Morgunblaðið - 15.06.2022, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 15.06.2022, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2022 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. VERONA, ÍTALÍA SÓL, MENNING & GÓÐUR MATUR FLUGEINGÖNGU39.900 KR. ÖRFÁ SÆTI LAUS BEINT FLUG 19. - 26. JÚNÍ VERÐ Á MANN 39.900 KR. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Umferð flugvéla um íslenska flug- stjórnarsvæðið og til Keflavíkurflug- vallar er óðum að færast til fyrra horfs eftir mikla lægð sem fylgdi kórónuveirufaraldrinum. „Flugumferðin eykst stöðugt. Við erum að nálgast sömu tölur á ís- lenska flugstjórnarsvæðinu og þær voru 2019. Það sem af er árinu er umferðin tæplega 90% af því sem hún var á sama tímabili 2019. Í síð- ustu viku var umferðin um svæðið jafnmikil og hún var að meðaltali á viku í júní 2019,“ sagði Kjartan Briem, framkvæmdastjóri Isavia ANS, dótturfélags Isavia ohf. Móð- urfélagið Isavia rekur Keflavíkur- flugvöll en dótturfélagið Isavia ANS sér um flugleiðsögu og rekur ís- lenska flugstjórnarsvæðið. Um það fer rétt rúmlega fjórðungur flugum- ferðar yfir Norður-Atlantshaf. Flug til Keflavíkurflugvallar hefur tekið hraðar við sér en flugið yfir hafið. Nú í apríl og maí var meira flogið til Keflavíkurflugvallar en í sömu mánuðum 2019, miðað við tölur Isavia ANS um aðflugsfjölda. Kjart- an telur þessa þróun vera mjög ánægjulega fyrir Ísland. Í þessum samanburði er miðað við árið 2019, síðasta heila árið áður en kórónuveirufaraldurinn brast á. Kjartan segir að þróun flugumferðar í gegnum íslenska flugstjórnarsvæð- ið um þessar mundir sé mjög svipuð því sem gerist á öðrum flugstjórn- arsvæðum yfir Norður-Atlantshafi. Flugumferðin breyttist í faraldr- inum. Mjög mikið dró úr farþega- flugi en vöruflug jókst. Einnig dró minna úr einkaflugi og flugi herflug- véla en farþegaflugi, þannig að flug- ferðum fjölgaði í heildina um tíma. Hlutfall farþegavéla, vöruflutninga- véla, einkavéla og herflugvéla hefur verið að færast til fyrra horfs á þessu ári. Flugumferð færist óðum til fyrra horfs - Mikil aukning í aðflugi til Keflavíkurflugvallar og yfirflugi Aðflug að Keflavíkurflugvelli í apríl og maí 2019 2020 2021 2022 jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. Þróun flugumferðar í loftrými Íslands 2019-2022 2019-2022 2019 2021 2020 2022 Heimild: Isavia ANS Einn af æðstu yfirmönnum banda- ríska sjóhersins, Michael Gilday að- míráll, var staddur hér á landi í gær. Átti hann fund með Þórdísi Kol- brúnu Reykfjörð Gylfadóttur utan- ríkisráðherra og fleiri íslenskum embættismönnum. Einnig skoðaði hann öryggissvæðið á Keflavíkur- flugvelli. Þá kynnti Gilday sér starfsemi Landhelgisgæslunnar. Georg Kr. Lárusson forstjóri og Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmdastjóri að- gerðasviðs, tóku á móti aðmírálnum í Skógarhlíðinni. Kynnti hann sér störf stjórnstöðvar Gæslunnar og fór ásamt fylgdarliði í æfingar og eftirlitsflug með þyrlusveitinni. Rætt er við Michael Gilday í Morgunblaðinu í dag. »10 Ljósmynd/Landhelgisgæslan Heimsókn Michael Gilday aðmíráll ræðir hér við Georg Kr. Lárusson, for- stjóra Landhelgisgæslunnar, í heimsókn sinni til Gæslunnar í gær. Kynnti sér starf- semi Gæslunnar - Bandarískur aðmíráll í heimsókn ALÞINGI Andrés Magnússon andres@mbl.is Nær linnulausir þingfundir standa yfir nú undir lok þingsins, langt fram á kvöld. Það gerist ekki aðeins í þingsöl- um, því í flestum skúmaskotum stinga menn saman nefjum til þess að reyna að ná saman um þau mál sem enn standa út af, sníða af agnúa og leysa lagatæknilegar flækjur sem upp koma eða gætu komið upp. Ágætlega hefur miðað og var fjármálaáætlun sam- þykkt í gær. Þingmenn sem Morgunblaðið ræddi við telja enn tvísýnt um þinglok, enn geti komið babb í bátinn og sum þing- mannamál hafi reynst snúnari en ætlað var. Stjórnarliðar og þingmenn stjórn- arandstöðu voru ekki á einu máli um á hverju helst gæti strandað, þó raunar nefndu þeir einnig sumir að andstæð- ingarnir hefðu reynst liprir og samn- ingsfúsir, enda langar vísast flesta þingmenn í sumarleyfi óháð því hvor- um megin gangsins þeir sitja. Enn getur kvarnast úr Stjórnarandstöðuþingmenn telja þó nær óhugsandi að unnt sé að afgreiða öll þau mál sem ríkisstjórnin vill koma í gegn, og af hálfu stjórnarinnar er mis- mikil stemning fyrir málum stjórnar- andstöðu þó þau fái þinglegan fram- gang. Líklegt er talið að frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson (C) um hjóna- skilnaði án undanfara verði afgreitt, nokkuð breytt, og eins kann frumvarp Helgu Völu Helgadóttur (S) að verða samþykkt. Miðflokkurinn hafði ekki verið aðili að þinglokasamkomulagi frá liðinni viku, en hefur nú einnig samið um þing- lokin gegn því að leigubílafrumvarp innviðaráðherra verði ekki afgreitt á þessu þingi. Hins vegar fer frumvarp dómsmálaráðherra um sölu áfengis á framleiðslustað í gegn, lítillega breytt. Samningar um þinglok hafa lengi tíðkast, en hafa ekki orðið einfaldari við fjölgun flokka á þingi. Þingmenn sem blaðið ræddi við sögðu stöðuna nú ekki ákjósanlega, en þetta væri hinn nýi raunveruleiki í þinginu og fátt sem benti til að þingflokkum fækkaði í bráð. Það kynni hins vegar að kalla á endur- skoðun þingskapa. Keppast við að semja um þinglok - Reynt að semja um mál og einfalda - Einhver þingmál geta enn dottið út - Fjármálaáætlun sam- þykkt - Miðflokkurinn einnig með - Samningar um þinglok ekki einfaldari við fjölgun þingflokka Morgunblaðið/Hákon Ramminn Mótmæli voru utan við Alþingishúsið meðan á umræðu um rammaáætlun stóð, en þingmenn umhverfisnefndar hittu mótmælendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.