Lengst
af hjá Einars
bræðrum.
Högni sótt
nám í Stýri-
mannaskólanum og útskrif-
aðist úr farmanna- og fiski-
mannadeild árið 1960. Um
árabil sat hann í stjórn Skip-
stjóra- og stýrimannafélags-
ins Kára. Árið 2006 var hann
heiðraður á sjómannadaginn.
Útför Högna fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag,
17. maí 2022, og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Fallinn er frá elskulegi
frændi minn með langa nafnið,
Tómas Högni Jón. Högni bar
þetta mikla nafn vel, enda
mikill karakter. Hann var stór
og gerðarlegur maður, gat tal-
að hátt og hlegið dátt.
Högni var frumburður for-
eldra sinna, þeirra Ingibjargar
og Sigurðar. Þegar hann var
ársgamall eignaðist hann
yngri bróður sinn Hermann.
Högni fæddist á Þingeyri en
fluttist ásamt fjölskyldu sinni
átta ára gamall til Hafnar-
fjarðar og bjó þar til æviloka.
Í mínum huga er ógjörningur
að tala um Högna án þess að
minnast á Hermann bróður
hans, enda líf þeirra samofið
að mörgu leyti allt til enda.
Mamma heitin, Guðný, var
svo lánsöm sem barn að dvelja
drjúgan hluta æskuáranna hjá
móðurömmu og -afa bræðr-
anna og mynduðust þar sterk
tengsl við Ingibjörgu og Sig-
urð og syni þeirra, þá Hemma
og Högna. Þeir bræður og
mamma ræddu það oft að þau
hefðu í raun verið sem uppeld-
issystkin. Margar sögur hef ég
heyrt af uppátækjum þessara
leikfélaga á barnsaldri enda
var frelsi barna að leik meira í
þá daga en í dag. Högni og
mamma voru grallaraspóar af
bestu gerð og flæktu Hemma
blessaðan gjarnan í þessi
uppátæki sín. Eitt uppátækið
var að skella Hemma í tunnu
og rúlla honum niður brekku.
Þetta þótti þeim skemmtileg
hugmynd í fyrstu en engu að
síður endaði hún með bein-
broti hjá drengnum í tunn-
unni.
Tengsl þessara leikfélaga
héldust alla tíð og var kært á
milli fjölskyldna okkar. Við
systkinin vorum nefnilega svo
heppin að eignast ömmu og
afa í Ingu og Sigga. Á milli
heimilanna voru reglulegar
heimsóknir og samgangur.
Enn í dag eigum við okkar
jólahefðir og dýrmætar sam-
verustundir sem okkur hjón-
um og börnum okkar þykir
vænt um.
Högni starfaði lengst af sem
sjómaður eða allt frá tánings-
aldri og var því oft mikið að
heiman. Þegar hann var í landi
voru áhugamálin meðal ann-
arra stangveiði og bóklestur.
Hann hafði sérstakt dálæti á
góðum bókum og hefði líklega
getað opnað fínasta hverfis-
safn ef hann hefði kært sig um
það. Högni var dugnaðarfork-
ur og kvartaði ekki, jafnvel
þótt heilsunni hrakaði síðustu
árin. Hann sagði þá frekar
þegar hann var spurður um
heilsuna: nei, ég er bara orð-
inn eymingi! og hristi höfuðið
kankvís.
Högni var sannarlega ekki
allra. Hann hafði sterkar skoð-
anir á mönnum og málefnum
og var oft hægt að veltast um
af hlátri við að hlusta á lýs-
ingar hans. Hann var einn sá
allra skemmtilegasti maður að
tala við í síma. Símtölin gátu
oft orðið löng, því Högni var
fróður maður sem kunni að
hnýta sögur listilega saman.
Umfram allt var Högni góð-
ur maður og tryggur og heill
sínu fólki.
Nú skilur leiðir í bili. Þar til
við hittumst næst, elsku
frændi. Hafðu þökk fyrir allt
sem þú varst mér og mínum.
Þín frænka,
Ingibjörg Sif.
Elsku Högni frændi er fall-
inn frá. Nú fæ ég ekki fleiri
harðfisksímtöl eða hitti þig.
Þú varst stór og mikill með
stærstu hendurnar og bjarnar-
faðmlagið. Þú varst líka stór
persónuleiki, lá ekki lágt róm-
ur og hlóst hátt, með sterkar
skoðanir, elskaðir rökræður og
þótti einstaklega gott að rífast
við hana Guðnýju mömmu
mína. Þú varst sjóarinn í fjöl-
skyldunni og svo elskaðir þú
að veiða á stöng og lesa bæk-
ur. Við ræddum oft um góðar
glæpasögur.
Margar góðar minningar á
ég um þig í æsku, jólin með
þér, Hemma og Ingu ömmu,
ferðalögin, gæsasagan, afmæl-
in. Manstu þegar allir skömm-
uðu mig eftir að ég klifraði í
stóru trjánum á Tjarnarbraut-
inni og ég hékk þar á hvolfi?
Þá hældir þú mér fyrir hversu
seig ég væri að klifra og fylltir
mig stolti af þessu afreki.
Þegar ég ætlaði að vinna
eitt ár fyrir vestan sagðir þú:
„Ragna kemur ekki aftur, þeir
sleppa henni ekki aftur suður
steinbítarnir fyrir vestan!“ Ég
er enn fyrir vestan og þú hef-
ur kallað manninn minn Geira
steinbít. Þú varst ánægður
með að ég næði mér í sjóara
og hefur alltaf fylgst með fisk-
iríi hjá honum og svo líka Stef-
áni syni mínum.
Eftir að mamma og pabbi
dóu þá urðuð þið bræður enn
stærri í fjölskyldumyndinni
okkar og Jórunn talar um að
það sé eins og að eiga aukaafa
í ykkur Hemma, svo gaman að
heimsækja ykkur og spila við
þig eða veiða.
Það var svo ævintýri að
hjálpa ykkur að flytja þegar
þið selduð Tjarnarbrautina og
fluttuð á Reykjavíkurveginn.
Ógleymanleg samvera þegar
við systur fórum um eins og
stormsveipar og þú reyndir að
stýra og stjórna. Fjölskyldur
okkar fluttu allt í íbúðina og
bústaðinn. Þá sögðuð þið
bræður: „Blóð er ekki allt, þið
eruð fjölskyldan okkar.“
Guð geymi þig, elsku Högni
minn.
Þín
Ragnhildur.
Á lífsleiðinni kynnumst við
miklum fjölda samferðafólks.
Stundum standa þau kynni í
langan tíma, það má segja að
kynni okkar Högna hafi verið
ein af þeim. Fyrst kynntist ég
föður hans, en hann var mat-
sveinn á Fáki GK og síðar á
Faxa GK. Árið 1977 réðst
Högni hjá mér á Faxa sem
stýrimaður, síðar, 1982, fórum
við báðir yfir á Fífil GK og var
hann þar þar til skipið var selt
árið 1992.
Ekki var okkar samfylgd
einungis til sjós, heldur unn-
um við mikið saman að fé-
lagsmálum. Við vorum í stjórn
Skipstjóra- og stýrimanna-
félagsins Kára í Hafnarfirði í
rúmlega 20 ár. Þeim störfum
fylgdi fulltrúaembætti, m.a. í
sjómannadagsráði Reykjavík-
ur og Hafnarfjarðar. Eins og
landsmenn vita vann ráðið að
því að reisa Hrafnistuheimilin.
Auk þess var setið á þingi
Farmanna- og fiskimannasam-
bands Íslands. Einnig starfaði
Högni að sjómannadeginum í
Hafnarfirði.
Á okkar samstarf til sjós og
lands bar engan skugga. Í um-
gengni gat hann verið ljúfur,
en ætíð harðduglegur og
fylginn sér.
Ég þakka honum samfylgd-
ina. Ef til vill munu leiðir okk-
ar mætast handan við líf og
dauða.
Ég vil að endingu færa Her-
manni bróður hans, sem og
ættingjum og vinum, samúðar-
kveðjur. Ég kveð góðan vin.
Blessuð sé minning hans.
Ingvi Rúnar
Einarsson.
Tómas Högni Jón
Sigurðsson
Jón Hjörleifur
Jónsson
✝
Jón Hjörleifur Jónsson
fæddist 27. október 1923.
Hann lést 19. apríl 2022.
Jón Hjörleifur var jarðsung-
inn 2. maí 2022.
Hagmælska og sönglist þar saman var
þrinnað
á síðdegi ævihlaups, gefandi fag.
Síðbúin kveðja vegna andláts
einlægs vinar og bekkjarbróður.
Innilegar samúðarkveðjur til
fjölskyldu og vina.
Hjörtur Þórarinsson.
Grandvar, en hvetjandi gekk hann að
verki
glaðværðin einkenndi líf þessa
manns.
Tápmikill drengur sá trausti og sterki
trúarlíf einlægt var kjölfesta hans.
Athafnasvið hans og umhverfi reyndist
ómælisvíddir af heimsálfu stærð.
Alúðarviðmót hans engum þar leyndist
ótöldum þurfandi huggun var færð.
Kennimanns snilli og kennslu var tvinn-
að
af kunnáttu samþætt með hugnæmum
brag.