Morgunblaðið - 17.05.2022, Side 24

Morgunblaðið - 17.05.2022, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2022 AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ GARÐA blaðið NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is – meira fyrir lesendur fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 27. maí SÉRBLAÐ Allt um garðinn, pallinn, heita potta, sumar- blómin, sumarhúsgögn og grill ásamt ótal girnilegum uppskriftum. 40 ÁRA Óli Már er Kópavogsbúi og ólst þar upp en gekk í Ölduselsskóla í Breiðholti. Hann er bílamálari og bif- reiðasmiður frá Borgarholtsskóla og starfar hjá Bifreiðaverkstæði Björns Pálmasonar. Áhugamálin eru bílar og allt bílatengt. Hann stundar einnig stangveiði og er Arnarvatnsheiðin í uppáhaldi. FJÖLSKYLDA Óli Már er í sambúð með Ólöfu Rún Ásgeirsdóttur, f. 1989, bókara hjá umhverfis- og auðlinda- ráðuneytinu. Dóttir Óla Más er Aníta Karen, f. 2006. Sonur Óla Más og Ólaf- ar er Styrmir Freyr, f. 2021. Foreldrar Óla Más: Ólafur Bergmann Ásmunds- son, f. 1940, d. 2010, sölumaður, og Málfríður Ólína Viggósdóttir, f. 1943, húsfreyja. Hún er búsett í Kópavogi. Ólafur Már Ólafsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Lausn verkefnis þíns liggur nær þér en þig grunar í fljótu bragði. Sumum finnst þú taka of mikla áhættu, en ekki þér. 20. apríl - 20. maí + Naut Það er hætt við að þú lofir upp í ermina á þér í vinnunni. Kappsemi er smit- andi og því munu allir í kringum þig vinna betur og af meiri áhuga. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Að gefa sér tíma til að stoppa og njóta ilmsins af blómunum er merki um aukinn þroska. Þér fer fram í því að hrósa öðrum. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Forðastu að lenda í þeirri aðstöðu að þurfa að taka afstöðu með einum eða öðrum. Mundu að vináttu verður að rækta. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Örlög verkefnis eru í þínum höndum. Settu þér eitt markmið og fagnaðu þegar þú nærð því. Allt er gott í hófi. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það er í lagi að freista gæfunnar ef ekki er of miklu kostað til. Reyndu að láta rifrildi ekki slá þig út af laginu í dag. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú þarft að hafa mikið fyrir hlutunum, sem er allt í lagi ef þú bara gætir þess að skila vel unnu verki. Haltu þínu striki í ástamálunum. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Allir mæta einhverjum erf- iðleikum þannig að þér er engin vorkunn. Brettu upp ermarnar og þú munt vinna þig út úr þeim fljótt og örugglega. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Það er ómögulegt að gera svo öllum líki enda ekki í þínum verkahring að sjá til þess að allir séu hamingjusamir. Notaðu heilbrigða skynsemi og beittu þig aga. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Einhverjar spurningar kunna að vakna um heilsufar þitt. Farðu þér hægt, kynntu þér málin vandlega og skrifaðu ekki undir neitt sem þú ert ekki handviss um. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Enginn er fullkominn og þú ekki heldur svo þú skalt bara herða upp hugann og halda áfram. Þér verður boðið á stefnumót fljótlega. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þótt þér sé ekki mikið gefið um mannamót kemstu ekki hjá því að sækja sum þeirra. Það leynist rithöfundur í þér. Gunnlaugur var svo aftur kjörinn á þing fyrir Alþýðuflokkinn í Aust- fjarðakjördæmi árið 1991. „Við brut- um múrinn, því aldrei hafði það gerst fyrr að Alþýðuflokkur fengi mann kjörinn á Austurlandi. Ég gegndi prestsstörfum meðfram þingmennsk- unni allt kjörtímabilið til 1995. Það var erfitt, en ég naut þess að Sjöfn mín stóð vaktina fyrir austan í fjar- veru minni við þingstörfin og svo kom ég heim um helgar og embættaði.“ Eftir að þingmennsku lauk sat Gunn- laugur í stjórn Byggðastofnunar í átta ár og síðar formaður Flugráðs í sex ár. Hann starfaði á Hjálpar- stofnun kirkjunnar 1982-1986. „Það voru gefandi og góð ár með frábæru samstarfsfólki. Ég ferðaðist mikið í störfum mínum til fjarlægra landa og reyndi margt. Að þeirri reynslu bý ég enn. Þá varð mér t.d. svo ljóst að Ís- land á alla sína farsæld háða sam- félagi með öðrum þjóðum.“ Prestskapurinn fyrir austan Gunnlaugur bjó í Heydölum í Breiðdal í tæp 33 ár. „Þar leið mér einstaklega vel. Stöðvarfjörður til- heyrði prestakallinu. Ég leit alltaf á þessi tvö byggðarlög sem eina heild. Ég messaði jafnt í báðum kirkjum og hélt þar úti sjálfstæðu starfi og sam- starfið á milli safnaðanna var alltaf laug systir mitt skjól og þróaðist með okkur mjög náið samband. Svo voru það ömmur mínar, Guðrún og Snjó- laug. Þegar ég var tíu ára átti Snjó- laug amma minnisstætt samtal við mig. Hún lagði hönd sína á bunka af handrituðum blöðum á stofuborðinu, sagði að þetta væri predikunarsafn pabba síns, sr. Árna Björnssonar, prófasts í Görðum á Álftanesi og fyrsta prests í Hafnarfjarðarkirkju. Amma sagðist eiga heita ósk um að ég yrði prestur og þá skyldi ég eign- ast predikunarsafn langafa míns. Það átti allt eftir að gerast.“ Gunnlaugur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Tjörnina árið 1973. Hann stundaði svo kennslu í gagnfræðaskólum um skeið meðfram háskólanámi, en lauk embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands árið 1982. Hann var kjörinn til setu á Al- þingi fyrir Alþýðuflokkinn í Reykja- neskjördæmi árið 1978 og sat þar fram undir lok árs 1979. Á háskóla- árunum var hann einnig til sjós á bát- um við ýmsar veiðar, en lengst af á togurum hjá Ísstöðinni í Garði. „Það var lærdómsríkur tími með frábær- um mönnum um borð. Oft var ég með námsbækurnar með mér og þá urðu gjarnan líflegar umræður um trú- málin sem var virkilega gagnlegur skóli og reyndist mér vel.“ G unnlaugur Stefánsson fæddist 17. maí 1952 í Hafnarfirði og ólst þar upp. „Fyrstu árin bjuggum við á Skúla- skeiði við Hellisgerði sem var eins og leikvöllur okkar barnanna. Síðan urð- um við frumbyggjar á Arnarhraun- inu. Krakkar nutu frelsis á þessum árum í Hafnarfirði. Þegar ég var fimm ára kom lögreglan að okkur fé- lögunum, mér og bræðrunum Karli og Erni Sigurðssonum, liggjandi á maganum fram af bryggjusporðinum að veiða ufsa og kola með færi, spruttum þá á fætur og hlupum á harðaspretti upp í bæ, þar sem Guð- sveinn lögga náði mér og skrifaði nafnið mitt í bók. Þá var lækurinn ekki síður heillandi veiðisvæði þar sem dvalið var löngum og mörgum stundum við silungsveiðar.“ Árin í Lækjarskóla eru Gunnlaugi minnisstæð. „Ég var í sama bekknum sem taldi rúmlega þrjátíu börn með sama kennarann öll árin. Hún hét Sigurbjörg Guðjónsdóttir, alveg frá- bær kennari og meira en það, hún var andlegur og félagslegur leiðtogi okk- ar. Hver einasti skóladagur hófst með faðirvorinu. Sigurbjörg hafði einstakt lag á að halda okkur við efnið og rækta með okkur sköpunargleði. Mikil áhersla var á að læra utan- bókar, ritningarvers, ættjarðarkvæði og sálma. Einu sinni á mínum fyrstu prestskaparárum var ég að messa á jólum í kirkju utan minna sókna í for- föllum staðarprests. Þegar kom að því að lesa jólaguðspjallið, þá var eng- in Biblía í kirkjunni, hafði gleymst að bera úr bæ í kirkju. Það kom ekki að sök, því ég kunni jólaguðspjallið utan- bókar frá því í barnaskólanum hjá Sigurbjörgu. Konur voru miklir áhrifavaldar í uppeldi mínu. Auk Sigurbjargar kennara, og bekkjarsystra minna, þá koma fyrst við sögu Margrét, móðir mín, og Snjólaug, systir mín. Mamma var á þeim árum heimavinnandi, afar sterk og ástrík móðir, hafði ákveðnar skoðanir, leyfði okkur systkinunum að njóta frelsis og leikgleði, en allt byggt á trausti, að við segðum satt og stæðum við okkar orð. Stundum var stormasamt á heimilinu. Þá var Snjó- gott og kirkjukórinn sameiginlegur. Ég naut vináttu með safnaðarfólki sem skynjaði svo vel að kirkjan er menningarstofnun sem geymir spor kynslóðanna um aldir. Ég lagði mig fram um að sitja Hey- dali af sæmilegri reisn. Við plöntuð- um út talsverðum skógi, byggðum m.a. ný útihús og tókum allt umhverfi í gegn og reyndum að halda snyrti- legu. Við vorum alltaf með hrossa- rækt á jörðinni, tömdum og riðum út og ég húsvitjaði gjarnan ríðandi á bæi í sveitinni. Jörðinni tilheyrir mikið æðarvarp sem við sinntum og hlúðum að. Ég var alltaf með sérbókhald um jörðina og gætti þess að tekjur af jörðinni rynnu til hennar eða í kirkju- starfið. Það yrði mikið tjón fyrir þjóð- kirkjuna og íslenska menningu ef prestssetur í Heydölum yrði aflagt, eins og nú blasir við. Svo þarf að reisa menningarsetur við Heydalakirkju í minningu sr. Einars Sigurðssonar (1539-1627), ættföður þjóðarinnar og sálmaskálds, sem mest hafði áhrif með sálmum sínum á að lútersk menningarbylting festi rætur í þjóð- lífinu. Á Stöðvarfirði var byggð ný kirkja fljótlega eftir að ég kom til starfa og klárað á tveimur og hálfu ári. Þetta er stórt hús, rúmar á þriðja hundrað manns með safnaðarheimili og góðri aðstöðu. Mikið sjálfboðið starf var lagt af mörkum við bygginguna. Á sama tíma var Hallgrímskirkja í Reykjavík að kaupa nýtt orgel. Virð- isaukaskattur af orgelinu, sem greiddur var í ríkissjóð, var nánast sama upphæð og allur byggingar- kostnaður Stöðvarfjarðarkirkju. Ekki ein króna úr ríkissjóði né sveit- arsjóði kom til byggingar Stöðvar- fjarðarkirkju, sem er skuldlaust hús í dag. Í kirkjunum í Breiðdal og á Stöðvarfirði voru konur kjölfestan í kirkjustarfinu, bæði í sóknarnefndum og sönglífinu, sem var alltaf mjög öfl- ugt. Það var mér mikill styrkur að njóta samstarfs með þeim, heilt og traust sem aldrei bar skugga á.“ Gunnlaugur var kjörinn í síðustu sveitarstjórn Breiðdalshrepps. „Það var einhuga samstarf með traustu fólki sem kom miklu í verk og lauk með því að sameinast Fjarðabyggð Sr. Gunnlaugur Stefánsson, fv. sóknarprestur í Heydölum og alþingismaður – 70 ára Fjölskyldan Stefán Már, Sjöfn og Gunnlaugur við biskupsvígslu árið 2012. Kvenríkið mótaði hann Til hamingju með daginn Kópavogur Styrmir Freyr Ólafsson fæddist þann 9. nóvember 2021, kl. 20.17. Hann vó 3.776 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Ólafur Már Ólafsson og Ólöf Rún Ásgeirsdóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.