Morgunblaðið - 15.06.2022, Page 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2022
Hrafnar Viðskiptablaðsins „telja
víst“ að Framsóknarflokk-
urinn sé stjórn-
málaafl háleitra
markmiða:
- - -
Flestum er í
fersku minni
þegar flokkurinn
boðaði fíkniefnalaust Ísland árið
2000 undir lok síðustu aldar.
- - -
Hrafnarnir sjá að Einar Þor-
steinsson, oddviti flokksins í
borginni, og hans fólk settu mark á
stjórnarsáttmála nýs meirihluta og
eru þar háleit markmið í fyrirrúmi.
- - -
Þannig er í sáttmálanum boðað að
allt ofbeldi verði upprætt undir
dyggri stjórn Dags B. Eggertssonar
og Einars en það ætla þeir að gera
með því að „taka enn stærri skref í
átt að ofbeldislausri Reykjavík með
því að hrinda nýrri aðgerðaáætlun
gegn ofbeldi hratt í framkvæmd“.
- - -
Hrafnarnir sjá að borgar-
stjórnarflokkur Framsóknar
er nú þegar farinn að bregðast
ákalli kjósenda sinna um breytingar
í stað innantóms orðagjálfurs.
- - -
Þess sjást skýr merki í sáttmálan-
um sem meðal annars kveður á
um að Reykjavík verði „aldursvæn
borg“ og styrkingu „rekjanleika
ákvarðana og með samþættu og
bættu aðgengi að þeim gögnum sem
er að finna í gagnagrunnum!!!“
Framsókn boðaði breytingar.
- - -
Stóra breytingin var að Dagur tók
við af sér þótt á annan tug pró-
senta kjósenda í borginni gerðu enn
atrennu til að losna við óværuna.
Borgarinnar vegna. Einar setti fót-
inn fyrir þann vilja borgarbúa og
braut þannig sitt einasta loforð. Það
gleymist seint.
Hvaða gömlu skref
gegn ofbeldi?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Stytta af Agli Gr. Thorarensen,
fyrsta kaupfélagsstjóra Kaupfélags
Árnesinga, verður afhjúpuð á Sel-
fossi á morgun, fimmtudag. Styttan
stendur við Austurveg, gegnt
Ölfusárbrúnni. Guðni Ágústsson, fv.
þingmaður og ráðherra, segir að
rætt hafi verið um það á Selfossi í
tvo áratugi að gera minnisvarða um
kaupfélagið og Egil.
Fyrir nokkrum árum hafi verið
stofnað félag, Styttubandalagið, um
styttu af Agli. Egill flutti að Sigtún-
um við Ölfusárbrú á árinu 1918 og
hóf að versla þar. Hann beitti sér
fyrir stofnun kaupfélags og seldi
verslun sína nýstofnuðu Kaupfélagi
Árnesinga 1930. Hann var kaup-
félagsstjóri og stjórnarformaður
Mjólkurbús Flóamanna og var einn
helsti áhrifamaður í atvinnumálum
og stjórnmálum á Selfossi og Suður-
landi.
Athöfnin á Selfossi hefst kl. 17 á
torginu í nýja miðbænum. Þar leikur
Lúðrasveit Selfoss og Karlakór Sel-
foss syngur ásamt Kristjáni
Jóhannssyni óperusöngvara. Ávörp
flytja Guðni Ágústsson, Fjóla Krist-
insdóttir, nýráðinn bæjarstjóri Ár-
borgar, og Ólafur Ragnar Grímsson,
fyrrverandi forseti Íslands.
Að því búnu munu nokkur barna-
barnabarnabörn Egils, öll búsett á
Selfossi, afhjúpa styttu Höllu Gunn-
arsdóttur af Agli.
Stytta af Agli Gr. Thorarensen afhjúpuð
- Styttubandalagið stendur fyrir „hátíðlegri heimkomu“ í tilefni atburðarins
Egill Gr.
Thorarensen
Guðni
Ágústsson
Alls 534 sem námu við Sjúkraflutn-
ingaskólann á árunum 2020-22 voru
brautskráðir á dögunum við athöfn í
Háskólanum á Akureyri. Þetta var
fyrsta útskriftin frá skólanum í þrjú
ár en slíkar athafnir voru í láginni
meðan á heimsfaraldri stóð. Að
þessu sinni útskrifuðust 224 frá
skólanum með grunnréttindi til
sjúkraflutninga. Þá útskrifuðust 85
með framhaldsmenntun í sjúkra-
flutningum og 225 sem vettvangs-
liðar.
Þrátt fyrir Covid hélst starfsemi
sjúkraflutningaskólans nokkuð þétt.
Árið 2020 skar sig þó úr með aðeins
27 námskeið með 238 nemendum.
Árið eftir, 2021, voru námskeiðin 54
með 560 nemendum og í ár hafa
verið haldin 32 námskeið með 282
nemendum. Auk þeirra námsleiða
er að framan greinir sinnir skólinn
endurmenntun fyrir heilbrigðis-
starfsfólk og stendur fyrir
endurlífgunarnámskeiðum. Þau eru
skv. Evrópuviðmiðum og ætluð heil-
brigðisstarfsfólki. Þá er í skólanum
sinnt fræðslu, bæði ný- og símennt-
un sjúkraflutningamanna, hjúkr-
unarfræðinga og lækna.
Menntun Nemendur og kennarar við útskrift í Háskólanum á Akureyri.
Eru sérmenntuð í
sjúkraflutningum
- Alls 534 brautskráðir á Akreyri
SKVÍSAÐU ÞIG UPP
FYRIR SUMARIÐ
STÆRÐIR 1428
Tankini toppur
10.990 kr
Stærðir 42-56
Sundbolur
9.990 kr
Stærðir 42-58
Sundbolur
12.990 kr
Stærðir 42-52
Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
SU ÖT
Frábært úrval af fatnaði í stærðum 42-60
Þú getur skoðað úrvalið og
pantað í netverslun www.curvy.is
Afgreiðslutímar í verslun Curvy
í Hreyfilshúsinu við Grensásveg
Alla virka daga frá kl. 11-18
og Laugardaga frá kl. 11-16