Morgunblaðið - 23.05.2022, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 23.05.2022, Qupperneq 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. MAÍ 2022 Brot úr inngangi Guðrúnar Valgerðar Stefánsdóttur: Áhrif margþættrar mismununar Á síðari árum hefur í auknum mæli verið bent á að fatlað fólk upp- lifi ekki einungis mismunun vegna fötlunar sinnar heldur getur mis- mununin verið samtvinnuð, þ.e. tengst auk fötlunar þáttum eins og kyni, kynhneigð, útliti og stétt. Þeg- ar um slíkt er að ræða geta vanda- málin sem fatlað fólk stendur frammi fyrir margfaldast. Í sjálfs- ævisögu Bíbíar má sjá fjölmörg dæmi um þá margþættu mismunun sem hún varð fyrir. Hún var stimpl- uð „fáviti“ af nærsamfélagi sínu og fjölskyldu frá unga aldri og falin fyrir gestum og gangandi. Foreldrar hennar voru fátækir kotbændur sem höfðu ekki sterka samfélagsstöðu og Steini bróðir hennar var tekinn fram yfir hana, bæði vegna þess að hann var strákur og hún „fötluð stúlka“ eins og sögukona orðar það. Bíbí varð auk þess fyrir miklu aðkasti vegna útlits síns og líkamsgerðar og tók það afar nærri sér. Ekki er ólíklegt að sú margþætta mismunun og stimplun (e. stigma) sem Bíbí varð fyrir hafi haft tölu- verð áhrif á sjálfsmynd hennar á ólíkum lífsskeiðum. Áhrifum stimpl- unar hefur verið líkt við ferli sem manneskja fer í gegnum þegar hún er vanmetin, útilokuð og jaðarsett af samfélaginu vegna þess að hún fell- ur ekki að ríkjandi gildismati eða því sem talið er „eðlilegt“ á hverjum tíma. Áhrif stimplunar geta síðan komið fram í því að sú manneskja sem fær á sig stimpilinn innbyrði vanmat annarra, sjái sig í sama ljósi og yfirfæri það á sjálfa sig. Slík inn- byrðing getur síðan haft djúpstæð áhrif á tilfinningalíf hennar og sjálfsmynd og valdið henni vanlíðan og vonleysi. „Það er svo annað, þó að ég brenndi mig aldrei á vatni og feingi þar af leiðandi ekki nein ör af því, þá hef ég feingið ósínileg ör og þaug eru af völdum ílsku mann- anna,“ segir Bíbí. Ef til vill má líkja ósýnilegu örunum við afleiðingar stimplunar á sjálfsmynd Bíbíar. Þetta dæmi er þó tvíbent vegna þess að Bíbí kenndi illsku mannanna um en ekki sjálfri sér eða skerðingu sinni og því má líka ætla að hún hafi ekki alltaf innbyrt kúgunina sem hún varð fyrir. Lengst gengur hún í lýsingum sínum á afleiðingum fötl- unarfordóma og margþættrar mis- mununar þegar hún segir: „Þannig var með mig, það hefði verið betra að ég hefði hrokkið uppaf þá, heldur en að vera vogrek þessarar ver- aldar, ef maður á að orða [það] þannig?“ Hún setur þó varnagla við þessa hugsun með því að hafa spurningarmerki á eftir setning- unni. […] Eins og margar fatlaðar kynsyst- ur hennar eignaðist Bíbí ekki sína eigin fjölskyldu eða afkomendur. Bíbí lætur sig oft dreyma um hvern- ig lífið hefði verið ef hún hefði verið „eðlileg“, eins og hún kemst að orði. Draumar Bíbíar lituðust ekki síst af samfélagslegum hugmyndum um það sem þótti eðlilegt á æsku- og fullorðinsárum Bíbíar. Móðurhlut- verkið var miðlægt í sjálfsmynd kvenna á þeim árum þegar Bíbí var að alast upp og svo er enn að mörgu leyti. Þá er litið svo á að hlutverk kvenna sé fyrst og fremst að fæða og ala upp börn og bera ábyrgð á heimili og fjölskyldu. Staðalímyndir um hina fullkomnu konu hafa því oftast verið tengdar móðurhlutverk- inu. Viðhorf samfélagsins í garð fatl- aðra kvenna hafa gert það að verk- um að þær falla yfirleitt illa að slíkum ímyndum og eiga oftar en ekki takmarkaðan kost á að takast á við viðurkennd hlutverk kvenna, til dæmis móðurhlutverkið. Í frásögn Bíbíar kemur fram að hún var sér fyllilega meðvituð um þessar ímynd- ir, ekki síst þegar kom að barn- eignum og fjölskyldulífi. Félagsleg viðhorf á þessum tíma gerðu ráð fyrir að Bíbí yrði að vera „eðlileg“ til þess að eignast börn og að vissu marki virðist Bíbí hafa tileinkað sér þau viðhorf í eigin garð. Hún féll ekki að staðalímyndum um móður- hlutverkið og ímynd hinnar full- komnu konu. Bent hefur verið á nei- kvæð áhrif þess á sjálfsmynd fatlaðra kvenna að vera ekki taldar hæfar til að eignast börn eða annast þau. Að einhverju leyti má því leiða að því líkur að Bíbí hafi innbyrt ríkjandi fordóma um fötlun og sett lífi sínu takmörk í samræmi við væntingar samfélagsins. Enn eitt dæmi um samtvinnun sem leiðir til margþættrar mismun- unar er að fatlaðar konur og stúlkur hafa í gegnum tíðina mætt kynferð- islegu ofbeldi og þeim er margfalt hættara en ófötluðum kynsystrum sínum við að verða fyrir slíku of- beldi. Bíbí fór ekki varhluta af kyn- ferðislegri áreitni og ofbeldi af hálfu óprúttinna karla en hnitmiðaðasta lýsingin er þó af einu tilviki. Um var að ræða eldri mann sem áreitti Bíbí og reyndi að fá hana til samræðis við sig oftar en einu sinni. Bíbí gekk hreint til verks eins og hennar var von og vísa í lýsingu sinni á þessum atburðum og dregur þar ekkert undan. Hún náði að komast undan karlinum og er frásögn hennar afar trúverðug og í samræmi við reynslu margra fatlaðra og ófatlaðra kvenna af kynferðislegu ofbeldi. Það sem er ekki síst dæmigert er sú þöggun sem ríkti um kynferðislegt ofbeldi og sannfæring Bíbar um að henni yrði ekki trúað. Eins og fram kemur í frásögn hennar hvarflaði ekki að henni að segja frá þessum atvikum en Bíbí ítrekar að þessar tilraunir karlsins hafi átt sér stað og að hún sé að segja satt. Í lok sjálfsævisögunnar lætur Bíbí sig dreyma um það líf sem hún hefði viljað ef hún hefði verið „eðlileg“ eins og hún kemst að orði. Það sem hún taldi eftirsóknarverðast var að fá að lifa „eðlilegu“ fjölskyldulífi en það var að hennar mati að ganga í hjónaband og eignast börn: Ég hefði nú saumað firir aðra þó að þetta hefði nú orðið og stundað garð- rækt, ef ég hefði verið eðlileg og náð í mann sem [hefði] orðið ríkur, enn ég hefði ekkert tekið firir saumana hefði það orðið, enn mér hefði ekki dottið í hug að hafa ekki eitthvað að gera, utann þess að gera heimilisstörfinn. Ég hefði nú ekki haft á móti því að eignast með honumm 8 börn, ég hefði vanið þaug á að hlíða mér skilirðis- laust. Bíbí lét sig líka dreyma um að giftast Sigursteini, lækninum sínum á Héraðshælinu á Blönduósi. Engu að síður hafði hún sterka siðferðis- kennd og það hvarflaði ekki að henni að gera neitt sem ekki þætti viðeig- andi eða myndi særa aðra: „Það var ekki þannig meint að ég ætlaði að taka manninn frá Birgitt [Brigitte], heldur að ég hefði náð í Sigurstein á undan Brigitt [Brigitte], hefði ég verið eðlileg.“ Bíbí talar líka um að ef hún hefði verið „eðlileg“ hefði hún viljað mennta sig og segir: „Þá hefði ég unnið mér inn peninga, nóg til þess að ég hefði getað lært firir þá það sem ég hefði haft áhuga á, þá hefði ég lært kanski garðyrkju og saumaskap.“ Draumar Bíbíar snerust með öðr- um orðum ekki eingöngu um að eignast eiginmann og börn heldur dreymdi hana líka um að geta menntað sig og að hjálpa öðrum. Þó að þessir draumar næðu ekki að rætast fann hún öðrum draumum farveg. Hún fékk ekki tækifæri til að mennta sig í hefðbundnum menntastofnunum samfélagsins en hún var svo sannarlega sjálf- menntuð. Hún var vel lesin, aflaði sér víðtækrar þekkingar á garð- yrkju og var vel að sér um ýmis mál- efni. Hún náði líka góðum árangri í hannyrðum, ekki síst með því að sauma og prjóna á brúðurnar sínar og þar fékk listfengi hennar að njóta sín. Þá var henni mjög í mun að láta gott af sér leiða og þess nutu vinir hennar og fjölskylda. Hún var gjaf- mild og vildi launa fyrir sig, saumaði út í dúka og gaf vinum sínum, sendi þeim kvæði sem hún orti og ræktaði blómplöntur og grænmeti í garð- inum sínum sem hún færði þeim. Ljóst er af því sem hér hefur ver- ið rakið að fötlun, stéttarstaða, kyn og líkamsgerð leiddu til marg- þættrar mismununar í lífi Bíbíar og höfðu áhrif á sjálfsmynd hennar. Þrátt fyrir það hafði hinn einstaki persónuleiki Bíbíar, seigla hennar og andóf gegn aðkasti og fötlunar- fordómum ekki síður áhrif á það hvernig hún skilgreindi sig. Í sjálfs- ævisögu hennar kemur fram sterk lífslöngun og hún fann lífi sínu far- veg. Bíbí vann líka marga sigra á lífsleiðinni sem blésu henni kjark í brjóst. Þegar hún lítur yfir farinn veg í lokakafla sögu sinnar gleðst hún yfir því sem henni tókst að áorka í lífinu, ekki síst því að hafa með ýmsum hætti sannað hæfni sína og getu og um leið ögrað því van- mati sem hún mætti svo oft frá sam- ferðafólki sínu. Sjálfsævisaga Bíbíar veitir næsta sjaldgæfa innsýn í hugarheim og reynslu fatlaðrar manneskju sem var hornreka í íslensku samfélagi á 20. öld, hugarheim sem flestum er hulinn. Við þurfum sögur eins og Bíbíar til að öðlast skilning og breyta viðhorfum í garð þeirra sem á jaðrinum standa. Bandarísku fræðimennirnir Robert Bogdan og Stephen J. Taylor hafa bent á hve lífssögur fatlaðs fólks séu áhrifarík leið til að breyta viðhorfum okkar í því tilliti, enda kemst sá sem heyrir eða les söguna ekki hjá því að horfa fyrst og fremst á persónuleika og mennsku þeirrar manneskju sem segir sögu sína. Fötlunarstimplun og fordómar verða því lítilvægir í samanburði við áhrifamátt sjálfrar frásögunnar eins og sjálfsævisaga Bíbíar er einstakt dæmi um. Ósýnileg ör af völdum illsku mannanna Bókarkafli | Í bókinni Bíbí í Berlín er birt sjálfsævisaga Bjargeyjar Kristjánsdóttur (1927-1999). Hún veiktist sem barn og var stimpluð „fáviti“ af fjölskyldu sinni og sveitungum. Þegar móðir hennar féll frá var Bjargey þrítug og var flutt á elliheimilið á Blönduósi þar sem hún dvaldist næstu tvo áratugina. Um síðir flutti hún í þorpið og lifði í skjóli vina. Ljósmynd/Lilja og Sesselja Hauk Bíbí í Berlín Bíbí safnaði brúðum og gaf að lokum Þjóðminjasafni Íslands brúðusafnið sem taldi þá yfir hundrað brúður. Á myndinni má sjá hana ásamt hluta af brúðusafninu. Brúðurnar veittu henni ómælda gleði en framan af var henni strítt og hún skömmuð fyrir að leika sér að brúðum á fullorðinsaldri. Matur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.