Morgunblaðið - 23.05.2022, Síða 32
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
Svefn heilsa&
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
VANDAÐAR
SÆNGUROG
KODDAR Í
ÚRVALI
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
ÚRVALAF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
GERIÐ GÆÐA- OG
VERÐSAMANBURÐ
Skáldin Hannes Pétursson og Steinunn Sigurðardóttir
verða sæmd heiðursdoktorsnafnbót frá Íslensku- og
menningardeild Háskóla Íslands í Hátíðasal skólans í
dag, mánudag, kl. 14. Við athöfnina, sem stendur til kl.
15.30, verður fjallað um höfundana og lesið úr verkum
þeirra. Enn fremur munu þær Bryndís Halla Gylfadóttir,
sellóleikari, og Jóna G. Kolbrúnardóttir, sópransöng-
kona,flytja tónlist við athöfnina. Allir eru velkomnir á
athöfnina en auk þess verður hægt að fylgjast með
henni í streymi á vefnum hi.is.
Sæmd heiðursdoktorsnafnbót
MÁNUDAGUR 23. MAÍ 143. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Breiðablik er komið með fimm stiga forystu í Bestu
deild karla í fótbolta eftir nauman sigur á nýliðum
Fram, 4;3, á Kópavogsvelli í gærkvöld þar sem Omar
Sowe skoraði sigurmarkið rétt fyrir leikslok en Blikar
hafa unnið alla sjö leiki sína. Víkingar lögðu Valsmenn á
Hlíðarenda, 3:1, og komust upp fyrir þá, og þá sigruðu
Keflvíkingar FH-inga, 2:1. »26
Blikarnir með fimm stiga forystu
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Erlendir leikmenn hafa sett sinn
svip á íslenskt íþróttalíf um árabil.
Milan Stefán Jankovic er einn
þeirra. Hann var kjörinn besti
knattspyrnumaður Jógóslavíu 1989
og kom til Grindavíkur í ársbyrjun
1992, þá 32 ára, fyrst og fremst til
þess að kanna aðstæður. Hann er
hér enn, rúmlega 30 árum síðar, og
kann hvergi betur við sig. „Fjöl-
skyldunni hefur alla tíð liðið mjög
vel á Íslandi, sumarið er hvergi
betra en hérna og hér hef ég aldrei
upplifað mig sem útlending,“ segir
hann.
Jankó, eins og hann er kallaður, á
ættir að rekja til Serbíu, fæddist í
Króatíu og ólst upp í Bosníu, eins og
ríkjaskipanin hefur verið eftir að
Balkanstríðinu lauk um miðjan tí-
unda áratug liðinnar aldar. Áður en
hann kom til Íslands lék varnarmað-
urinn með júgóslavneska liðinu NK
Ozijek, sem nú er í Króatíu, í sjö ár
og þar af í fjögur ár með landsliðs-
miðherjanum Davor Šuker í fremstu
röð. „Šuker var markahæstur en ég
kom næstur,“ segir íslenski ríkis-
borgarinn hreykinn.
Áhrif í Grindavík
Jankó var í landsliðshópi Júgó-
slavíu fyrir HM á Ítalíu 1990 en sleit
krossband í síðasta leiknum með
Ozijek 1989 og var þar með úr leik.
„Allir eiga sér þann draum að spila á
HM og það voru auðvitað mikil von-
brigði að meiðast en svona er fót-
boltinn,“ segir hann æðrulaus.
Þegar Svavar Sigurðsson var for-
maður knattspyrnudeildar Grinda-
víkur var Gunnar, bróðir hans, alls-
ráðandi hjá Skagamönnum. Svavar
vildi styrkja lið sitt og leitaði ráða
hjá bróður sínum. Luka Kostic var
þá nýgenginn til liðs við ÍA og hafði
milligöngu um að Grindvíkingar
kræktu í fyrrverandi liðsfélaga sinn
hjá Ozijek. „Hann hringdi í mig
nokkrum sinnum og lengi vel sagðist
ég ekki hafa áhuga en hann gafst
ekki upp og að lokum sagðist ég vera
til í að koma í stuttan tíma,“ rifjar
Jankó upp. „Hann vildi ekki fá mig
sem mótherja og lagði áherslu á að
ég færi til Grindavíkur, sem var þá í
2. deild!“
Eftir að hafa leikið með Grindvík-
ingum næstu árin, verið valinn besti
leikmaður þeirra í þrjú ár og einu
sinni útnefndur íþróttamaður
Grindavíkur, sneri Jankó sér að
þjálfun eftir tímabilið 1998 og hefur
sinnt því starfi síðan. Lengst af í
Grindavík en líka í Keflavík, auk
þess sem hann er stuðningsfulltrúi í
Hópskóla Grindavíkur. Dijana Una,
kona hans, starfaði líka fyrir knatt-
spyrnudeildina en hefur unnið hjá
bænum undanfarin ár. Marko Valdi-
mar, sonur þeirra, spilaði fótbolta og
var m.a. í U-19 landsliðinu en er nú
aðstoðarþjálfari hjá Hønefoss í Nor-
egi og kvæntur Berglindi Ýri
Hrafnsdóttur úr Grindavík. Jovana
Lilja, dóttir Jankós og Dijönu, var
landsliðskona í körfubolta. Hún býr
líka erlendis en maður hennar er
Arnór Gunnarsson, atvinnumaður í
handbolta.
Knattspyrnudeild Grindavíkur
heiðraði fjölskylduna sérstaklega
fyrir skömmu vegna þessara tíma-
móta og fyrir það sem hún hefur lagt
af mörkum til bæjarfélagsins.
Grindavík varð í 3. sæti í 2. deild á
fyrsta tímabili Jankós og var það
besti árangur liðsins frá upphafi.
Sem þjálfari kom hann liðinu í
Evrópukeppni í fyrsta sinn og unn-
ust fyrstu tveir leikirnir 2001. „Það
er margs að minnast en upp úr
stendur hve gott er að búa í Grinda-
vík, að lifa lífinu á Íslandi. Móðir mín
er 84 ára og býr í Bosníu, við höfum
heimsótt hana árlega eða oftar frá
1996 og það er gott að eiga góða að á
báðum stöðum.“
Íslenskur Júgóslavi
- Milan Stefán Jankovic kann best við sig á Íslandi
Ljósmynd/Víkurfréttir
Heiður Fyrir heimaleik á dögunum færði Gunnar Már Gunnarsson, formað-
ur knattspyrnudeildar Grindavíkur, Jankó og Dijönu blóm og viðurkenn-
ingarskjal fyrir framlag fjölskyldunnar til UMFG í 30 ár.
Í Grindavík Davor Šuker, Dijana og Milan Stefán Jankovic.