Morgunblaðið - 23.05.2022, Side 6

Morgunblaðið - 23.05.2022, Side 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2022 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þegar ég flutti fyrst hingað spurði ég mig strax hvar miðbærinn væri. Ég væri mikið til í að fá einhvern huggulegan miðbæ og þó það taki smá tíma þá er þetta fyrsta skrefið,“ segir Sara Elísabet Svansdóttir, sveitarstjóri á Vopnafirði. Áform um uppbyggingu á miðbæ á Vopnafirði hafa verið í vinnslu að undanförnu. Nýlega var lögð fram í sveitarstjórn vinnslutillaga að deili- skipulagi fyrir miðbæinn. Tillagan verður auglýst á næstunni og gefst íbúum þá kostur á að koma með at- hugasemdir. Þessi fyrirhugaða uppbygging á sér nokkurn aðdraganda. Í greinar- gerð með deiliskipulagstillögunni er rakið að í kjölfar gildistöku laga um verndarsvæði í byggð sumarið 2015 hafi Vopnafjarðarhreppur ákveðið að vinna að tillögu að verndun elsta hluta þéttbýlisins sem er í mið- bænum. „Vinna við tillögu að vernd- arsvæði í byggð hófst í lok árs 2018 og var lagt upp með það markmið að viðhalda og styrkja byggð á svæðinu í anda gamla byggðarmynstursins. Í upphafi vinnunnar var ákveðið að vinna deiliskipulag fyrir miðbæinn samhliða. Verndarsvæðið yrði þá hluti af nýju deiliskipulagi,“ segir í greinargerðinni. Síðar var ákveðið að skilið yrði á milli athafnasvæðis hafnarinnar í bænum og miðsvæðis þéttbýlisins og að unnar væru tvær nýjar skipulagsáætlanir fyrir hvort svæði. Síðasta haust voru haldnir íbúa- fundir á Vopnafirði þar sem íbúum gafst kostur á að taka þátt í undir- búningsvinnu fyrir deiliskipulag miðbæjarsvæðisins. Sara sveitar- stjóri segir að góð þátttaka hafi ver- ið á fundunum og þeir hafi verið gagnlegir. „Við settum upp sýningu í Miklagarði í tengslum við íbúafund- ina og þar voru plaköt sem sýndu verndarsvæðið og hvernig mögu- legur miðbær gæti litið út.“ Miðbæjarsvæðið nýja er um fjórir hektarar að stærð. Mörk þess liggja frá Vopnafjarðarkirkju, sem er syðst á svæðinu, að gatnamótum nið- ur Kaupfélagshalla í norðri. Aðal- uppbygging er ráðgerð í kringum torgsvæði sem verður að finna fyrir framan hús gamla Kaupfélagsins þar sem í dag er verslunin Kauptún og Vínbúðin. Þar á að vera vistgata þar sem gangandi vegfarendur njóta forgangs og hámarkshraði allra ferðamáta verði 15 kílómetrar á klukkustund. Gert er ráð fyrir líf- legu götulífi og útivist. Húsakönnun var gerð fyrir nokkr- um árum og í greinargerðinni kemur fram að æskilegt væri að færa ýms- ar byggingar í upprunalegt horf. Heimild er til að rífa einstaka bygg- ingar á svæðinu og reisa nýjar í þeirra stað. Þá er einnig gert ráð fyrir nýbyggingum, bæði versl- unarhúsnæði við torgið og íbúðar- húsnæði þar sem nú eru olíutankar. Allar nýbyggingar og viðbyggingar á svæðinu eiga þó að falla vel að heildaryfirbragði svæðisins og taka tillit til annarra bygginga á svæðinu hvað varðar hæð, umfang, bygging- arefni og útlit, að því er fram kemur í greinargerðinni. Á torginu eru fyrir húsin Fram- tíðin og Kaupvangur sem gerð voru upp í kringum aldamótin síðustu. Þar hefur til að mynda verið veit- ingasala. Húsin tvö setja fallegan svip á svæðið og ágætis grunnur er því til staðar til byggja á. Sem kunn- ugt er má finna tvö falleg hús frá Vopnafirði á Árbæjarsafni. Þau nefndust Kornhúsið og Ullarhúsið og voru flutt á safnið árið 1975. Kornhúsið og Ullarhúsið eru af al- gengri gerð verslunarhúsa frá 19. öld, Kornhúsið var til að mynda reist 1820. Slík hús voru víða um land en eru nú flest horfin. Ekki þótti unnt að varðveita húsin á upprunalegum stað vegna nýframkvæmda og því keypti Þjóðminjasafnið húsin. Þau voru fyrst um sinn nýtt sem geymslur en hafa á seinni árum ver- ið nýtt til sýninga á Árbæjarsafni. Kristján Jónsson Fjallaskáld bjó síðasta æviárið í litlu kvistherbergi í Kornhúsinu. Sara sveitarstjóri segir að óskandi sé að í framtíðinni verði til fallegur miðbæjarkjarni með torgsvæði og verslunarhúsnæði sem nýtist bæði heimamönnum og laði að ferðamenn. Nýbyggingar á svæðinu eiga að taka mið af þeim byggingum sem fyrir standa og í greinargerð má sjá að ætlast er til að þær verði í gömlum stíl. „Það væri auðvitað gaman að fá Árbæjarhúsin aftur hingað en það er ekki að fara að gerast. Þess í stað á nýi kjarninn að vísa í gamla tímann.“ Nýr miðbær vísi í gamla tíma - Uppbygging fyrirhuguð á Vopnafirði - Vistgata og torgsvæði þar sem komi hús í gömlum stíl Morgunblaðið/Jón Sigurðarson Kaupvangur Glæsilegt hús sem var endurgert um aldamótin. Það verður í öndvegi í nýjum miðbæ á Vopnafirði. Áform um uppbyggingu verða brátt kynnt. Morgunblaðið/Ómar Árbæjarsafn Vopnafjarðarhúsin svokölluðu voru flutt á safnið árið 1975. Byggt verður í svipuðum stíl. Verið velkomin í sjónmælingu Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14 Karlotta Líf Sumarliðadóttir karlottalif@mbl.is Mosfellsbær hefur óskað eftir til- boðum frá áhugasömum og hæfum aðilum í byggingu steypts útisviðs við Álafossveg, í Álafosskvos, vest- anvert við setpalla sem myndaðir hafa verið í grasbrekku á svæðinu. „Útisviðið verður sett upp í Ála- fosskvosinni og þetta er gert í áföng- um. Núna verður í rauninni bara steyptur botninn á því en ekki vegg- irnir og þakið í þessum áfanga,“ seg- ir Ásgeir Sveinsson, formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar, í viðtali við Morgunblaðið. Heildarverkið felst í byggingu sviðs með skyggni og veggi á þrjá vegu. Hefja á jarð- vinnu og uppsteypu sjálfs sviðsins en á síðari stigum verður timbur- virkið ofan á sviðinu sett upp. Lögð var fyrir bæjarráð ósk um heimild til þess að bjóða út jarðvegs- og uppsteypuframkvæmdir á úti- sviðinu sem samþykkt var með níu atkvæðum á fundi bæjarráðs mið- vikudaginn 18. maí. „Það var sam- þykkt í bæjarráði að heimila útboð á þessum verkþætti verkefnisins og svo er það nýrrar bæjarstjórnar að fylgja því eftir og afgreiða þau tilboð og setja verkið í gang,“ segir Ásgeir. „Við erum með viðburði eins og Í túninu heima og þetta gefur okkur tækifæri til að vera með fleiri við- burði í Mosfellsbæ.“ Útboðsgögn eru aðgengileg frá og með 18. maí en tilboðum skal skila rafrænt eigi síðar en miðvikudaginn 8. júní. Áætlað er að verkinu verði lokið 15. ágúst. Hefja útboð í byggingu steypts útisviðs í miðri Álafosskvosinni - Gefur tækifæri til að halda fleiri viðburði í Mosfellsbæ Morgunblaðið/Árni Sæberg Álafosskvos Mosfellsbær óskar eft- ir tilboðum í byggingu nýs útisviðs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.